Morgunblaðið - 16.06.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 16.06.2020, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 2020 Borgarstjóri og meirihlutinn í Reykja- vík vinna leynt og ljóst að því að koma Reykja- víkurflugvelli burt úr Vatnsmýrinni þrátt fyrir að gerður var samningur 28. nóv- ember á síðasta ári milli ríkis og borgar um að rekstraröryggi flugvallarins yrði tryggt á meðan rannsóknir á mögu- leikum á nýjum flugvelli í Hvassa- hrauni færu fram. Borgaryfirvöld hafa beitt öllum brögðum til að lama starfsemi vallarins og nýjasta útspilið í þeim efnum eru fyrirætlanir um að rífa flugskýli sem er viðhaldsstöð Flugfélagsins Ernis sem heldur úti áætlunarflugi til fimm áfangastaða á landinu auk þess að sinna sjúkraflugi og líffæraflutningum. Í fréttum Stöðvar 2 föstudags- kvöldið 5. júní sl. var frétt um málið og viðtal tekið við forstjóra flug- félagsins sem skýrir frá því að fulltrú- ar borgarinnar hafi á fundi þann 30. apríl sl. tilkynnt að flugskýlið yrði rif- ið án bóta svo leggja mætti veg á þeim stað þar sem skýlið stendur nú vegna framkvæmda við fyrirhugaða byggð í Skerjafirði. Viðbrögð borgarstjóra og for- manns skipulags- og samgönguráðs borgarinnar voru á þann veg að um væri að ræða fullkomlega ástæðu- laust upphlaup. Haft hafi verið sam- band við verkfræðistofu og stofan beðin um að finna aðrar leiðir en þær að leggja veginn í gegnum flugskýlið. Sunnudagsmorguninn 7. júní birt- ist svo frétt á visir.is þar sem fund- argerð fundar fulltrúa borgarinnar með forstjóra flugfélagsins er reifuð. Þar kemur fram að flugskýlið sem slíkt yrði ekki nothæft þar sem það myndi enda utan girðingar eftir að framkvæmdir við nýja Skerjafjarð- arhverfið hefjast. Flugvallargirðingin yrði færð þannig að flugskýlið stæði fyrir utan girðingu. Fundargerðin endar svo á því að fulltrúi borg- arinnar býðst til þess að skoða málið betur, en telur þó víst að búið sé að því. Teikningin sem sýnd var á fundi skipulags- og samgönguráðs þann 4. júní sl. er sjálfsagt skýrasta dæmið um að borgin hafi skoð- að málið betur, en ekki komist að annarri nið- urstöðu en forstjóra Flugfélagsins Ernis var kynnt á fundinum 30. apríl. Það eru auðvitað ótal hlutir í vinnubrögðum borgarinnar í þessum málum sem krefjast frekari skoðunar. Fyrir það fyrsta t.d. þá hafa borgaryfirvöld lýst því yfir að framkvæmdirnar í Skerjafirð- inum muni ekki á nokkurn hátt skerða flugstarfsemi á flugvellinum. Sú fullyrðing rímar ansi illa við það að einn mikilvægasti þátturinn í starf- semi flugvallarins verður settur utan girðingar og verður þar með ekki hluti flugvallarins eða þeirrar starf- semi sem ekki á að skerða. Flugfélag án flugskýlis er dauðadæmt dæmi. Eins hlýtur það að vera hverjum manni ljóst að ákvörðun um niðurrif flugskýlisins hefur verið tekin og borgin ekki enn að minnsta kosti hugsað sér að breyta einhverju þar um, sé enn og aftur vitnað til um- rædds fundar í skipulags- og sam- gönguráði borgarinnar. Það er því skondið að sjá nú hvern meðhlaupara á fætur öðrum í meiri- hluta borgarstjórnar taka Trump- stílinn í umræðu um þetta mál og hrópa: „Falsfréttir, falsfréttir“. Mögulega er það þó þannig að þegar fólk hefur slæman málstað að verja, eins og reyndar gerist oftar en ekki með herra Trump, þá sé gripið til upphrópana um falsfréttir, misskiln- ing og rangfærslur. Enn sem komið er eru þó viðbrögð borgarstjórnarmeirihlutans í raun ekkert annað en falsfréttir og rang- færslur! Eftir Björn Gíslason Björn Gíslason »Mikilvægasti hluti flugvallarins verður utan flugvallargirð- ingar. Flugfélag án flug- skýlis er dauðadæmt dæmi. Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Reykjavíkurflug- völlur og Trump-stíllinnEitt af umdeildumálunum þessa dag- ana er tilvist fiskeldis á Íslandi. Laxeldi er ung atvinnugrein á Íslandi sem gæti haft mikla þýðingu fyrir efnahag landsins í ná- inni framtíð ef rétt verður á málunum haldið. Á árinu 2019 var framleiðsla á lax- fiskum á Íslandi um 28 þúsund tonn. Það þykir ekki stór tala í heimi laxeldis. Þannig eru frændur okkar Færeyingar farnir að fram- leiða um 100 þúsund tonn og Norð- menn framleiða um 1,3 milljónir tonna. Stefna Norðmanna er að framleiða fimm milljónir tonna af laxi fyrir árið 2030. Ef ekki verður hröð breyting á mun Ísland sitja eftir í samkeppninni um hylli neyt- enda á markaði fyrir laxaafurðir. Löggjafinn hefur sett skýrar reglur um þá ferla sem þurfa að fara fram áður en sótt er um leyfi til laxeldis. Þannig þarf Hafrann- sóknastofnun að gera áhættumat og burðarþolsmat til að hægt sé að meta hvort raunhæft sé að leyfa laxeldi á viðkomandi svæði. Til að þroskuð um- ræða geti farið fram þarf þessari vinnu að vera lokið. Árið 2017 lýsti þá- verandi sjávarútvegs- ráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, því yfir að vinna við áhættumat og burð- arþolsmat fyrir Eyja- fjörð væri á lokametr- unum. Áhugasamir aðilar hófu undirbúning að því að sækja um leyfi fyrir laxeldi í Eyjafirði ef slík leyfi yrðu gefin út. Eitt af þessum fyrirtækjum lýsti yfir áhuga á að vera með starfsstöð í Ólafsfirði. Nú, um þremur árum síðar, hefur ekkert bólað á áhættu- mati eða burðarþolsmati fyrir Eyjafjörð. Leiða má að því líkur að hvort tveggja matið sé að mestu tilbúið hjá Hafrannsóknastofnun. Það verður hins vegar ekki birt fyrr en Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra kallar eftir því. Það hyggst ráðherrann ekki gera. Á sama tíma hvetur ráðherrann viðkomandi sveitarfélög til að taka afstöðu til laxeldis í Eyjafirði án þess að sveitarstjórnarmenn hafi aðgang að undirstöðuupplýsingum. Við þær aðstæður getur aldrei orðið upplýst umræða um málefnið. Það telst varla eðlileg stjórnsýsla að ráðherra geti haldið áhættumati og burðarþolsmati í gíslingu til að hefta upplýsta umræðu. Það eru vinnubrögð sem tilheyra þjóð- félögum sem við viljum helst ekki að Ísland sé borið saman við. Nú þegar útlit er fyrir að halli á ríkissjóði Íslands verði tæpir fimm hundruð milljarðar á næstu tveim- ur árum þarf að nýta öll skyn- samleg tækifæri til að afla nýrra gjaldeyristekna. Laxeldi gæti átt stóran þátt í að rétta af efnahag- inn. Við þessar aðstæður gengur það ekki upp að ráðherra með ein- hverja sérhagsmuni haldi aftur af eðlilegri þróun. Það er því brýnt að ríkisstjórnin grípi fljótt inn í og tryggi eðlileg vinnubrögð hvað varðar málefni laxeldis. Upplýst umræða Eftir Róbert Guðfinnsson Róbert Guðfinnsson » Laxeldi gæti átt stóran þátt í að rétta af efnahaginn. Höfundur er athafnamaður á Siglufirði. Í dag, þriðjudaginn 16. júní, fer fram aðal- fundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB) á Hót- el Sögu í Súlnasal kl. 14, þar sem kosið verð- ur um nýjan formann og stjórn. Málefni eldri borgara eru mín hjart- ans mál og því gef ég kost á mér í embætti formanns. Hópur eldri borgara er orðinn stór, en þeir búa svo sannarlega ekki allir við sömu kjör. Kjaramál og skerðingar taka mikið rými í um- ræðunni meðal manna og sérlega þessa dag- ana vegna uppgjörs frá Tryggingastofnun rík- isins sem barst um sl. mánaðamót. Sem liðsmaður Gráa hersins og í hópi þeirra sem eru í málaferlum við ríkið vegna skerð- inganna mun ég að sjálfsögðu halda mál- inu á lofti og baráttunni áfram fyrir réttlæti og bættum hag eldri borg- ara. Húsnæðismálin eru líka ofarlega á baugi og þar er umræðan aðallega um hve dýrt húsnæðið er sem byggt hefur verið undanfarið fyrir eldri borgara og sama hvort talað er um leiguhúsnæði eða til kaups. Það þarf að mæta kröfum og þörfum stærri hóps sem minna hefur á milli hand- anna. Gera þarf hagstæða samninga við Reykjavíkurborg um lóðir og gjöld og byggingaraðila til að byggja húsnæði fyrir þá sem minna hafa og á verði sem þeir ráða við. Það er sama hvort það er leiguhúsnæði eða til kaups, verðið verður líka að mið- ast við forsendur þeirra sem minna hafa á milli handanna. Það þarf að huga vel að þessum hópi ekki síður en námsmönnum. Skortur á hjúkrunarheimilum hef- ur verið viðloðandi lengi og sann- arlega mikil þörf á viðbótum svo þeir einstaklingar sem þurfa talsverða hjúkrun þurfi ekki að búa á sjúkra- húsi við gjörólíkar aðstæður en bjóð- ast á hjúkrunarheimilum. Heimilisaðstoð, sjúkraþjálfun og jafnvel hjúkrunarþjónusta í heima- húsum á að vera sjálfsögð mannrétt- indi fyrir eldri borgara. Það léttir jafnframt á hjúkrunarheimilum og sjúkrastofnunum og bæðir líðan og eykur lífsgæði eldri borgara Það sem ég ætla að leggja ríka áherslu á til að byrja með er eftirfar- andi: 1. Skerðingar og kjaramál 2. Húsnæðismál eldri borgara 3. Hjúkrunarheimili og heimilis- aðstoð. Það eru mörg fleiri brýn mál sem varða eldri borgara sem þörf er á að taka á. Í stórum hópi eldri borgara eru mismunandi þarfir og líta þarf til fjölmarga einstaklinga og mæta þörfum flestra. Við viljum öll fá að lifa við sómasamlegar aðstæður seinni hluta ævinnar og geta átt áhyggjulaust ævikvöld. Ég berst fyrir auknum lífsgæðum fyrir eldri borgara Eftir Ingibjörgu H. Sverrisdóttur » Sem liðsmaður Gráa hersins og í hópi þeirra sem eru í málaferlum við ríkið vegna skerðinganna mun ég að sjálfsögðu halda málinu á lofti Ingibjörg H. Sverrisdóttir Höfundur er í framboði til formanns hjá Félagi eldri borgara 16. júní 2020. ihs@mi.is Vantar þig pípara? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.