Morgunblaðið - 16.06.2020, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 2020
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta er nýr og spennandi áfanga-
staður og hefur aðsókn verið góð
eftir að við opnuðum aftur,“ segir
Árni Freyr Magnússon, einn af
þeim sem taka á móti gestum í
manngerðu hellunum í landi Æg-
issíðu við Hellu. Boðið er upp á hell-
askoðun með leiðsögn um helgar,
báða dagana klukkan 14.
Þórhallur Ægir Þorgilsson á Æg-
issíðu, börn hans Baldur og Ólöf,
Álfrún Perla dóttir Baldurs og Árni
Freyr kærasti hennar vinna að
verkefninu. Árni segir að tilgang-
urinn sé að safna fjármunum til þess
að koma fleiri hellum í sýningarhæft
ástand og varna því að þeir eyði-
leggist.
Hann bendir á að heimildir séu til
um að átján hellar hafi verið í landi
Ægissíðu á átjándu öld. Nú séu þeir
tólf. Hinir séu hrundir eða lokaðir.
Áhugavert væri að finna horfnu
hellana.
Þau einbeita sér þó núna að því að
bjarga þeim hellum sem nú eru
þekktir og koma þeim í sýningar-
hæft ástand.
Heimsóknartímar um helgar
Fjölskyldan hefur á undanförnum
árum unnið að því að koma fyrstu
hellunum í sýningarhæft horf og
notið til þess styrkja úr sjóðum sem
stuðla að uppbyggingu ferðamanna-
staða. Á síðasta ári var hópum boðið
að skoða hellana og í janúar var
byrjað að hafa fasta skoðunartíma,
klukkan 14 á laugardögum og
sunnudögum. Árni Freyr segir að
aðsóknin hafi fari hægt af stað, síð-
an hafi þurft að loka vegna kórónu-
veirufaraldursins og þegar aftur var
opnað, um hvítasunnuhelgina, hafi
allar flóðgáttir opnast. Nærri 400
manns hafi heimsótt hellana um þá
helgi og aðsókn verið góð síðan.
Reynt er að hafa tvo leiðsögu-
menn í hverri skoðunarferð og segir
Árni að það mælist vel fyrir hjá ís-
lenskum gestum að geta fengið leið-
sögn á eigin tungumáli. Vekur hann
athygli á því að með því að heim-
sækja hellana sé ferðafólk að hjálpa
til við að vernda friðlýstar forn-
minjar.
Fjölskyldan frá Ægissíðu veit
ekki, frekar en aðrir, hvernig ferða-
þjónusta heimsins þróast. Árni
Freyr segir þó að ef margir erlendir
ferðamenn komi til Íslands í sumar
þurfi ef til vill að lengja skoðunar-
tímann og hafa opið virka daga. Það
ráðist af eftirspurninni.
Brýnustu verkefnin, að hans mati,
eru að laga forskála í Fjóshelli sem
er einn af merkustu hellunum. Þá
þurfi að vinna í Kirkjuhelli sem ligg-
ur undir skemmdum. Hann segir þó
ekki ljóst hvort hægt verði að byrja
á þessum lagfæringum í ár, eða þær
þurfi að bíða næsta árs.
Hellarnir við Ægissíðu hafa ekki
mikið verið rannsakaðir og því
nokkuð á huldu um aldur þeirra.
Menn hafa lengi velt fyrir sér hve-
nær þeir hafa verið grafnir. Í þeim
má sjá merka krossa, gamlar
veggjaristur, myndir, syllur og inn-
höggvin sæti. Einar Benediktsson
athafnamaður trúði því að þeir væru
frá því fyrir landnám og að írskir
munkar hefðu búið í þeim í upphafi.
Hann fékk Jóhannes Kjarval til að
teikna upp veggjakrot og Matthías
Jochumsson, sóknarprest í Odda, til
að messa í Kirkjuhelli.
Árni Freyr og Álfrún Perla hafa
rannsakað málið töluvert og hann
leyfir sér að fullyrða að hellarnir
séu ekki yngri en frá tólftu til fimm-
tándu öld.
Lengi voru hellarnir við Ægissíðu
notaðir við búskapinn, meðal annars
sem hlaða og skepnuhús, eins og
nöfn nokkurra þeirra benda til:
Hlöðuhellir, Fjárhellir, Fjóshellir og
Hrútshellir. Þá er þar Búrhellir og
hafa fundist ummerki um matarílát í
honum.
Margir vilja skoða hellana
Hellarnir við Ægissíðu eru nýr áfangastaður ferðafólks á Suðurlandi og hefur honum verið vel tekið
Ferðamenn leggja sitt af mörkum við að vernda friðlýstar fornminjar sem hið opinbera sinnir ekki
Ekki hefur ræst úr humarvertíð-
inni og samsetning aflans bendir
ekki til þess að nýliðun sé að
aukast.
Leyfilegt er að veiða rúm 200
tonn í ár, sem er aðeins um 10%
þess sem veitt var fyrir áratug.
Heildaraflinn fór upp í 2.400 tonn
þegar mest var.
Lítill afli er hjá humarbátunum
við suðurströndina. „Aðaláhyggju-
efnið er að við erum ekki að sjá
nýliðun. Það veiðist bara stórhum-
ar og stærðardreifingin er sú sama
og á síðasta ári,“ segir Sigurgeir
Brynjar Kristgeirsson, Binni,
framkvæmdastjóri Vinnslustöðvar-
innar í Vestmannaeyjum.
Unnið hluta úr degi
Fyrirtækið gerir út tvo báta eins
og venjulega en aflinn er svo léleg-
ur að yfirleitt er aðeins unnið úr
aflanum í fiskiðjuverinu einn dag í
viku og þá aðeins hluta úr degi.
Árlegur humarleiðangur Haf-
rannsóknastofnunar stendur nú yf-
ir. Rannsóknaskipið Bjarni Sæ-
mundsson hefur lokið yfirferð um
Faxaflóa og miðin við Suðvestur-
land og er nú á ferð austur með
suðurströndinni. Í gær var skipið
statt úti af Skeiðarársandi. Hum-
arholur eru myndaðar, eins og gert
hefur verið undanfarin ár, og
ástandið kannað með þeim hætti
en einnig eru háfsýni tekin til að
fylgjast með ungviði humars.
Besti markaður fyrir humar er á
Spáni. Þar er venjulega mikil sala
á stórhumri fyrir jólin. Binni segir
að eins og ástandið er núna í heim-
inum þori enginn að kaupa humar,
þannig að fyrirtækið framleiði fyr-
ir eigin birgðageymslur. Út af
stöðunni séu kaupendur og selj-
endur ekki einu sinni farnir að
ræða um verð fyrir vöruna. helgi-
@mbl.is
Humar Þótt lítið veiðist eru nægar
birgðir á grill og pönnur.
Enn vantar nýliðun
í humarstofninn
Léleg veiði og aðeins stórhumar
Aðeins fjórir hellar af þeim
tólf sem nú eru þekktir í landi
Ægissíðu hafa verið gerðir
upp. Unnið er að endurbótum
þeirra og varðveislu og að
koma fleiri hellum í sýning-
arhæft horf.
Fjóshellir og Hlöðuhellir eru
meðal stærstu manngerðu
hella sem fundist hafa hér á
landi. Skagahellir er notaður
sem búr, aðallega til geymslu
kartaflna, og er eini hellirinn
sem enn er notaður fyrir
heimilishald eða búskap á
Ægissíðu. Flestir hellarnir eru
nefndir eftir búfé og hafa því
væntanlega verið notaðir sem
gripahús eða hlöður fyrir það
eða fjárhús eða fjós sem voru
ofanjarðar.
Meðal stærstu
grafinna hella
ÆGISSÍÐA
Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson
Búskapur Hlöðuhellir er tengdur Fjárhelli með göngum. Þeir voru notaðir sem fjárhús og hlaða framan af 20. öld.
Hellafjölskyldan Árni Freyr Magnússon, Ólöf Þórhallsdóttir, Álfrún Perla
Baldursdóttir, Baldur Þórhallsson og Þórhallur Ægir Þorgilsson.
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is
alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
SCREEN RÚLLUGARDÍNUR