Morgunblaðið - 16.06.2020, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 2020
50 ára Hákon er fædd-
ur í Vestmannaeyjum
en býr í Hafnarfirði.
Hann er húsasmíða-
meistari frá Iðnskól-
anum í Reykjavík og
rekur eigið fyrirtæki,
Há-Hús ehf.
Maki: Valgerður H. Jensen, f. 1971, hjúkr-
unarfræðingur á Barna- og unglinga-
geðdeild Landspítalans.
Börn: María Dögg, f. 1998, Arnór Logi, f.
2001, og tvíburarnir Ellý og Sylvía, f.
2007.
Foreldrar: Anna Birna Ragnarsdóttir, f.
1948, sjúkraliði, búsett í Reykjavík, og
Paul Uzureau, f. 1947, verkfræðingur og
arkitekt, búsettur í Chicago.
Hákon Vilhelm
Uzureau
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Kátínan hefur ráðið ríkjum hjá
þér um tíma og engin ástæða til annars
en að halda henni við. Hugsaðu langt
fram í tímann í dag.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér gengur margt í haginn og
áhrif þín eru mikil. Gerðu það að for-
gangsverkefni að gera eitthvað
skemmtilegt.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Félagslífið gefur þér bæði orku
og góðar hugmyndir. Sýndu nýjum sam-
starfsmönnum þá virðingu sem þú vilt
sjálfur njóta.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú tekur það upp hjá sjálfum
þér að vera aðeins betri við fólk en
nauðsynlegt er. Allir hafa gott af því að
víkka út sjóndeildarhring sinn.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú vilt læra meira og kanna nýjar
leiðir. Hafðu hugfast að ef þú ert tilbú-
inn til að gefa af þér færðu heilmikið til
baka.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú sérð heiminn með augum
vina þinna núna og þeir gera það sama
gegnum þig.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert fullur af eldmóði og krafti og
getur haft mikil áhrif á fólkið í kringum
þig ef þú vilt. Nú er tíminn til að koma
sér inn í nýjan hóp.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Taktu þér tíma til þess að
tryggja öryggi þín og þinna. Að því
loknu áttu skilið að gera þér glaðan
dag.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Nú þarftu að gefa sjálfum
þér sérstakan gaum og koma lagi á öll
þín mál. Haltu samt áfram að einbeita
þér að vinnunni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Stemningin í vinnunni ein-
kennist af hressleika og vinarþeli. Nú er
tækifærið að sýna hvað í þér býr.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er oft gaman að kynnast
nýju fólki sérstaklega þegar það getur
kynnt manni nýjar hugmyndir og fram-
andi lönd. Slík tilbreyting mun aðeins
hafa gott í för með sér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Að vinna með sjálfan sig er alltaf
gott, og í dag nýtur þú ávaxtanna af því.
Aðrir eru einnig tilbúnir að hlusta á þig.
G
unnar Guðlaugsson
fæddist 16. júní 1960 á
Svínafelli í Öræfum.
Þar hefur sama ættin
verið á þessum sögu-
fræga stað síðan langafi Gunnars,
Jón Jónsson, kom úr Hólmi í Land-
broti og gerðist bóndi á Svínafelli.
„Það var mjög gott að alast upp á
Svínafelli. Þrír bæir voru nálægt
hver öðrum og því stór hópur af
fólki á litlu svæði,“ segir Gunnar.
„Þá var aðallega stundaður fjárbú-
skapur á Svínafelli en svo var nán-
ast sjálfsþurftarbúskapur þegar ég
var að alast upp. Við vorum með kýr
á bænum og langt í næstu búð.
Ferðamennskan byrjar ekkert að
neinu ráði fyrr en brýrnar koma yfir
Skeiðarársand 1974 en fyrir þann
tíma var þetta mjög einangruð
sveit.“
Gunnar gekk í Barnaskólann á
Hofi í Öræfum, tók landspróf frá
Nesjaskóla í Hornafirði 1976 og fór
þá í Iðnskólann í Reykjavík. „Ég tek
síðan hlé frá námi eftir einn og hálf-
an vetur en byrja aftur 23 ára í skól-
anum. Ég var mest í sveitinni á
Svínafelli í millitíðinni að hjálpa til í
búskapnum en fór líka eina vertíð á
sjó.“ Gunnar útskrifaðist sem raf-
virki þegar hann sneri til baka í
námið, varð síðan tæknistúdent frá
Tækniskóla Íslands og fór síðan í
beinu framhaldi í nám til Danmerk-
ur og útskrifaðist með MSc.-gráðu í
rafmagnsverkfræði frá Háskólanum
í Álaborg 1994. „Ég er þá búinn að
kynnast Rögnu konunni minni og
eigum eitt barn þegar við förum út.
Það voru engin meistaraplön í nám-
inu, eitt leiddi af öðru og það sama
var með starfsferilinn. Ég átti ekki
von á því þegar ég hóf aftur nám í
rafvirkjun 23 ára að ég ætti eftir að
verða forstjóri álvers.“
Eftir fimm ára nám í Danmörku
vann Gunnar fyrst á verkfræðistof-
um, lengst af hjá Afli og orku, en hóf
störf hjá ISAL í Straumsvík árið
1998. Árið 2008 hóf hann síðan störf
hjá Norðuráli og varð framkvæmda-
stjóri Norðuráls Grundartanga árið
2011, en hann er einnig fram-
kvæmdastjóri yfir starfsemi Cen-
tury Aluminum í Evrópu og Asíu.
Frá 2019 hefur Gunnar síðan ver-
ið forstjóri Norðuráls, og er þá einn-
ig yfir móðurfélaginu í Reykjavík en
um 600 manns vinna hjá fyrirtækinu
á Íslandi. „Þetta er mjög skemmti-
legt starf, ég fór talsvert oft til Kína
þegar við vorum með verksmiðju
þar og ég hef kynnst skemmtilegu
fólki víða um heim og er að vinna
hér heima með frábærum hópi. Það
er það sem gefur starfinu gildi.“
Auk álversins hér heima rekur
Century Aluminum síðan þrjú álver
í Bandaríkjunum og rafskautaverk-
smiðju í Hollandi.
Áhugamál Gunnars er og hefur
verið útivist. Síðustu misseri hefur
fjallgöngum, hestamennsku og skot-
og stangveiði verið skipt út fyrir
golf og hjólreiðar, en þær íþróttir
stunda hjónin bæði innanlands og
utan. „Ég hef í grunninn gaman af
allri útiveru en við erum mest í golfi
Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls – 60 ára
Fjölskyldan Gunnar og Ragna ásamt dætrum sínum, tengdasonum og barnabörnum.
Eitt leiddi af öðru í námi og starfi
Golfarinn Gunnar á Alicante. Forstjórinn Gunnar Guðlaugsson.
Sigrún K. Jónsdóttir, f. 1932, og Pétur R. Antons-
son, f. 1934, eiga 65 ára brúðkaupsafmæli í dag.
Þau gengu í hjónaband 16. júní 1955 og skírðu
sama dag elsta son sinn, Jón Gústaf Pétursson.
Árnað heilla
Króndemantabrúðkaup
40 ára Vilborg er
Reykvíkingur en býr
einnig í Kranj í Slóven-
íu. Hún er BA í
ferðamálafræðum frá
Háskólanum á Hólum
og MBA frá HÍ. Vilborg
er framkvæmdastjóri
Tinda Travel.
Maki: Ales Cesen, f. 1982, dr. í verkfræði,
fjallaleiðsögumaður og atvinnumaður í
klifri.
Stjúpsynir: Rok, f. 2011, og Lovro, f.
2015.
Foreldrar: Sólveig Aradóttir, f. 1957, vinn-
ur á Landspítalanum, búsett á Selfossi, og
Gissur Ingólfsson, f. 1950, fv. sjómaður og
sendibílstjóri, búsettur í Reykjavík.
Vilborg Arna
Gissurardóttir
Til hamingju með daginn
Viðskipta
Viðskiptapúlsinn er hlaðvarpsþáttur um viðskipti og
efnahagsmál. Þar setjast blaðamenn ViðskiptaMoggans niður
ásamt góðum gestum og ræða stærstu viðskiptafréttir vikunnar
hverju sinni og hvað um er að vera í íslensku viðskiptalífi.
Þættirnir fara í loftið á miðvikudögum í kjölfar útgáfu ViðskiptaMoggans og eru
í samstarfi við Arion banka. Hlaðvarpið má nálgast á iTunes, Spotify og á öðrum
hlaðvarpsrásum. Þættirnir eru einnig aðgengilegir á mbl.is
VIÐSKIPTAPÚLSINN
VIÐSKIPTAPÚLSINN
NÝTTU
TÍMANN OG
FYLGSTU MEÐ