Morgunblaðið - 16.06.2020, Page 32
Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari var með fjölda
tónleika bókaða úti um heimsbyggðina í vor og fyrri
hluta sumars en öllum tónleikunum var aflýst eða þeim
frestað vegna kórónuveirufaraldursins. En í gær var
opnað fyrir ferðalög innan Evr-
ópu og hann flaug þá suður
til Þýskalands og kemur
strax á morgun, 17. júní,
fram í tónlistarhöllinni í
Dortmund. Seldist strax
upp á tónleikana, en ein-
ungis 300 gestum verður
hleypt inn í salinn, sem
venjulega tekur vel á
annað þúsund
manns í sæti. Á
efnisskránni er
píanótónlist
eftir Johann
Sebastian
Bach.
Víkingur Heiðar aftur farinn í
tónleikaferðalag eftir hlé
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 168. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Stjarnan knúði fram sigur á Fylki, 2:1, með marki sex-
tán ára varamanns í lok uppbótartímans og Fjölnis-
menn náðu óvæntu jafntefli gegn Víkingum í Fossvogi
þegar fyrstu umferð Pepsi Max-deildar karla í fótbolta
lauk í gærkvöld. »27
Sextán ára varamaður með
sigurmarkið í blálokin
ÍÞRÓTTIR MENNING
heyra. Hann var í hljómsveitinni
Facon á Bíldudal og eftir að hún
hætti 1969 söng hann meðal annars í
mörg ár á Hótel Borg og Hótel
Sögu, hélt tónleika heima og erlend-
is og kynntist vel íslensku tónlistar-
fólki sem var í fremstu röð. Vest-
firska forlagið gaf út bókina
Melódíur minninganna eftir Hafliða
Magnússon 2008 og þar er sagan
rakin.
„Síðustu tónleikarnir voru í FÍH-
salnum 2019,“ segir Jón, en þá
kynnti hann endurútgefnar klass-
ískar upptökur, sem hann söng þeg-
ar hann var á fertugsaldri. Hann gaf
meðal annars út diskana Jón Kr.
Ólafsson í 60 ár, Haustlauf og Kvöld-
kyrrð, og 1983 gaf Svavar Gests út
hljómplötuna Ljúfþýtt lag, þar sem
Jón syngur íslensk söng- og dægur-
lög við undirleik Ólafs Vignis Al-
bertssonar. Fyrsta hljóðritunin var
1969, þegar hann söng með Facon á
fyrstu og einu plötu sveitarinnar.
„Við Ingibjörg Guðmundsdóttir vor-
um fyrstu Vestfirðingarnir til að
syngja inn á plötu, ég 1969 og hún
1970, en nú hef ég sungið opinber-
lega mitt síðasta lag.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Söngvarinn Jón Kr.Ólafsson opnaði
tónlistarsafnið Melódíur minning-
anna á Bíldudal fyrir 20 árum, nánar
tiltekið 17. júní 2000, og verður sjálf-
ur áttræður í ágúst, en ætlar ekki að
gera neitt sérstakt á tímamótunum.
„Safnvörðurinn eldist og hefur að
mestu dregið sig í hlé, ég er farinn
að segja takk fyrir mig, en safnið
geymir merka sögu og er öllum opið
hér eftir sem hingað til,“ segir hann.
Skömmu eftir að Jón keypti neðri
hæðina í húsinu þar sem hann býr
ákvað hann að opna þar tónlistar-
safn. „Ég byrjaði smátt, átti fáa hluti
sem tengdust tónlistinni, en byrjaði
að safna og safnið sprengdi hús-
næðið utan af sér fyrir löngu,“ segir
hann.
Á safninu eru til dæmis hljóðfæri,
margar plötur og plötuumslög, föt
og skartgripir tónlistarfólks eins og
Hallbjargar Bjarnadóttur og Ellýjar
Vilhjálms, Diddúar og Svanhildar
Jakobsdóttur, Þuríðar Sigurðar-
dóttur og Önnu Vilhjálms. „Rauði
jakki Hauks Morthens og hvíti jakki
Ragga Bjarna eru gersemar, hlutir
sem löngu væru grafnir og gleymdir
ef ég hefði ekki fengið þá og haldið
þeim til haga. Svona get ég lengi
talið.“
Á von á gestum
Bílddælingurinn gerir sér vonir
um að landsmenn bregði undir sig
betri fætinum og sæki Vestfirði
heim í auknum mæli í sumar. „Mér
fannst fólk koma seint í fyrrasumar
en nú verður væntanlega minna um
utanlandsferðir vegna veirunnar og
ég vona að Íslendingar noti tækifær-
ið, skoði landið og þar með safnið
Melódíur minninganna.“
Jón hefur alla tíð búið á Bíldudal
og gert ýmislegt um ævina. Hann
hefur unnið í frystihúsi og niður-
suðuverksmiðju, verið húsamálari
og hirt kirkjugarðinn auk þess að
hafa sungið opinberlega frá 16 ára
aldri, svo fátt eitt sé nefnt. „Ég hef
unnið eins og hundur allt mitt líf,
söng í kirkjunni í 40 ár, byrjaði að
syngja í kirkjukórnum 1956 og var
einsöngvari þar í áratugi,“ segir
hann.
Söngvarinn hefur víða látið í sér
Hefur sungið í nær 65 ár
Jón Kr. Ólafsson opnaði tónlistarsafnið Melódíur minning-
anna á Bíldudal fyrir tuttugu árum og er enn með opið hús
Melódíur minninganna Jón Kr. Ólafsson á safninu á Bíldudal.
Frjals &
otamin
Kringlan 4-12 | s. 577-7040
www.loccitane.is
´
´
Nýr ilmur