Morgunblaðið - 16.06.2020, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 2020
Eitt sinn var ég staddur heima
hjá félaga mínum sem er með
handboltaáhuga á lokastigi. Hann
sýndi mér myndskeið úr gömlum
handboltaleik í fína sjónvarpinu
sínu og lagði fyrir mig spurningu.
Vildi kanna hvort ég gæti borið
kennsl á annan dómara leiksins.
Leikurinn var í úrslitakeppni um
miðjan tíunda áratuginn og kemp-
ur á vellinum eins og Alfreð Gísla,
Siggi Sveins og Bjarki Sig. Mér
fannst dómarinn kunnuglegur en
gat ekki komið því fyrir mig hvað
ungi maður þetta væri enda er
hann þekktari fyrir annað en
dómgæsluna. Þá var þetta Jó-
hannes Felixson bakari, betur
þekktur sem Jói Fel.
Ég fór að velta fyrir mér fólki
sem hefur dæmt í boltagrein-
unum en er þekktara fyrir annað.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
fyrrverandi ráðherra, kemur upp í
hugann. Sennilega eru þeir ekki
margir sem vita að Björgvin Guð-
mundsson, annar eigenda KOM,
dæmdi handbolta um tíma.
Björgvin og Þórlindur Kjartans-
son dúkka reglulega upp í þáttum
eins og Silfri Egils og hafa þá
skoðanir á öllu milli himins og
jarðar. Þórlindur dæmdi körfu-
boltaleiki og mun hafa tekið flaut-
una fram aftur. Leifur Garðarsson
dæmir einnig í körfunni en margir
þekkja hann úr sjónvarpi vegna
fótboltans.
Arnar Þór Stefánsson er oft í
fjölmiðlum vegna starfa sinna
sem lögmaður en hann dæmir í
fótboltanum.
Formaður Blaðamannafélags-
ins, Hjálmar Jónsson, dæmdi fót-
bolta um tíma. Þeir sem spilað
hafa með Hjálmari í starfs-
mannafótboltanum hjá Mogg-
anum vita að hann vill að farið sé
eftir reglunum.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
FÓTBOLTINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Sextán ára piltur, Ísak Andri Sig-
urgeirsson, var bjargvættur
Stjörnumanna í gærkvöld þegar
hann skoraði sigurmark þeirra gegn
Fylki í lok uppbótartímans í Garða-
bæ, 2:1.
Ísak, sem verður sautján ára í
september, kom inn á í fyrsta skipti í
efstu deild á 84. mínútu og var réttur
maður á réttum stað í vítateignum
þegar mínúta var eftir af uppbótar-
tíma leiksins.
„Garðbæingar fengu hvert færið á
fætur öðru en annaðhvort var Aron
Snær Friðriksson vel á verði í marki
Fylkismanna eða þá að Garðbæingar
tóku rangar ákvarðanir á síðasta
þriðjungnum,“ skrifaði Bjarni Helga-
son í grein sinni um leikinn á mbl.is.
Ólafur Ingi Skúlason aðstoðar-
þjálfari og leikmaður Fylkis fékk
rauða spjaldið rétt fyrir leikslok fyrir
að brjóta á Alex Þór Haukssyni.
Hann verður í banni gegn Breiðabliki
í 2. umferð.
Valdimar Þór Ingimundarson
skoraði fyrstur allra í leik í 1. umferð-
inni en hann kom Fylki yfir gegn
Stjörnunni eftir aðeins 57 sekúndur,
eftir stoðsendingu elsta útispilara
deildarinnar, Helga Vals Daníels-
sonar.
Hilmar Árni Halldórsson jafn-
aði fyrir Stjörnuna með glæsimarki
úr aukaspyrnu og hefur þar með
skorað í fyrstu umferð deildarinnar
þrjú ár í röð.
Ragnar Bragi Sveinsson fyrir-
liði Fylkis þurfti að fara af velli
skömmu fyrir leikhlé í Garðabæ.
Hann fékk mikið högg og var fluttur
brott í sjúkrabíl en óttast var að hann
væri kinnbeinsbrotinn.
Brynjar Gauti Guðjónsson varð
í gærkvöld fimmti leikmaður Stjörn-
unnar frá upphafi til að spila 100 leiki
fyrir félagið í efstu deild. Hann á auk
þess 75 leiki að baki fyrir ÍBV í deild-
inni. Þrír þeir leikjahæstu léku líka
með Stjörnunni í gærkvöld, Daníel
Laxdal (221) Jóhann Laxdal (165) og
Halldór Orri Björnsson (147).
Reynsluleysi kom ekki að sök
Fjölnismenn mættu á Víkingsvöll-
inn með aðeins þrjá leikmenn sem
höfðu spilað meira en tíu leiki í efstu
deild og fóru þaðan með óvænt stig
eftir jafntefli, 1:1. Flestir spáðu
Fjölni falli fyrir tímabilið en strák-
arnir úr Grafarvogi sýndu að þeir
ætla ekki að láta valta yfir sig.
Víkingar verða að gera mun betur
en þetta ef þeir ætla að standa við
stóru orðin og slást um Íslandsmeist-
aratitilinn í ár.
„Fjölnismenn virtust vel skipu-
lagðir, sérstaklega miðað við hvernig
úr undirbúningstímabilinu spilaðist.
Ef eitthvað er að marka leikinn þá
mega sterkari liðin hafa fyrir því að
brjóta Fjölnisliðið niður,“ skrifaði
Kristján Jónsson í umfjöllun sinni á
mbl.is.
Þessir léku sinn fyrsta leik í
efstu deild í gærkvöld: Atli Gunnar
Guðmundsson, Valdimar Ingi Jóns-
son, Orri Þórhallsson, Vilhjálmur
Yngvi Hjálmarsson og Lúkas Logi
Heimisson (Fjölni), Helgi Guðjóns-
son og Kristall Máni Ingason (Vík-
ingi), Þórður Gunnar Hafþórsson,
Djair Parfitt-Williams og Arnór
Gauti Jónsson (Fylki), Ísak Andri
Sigurgeirsson (Stjörnunni).
Sextán ára Stjörnuhetja
Ísak Andri Sigurgeirsson var nýkominn inn á í sínum fyrsta leik og skoraði
sigurmarkið gegn Fylki Fjölnismenn gerðu góða ferð í Fossvoginn
Morgunblaðið/Eggert
Návígi Þorsteinn Már Ragnarsson sóknarmaður Stjörnunnar reynir að
komast framhjá Ásgeiri Eyþórssyni varnarmanni Fylkismanna.
Morgunblaðið/Eggert
Stoðsending Orri Þórhallsson lagði upp jöfnunarmark Fjölnis og á hér í
höggi við Víkinginn Erling Agnarsson í leiknum í Fossvogi.
Martin Hermannsson landsliðsmaður í
körfuknattleik fór meiddur af velli eftir
aðeins rúmlega sex mínútna leik í gær-
kvöld þegar lið hans Alba Berlín sigraði
Ludwigsburg, 97:89, í úrslitakeppninni
um þýska meistaratitilinn í München.
Martin fékk slæma byltu og fór af
velli. „Ég lenti beint á mjóbakinu og það
er eins og ég sé með golfbolta innan í
því. Mér fannst skynsamlegra að hætta
en að halda áfram að reyna að spila. En
þetta ætti ekki að vera alvarlegt og ég
fæ núna smá hvíld fyrir næsta leik,“
sagði Martin við Morgunblaðið.
Þetta var hreinn úrslitaleikur liðanna
um efsta sætið í B-riðli úrslita-
keppninnar en bæði höfðu unnið þrjá
fyrstu leikina. Alba Berlín vann þar
með riðilinn og mætir Göttingen í átta
liða úrslitunum en Göttingen hafnaði í
fjórða sæti A-riðils.
Liðin mætast tvisvar, fyrst í „heima-
leik“ Göttingen á fimmtudaginn og síð-
an á laugardagskvöldið, og sigurliðið
samanlagt fer í undanúrslit. Í sjálfri
deildakeppninni í vetur var Alba í
fjórða sæti og Göttingen í níunda sæti
þegar keppnin var stöðvuð vegna út-
breiðslu kórónuveirunnar.
„Göttingen er fínt lið og mikil orka í
leikmönnunum. En ef allt er eðlilegt
eigum við að fara nokkuð þægilega í
gegnum þetta einvígi,“ sagði Martin
Hermannsson. vs@mbl.is
Martin meiddur af velli eftir sex mínútur
Ljósmynd/Alba Berlín
München Martin Hermannsson reynir skot í leiknum í gærkvöld.
Pepsi Max-deild karla
Víkingur R. – Fjölnir ............................... 1:1
Stjarnan – Fylkir...................................... 2:1
Staðan:
Breiðablik 1 1 0 0 3:0 3
ÍA 1 1 0 0 3:1 3
FH 1 1 0 0 3:2 3
Stjarnan 1 1 0 0 2:1 3
KR 1 1 0 0 1:0 3
Fjölnir 1 0 1 0 1:1 1
Víkingur R. 1 0 1 0 1:1 1
HK 1 0 0 1 2:3 0
Fylkir 1 0 0 1 1:2 0
Valur 1 0 0 1 0:1 0
KA 1 0 0 1 1:3 0
Grótta 1 0 0 1 0:3 0
Grikkland
Panetolikos – Larissa.............................. 3:0
Ögmundur Kristinsson varði mark Lar-
issa í leiknum.
Svíþjóð
Malmö – Mjällby....................................... 2:0
Arnór Ingvi Traustason var varamaður
hjá Malmö og kom ekki við sögu.
Falkenberg – Häcken.............................. 1:1
Oskar Tor Sverrisson var varamaður hjá
Häcken og kom ekki við sögu.
Danmörk
Silkeborg – OB......................................... 6:0
Aron Elís Þrándarson lék fyrri hálfleik-
inn með OB.
Spánn
Levante – Sevilla ...................................... 1:1
Real Betis – Granada ............................... 2:2
Staða efstu liða:
Barcelona 28 19 4 5 67:31 61
Real Madrid 28 17 8 3 52:20 59
Sevilla 29 14 9 6 42:30 51
Real Sociedad 28 14 5 9 46:34 47
Getafe 28 13 7 8 38:27 46
Atlético Madrid 28 11 13 4 32:22 46
Valencia 28 11 10 7 39:40 43
Granada 29 12 6 11 37:35 42
Villarreal 28 12 5 11 45:38 41
Athletic Bilbao 28 9 11 8 30:24 38
Osasuna 28 8 11 9 35:39 35
Levante 29 10 5 14 34:42 35
STJARNAN – FYLKIR 2:1
0:1 Valdimar Þór Ingimundarson 1.
1:1 Hilmar Árni Halldórsson 25.
2:1 Ísak Andri Sigurgeirsson 90.
M
Alex Þór Hauksson (Stjörnunni)
Guðjón Baldvinsson (Stjörnunni)
Halldór Orri Björnsson (Stjörnunni)
Hilmar Árni Halldórsson (Stjörnunni)
Þorsteinn Már Ragnarsson (Stjörn.)
Sölvi Snær Guðbjargarson (Stjörn.)
Brynjar Gauti Guðjónsson (Stjörn.)
Aron Snær Friðriksson (Fylki)
Helgi Valur Daníelsson (Fylki)
Ásgeir Eyþórsson (Fylki)
I Rautt spjald: Ólafur IngiSkúlason (Fylki) 88.
Dómari: Guðmundur Ársæll Guð-
mundsson – 6.
Áhorfendur: 1.184.
VÍKINGUR R. – FJÖLNIR 1:1
1:0 Óttar Magnús Karlsson 16.
1:1 Arnór Breki Ásþórsson 57.
M
Sölvi Geir Ottesen (Víkingi)
Ágúst Eðvald Hlynsson (Víkingi)
Óttar Magnús Karlsson (Víkingi)
Atli Gunnar Guðmundsson (Fjölni)
Sigurpáll M. Pálsson (Fjölni)
Valdimar Ingi Jónsson (Fjölni)
Dómari: Sigurður H. Þrastarson – 6.
Áhorfendur: 1.179.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl
og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/
fotbolti.