Morgunblaðið - 11.07.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2020
www.kofaroghus.is - sími 553 1545
339.000 kr.
Tilboðsverð
518.000 kr.
Tilboðsverð
389.000 kr.
Tilboðsverð
34mm
34mm44mm
Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik
má finna á vef okkar
SUMARTILBOÐÁGARÐHÚSUM!
Afar einfalt er að
reisa húsin okka
r
Uppsetning teku
r aðeins einn da
g
BREKKA 34 - 9 fm
STAPI - 14,98 fm NAUST - 14,44 fm
25%
afsláttur
25%
afsláttur
30%
afsláttur
VANTAR
ÞIGPLÁSS?
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
miklu stærri og hann mun standa
jafnlengi og Ísland er byggt. Sá
bautasteinn er lýðveldið okkar, byggt
á lögum og rétti; lýðveldi frjálsrar og
fullvalda þjóðar, sem ekki hikar við að
skipa sér í fylkingu vestræns lýðræð-
is og vill verja, varðveita og byggja
upp það sem okkur kom í arf og ber
að skila til komandi kynslóða,“ sagði
Bjarni og bað Guð að blessa minningu
Bjarna eldri, Sigríðar og Benedikts
litla.
sem reyndist geta unnið með flestum
þegar til kom,“ sagði Katrín í ávarpi
sínu.
Fjármálaráðherra rakti feril nafna
síns og afabróður í ávarpi sínu og
sagði að Bjarni hefði verið óþreytandi
í baráttu sinni fyrir fullveldi Íslands
og sjálfstæði.
„Við stöndum einmitt hér við minn-
ingarstein nafna míns, konu hans og
litla dóttursonar þeirra. En bauta-
steinn dr. Bjarna Benediktssonar er
Þess var minnst í gær að fimmtíu ár
voru liðin frá því að Bjarni Benedikts-
son forsætisráðherra, Sigríður
Björnsdóttir, kona hans, og Benedikt
Vilmundarson, fjögurra ára dóttur-
sonur þeirra, létust í eldsvoðanum á
Þingvöllum.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra efndi af því tilefni til sérstakrar
minningarathafnar á Þingvöllum og
var forseta Íslands, ríkisstjórn og al-
þingismönnum boðið til hennar auk
afkomenda forsætisráðherrahjón-
anna.
Bjarni Benediktsson, fjármála-
ráðherra og frændi Bjarna eldri, bar
blómsveig að minnisvarðanum um
þau Bjarna, Sigríði og Benedikt, og
flutti ávarp ásamt forsætisráðherra.
Greypti sig í minni þjóðarinnar
Katrín sagði óhætt að segja að
þessi sviplegi atburður sumarsins
1970 hefði greypt sig í minni þjóðar-
innar, enda hefði Bjarni Benedikts-
son verið risi í stjórnmálamenningu
Íslands um 30 ára skeið. „Jafnvel þeir
sem voru ósammála Bjarna um flest
viðurkenndu gáfur hans, styrk og
stjórnvisku. Hann gat verið átaka-
maður en var líka samningamaður
Morgunblaðið/Eggert
Minningarathöfnin Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra leggur borðana á blómsveignum á minningarsteininn.
Minntust harmleiks-
ins á Þingvöllum
Bautasteinn Bjarna standi svo lengi sem Ísland er byggt
Morgunblaðið/Eggert
Þingvellir Bjarni Benediktsson ber blómsveig að minningarsteininum.
Gunnlaugur Snær Ólafsson
Ragnhildur Þrastardóttir
Íslensk stjórnvöld fylgjast með þró-
uninni hjá nágrannaþjóðum Íslands í
tengslum við uppbyggingu 5G-nets
og aðkomu kínverska fyrirtækisins
Huawei, segir Guðlaugur Þór Þórðar-
son utanríkisráðherra, en sífellt fleiri
ríki hafa á undanförnum misserum
takmarkað þátttöku fyrirtækisins
vegna öryggissjónarmiða.
„Afstaða okkar er skýr, að tekið
skal tillit þjóðaröryggis við innleið-
ingu 5G hér á landi, það snýr ekki að
neinum stökum aðila sérstaklega.
Tæknin er þess eðlis að það er mjög
eðlilegt að stíga varlega til jarðar,“
segir Guðlaugur.
Spurður hvort utanríkisráðuneytið
þekki til þess að erlend ríki reyni að
hafa áhrif á afstöðu íslenskra stjórn-
valda í þessum málaflokki, sérstak-
lega Bandaríkin eða Kína, svarar
hann: „Afstaða þessara ríkja er alveg
skýr, liggur fyrir og er öllum ljós. En
utanríkisráðuneytið lítur eingöngu til
íslenskra hagsmuna og það skiptir af-
skaplega miklu máli í þessu máli, eins
og öðrum, að líta til þjóðaröryggis-
hagsmuna. Það er alltaf útgangs-
punktur okkar.“ Guðlaugur Þór árétt-
ar vegna fréttar blaðsins í gær að
hann hafi verið utan símasambands á
fimmtudag og ekki getað svarað
skilaboðum blaðsins af þeim sökum.
Frumvarp í haust
Gert er ráð fyrir að ríkisstjórnin
leggi fram frumvarp í haust er snýr
að „heildarlöggjöf á fjarskiptasviði og
þar er meðal annars fjallað um örygg-
ismál varðandi farnet, það er að segja
5G, og sérstöku samstarfi komið á á
milli utanríkis-, dómsmála-, sam-
göngu- eða fjarskiptaráðherra og for-
sætisráðuneytis um þau efni,“ sagði
Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu-
ráðherra í samtali við Morgunblaðið.
Benti hann á að talsverður hluti af
lagasetningu er næði til fjarskipta
væri evrópskur og að Evrópusam-
bandið hefði gefið út „sérstaka
verkfærakistu sem er búist við að
muni þróast nú á næstu mánuðum og
misserum og við munum taka mið af
því í okkar löggjöf“.
Í svari við fyrirspurn Morgun-
blaðsins segir talsmaður fram-
kvæmdastjórnar ESB að „verkfæra-
kassinn“ sé niðurstaða samvinnu
ríkja og netöryggisstofnunar sam-
bandsins og feli í sér mögulegar mót-
vægisaðgerðir sem hægt er að grípa
til í þeim tilgangi að draga úr áhættu
sem getur fylgt uppbyggingu 5G inn-
viða.
Þá hafa ríkin sem taka þátt í sam-
stilltu átaki sambandsins skuldbundið
sig til þess að innleiða mikilvægustu
mótvægisaðgerðirnar og gera fram-
kvæmdastjórninni grein fyrir áhrif-
um þess fyrir október.
Er spurt var um aðkomu Huawei
svaraði talsmaðurinn: „Við höfum
enga afstöðu til einstakra fyrirtækja.
Við höfum reglur í ESB til að draga
úr öryggisáhættu. Allir sem fara eftir
þessum reglum geta verið á evrópsk-
um markaði. Jafnframt hafa aðildar-
ríki ESB rétt til að ákveða hvort úti-
loka fyrirtæki frá mörkuðum sínum af
þjóðaröryggisástæðum.“
Samstillt átak með ESB vegna 5G
Utanríkisráðherra segir ráðstafanir vegna þjóðaröryggis Íslands ekki til höfuðs einstaka fyrirtækjum
ESB hannar mótvægisaðgerðir Ríki ákveða hvort fyrirtæki er útilokað vegna öryggissjónarmiða
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum hefur
verið haldin nær sleitulaust síðast-
liðin 145 ár, en nú stefnir í að rof
komi í þá löngu sögu.
Í samtali við blaðið segir Hörður
Orri Grettisson, formaður þjóðhá-
tíðarnefndar, að boðuð rýmkun
fjöldatakmarkana í 2.000 manns hafi
haldið glóðum í þeirri von að halda
mætti hátíðina í breyttri mynd.
Hann bætir við að hún verði varla
haldin innan þeirra marka sem nú
ríkja.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir hafði áður talið mögulegt að
eftir 13. júlí mættu allt að 2.000
manns koma saman, en fjöldasmit á
íþróttakappleik virðist hafa sett bak-
slag í þau áform.
Fjárhagslegt högg
Hörður segir að einhver fjöldi
miða hafi þegar verið seldur í for-
sölu, en þegar faraldurinn hafi gert
vart við sig hafi sú sala fallið niður.
Ljóst sé að endurgreiða þurfi keypta
miða.
Aðspurður um áhrifin segir Hörð-
ur að fjárhagslegt tjón íþróttafélags-
ins verði gríðarmikið, enda sé hátíð-
in hryggjarstykkið í fjáröfluninni.
„Þetta er einnig mikið tjón fyrir
samfélagið, en hingað kemur mikið
af fólki sem kaupir vörur og þjón-
ustu í Eyjum“.
Þjóðhátíðin er einnig snar hluti af
menningu Eyjamanna sem litar
bæjarlífið löngu áður en eiginleg
setning fer fram. Þannig hafa Eyja-
menn eigið tímatal þar sem talað er
um „fyrir og eftir Þjóðhátíð“.
Að sögn Harðar hefur formleg
ákvörðun ekki verið tekin en búast
megi við yfirlýsingu í næstu viku.
Fólk getur „lesið milli línanna“ í það
hvernig þetta fer, segir hann von-
lítill.
Illa horfir um
Þjóðhátíð í ár
Fjöldatakmarkanir gefa litlar vonir
um samkomuhald í Herjólfsdalnum
Morgunblaðið/Ófeigur
Þjóðhátíð Einn af hápunktum
Þjóðhátíðar er flugeldasýning.