Morgunblaðið - 11.07.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2020
Dalir eru eitt söguríkasta hérað landsins. Þessi bók vísar veg
um Dalabyggðir með sögulegan fróðleik í hverju skrefi.
Árni Björnsson menningarsagnfræðingur skrifar hér um
heimahaga sína.
Söguslóðir í Dölum er bók fyrir forvitna ferðalanga og heima-
menn í Dölum, og ekki síður fyrir áhugamenn um þjóðlegan
fróðleik, íslenskt samfélag og breiðfirska náttúru.
Bókin fæst á skrifstofu FÍ Mörkinni og í vefverslun á
www.fi.is
SÖGUSLÓÐIR Í DÖLUM
Ferðafélag Íslands
www.fi . is
„Mér hugnast ágætlega þær
áherslur Þórólfs að endurmeta skim-
anir um mánaðamót og það fyrir-
komulag sem tekið verður upp á
mánudag,“ segir Ragnar Freyr
Ingvarsson, umsjónarlæknir covid-
deildar Landspít-
alans þegar svör
Þórólfs Guðna-
sonar sóttvarna-
læknis og Kára
Stefánssonar,
forstjóra Ís-
lenskrar erfða-
greiningar, við
gagnrýni hans og
fleiri lækna á
skimanir á landa-
mærum voru bor-
in undir hann. Hann vísaði að öðru
leyti á færslu á Facebook-síðu sinni
sem hann setti inn eftir upplýsinga-
fund Almannavarna í fyrradag þar
sem Þórólfur skýrði tillögur sínar.
Þar sagðist Ragnar Freyr geta
stutt heilshugar tillögu Þórólfs um
að hætta skimunum í lok mánaðarins
og tekur fram að gagnrýni hans hafi
endurspeglað ótta hans við að þess-
um skimunum yrði haldið áfram
fram eftir hausti. Sé því ljóst að þær
muni kosta minna en hann hafi ótt-
ast.
Ragnar gagnrýndi upphaflega að
Landspítalinn væri látinn skima
fríska ferðamenn við landamæri og
verja til þess milljörðum. Það væri
ekki hlutverk háskólasjúkrahússins
að sinna frísku fólki enda hefði það
næg verkefni önnur.
Í færslu sinni í fyrradag viður-
kenndi Ragnar að hann hafi ekki les-
ið samninga sóttvarnalæknis og
rannsóknarstofa Landspítalans en
þar standi að LSH beri að taka þátt í
aðgerðum sem varða almannaheill.
Sagði hann sér ljúft og skylt að taka
undir það en sagðist þó hnjóta um þá
túlkun sóttvarnalæknis að skilgreina
skimum frískra ferðamanna sem
slíka aðgerð. helgi@mbl.is
Styður tillögu sóttvarna-
læknis um endurskoðun
Læknir segir kostnað við skimanir minni en óttast var
Morgunblaðið/Íris
Keflavíkurflugvöllur Starfsmenn undirbúa skimun fyrir kórónuveirunni.
Ragnar Freyr
Ingvarsson
Team Rynkeby kom til Víkur í Mýr-
dal síðdegis í gær eftir að hafa farið
norður og austur um land frá
Reykjavík. Ferðin hófst laugardag-
inn 4. júlí. Hópurinn fékk gott veð-
ur á leiðinni.
Hjólaleið dagsins í dag hefst við
Gullfoss og verður hjólað þaðan
niður að Laugarvatni, sem er 38 km
leið. Hringferð Team Rynkeby
2020 lýkur svo með þátttöku í KIA
Silfurhringnum, sem er 66,5 km
langur. Liðið ætlar því að leggja
105 km að baki á hjólum sínum í
dag.
Tilgangur ferðarinnar er að
safna fé fyrir Styrktarfélag
krabbameinssjúkra barna (SKB). Í
fyrra safnaði Team Rynkeby 23,6
milljónum fyrir SKB. Hægt er að
heita á Team Rynkeby með því að
hringja í eftirfarandi styrktar-
númer: 907-1601 til að gefa 1.500
kr., í síma 907-1602 til að gefa 3.000
kr. og síma 907-1603 til að gefa
5.000 kr. gudni@mbl.is
Team Rynkeby á Íslandi fór hringinn og safnaði áheitum fyrir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna
Til styrkt-
ar veikum
börnum
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Pétur Magnússon
petur@mbl.is
Fundur samninganefndar Flug-
freyjufélags Íslands og Icelandair í
gær gekk ágætlega að sögn Aðal-
steins Leifssonar ríkissáttasemj-
ara. Fundurinn var sá fyrsti eftir
atkvæðagreiðsluna á miðvikudag-
inn, en þar felldu meðlimir FFÍ
nýjan kjarasamning, sem samn-
inganefndir beggja aðila höfðu
skrifað undir hinn 25. júní, með af-
gerandi hætti.
Fundurinn stóð yfir í um þrjá
klukkutíma og var honum lokið um
sexleytið í gærkvöldi.
Aðalsteinn sagði í samtali við
mbl.is að staðan sem myndaðist eft-
ir að samningurinn féll í atkvæða-
greiðslu hefði verið greind á fund-
inum og um leið viðraðar
hugmyndir um mögulegar breyt-
ingar á samningnum.
Annar fundur hefur verið boð-
aður klukkan tvö á þriðjudaginn
næstkomandi.
Sáttur við vinnu nefndanna
Í umræðunni hefur komið fram
sú ásökun á hendur forsvarsmönn-
um Icelandair að þeir hafi svikið
heiðursmannasamkomulag sem
gert hafi verið við undirritun samn-
ingsins, og þess í stað skilið vísvit-
andi eftir atriði sem bæta hafi átt
við samninginn eftir undirritun
samningsaðila.
Ríkissáttasemjari vildi ekki tjá
sig um hvort þessar sögusagnir
hefðu haft áhrif á samningaviðræð-
urnar í gær, en sagði að samtalið á
öllum fundum samningaraðila hefði
verið opinskátt, hreinskipt og virkt.
Þá sagðist hann vera mjög sáttur
með þá vinnu sem samninganefnd-
irnar hefðu unnið, bæði á milli
funda og á fundum. Aðalsteinn
sagði stöðuna engu að síður vera
flókna og þrönga, en að fundurinn í
gær hefði verið ágætur. »22
Opinskáar viðræður í flókinni stöðu
Samninganefndir FFÍ og Icelandair ræddu stöðuna í gær Nefndirnar hittast næst á þriðjudaginn
Ljósmynd/Flugfreyjufélag Íslands
Undirritun Frá undirritun samningsins sem felldur var á miðvikudaginn.
Samninganefndir funduðu aftur í gær í fyrsta sinn frá atkvæðagreiðslu.