Morgunblaðið - 16.06.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.06.2020, Blaðsíða 10
Morgunblaðið/Eggert Bruni Eldur logaði í flutningabílnum upp úr hádegi en slökkvistarf gekk greiðlega. Eldurinn kom upp í kælivél. Ekki var mikið um vörur í bílnum. Alexander Kristjánsson alexander@mbl.is Tveir slökkviliðsbílar voru sendir að höfuðstöðvum Mjólkursamsölunnar á Bitruhálsi í Reykjavík um klukkan tvö í gær er eldur logaði í flutninga- bíl fyrirtækisins. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og lauk slökkvilið störfum á vettvangi á innan við klukkustund. Að sögn Sunnu Gunn- ars Marteinsdóttur, upplýsingafull- trúa MS, kviknaði í kælivél í bílnum. Bílstjórinn slapp ómeiddur, en um- fang tjóns af völdum eldsins lá ekki fyrir síðdegis í gær. Flutningabílar fyrirtækisins eru jafnan fylltir á kvöldin og segir Sunna því ólíklegt að mikið hafi verið um vörur í bíln- um. Eldur í flutningabíl Mjólkursamsölunnar  Kviknaði í kælivél  Tjón liggur ekki fyrir 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 2020 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég er búin að sætta mig við að verða kannski bara alltaf á batavegi. Þá er ég þó á réttum vegi.“ Þetta skrifar Katrín Björk Guðjónsdóttir, 27 ára kona frá Flateyri, sem fékk þrisvar alvarlegt heilablóðfall fyr- ir nákvæmlega fimm árum og bloggar á síðuna katrin- bjorkgudjons.com um lífið í bataferli. Færsla hennar í gær ber yfirskriftina: „Hvort er ég að missa af lífinu eða endurheimta það.“ „Ég er áfram á góðum batavegi og legg mig alla fram við að ná sem mestum og bestum bata. Sigrarnir vinnast ennþá hægt en ég finn núna að hugurinn heldur ekki aft- ur af mér þegar vonbrigðin hellast yfir mig. Togstreitan milli óskhyggju og raunveruleikans sem blasti við mér lamaði mig áður og dró úr mér allan viljastyrk og kraft. Ég vildi bara verða eins og ég var áður, ná fullum bata svo ég gæti orðið ég sjálf aftur. Ég finn núna að ég er bara sú sem ég er í dag en ég get stefnt að því að bæta mig dag frá degi. Þessi áföll drógu kannski úr mér kraftinn, en ég hef náð sátt og finn bara fyrir óþrjótandi lífskrafti sem ég veit að ég get alltaf treyst á. Ég er ekki eins óþreyjufull og áður og er búin að sleppa öllum tímamörkum þó að viljastyrkurinn sé enn til staðar og jafnvel enn skýrari en áður.“ Gefin önnur spil Katrín Björk rifjar upp örlagadaginn: „Fyrir fimm ár- um síðan vaknaði ég einmitt þennan dag, þann 15. júní, heilum sólarhring of seint eftir að hafa fengið stórt heila- áfall sem var ekkert víst að ég myndi ná að lifa af. Þegar ég vaknaði heyrði ég og skildi allt það sem fram fór í kringum mig en ég gat ekki tjáð mig og ekkert hreyft nema annað augað. Mér finnst svolítið skemmtilegt að velta því fyrir mér hvort lífið hafi tekið á rás fram úr mér þennan dag eða hvort ég hafi á þessari stundu endurheimt lífið mitt. Ég hef alltaf notið þess að búa mér til stóra framtíðar- drauma sem kitla mig og hvetja mig áfram í tilverunni. Við áfallið brotlentu þeir allir. Ég hef alltaf haft svo gam- an af því að kynnast fólki og hlakkaði mikið til þess að prófa að búa í Reykjavík, fara í háskóla og klára nám, kynnast fólki, fara á djammið, spá í fötum, klæða mig og mála mig fallega og rækta vináttuna. Mig dreymdi um að halda áfram í söngnum og jafnvel komast í leiklist og fara með vinkonu minni í kór. Mig langaði að ferðast um allan heim, læra svo margt og kynnast því sem veröldin hefur upp á að bjóða. Þennan dag voru mér skyndilega gefin allt önnur spil. Ég gat ekki spjallað við fjölskyldu mína og vini þó að ég skildi allt sem fram fór í kringum mig. Ég gat ekki einu sinni átt samskipti í gegnum tölvu eða síma. Ég gat hvorki gengið, dansað, talað né sungið, ekki borðað eða fundið lykt og hvorki skrifað sjálf né flett bókum. Ég missti öll völd yfir líkama mínum. Smám saman fór mér fram þó sigrarnir ynnust hægt. Talmeinafræðingur kynnti mig fyrir stafaspjaldi sex vik- um eftir áfallið og þá fór ég að geta tjáð mig, fyrst með augunum og svo með því að benda á spjaldið. Þetta veitti mér styrk og kjark til þess að fikra mig áfram á bata- vegi.“ Lífið er ekki hugmynd Katrín Björk hefur allan tímann reynt að vera jákvæð og það hefur hjálpað henni að takast á við erfiðleikana. „Yfirleitt næ ég að halda í gleðina og viljastyrkinn. Árið 2019, þegar ég sá svo skýrt að batinn gæti ekki orðið eins hraður og ég óskaði mér, missti ég þó móðinn. Sem betur fer endurheimti ég styrkinn þegar ég uppgötvaði að lífið er ekki hugmynd heldur áþreifanlegur raunveruleiki sem getur stundum verið mjög sár en býður oftast upp á ótal tækifæri sem hægt er að njóta ef maður kemur auga á þau og hefur kjark til þess að fylgja þeim eftir. Ég nýt þess að vera úti í náttúrunni og finna fyrir fegurðinni allt í kringum mig. Ég nýt þess að vera með fjölskyldu og vinum og finna að flæðið í samskiptunum verður sífellt betra. Ég skrifa og les mér til ánægju, fer í æfingar, leik- hús, kynnist nýju fólki og er sýnileg. Ég hlakka til þess að vakna á morgnana. Ég hef svo sannarlega endurheimt lífið mitt.“ Hef svo sannarlega endurheimt líf mitt  Katrín Björk Guðjónsdóttir bloggar um andbyr og sigra Úti Katrín Björk Guðjónsdóttir nýtur þess að vera úti í náttúrunni og finna fyrir fegurðinni allt í kringum sig. Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is | Opið mán.-fös. 10-18 | Við sérsmíðum gluggatjöld sem passa fullkomlega fyrir þig og þitt heimili Z-Brautir og gluggatjöld Allt fyrir gluggana á einum stað Íslensk framleiðsla Endurmat Hafrannsóknastofnunar á afla grásleppu á fyrri árum leiðir í ljós að aflinn var meiri en miðað var við þegar Hafró gaf út ráðgjöf vegna grásleppuveiða á þessu ári. Það leiðir aftur til þess að hægt er hækka ráð- gjöf um hámarksafla og verður heild- arafli grásleppu væntanlega nálægt nýju ráðgjöfinni, miðað við þær heimildir sem veittar hafa verið til veiða. Hafró ráðlagði í sinni fyrri ráðgjöf að heildarafli grásleppu á vertíðinni í ár færi ekki fyrir 4.646 tonn. Mok- veiði á grásleppu við Norðaustur- og Norðurland og þokkalegar gæftir skiluðu miklum afla á land. Svo mikl- um að fyrr en varði var hámarksafla náð, áður en vertíð byrjaði af krafti við vestanvert landið. Flestir þeirra sem sátu eftir gera út þaðan, en þar hefur grásleppuvertíð jafnan byrjað síðar en fyrir norðan. Reyndar fengu þeir viðbótardaga og eru sumir enn að veiðum. Stjórnvöld fengu harkalega gagn- rýni frá forystumönnum sjómanna og sveitarstjórnum og atvinnuvega- nefnd Alþingis skoraði á ráðherra að óska eftir endurmati Hafrannsókna- stofnunar. Axel Helgason, fyrrver- andi formaður Landssambands smá- bátaeigenda og grásleppukarl, gagnrýndi aðferðirnar sérstaklega. Villur í útreikningi Vísindamenn Hafró fóru yfir málið en sáu ekki annað en þeir hefðu stað- ið rétt að málum. Guðmundur J. Ósk- arsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Hafró, segir að þeir hafi haldið áfram athugunum sínum og fundið villu í út- reikningi á afla fyrri ára. Það, ásamt endurmati með nýjum viðbótargögn- um og breyttri aðferðafræði, varð til þess að aflinn er metinn meiri en áð- ur og meðalvísitala veiðihlutfalls sem ráðgjöfin miðast við hækkaði úr 0,67 í 0,75 sem er saman hlutfall og gilti ár- in 2012-2019. Guðmundur segir að það sé tilviljun að hlutfallstalan varð nákvæmlega sú sama og áður. Ráðlagður hámarksafli í ár verður samkvæmt því 5.200 tonn sem er um 550 tonnum meira en í fyrri ráðgjöf. Aflinn er hins vegar þegar orðinn 5.035 tonn og einhverjir sjómenn enn að veiðum og telur Guðmundur að heildaraflinn verði nálægt ráðlögðum heildarafla. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Húsavík Sjómenn á Norður- og Norðausturlandi mokuðu upp grásleppunni á fyrrihluta vertíðar. Veiðar voru stoppaðar of seint svo aðrir kæmust að. Endurmat leiðir til aukins kvóta  Hafró vanmat grásleppuafla fyrri ára  Aflinn verður samt nálægt hámarki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.