Morgunblaðið - 16.06.2020, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 6. J Ú N Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 140. tölublað 108. árgangur
#TILFYRIRMYNDAR
NÝR DEFENDER
HÖFÐAR TIL
ÓLÍKRA HÓPA
NÝR ÁFANGA-
STAÐUR Á
SUÐURLANDI
ATÓMSTÖÐIN –
ENDURLIT FÉKK
FERN VERÐLAUN
HELLAR VIÐ ÆGISSÍÐU 11 GRÍMAN AFHENT 28-29BÍLABLAÐIÐ
Ragnhildur Þrastardóttir
Alexander Gunnar Kristjánsson
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
Eitt af því sem sóttvarnayfirvöld ætla að
skerpa á hvað varðar komu farþega til lands-
ins er að fólk geymi það að faðma ástvini sína
þar til það hefur fengið niðurstöður úr sýna-
töku vegna kórónuveiru, að sögn Víðis Reyn-
issonar, yfirlögregluþjóns hjá almannavörn-
um. Í gær var fólki gert auðveldara að ferðast
til landsins þegar skimanir í Leifsstöð hófust.
Allir 900 farþegarnir sem hingað komu kusu
að fara í skimun frekar en tveggja vikna
sóttkví. Ferðalangar frá Færeyjum og börn
þurftu ekki að fara í skimun en Færeyjar og
Grænland voru tekin af lista yfir áhættusvæði
um miðjan maí.
Blaðamaður Morgunblaðsins var í Leifsstöð
þegar ferðalangar flykktust inn en eins og gef-
ur að skilja voru faðmlög áberandi þar sem
margir höfðu verið lengi án ástvina sinna.
„Við þurfum að koma skýrari skilaboðum til
fólks um það að á meðan það bíður eftir niður-
stöðum úr prófinu haldi það sig til hlés og
geymi það að faðma ástvini sína og sé ekki á
ferð í samfélaginu. Við fengum nokkrar
ábendingar um að fólk hefði ekki fengið nógu
skýr skilaboð um þetta og við bætum úr því,“
segir Víðir í samtali við Morgunblaðið.
Hann telur hið breytta fyrirkomulag hafa
gengið afar vel. „Við erum bara mjög sátt eftir
daginn. Það eru svona smávægilegir hnökrar
sem við sáum og löguðum þannig að þetta mun
ganga betur í framhaldinu.“
Frá og með gærdeginum varð lögreglu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Leifsstöð Fyrstu flugvélar eftir að skimanir hófust við landamærin lentu á Keflavíkurflugvelli í gær. Flestir farþegar fóru í skimun við komuna, sem þeim býðst ókeypis út þennan mánuð.
Betra að fólk geymi knús
Fagnaðarfundir í Leifsstöð eftir opnun landamæra Ætla að koma skilaboðum til fólks um að það
skuli geyma faðmlög Nýjar brottvísunarheimildir lögreglu tóku gildi eftir komu hóps Rúmena
heimilt að vísa þeim ferðamönnum úr landi
sem eru taldir ólíklegir til að fara í sóttkví,
hafni þeir boði um sýnatöku. Þær reglur voru
ekki í gildi þegar hópur Rúmena, sem talinn
er hafa brotið sóttvarnalög með því að van-
virða þá skyldu sína að fara í sóttkví, kom til
landsins. Nú skoða lögfræðingar sóttvarna-
læknis hvaða heimildir yfirvöld hafa til að vísa
þeim úr hópnum, sem ekki eru smitaðir, úr
landi.
MSkimuðu fyrir veiru í Lefisstöð »4, 6