Morgunblaðið - 11.07.2020, Blaðsíða 1
Vill
lögleiðadánar-
aðstoð
Sá bestií sögunni
Ingvi Hrafn Jónsson fjölmiðla-
maður vill lögleiða dánaraðstoð
á Íslandi að uppfylltum ströng-
um skilyrðum en elsti bróðir
hans, Jón Örn, þáði slíka aðstoð
í Kanada í vor. Eiginkona Jóns
Arnar, Guðrún Mjöll Guðbergs
dóttir, er mági í
12. JÚLÍ 2020SUNNUDAGUR
Fallegt heimili
Muhammad Alivar ótrúleguríþróttamaðursem ruddileiðina fyriraðra semkomu áeftir. 12 Flogið í fisvélJónas Sturla Sverrisson hefur flogið fisvélí 14 ár og veit fátt skemmtilegra.Ásdís Ásgeirsdóttir brá sér með honum í háloftin. 14 Björg Bjarnadóttir hefurgert sér stílhreint og nota-legt heimili í Noregi. 18
L A U G A R D A G U R 1 1. J Ú L Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 162. tölublað 108. árgangur
Volkswagen ID.3 1ST
Rafmögnuð framtíð
Pantaðu núna og
fáðu þinn í haust
www.volkswagen.is/ID · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · HEKLA#NúGeturÞú
AÐLÖGUN OFT
ERFIÐ ÍSLÖMSK-
UM KONUM
VEIKUR STUÐN-
INGUR VIÐ
LISTAMENN
ERFIÐ STAÐA 42NÝ MEISTARARITGERÐ 16
Baldur Arnarson
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn
hjá Ríkislögreglustjóra, segir and-
stöðu við kjarasamning yfirlögreglu-
þjóna eiga rætur í valdabaráttu inn-
an lögreglunnar. Sigríður Björk
Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri
hafi leynt og ljóst unnið að því að
rifta samkomulaginu.
Samkvæmt lögfræðiáliti Forum
lögmanna, sem unnið var að hennar
beiðni, má ógilda samningana.
Hreinsanir hjá lögreglunni
„Sigríður Björk hefur boðað mikl-
ar breytingar hjá Ríkislögreglu-
stjóra. Hún kallar það ekki hreins-
anir en stöður verða auglýstar og
nýir menn eiga að koma inn,“ segir
Óskar og vísar til tölvupósta.
Óskar rifjar upp fund sinn og
Snorra Magnússonar, formann
Landssambands lögreglumanna,
með Áslaugu Örnu Sigurbjörns-
dóttur dómsmálaráðherra í nóvem-
ber sl. Þar hafi ráðherrann gefið til
kynna að ekki yrðu gerðar athuga-
semdir við samninginn. Þá hafi ráðu-
neytisstjórinn sagst hafa fengið
sama svar frá Fjármálaráðuneytinu.
Áslaug Arna sagði í samtali við
mbl.is í gær hafa fengið þau í svör í
október, þegar samningurinn komst
í hámæli, að ríkislögreglustjóri hafi
haft heimild til að gera slíkan samn-
ing en að þegar forstöðumenn geri
slíka samninga þurfi þeir að sam-
rýmast markmiðum gildandi stofn-
anasamnings.
Sigríður Björk sendi yfirlögreglu-
þjónum bréf sl. miðvikudag þar sem
hún tilkynnti að embættið teldi sig
ekki bundið af samkomulaginu. Var
gefinn sjö daga frestur til svara.
Andstaðan hluti af valdatafli
Yfirlögregluþjónn segir ríkislögreglustjóra hafa unnið gegn eftirlaunasamningi
MLaunadeila hluti af … »10
Fræknar knattspyrnukonur úr 5., 6. og 7. flokki
munu láta ljós sitt skína um helgina, en Síminn
og Breiðablik standa nú að hinu árlega Síma-
móti. Þetta er í 36. sinn sem mótið er haldið, og
hefur það fyrir löngu fest sig í sessi sem einn af
stærstu viðburðum hvers árs í yngri flokkunum.
Keppendur að þessu sinni eru um 2.400 tals-
ins, en að þessu sinni er hægt að fylgjast með
völdum leikjum í Sjónvarpi Símans.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Knattspyrnukonur framtíðarinnar láta ljós sitt skína
Ingvi Hrafn Jónsson fjölmiðlamaður
og mágkona hans, Guðrún Mjöll
Guðbergsdóttir, hvetja Íslendinga
til að taka upp löggjöf um dánar-
aðstoð, en eiginmaður Guðrúnar og
bróðir Ingva, Jón Örn Jónsson, þáði
slíka aðstoð í Kanada í vor, þar sem
hann hafði búið undanfarin fimmtíu
ár. Lög þess efnis voru samþykkt ár-
ið 2016 vestra og eru sniðin að fólki
með langt gengna ólæknandi sjúk-
dóma sem vill fá að kveðja þennan
heim með reisn og vera ekki upp á
aðra komið.
„Ég er ekki í nokkrum vafa um að
hópur fólks myndi vilja hafa þennan
valkost – að fá aðstoð við að binda
enda á líf sitt,“ segir Ingvi Hrafn í
samtali við Sunnudagsblaðið. Hann
hvetur til umræðu um málið og bein-
ir orðum sínum sérstaklega til dóms-
málaráðherra. „Ég er sannfærður
um að hún myndi taka þessari um-
ræðu með opnum huga.“
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Sorg Ingvi Hrafn missti bróður.
Vilja leyfa
dánaraðstoð
Ingvi Hrafn hvet-
ur til umræðu
Starfandi fækkaði mikið í bygg-
ingarstarfsemi og mannvirkjagerð
á undanförnum misserum. Í mars
sl. varð 11,5% samdráttur í saman-
burði við sama mánuð í fyrra. Ing-
ólfur Bender, aðalhagfræðingur
Samtaka iðnaðarins, hefur
áhyggjur af miklu atvinnuleysi í
greininni. „Tölurnar sýna hvað
það var komin mikil niðursveifla
við upphaf Covid-19. Það er klárt
mál að mánuðirnir á eftir, apríl og
maí, líta verr út,“ segir Ingólfur.
Stóra verkefnið sé að draga úr því
mikla atvinnuleysi sem er hér á
landi. »22
Mikið fækkaði í
byggingargeira