Morgunblaðið - 16.06.2020, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 2020
✝ Gísli MatthíasSigmarsson
fæddist í Vest-
mannaeyjum 9.
október 1937.
Hann lést á Land-
spítalanum 6. júní
2020. Hann var
sonur hjónanna
Þórunnar Júlíu
Sveinsdóttur, f. 8.
júlí 1894, d. 20.
maí 1962, ættuð
frá Eyrarbakka, og Sigmars
Guðmundssonar frá Miðbæ,
Norðfirði, f. 28. ágúst 1908, d.
4. júlí 1989. Sigmar og Þórunn
eignuðust tvö börn saman, þau
Gísla Matthías og Guðlaugu
Erlu, f. 11. október 1942, d. 11.
maí 2005. Auk þess ólu þau
upp Sigmar Þór Sveinbjörns-
son, f. 23. mars 1946, til fjórtán
ára aldurs, eða þar til Þórunn
lést.
Sammæðra systkini Gísla
ára aldri. Afkomendur Gísla
Matthíasar og Sjafnar eru nú
47 talsins.
Ævistarf Gísla Matthíasar
var sjómennska og hóf hann
sjómennskuferil sinn í Vest-
mannaeyjum sem háseti 12 ára
og starfaði síðar sem kokkur,
vélstjóri, stýrimaður, skipstjóri
og útgerðarmaður.
Gísli Matthías var útnefndur
heiðursfélagi Skipstjóra- og
stýrimannafélagsins Verðandi
árið 1998 og árið 2014 voru
hjónin Gísli Matthías og Sjöfn
Kolbrún útnefnd Eyjamenn árs-
ins af Eyjafréttum. Árið 2018
var Gísli Matthías sæmdur
þjónustumerki Bandalags ís-
lenskra skáta úr gulli sem veit-
ist þeim skáta sem unnið hefur
skátahreyfingunni sérlega mik-
ið gagn og starfað af dugnaði
og fórnfýsi.
Útför Gísla Matthíasar Sig-
marssonar fer fram frá Landa-
kirkju í dag, 16. júní 2020,
klukkan 14. Streymt verður frá
útförinni á vef Lindakirkju.
Slóð á streymið er https://
www.landakirkja.is/
Hlekk á streymið má nálgast
á www.mbl.is/andlat
voru Ingólfur Sím-
on, f. 17. des. 1916,
d. 18. okt. 1999,
Sveinn, f. 14. ágúst
1918, d. 15. nóv.
1998, Óskar, f. 22.
mars 1921, d. 21.
des. 1992, Gísli, f.
17. apríl 1925, d.
27. maí 1933, og
Matthildur Þórunn,
f. 13. júní 1926, d.
6. nóv. 1986.
Gísli Matthías kvæntist Sjöfn
Kolbrúnu Benónýsdóttur, f. 15.
apríl 1937, á sjómannadaginn
1960. Börn þeirra eru: Sigmar,
f. 27. des. 1957, Katrín, f. 1.
mars 1960, Benóný, f. 27. júlí
1962, Grímur Þór, f. 22. des.
1964, Gísli Matthías, f. 15. maí
1973, Sigurður Friðrik, f. 2.
mars 1975, og Frosti, f. 13. des.
1977. Sigmar Þór Sveinbjörns-
son ólst upp hjá þeim hjónum
Gísla Matthíasi og Sjöfn frá 14
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Faðir minn Gísli Matthías
Sigmarsson var einstaklega góð-
ur maður og bjó yfir fjölmörgum
kostum.
Pabbi minn var mikill öðling-
ur og hvers manns hugljúfi.
Hann var mikill dugnaðarforkur
og ávallt tilbúinn að koma til
hjálpar ef eitthvað bjátaði á hjá
hverjum sem er. Hann var mjög
ósérhlífinn, duglegur, samvisku-
samur og sanngjarn. Pabbi var
réttsýnn og einstaklega hjálp-
samur maður.
Hann gerði ýmiskonar góð-
verk án þess að láta nokkurn
mann vita af því eða hreykja sér
af því á nokkurn hátt.
Hann var jákvæður maður og
talaði vel um fólk en honum mis-
líkaði þegar fólk misnotaði völd
gegn minni máttar. Pabbi var
mikill jafnaðarsinni og var mikill
talsmaður þess að skipta auð-
æfum jafnar á milli fólks.
Hann pabbi minn hefur ætíð
reynst mér vel og staðið vel við
bakið á mér og öllum mínum
ákvörðunum. Hann hefur ætíð
hvatt mig áfram til að fylgja
minni sannfæringu og gera það
sem rétt er. Sem sjöunda barn
naut ég mikils frelsis í uppeldinu
og mátti raunverulega gera hvað
sem mig langaði til, svo fram-
arlega sem ég myndi ekki nota
eiturlyf og myndi láta foreldrana
vita hvar ég væri hverju sinni.
Það traust sem ég naut var mér
sérlega mikilvægt.
Pabbi sýndi umhyggju og
kærleika sinn í verki með þeim
hætti að standa alltaf með manni
og hjálpa til við hvers lags fram-
kvæmdir eða áskoranir sem lágu
fyrir.
Pabbi var frábær fyrirmynd
og hafði gaman að lífinu og með
hans skemmtilega húmor og
stríðni var alltaf gaman að vera í
kringum hann.
Pabbi var mjög barngóður og
þótti barnabörnunum og öðrum
börnum gaman að vera í kring-
um hann og leiddist honum ekki
að leika við þau, stríða og hlæja
með þeim.
Pabbi hafði alltaf gaman af
hlutunum og honum fannst
óþarfi að taka sig eða aðra of al-
varlega, hann kom eins fram við
alla og fannst það í góðu lagi að
fíflast svolítið við hin ýmsu tæki-
færi.
Hann tókst á við erfið verk-
efni með yfirvegun og jákvæðni
og aldrei var meinbugur á hon-
um. Pabbi var skáti og studdi vel
við bakið á mér og okkur í skáta-
starfinu og ávallt tilbúinn að
koma í sjálfboðaliðastarfi til
hjálpar við ýmiss konar bras og
viðhald á eignum og svæði
skátafélagsins.
Það eru mikil forréttindi að fá
að alast upp í stórum systkina-
hópi af svona traustum foreldr-
um en þau eiga einmitt 60 ára
brúðkaupsafmæli um þessar
mundir, og ást þeirra og virðing
hvors til annars var ákaflega
gott veganesti út í lífið.
Pabbi er mér mikil fyrirmynd
og er ég svo stoltur og þakklátur
fyrir allan okkar tíma og sam-
veru og allt sem hann og móðir
mín hafa gert.
Takk fyrir allt elsku pabbi
minn.
Þinn
Frosti.
Elsku Gísli. Það er erfitt að
skrifa þetta og hugsa sér að þú
sért farinn. Að þú komir ekki inn
um dyrnar með gleði þinni og
brosi. En þú ert með okkur í
minningum og í hjarta okkar.
Við eigum eftir að sakna þín
mikið. Við Frosti erum enda-
laust þakklát fyrir þann tíma
sem þú varst með okkur og
börnunum okkar og alla hjálpina
í gegnum tíðina.
Við erum heppin að hafa átt
þennan tíma með þér.
Takk fyrir allt elsku Gísli okk-
ar, við elskum þig.
Ingibjörg Grétarsdóttir.
Elsku besti afi Gísli okkar.
Mikið er sárt að þurfa að skrifa
þessi orð. Þú varst dýrkaður og
dáður af öllum enda varstu alltaf
til staðar og alltaf mættur fyrst-
ur í hvaða verk sem er. Við höf-
um alltaf verið stolt af því að
vera barnabörn þín og ömmu
Bobbu, enda dugnaðarforkar og
við vitum hvaðan þessi kraftur í
fjölskyldunni kemur. Það var
líka alltaf stutt í stríðnina og
grínið hjá þér og gott að hugsa
til baka og sjá fyrir sér glettn-
issvipinn þinn. Þegar þú tókst
upp tóbakshornið þitt fyrir
framan barnabörnin grínaðistu
með það að hnerra svakalega
hátt og fékkst alla með þér til að
hlæja með smitandi hlátri þín-
um. Langafabörnunum finnst
líka alltaf gaman að koma til
ömmu og afa á Faxó að leika
með bílana, sjá hinar ýmsu verur
eins og blístrandi páfagauk og
jólasveina með ljósi og nammi.
Það er allt gert til að gleðja
börnin.
Elsku afi, við erum þákklát
fyrir það að hafa getað kvatt þig
þó svo að það hafi verið mjög
erfitt. Ein af síðustu orðunum
þínum voru þau að þegar við
vorum að fara spurðir þú okkur
hvort þú ættir ekki að skutla
okkur og spurðir hvað við segð-
um gott þrátt fyrir að hafa verið
mikið veikur. Það er í þínum
anda að hugsa um aðra og bjóða
fram aðstoð. Þú varst alltaf með
mikla réttlætiskennd, vildir að
allir væru sanngjarnir og góðir
hver við annan. Auðvitað vild-
irðu líka að allir myndu njóta og
hafa gaman. Elsku yndislegi afi
Gísli, takk fyrir allt sem þú hef-
ur kennt okkur. Þú varst okkur
svo mikilvægur og þín verður
sárt saknað. Við munum öll
passa vel upp á og hlúa að ömmu
Bobbu fyrir þig.
Hvíldu í friði elsku afi.
Þín barnabörn,
Sjöfn Kolbrún Benón-
ýsdóttir, Guðrún Benón-
ýsdóttir og Sigurður
Grétar Benónýsson.
Elsku afi Gísli er farinn. Hann
var rosa góður maður, skemmti-
legur fyndinn og jákvæður.
Hann hjálpaði mörgum og líka
okkur.
Takk fyrir allt elsku afi.
Við elskum þig.
María Fönn, Tinna
Mjöll, Bjartey Dögg
og Sandra Dröfn
Frostadætur.
Gísli Matthías Sigmarsson
skipstjóri er látinn 82 ára að
aldri.
Ævistarf Gísla Matthíasar var
sjómennska, hann byrjaði sinn
starfsferil sem kokkur á mat-
stofu en síðan lá leið hans á sjó-
inn. Hann starfaði sem vélstjóri
fyrstu árin á Leó VE 294 og Leó
VE 400.
Árið 1958 fékk Gísli 120 tonna
réttindi til skipstjórnar, en var
vélstjóri þar til hann hóf skip-
stjórn með Gullþóri VE 39, þar
með hófst farsæll skipstjórnar-
ferill hans. Eftir að hann lauk
skipstjórnarnámi II. stigi starf-
aði Gísli sem stýrimaður og skip-
stjóri á Leó, og skipstjóri og út-
gerðarmaður á Elliðaey VE 45
og Katrínu VE 47.
Gísli var kosinn heiðursfélagi
Ss Verðandi 1998 og árið 2014
voru Gísli og Sjöfn Kolbrún
(Bobba) kona hans kosin Eyja-
menn ársins af Eyjafréttum, þau
áttu það svo sannarlega skilið að
mínu mati. Ég byrjaði minn sjó-
mannsferil með Gísla á Gullþóri
VE 39 á vetrarvertíð 1963. Ég
var mjög sjóveikur, en þar var
góður mannskapur um borð sem
gott var að byrja með til sjós.
Seinna vorum við Gísli saman
á Leó og mörg ár var ég vél-
stjóri og stýrimaður hjá honum
á Elliðaey. Það var gott að vera
með Gísla, hann var öruggur sjó-
maður, gætinn og góður skip-
stjóri, sem fiskaði vel og maður
sem ég treysti. Ég á góðar
minningar frá þessum árum.
Við ólumst upp saman þegar
ég var tekinn í fóstur til ömmu
Þórunnar, mömmu Gísla, en
þegar hún dó flutti ég til Gísla
og Bobbu 14 ára gamall og var
þar í 10 ár. Ég hef oft hugsað
um það hvað ég var heppinn og
er þakklátur fyrir að hafa fengið
að vera einn af fjölskyldunni á
Faxastíg 47 þar sem alltaf var líf
og fjör. Ég fann það svo vel að
ég var velkominn inn á þetta
góða heimili og get eflaust aldrei
fullþakkað það.
Mér er minnisstætt þegar
Gísli gaf mér fyrsta reiðhjólið
mitt. Hann var þá að vinna á
matstofu Vinnslustöðvarinnar
sem kokkur og kallaði mig þang-
að niður eftir, ég hafði stundum
verið að hjálpa til á matstofunni
við uppvask og fleira og hélt að
hann ætlaði að fá mig í það. En
þegar ég mætti var Gísli búinn
að kaupa nýtt Fálka-reiðhjól
sem hann gaf mér þar á staðn-
um.
Ég gleymi þessum degi aldrei,
þetta var ein af mörgum gjöfum
sem hann gaf mér á yngri árum.
Öll árin sem ég var með honum
á Elliðaey kom hann færandi
hendi fyrir jól með ölkassa, malt
og appelsín og oft epli og appels-
ínur, já hann var alla tíð gjaf-
mildur og hjálpsamur í alla staði.
Blessuð sé minning þín elsku
frændi og takk fyrir allt sem þú
hefur gert fyrir mig og mína, ég
á eftir að sakna þín mikið.
Sjöfn Kolbrún og fjölskylda,
innilegar samúðarkveðjur til
ykkar.
Sigmar Þór Sveinbjörnsson.
Elsku Gísli frændi okkar,
þessi duglegi, góðlegi og glaðlegi
maður, er allur.
Við brustum öll í grát er við
fengum fréttirnar en þakklæti er
okkur þó efst í huga fyrir
skemmtilegan tíma sem við átt-
um saman og hve Gísli átti góða
og langa ævi. Gísli var albróðir
mömmu okkar, Erlu Sigmars
heitinnar. Hann var sá síðasti til
að kveðja í myndarlegum systk-
inahóp þeirra og það verður sko
skálað þegar þau koma öll sam-
an hjá himnaföðurnum. Sam-
band þeirra Gísla og mömmu
var einkar samheldið og mikill
systkinakærleikur ríkti. Við vor-
um því heppin að fá tækifæri til
að kynnast þeim heiðurshjónum
Bobbu og Gísla og góður vin-
skapur ríkti fjölskyldna okkar á
milli sem kallaðar voru Faxóliðið
og Bröttóliðið.
Það er margs að minnast, sér-
staklega minnumst við þó með
gleði í hjarta: heimsókna okkar á
Faxó á aðfangadagskvöld þar
sem stemning ríkti langt fram á
nótt, rúnta á flottu Volvo-unum
og við montin að vera með skip-
stjóranum, þegar við krakkarnir
notuðum dívanana til að renna
niður alla stigana á Faxó, hve
gaman var þegar Gísli bauð okk-
ur stelpunum upp í dans, hve
lærdómsríkt var fyrir okkur
strákana að fylgjast með Gísla af
bryggjunni þar sem hann lét
verkin tala.
Mest minnumst við þó og
þökkum áhuga, trú og góð-
mennsku Gísla í okkar garð sem
var einstök.
Elsku Bobba og allt Faxóliðið,
við vitum að missir ykkar er
mikill. Megi góður Guð gefa
ykkur styrk og megi minningin
lifa um góðan mann með stórt
hjarta. Sannkallað kærleiksljós
og sönn fyrirmynd í lífsins leik
og starfi.
Systkinin munu nú passa
hvort annað brosandi saman
sínu fallega brosi.
Jörgen pabbi okkar sendir
einnig dýpstu samúðarkveðjur
og minnist hlýlega góðs drengs,
vinar og mágs.
Dans gleðinnar
Það er svo margt að una við,
að elska, þrá og gleðjast við,
jafnt orð, sem þögn og lit sem lag,
jafnt langa nótt, sem bjartan dag.
Mér fátt er kærra öðru eitt
ég elska lífið djúpt og heitt,
því allt, sem maður óskar, næst
og allir draumar geta ræzt.
Ég byggi hlátraheima
í húmi langrar nætur.
Af svefni upp í söngvahug
með sól ég rís á fætur.
Og augun geisla af gleði
sem grær í mínu hjarta.
En syrti að ég syng mig inn
í sólskinsveröld bjarta.
(Kristján frá Djúpalæk)
Minning þín lifir í hjörtum
okkar,
Sigmar Þröstur Ósk-
arsson, Þórunn Jörg-
ensdóttir, Auðunn
Jörgensson og Laufey
Jörgensdóttir.
Við vorum fæddir í sömu vik-
unni; ég 4. en hann 9. október
1937. Ekki veit ég hvenær fund-
um okkar bar saman en mér
finnst eins og við höfum alltaf
þekkst. Kannski hafa mæður
okkar átt einhvern þátt í því.
Fjölskylda Gísla bjó á Brekastíg
15a en við á Boðaslóð 5. Boða-
slóðin var eiginlega ekki til
nema á teikniborðinu, en það var
í leiðinni þegar við fórum í bæ-
inn að skjótast inn hjá Tótu á
heimleiðinni. Ég man eftir því að
við vorum kölluð inn í nýsoðið
slátur.
Við Gísli lékum okkur oft
saman. Það var upplagt að
leggja undir sig hús í smíðum
eins og tíðkaðist á þessum tíma.
Við fórum báðir í fjögurra
mánaða vélstjóraskóla og eins
var það með stýrimannaskólann.
Páll Þorbjörn (Palli krati) var
skólastjóri og kennari en Friðrik
Ásmundsson var kennari. Það
hafði stefnt í vandræði því það
voru svo margir á undanþágum
svo það var tekið fyrir að stofna
skóla sem gaf 120 tonna réttindi.
Það var skrautlegur hópur 40
manna sem sat skólann. Það er
sérstaklega minnisstætt hvað
margir voru ósyndir. Þeir urðu
að gjöra svo vel að læra sund um
miðjan vetur í lélegri sundlaug.
Það beið topppláss eftir Gísla
þegar hann var kominn með vél-
stjóraréttindi, en það var að ger-
ast vélstjóri (mótoristi eins og
það var kallað) á Leó hjá hálf-
bróður sínum Óskari Matthías-
syni. Það hefur verið erfitt en
hann stóð það af sér ungling-
urinn.
Nokkrir voru farnir að
byggja, festa ráð sitt og jafnvel
hlaða niður börnum 16 ára.
Bobba og Gísli eiga sjö mann-
vænleg börn og einhver barna-
börn.
Loksins kom að því að ég og
æskuvinur minn yrðum saman á
bát. Hann var orðinn skipstjóri
(formaður) á Gullþóri VE 39. Í
skipshöfn voru: Gísli skipper,
Sigurður Stanley vélstjóri,
Bjarni stýrimaður, Sigmar Þór
Sveinbjörnsson, danskurinn
(eins og við kölluðum þann
danska) og Jón Þórðarson kokk-
ur, maður Oddnýjar Benónýs-
dóttur.
Í seinni tíð hefur Gísli heim-
sótt mig öðru hvoru. Það var
eins og hann vildi styrkja vin-
áttuböndin. Auðvitað heimsótti
ég þau Bobbu og Gísla þegar
þau voru komin á neðri hæðina á
Faxastíg 47, en ég hefði getað
gert betur.
Kolbrún Sjöfn Benónýsdóttir,
ég votta þér og þínu fólki samúð
mína.
Bjarni Jónasson.
Gísli Matthías
Sigmarsson
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma
og systir,
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR
frá Deildartungu,
Birkigrund 63,
lést 13. apríl og fór útför hennar fram í
kyrrþey 30. apríl. Minningarathöfn verður haldin í
Langholtskirkju mánudaginn 22. júní klukkan 13.
Jón Finnbjörnsson Erla S. Árnadóttir
Guðrún Hrönn Jónsdóttir Ragnar Steinn Ólafsson
Birna S. Jónsdóttir Einar Ingi Davíðsson
barnabarnabörn
Ragnheiður Jónsdóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
INGIMUNDUR KRISTJÁN
INGIMUNDARSON
skipstjóri,
Mánatúni 4,
sem lést 7. júní, verður jarðsunginn frá
Áskirkju föstudaginn 19. júní klukkan 15.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á styrktarreikning
Fríðuhúss: 515-14-408833, kt. 430101-3580.
Hafdís Ingimundardóttir Þórir B. Guðmundsson
Ólöf Ingimundardóttir Þorvaldur G. Geirsson
Ingimundur Þ. Ingimundars. Sigríður Á. Sigurðardóttir
S. María Ingimundardóttir Friðgeir Halldórsson
Þorvaldur Ingimundarson Rós Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn