Morgunblaðið - 16.06.2020, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 16.06.2020, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 2020 Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Verklagsreglur tóku gildi á föstudag sem heimila lögreglumönnum að vísa þeim heim sem ólíklegir eru til að fara í sóttkví, velji þeir þann kost fram yfir sýnatöku. Reglurnar eru settar í kjölfar þess að lögreglan á Suðurnesjum ósk- aði eftir brottvísun manns sem hún taldi ólíklegan til að fylgja sóttvarna- reglum. Áður en þær tóku gildi hafði lögreglan ekki annan kost en að treysta á að þeir sem kæmu til lands- ins myndu fylgja reglum um sóttkví. Maðurinn sem lögreglan óskaði eftir að vísa heim sneri þó sjálfviljugur aft- ur til síns heima. Hópur Rúmena sem grunaður er um að hafa brotið sóttvarnalög kom til landsins í byrjun júní en þá voru heimildir lögreglu til brottvís- unar óljósar. Kom hópurinn frá Lundúnum en karl og kona í hópnum reyndust smituð af kórónuveirunni og eru nú í einangrun. Sneri sjálfviljugur heim Útlendingastofnun tók ekki und- ir sjónarmið lögreglunnar á Suður- nesjum þegar hún óskaði eftir brott- vísun mannsins. Á föstudaginn úrskurðaði dómsmálaráðuneytið hins vegar að lögreglu væri heimilt að vísa fólki aftur heim í slíkum tilfellum og voru lögreglu settar verklagsreglur þess efnis. „Ráðuneytið staðfesti þann skilning á útlendingalögunum, að það væri heimilt að vísa fólki frá sem ætl- aði hvorki í sýnatöku né sóttkví, eða væri bersýnilega að segja ósatt varð- andi sóttkví,“ segir Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjórinn á Suð- urnesjum, í samtali við Morgun- blaðið. Þess eru dæmi að ferðamenn dvelji ekki í sóttkví á þeim dvalarstað sem þeir upplýsa lögreglu um, og fari því á mis við sóttvarnareglur. „Við höfum séð tilfelli þar sem sterkur grunur lá fyrir um að fólk myndi ekki fylgja sóttvarnareglum,“ sagði Ólafur. Víðir Reynisson, yfirlögreglu- þjónn hjá Ríkislögreglustjóra, segir að tugir lögreglumanna og heilbrigð- isstarfsmanna hafi komið að máli Rúmenanna. Þrjú lögregluembætti áttu aðild að málinu: Lögreglan á Suðurnesjum, lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og lögreglan á Suðurlandi ásamt starfs- manni ríkislögreglustjóra. „Smit- rakningateymið hefur verið að störf- um allt frá byrjun faraldursins og fór strax í þetta mál,“ segir Víðir. „Við erum enn að afla frekari upplýsinga og sjá hvort fólkið geti gefið okkur frekari upplýsingar,“ segir Víðir. „Helsta breytingin sem hefur núna orðið er nýja skipulagið við komu til landsins, þar sem lög- regla hefur heimild til að neita fólki við landamærin um að koma til lands- ins ef hún telur líkur á að það muni ekki fylgja því að fara í sóttkví.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Landamæraeftirlit Þess eru dæmi að ferðamenn dvelji ekki í sóttkví á þeim dvalarstað sem þeir upplýsa lögreglu um, og fari því á skjön við reglur. Hafa heimild til að vísa fólki heim  Þeir sem eru ólíklegir til að fylgja reglum um sóttkví gætu þurft að snúa heim  Nýjar verklags- reglur gefa lögreglu svigrúm til að meta aðstæður  Rúmenarnir komu áður en reglurnar tóku gildi Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Strætó hefur nú aftur tekið í notkun stoppistöð sína við Hagatorg í Reykjavík, en síðastliðna sjö mánuði hefur hún verið lokuð þar sem óheimilt er samkvæmt umferðarlög- um að stöðva ökutæki á hringtorgi. Hagatorg var mikið til umræðu á síð- asta ári, einkum eftir að Reykjavík- urborg ákvað að skilgreina það sem sem „óhefðbundið hringtorg“. Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, yfirverkfræðingur á umhverfis- og skipulagssviði, segir borgina hafa nýtt sér 84. gr. umferðarlaga, sem kveður á um varanlegt sérákvæði, til að heimila notkun stöðvarinnar á ný. „Þrátt fyrir að biðstöðin hafi verið þarna í einhverja áratugi var rétti- lega bent á að hún hefði ekki fengið það lögformlega ferli sem þurfti til að vera þarna,“ segir hún í samtali við Morgunblaðið, en sama ákvæði er t.a.m. nýtt til að banna ökumönn- um að leggja bifreiðum sínum á til- teknum stöðum þar sem almennt er heimilt að leggja við hægri vegbrún. Eftir að óvissa vaknaði um lög- mæti stoppistöðva í hringtorgum voru fleiri stöðvar Strætó teknar úr notkun, meðal annars við Hádegis- móa. Ekki stendur þó til að beita sama sérákvæði til að opna þá stoppistöð á nýjan leik. Stoppa í Hagatorgi Morgunblaðið/RAX Óhefðbundið Mjög var fjallað um skilgreiningu á Hagatorgi á síðasta ári. „Það er enginn möguleiki fyrir aðrar þjóðir að fylgjast með sóttkví eins og við eigum möguleika á,“ segir Grímur Grímsson, tengslafulltrúi Ís- lands hjá Europol. Hann segist held- ur ekki hafa séð smitrakningarapp líkt og Íslendingar notast við er- lendis. Að sögn Gríms skiptir Europol sér ekki af fólki sem grunað er um að brjóta reglur um sóttkví á ferðum sínum milli landa. „Staðreyndin er sú að þetta er ekki neitt sem Euro- pol er að vinna með. Reglurnar eru mjög mismunandi eftir löndum. Allt sem varðar brot á sóttvörnum er innlend rannsókn,“ segir Grímur. Glæpir hafa hins vegar færst í auknum mæli yfir á veraldarvefinn eftir að kórónuveirufaraldurinn reið yf- ir. „Europol hefur verið áberandi á sínum miðlum með forvarnamál og að hvetja fólk til að fara varlega í þessu ástandi. Til dæmis hafa brotamenn reynt að plata fólk til að kaupa sýnatökupinna eða jafnvel lækningu við COVID-19. Þá eru þess einnig dæmi að glæpamenn banki upp á hjá fólki og þykist vera lögreglumenn eða heilbrigð- isstarfsmenn til þess að komast inn til fólks og fara þar um ránshendi. „Slík tilvik hafa þó ekki komið upp á Íslandi og eru algengari erlendis,“ sagði Grímur. Ekki fylgst með sóttkví annars staðar líkt og hér SÓTTVARNARÁÐSTAFANIR SÉRSTAKAR Á ÍSLANDI Grímur Grímsson hafðu það notalegt handklæðaofnum Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 Eigum úrval af

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.