Morgunblaðið - 11.07.2020, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2020
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ígegnum tíðina hef ég haftgaman að því að gera eitthvaðí höndunum og þegar mér varsagt upp í Arion banka í haust
ásamt hundrað öðrum, þá þurfti ég
að velta fyrir mér hvað ég ætlaði að
fara að gera. Hvort ég vildi til dæmis
setjast í einhvern öruggan skrif-
stofustól eða gera eitthvað allt ann-
að, jafnvel með höndunum,“ segir
Þórhalla Sólveig Sigmarsdóttir, sem
skellti sér í nám í húsgagnabólstrun,
þá 55 ára.
„Aðeins tveimur vikum eftir að
mér hafði verið sagt upp í bankanum
var ég beðin um að koma þangað aft-
ur tímabundið, það var víst þörf fyrir
fólk með reynslu. Ég varð við þeirri
beiðni en var aðeins ráðin til ára-
móta. Ég vissi ekki hvort ég yrði
áfram með vinnu eftir áramót eða
ekki og það komst svo seint á hreint
hvort ég fengi fastráðningu, þannig
að í millitíðinni skráði ég mig í
Tækniskólann í nám í húsgagna-
bólstrun. Þegar mér var svo loks
boðin fastráðning í bankanum eftir
áramótin, var það of seint og ég
ákvað að þiggja hana ekki heldur
halda mig við húsgagnabólstrunina.
Ég sé ekki eftir að hafa tekið þetta
alla leið,“ segir Þórhalla, sem er al-
sæl á nýja vinnustaðnum.
„Mér finnst gríðarlega gaman
að vakna til að mæta í vinnuna á
bólstraraverkstæðið þar sem ég
starfa núna sem nemi.“
Hann er afar þolinmóður
Þórhalla er nemi hjá Bólstur-
verki á Kleppsmýrarvegi í Reykja-
vík og þar þarf hún að starfa í 48
vikur.
„Ég er búin með átta vikur hér
á verkstæðinu þar sem ég er í læri
hjá Lofti Þór Péturssyni. Ég sit við
fótskör hans og hann miðlar mér af
reynslu sinni. Hann er afar þolin-
móður og góður leiðbeinandi,“ segir
Þórhalla og bætir við að hún viti ekki
um neinn annan sem er að læra
þessa iðn núna.
„Ég er eini skráði nemandinn á
landinu í fullu námi húsgagnabólstr-
un, en ég veit um tvær stúlkur í hús-
gagnasmíði sem hafa hug á að bæta
bólstrun við sig samhliða því námi.
Þetta er orðin gömul stétt, starfandi
húsgagnabólstrarar eru flestir karl-
menn á sjötugs- og áttræðisaldri. Ég
sá því tækifæri í þessu en þar fyrir
utan langaði mig að breyta algerlega
um vettvang. Mig langði að ráða mér
alfarið sjálf, sinna því að vera amma
og vera til staðar fyrir mitt fólk. Ég
vil geta stýrt mínu lífi sjálf. Auk þess
er gríðarlega gaman að fást við hús-
gagnabólstrun, svo ég er mjög sátt
við mitt val.“
Allir hafa sína sögu að segja
Þórhalla segir að sér hafi komið
á óvart hversu fjölbreytt starf hús-
gagnabólstrara er og viðfangsefnin
ólík, því stóll sé ekki bara stóll.
„Mér finnst mjög gaman hversu
margt og skemmtilegt fólk kemur til
okkar. Allir hafa sína sögu að segja,
ekki aðeins af húsgagni sem það
kemur með, heldur líka af sér og
sínum. Þetta er fyrir vikið virkilega
líflegur vinnustaður, þó við séum að-
eins þrjú sem störfum hér á verk-
stæðinu. Mér finnst mjög gaman að
geta endurvakið notagildi húsgagna
sem kannski hafa legið lengi uppi á
háalofti. Dæmi um það er ung stúlka
sem kom hingað til okkar með gaml-
an slitinn skrifborðsstól sem leynd-
ist heima hjá henni. Hún hefði auð-
vitað alveg getað farið og keypt sér
nýjan skrifborðsstól, en henni fannst
það alveg galið. Hún vildi miklu
frekar láta yfirdekkja þann gamla
og koma honum í gagnið aftur, fyrst
hann var til, enda allt í lagi með hann
þó setan væri slitin. Sem betur fer
eru margir farnir að hugsa svona og
stóllinn var eins og nýr þegar hún
sótti hann til okkar. Þessi stóll tók
fyrir vikið ekki pláss í gámi sem er
siglt yfir hafið til förgunar í öðru
landi,“ segir Þórhalla og bætir við að
fólk liggi með ýmislegt á háloftum
og í geymslum.
„Hingað koma ótrúlegustu ger-
semar sem kannski ömmur og afar
fengu í fermingargjafir fyrir áratug-
um síðan. Ýmislegt kemur til okkar,
eldhússtólar, borðstofustólar og allt
mögulegt annað.“
Glápir á gaur með gormasófa
Þórhalla er alsæl með að vera
farin að nota skrúfvél, lofthefti-
byssu, sagir, bora og ýmis önnur
áhöld sem hún hafði ekki áður kunn-
að að fara með.
„Draumurinn er að geta ráðið
mér sjálf, hvort sem það væri að
setja upp verkstæði í bílskúrnum
heima hjá mér eða vinna hjá öðrum.
Þetta nám býður líka upp á ýmsa
möguleika, ég gæti til dæmis unnið
við að búa til leikmyndir í leikhúsum,
það er eitt af því sem ég gæti vel
hugsað mér að starfa við. Mig langar
líka til að læra meira í tengslum við
textílinn, efnin og grunninn, huga að
því hvaðan það kemur og hvernig
það er unnið. Í þessu námi opnast
nýr heimur og fólkið mitt hlær að
mér þegar ég horfi á myndbönd þar
sem amerískur gaur er að byggja
upp gamlan gormasófa. Yfir þessu
ligg ég löngum stundum,“ segir Þór-
halla og bætir við að þegar hún hafi
kvatt sína samstarfsfélaga í bank-
anum þá hafi margir sagt að þá lang-
aði til að gera eitt og annað á öðru
sviði en þeir störfuðu við.
„Eina langaði að eiga bakarí,
aðra langaði að eiga gistihús og
ýmislegt fleira, en enginn ákvað að
taka af skarið. Ég hefði eflaust
aldrei gert það ef ég hefði ekki verið
neydd í þessar aðstæður,“ segir Þór-
halla, sem hefur saumað út marga
myndina um dagana, en hún hannaði
sitt eigið risastóra Íslandskort til að
sauma út í krosssaum. Hún hélt dag-
bók um verkið, sem tók 600 klukku-
stundir að klára. Nánar er hægt að
lesa um það á baksíðu blaðsins í dag.
Hingað koma ótrúlegustu gersemar
„Starfandi húsgagnabólstrarar eru flestir karlmenn á sjötugs- og áttræðisaldri. Ég sá því tækifæri í þessu en þar fyrir utan langaði mig að
breyta algerlega um vettvang. Mig langaði að ráða mér alfarið sjálf, sinna því að vera amma og vera til staðar fyrir mitt fólk. Auk þess er
gríðarlega gaman að fást við húsgagnabólstrun,“ segir Þórhalla, sem skellti sér í nám í húsgagnabólstrun þegar henni var sagt upp í banka.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Nemi Þórhalla er alsæl með að vera farin að nota skrúfvél, loftheftibyssu, sagir, bora og ýmis önnur áhöld.
MÞetta er mín Íslandssaga »48
Borgarbókasafnið í miðbæ Reykja-
víkur býður núna í júlímánuði gestum
og gangandi að taka þátt í samvinnu-
verki sem gengur út á það að skapa
stóra klippimynd á fyrstu hæð í Gróf-
inni. Fólk er hvatt til að koma og
skoða og sjá hvað kemur upp í
hugann.
Spurt er: Hvernig líður okkur á
óvissutímum? Hvaða tilfinningar
brjótast fram við breyttar aðstæður í
heiminum? Fáum við innilokunar-
kennd, upplifum við einangrun?
Hverju vildum við geta breytt og hvað
vildum við geta sagt eða gert?
Tekið er fram að á staðnum séu
dagblöð, tímarit, póstkort og margt
fleira til að nota í klippimyndina, en
fólk er einnig hvatt til að koma með
sína eigin mynd. Verkefnið er hugsað
sem innlegg í fjölmenningu hér á
landi, frítt fyrir alla og opið kl. 11-17.
Má bjóða þér að taka þátt í að skapa klippimynd?
Hvaða tilfinningar brjótast fram
við breyttar aðstæður í heimi?
Fjölmenning Ef ég bara gæti ... á mörgum tungumálum við mynd í mótun.
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
UMFERÐAREYJAR
Sérlausnir fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki
Henta vel til að stýra umferð, þrengja
götur og aðskilja akbrautir.
Til eru margar tegundir af skiltum,
skiltabogum og tengistykkjum sem
passa á umferðareyjarnar.