Morgunblaðið - 16.06.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.06.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Sagði af sér formennsku  Sakar meirihlutann um valdníðslu  Þrír nefndarmenn ekki treyst Þórhildi Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þing- maður Pírata, sagði í gær af sér for- mennsku í stjórnskipunar- og eft- irlitsnefnd Alþingis. Sagði hún tilraunir minnihluta nefndarinnar til að sinna eftirlitshlutverki hennar einungis hafa orðið meirihlutanum efni til „valdníðslu og linnulausra árása“. Í samtali við mbl.is sagðist Þór- hildur hafa fengið nóg af framgöngu meirihlutans í nefndinni. „Ég ákvað, í stað þess að vera leiksoppur þeirra sem engu eftirliti vilja lúta, að ganga út og neita þeim um þetta skálka- skjól sem þau eru sífellt að leita í. Að ráðast á mig og mína persónu til þess að réttlæta upplýsingafælni sína og andstöðu við aðhald frá þess- ari nefnd,“ sagði hún og bætti við að þetta hefði hún ígrundað frá því meirihlutinn ákvað að ekki stæðu efni til frekari athugunar á hæfi Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávar- útvegsráðherra gagnvart Samherja. Gengið fram með ásakanir „Ætli það sé ekki bara best að hún bendi á það hvenær vegið hafi verið að hennar persónu. Ég hef ekki ver- ið þekktur fyrir það að hafa uppi stóryrði um einstaka þingmenn eða aðra, það er ekki minn háttur og það hef ég ekki gert,“ sagði Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins og einn nefndarmanna, í samtali við mbl.is í gær. Í bókun hans á fundi nefndarinnar 10. júní sagðist hann taka undir fyrri bók- anir Brynjars Níelssonar og Þor- steins Sæmundssonar sem sögðust ekki styðja það að Þórhildur væri formaður. Það lægi því fyrir að þrír nefndarmanna bæru ekki traust til hennar sem formanns. „Það hefur enginn sem situr á þingi í dag gengið jafn aggressíft fram með alvarlegum ásökunum á hendur nafngreindum einstakling- um og heilu flokkunum og fráfarandi formaður stjórnskipunar- og eftir- litsnefndar. Ég fullyrði það.“ Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Óli Björn Kárason Fundi samninganefnda Félags ís- lenskra hjúkrunarfræðinga og rík- isins lauk án niðurstöðu hjá ríkis- sáttasemjara í gær. Boðað hefur verið til fundar klukkan 10 á fimmtu- dag. Ótímabundið verkfall hjúkr- unarfræðinga hefst að óbreyttu eftir viku, 22. júní, náist samningar ekki fyrir þann tíma. Aðalsteinn Leifsson ríkis- sáttasemjari segir viðræðurnar í gær hafa verið ágætar. „Þetta var ágætur fundur en við kláruðum ekkert samkomulag. Þetta eru mjög snúnar viðræður en það var gott samtal og allir eru vel undirbúnir og leggja sig fram, en þetta eru virkilega erfiðar við- ræður.“ liljahrund@mbl.is Hafa viku til að semja „Miðað við tímann og annað sýnist mér fólk hafa æft stíft. Það var greinilega kominn svolítill keppnisþorsti í hópinn,“ segir Davíð Þór Sigurðsson, skipuleggjandi fyrstu fjallahjól- reiðakeppni ársins, Morgunblaðshringsins, sem fram fór í gær. Rúmlega 70 keppendur hjóluðu hringinn, flestir fjórum tók annað sætið í „elite“-kvennaflokki, og Kristín Edda Sveinsdóttir, sem lenti í því þriðja. Hafsteinn Ægisson lenti í öðru sæti í „elite“-karlaflokki og Kristinn Jónsson í því þriðja. Efnilegir ungliðar mættu einnig til leiks og nefnir Davíð helst hinn tíu ára gamla Friðþjóf Helgason í því samhengi. sinnum, í blíðskaparveðri en um er að ræða sjö kílómetra langan hring á svæðinu við Rauðavatn, Hádegishæð og Para- dísardal. María Ögn Guðmundsdóttir og Ingvar Ómarsson sigruðu í keppninni en fast á hæla Maríu fylgdu Karen Axelsdóttir, sem Fóru hring eftir hring í blíðskaparveðri Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Fyrsta fjallahjólreiðakeppni ársins fór fram í gær Ingibjörg Björnsdóttir hlaut heið- ursverðlaun Sviðslistasambands Íslands árið 2020 fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslista á Íslandi þegar Gríman var afhent við hátíðlega at- höfn í Borgarleikhúsinu í gær- kvöldi. Ingibjörg hóf ung dansnám og starfaði síðar sem dansari, kenn- ari og skólastjóri við Listdansskóla Þjóðleikhússins sem síðar varð Listdansskóli Íslands. Í samtali við Morgunblaðið fagnar Ingibjörg þeirri miklu grósku sem er í dans- inum hérlendis. Atómstöðin – endurlit í leikstjórn Unu Þorleifsdóttur hlaut flestar Grímur eða fjórar talsins. Alls skiptu ellefu sýningar með sér verðlaunum ársins, en níu af 19 verðlaunum fóru til Þjóðleikhúss- ins. »28-29 Gríman afhent í 18. sinn  Ingibjörg Björns- dóttir heiðruð Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Ævistarf Ingibjörg Björnsdóttir var í gærkvöldi heiðruð fyrir ævistarf sitt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.