Morgunblaðið - 11.07.2020, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 11.07.2020, Qupperneq 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2020 Halla Lögg. fast. 659 4044 Ólafur Sölu- og markaðsstjóri 690 0811 Ellert Sölustjóri 661 1121 Sigþór Lögg. fast. 899 9787 Hafrún Lögg. fast. 848 1489 Bárður Sölustjóri 896 5221 Elín Urður Lögg. fast. 690 2602 Elín Rósa Lögg. fast. 773 7126 Lilja Sölufulltrúi 820 6511 Kristján Sölufulltrúi 691 4252 Grensásvegur 13 - 108 Reykjavík - Sími 570 4800 - gimli.is - gimli@gimli.is Ógnvekjandi fyrir- sagnir um aukið kyn- bundið ofbeldi vegna COVID-19 hafa sést um allan heim, en það er aðeins eitt dæmi um að stúlkur og konur hafa orðið hlutfallslega harðast úti í faraldr- inum. Umskurður stúlkna og barna-hjónabönd voru dapurleg staðreynd áður en COVID-19-faraldurinn skall á, en nú bætist við að faraldurinn grefur und- an viðleitni til að uppræta þessi skaðlegu fyrirbæri. Þess vegna eru enn fleiri stúlkur í hættu. Að auki hefur skertur aðgangur kvenna að getnaðarvörnum vegna útgöngubanns eða tómra verslana aukið hættuna á óæskilegri þungun. Um allan heim hafa umönnunar- störf að miklu leyti fallið í hlut kvenna. Þau hafa lagst af auknum þunga á konur því COVID-19 hefur haft í för með sér lokun skóla og aukna umönnunarþörf aldraðra. Fleiri konur en karl- ar voru fyrir í óörugg- um störfum og í óform- lega hagkerfinu við götusölu, í húshjálp og smábúskap. COVID-19 hefur enn grafið undan fjárhag þeirra. Á alþjóðlega mann- fjöldadeginum í dag, 11. júlí, eru allir hvattir til að gefa hlutskipti kvenna og stúlkna í kjölfar COVID-19 gaum. Þessari hvatningu er hér með komið til skila. COVID-19 bitnar harðast á konum Eftir Pernille Fenger Pernille Fenger » Skertur aðgangur kvenna að getnaðar- vörnum vegna útgöngu- banns eða tómra versl- ana hefur aukið hættuna á óæskilegri þungun. Höfundur er yfirmaður Norður- landaskrifstofu Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA). Úrræðaleysi stjórn- valda í málefnum yngri hjúkrunarsjúklinga hefur verið okkur of- arlega í huga að und- anförnu. MS-félag Ís- lands og Parkinsonsamtökin eru bæði með skjól- stæðinga yngri en 67 ára sem eru í mikilli og bráðri þörf fyrir hjúkr- unarrými en gengur erfiðlega að fá pláss. Í gegnum tíðina hafa birst fréttir og umfjöllun af þessum málum en ekki er hægt að sjá að gripið hafi verið til raunverulegra aðgerða sem hafa leyst þann vanda sem uppi er. Það verður að segjast eins og er að stefnuleysi ríkir í málefnum yngri hjúkrunarsjúklinga og að í heil- brigðisstefnu fyrir íslenska heil- brigðisþjónustu til ársins 2030 er ekki minnst einu orði á þann hóp (fjöldi á biðlista kemur fram en ekki er minnst á nein úrræði). Hjúkrunarheimili falla undir lög um málefni aldraðra nr. 125 frá 1999. Hjúkrunarheimili eru hönnuð og rekin sem úrræði fyrir aldraða lasburða einstaklinga. Með einfaldri lagabreytingu frá 2018 voru ein- staklingar yngri en 67 ára sem á þurfa að halda felldir undir úrræðið án nokkurrar aðlögunar á aðstöðu, þjónustu, tekjum eða kostnaðarþátt- töku, þrátt fyrir að það megi vera öllum ljóst að yngra fólk sem á jafn- vel ung börn og maka er í allt ann- arri stöðu en aldraðir. Það er ljóst að fara þarf fram greining á þörfum þessa hóps og hvernig þeim verður best mætt þannig að hann geti notið réttrar þjónustu á réttum stað. Vandinn sem skjólstæðingar okk- ar standa frammi fyrir er tvíþættur. Í fyrsta lagi hentar núverandi kerfi ekki yngri hjúkrunarsjúklingum, enda var það hannað fyrir aldraða lasburða einstaklinga. Í öðru lagi geta verið takmarkanir á mögu- leikum og komast margir yngri hjúkrunarsjúklingar ekki inn á hjúkrunarheimili vegna reglna um inntöku á hjúkrunarheimili og dag- gjaldagreiðslna. Nauðsynlegt er að breyta kerfinu en það tekur töluverðan tíma og þarf þá að horfa til margra atriða, þar á meðal þörf á húsnæði fyrir yngri hjúkrunarsjúklinga auk breytinga á lögum og reglugerðum. Verulegra breytinga er þörf á hús- næði, lögum og reglugerðum. Félög- in MS-félagið og Parkinsonsamtökin eru í samstarfi um að vinna þessum breytingum framgang. Reglugerð nr. 466 frá 2012 um færni- og heilsumat á um að þegar hjúkrunarrými losni á stofnun skuli stofnunin fá aðgang að upplýsingum um tvo einstaklinga sem óskað hafa eftir að dvelja þar og eru metnir í mestri þörf fyrir slíkt rými. Ákvörð- un um þessa tvo einstaklinga skal byggð á stigafjölda samkvæmt færni- og heilsumati, einnig skal höfð hliðsjón af því hvort viðkom- andi hafi legið lengur en sex vikur á sjúkrahúsi án möguleika á útskrift nema í hjúkrunarrými eða beðið lengi í mikilli þörf fyrir dvöl. Ekki virðist að finna nein ákvæði í þess- um lögum eða reglugerðum sem verja rétt einstaklingana, t.d. með hámarki á fjölda hafnana eða að tímafrestur sé settur um útvegun hjúkrunarrýmis að fenginni nið- urstöðu úr færni- og heilsumati. Heilbrigðisráðherra hefur það t.d. á sínu valdi að setja slík ákvæði í reglugerðina um framkvæmd á lög- um um málefni aldraðra. Einnig hefur heilbrigðisráðherra það á sínu valdi að semja við hjúkrunarheim- ilin um hærri daggjöld fyrir þennan hóp til að koma til móts við auknar þarfir um hjúkrun og margvíslega þjónustu, sem gæti liðkað fyrir inn- töku. 8. júní síðastliðinn sendum við ákall um viðbrögð til heil- brigðisráðherra, Landlæknis og Velferðarnefndar Alþingis um mál- efni tveggja skjólstæðinga í neyð en þegar þetta er skrifað, rúmum mán- uði síðar, höfum við enn ekki fengið nein efnisleg svör og skjólstæðingar okkar eru enn á vergangi í kerfinu. Að okkar mati er úrvinnsla mála skjólstæðinga okkar klárlega mann- réttindabrot og krefjumst við þess enn og aftur að úr málum þeirra verði leyst hið fyrsta, þar sem þessir einstaklingar og aðstandendur þeirra búa við mikla neyð. Í dag eru 146 einstaklingar yngri en 67 ára á hjúkrunarheimilum, 91 karlar og 55 konur, skv. upplýs- ingum frá Landlækni, og 33 eru á biðlista eftir hjúkrunarrými. MS- félags Íslands og Parkinson- samtökin telja mikilvægt að stjórn- völd leggi áherslu á að mæta þörf- um yngri hjúkrunarsjúklinga og horfa til þess hvernig hægt sé bregðast við þeirri neyð sem uppi er. Neyð yngri hjúkrunarsjúklinga Eftir Björgu Ástu Þórðardóttur og Vilborgu Jónsdóttur » Að okkar mati er úr- vinnsla mála skjól- stæðinga okkar klárlega mannréttindabrot og krefjumst við þess enn og aftur að úr málum þeirra verði leyst hið fyrsta, þar sem þessir einstaklingar og að- standendur þeirra búa við mikla neyð. Björg Ásta Þórðardóttir Björg Ásta er formaður MS-félags Íslands og Vilborg formaður Parkinsonsamtakanna. Vilborg Jónsdóttir Þann 6. júlí síðast- liðinn birti Morgun- blaðið ritstjónargrein með titlinum „Eitt ríki, eitt vont kerfi“ þar sem komið var fram með óréttmætar ásakanir og stað- reyndir túlkaðar með hlutdrægum hætti, varðandi nýja löggjöf til varnar þjóðaröryggi í Hong Kong. Auk þessa voru settar fram órökstuddar athugasemdir varðandi málefni Hong Kong. Kína harmar sterklega þessi ummæli og lýsir andstöðu við þessa túlkun. Í ritstjórnargreininni er því haldið fram að löggjöfin vegi að kerfinu „eitt ríki, tvö kerfi“ og hafi umbreytt því í kerfi sem kalla mætti „eitt ríki, eitt vont kerfi“ og gagnrýndi Beijing fyrir að brjóta í bága við skuldbind- ingar og skyldur Kína sem kveðið var á um í hinni sameiginlegu yfir- lýsingu milli Bretlands og Kína vegna Hong Kong. Þessar ásakanir eiga við engin rök að styðjast og hafa þann eina tilgang að valda rugl- ingi. Í fyrsta lagi, í öllum ríkjum, bæði sjálfstæðum ríkjum og ríkja- samböndum, hefur ríkislöggjafinn einn lögsögu í þeim málum er varða þjóðaröryggi. Ríkisstjórn Kína inn- leiddi þessa löggjöf með löglegum hætti og í samræmi við stjórnarskrá landsins, og stefnunni „eitt ríki, tvö kerfi“ er á engan hátt stefnt í voða, eða snúið upp í hið svokallaða „eitt ríki, eitt kerfi“. Tilgangur lagasetn- ingarinnar er að loka mikilvægum glufum í lagasetningu Hong Kong varðandi þjóðaröryggi, festa í sessi grundvöll „eins ríkis“ og hámarka öryggi fyrir Hong Kong, en á sama tíma beisla styrkleika „tveggja kerfa“ sem eru byggð á grunninum „eitt ríki“, sem mun efla kerfið „eitt ríki, tvö kerfi“ til lengri tíma litið. Í öðru lagi er hinn lagalega grunn fyrir því að kínverska ríkisstjórnin stjórni í Hong Kong að finna í kín- versku stjórnarskránni og í stjórnarskrá sjálfstjórnarhéraðsins Hong Kong. Hin sameiginlega bresk-kínverska yfirlýsing hefur ekki gildi í þessu samhengi. Þegar Kína tók við yfirráðum aftur yfir Hong Kong árið 1997 voru öll skil- yrði varðandi Bretland í sameig- inlegu yfirlýsingunni uppfyllt. Bret- land hefur engin yfirráð, lögsögu eða rétt til eftirlits í Hong Kong eftir að héraðinu var skilað aftur heim. Grundvöllur stefnunnar sem snýr að Hong Kong, sem kveðið er á um í sameiginlegu yfirlýsingunni, snýr á engan hátt að Bretlandi, heldur yfir- lýsingu Kína. Þessi stefna hefur ekkert breyst og mun Kína halda áfram að virða stefnuna. Í ritstjórnargreininni koma fram órökstuddar ásakanir og rangtúlk- anir varðandi það að löggjöfin grafi undan mannréttindum og frelsi íbúa Hong Kong. Grunnur þjóðaröryggislagasetn- ingarinnar er að mannréttindi séu virt og stuðlað sé að jafnvægi á milli frelsis og regluverks. Í reglugerð- inni kemur skýrt fram að íbúar Hong Kong skuli njóta réttinda og frelsis, og þar með talið frelsis til tjáningar, fjölmiðlunar, útgáfu- starfsemi, félagafrelsis, réttarins til að koma saman og til að mótmæla á friðsamlegan hátt samkvæmt lögum. Lagasetningin er í samræmi við grundvallarreglu þeirra mannrétt- inda sem réttarríkið er byggt á. Þjóðaröryggi má ekki vera ógnað undir yfirskyni mannréttinda og frelsis. Það er því nauðsynlegt að gera skýran greinarmun á tjáning- arfrelsi og málflutningi sem grefur undan almannahagsmunum og rétt- indum og hagsmunum annarra íbúa. Það eru sambærileg ákvæði í stjórnarskrá yfir 100 annarra þjóð- ríkja, í alþjóðasáttmálanum um borgaraleg og stjórn- málaleg réttindi og í mannréttindasáttmála Evrópusambandsins og kveða þau á um að grundvallarmannrétt- indi og frelsi þegna skuli ekki ógna þjóðar- öryggi, eða almanna- hagsmunum. Í ritstjórnargreininni er ýjað að því að laga- setningin taki til óljóst skilgreindra brota og því geti kínversk yfirvöld misnotað lagasetninguna til að kúga þegnana. Hræðsluáróður sem þessi gerir ekk- ert annað en að ýta undir ónauðsyn- legan ótta og áhyggjur. Ríkisstjórn Kína hefur veitt heimastjórn Hong Kong lögsögu yfir miklum meiri- hluta þeirra mála sem tengjast þjóðaröryggi á svæðinu og fram- fylgir þeim einungis í undantekn- ingartilfellum samkvæmt ströngu samþykktarferli. Löggjöfin sem um ræðir tekur til nútíma réttarfars- reglna, svo sem viðeigandi skilgrein- ingum og refsingum fyrir skilgreind afbrot, að menn séu saklausir uns sekt er sönnuð, og að lögin séu ekki afturvirk. Löggjöfin setur skýr mörk og reglur um framkvæmd lag- anna og sér til þess að skrifstofa þjóðaröryggismála ríkisstjórnar- innar í sjálfstjórnahéraðinu Hong Kong muni fylgja lögunum í hví- vetna og skuli sæta eftirliti til að tryggja það. Lagasetningin tekur einungis til afmarkaðra glæpa og starfsemi sem gæti stefnt þjóðar- öryggi ríkisins alvarlega í hættu. Lagasetningin felur alls ekki í sér að sjálfkrafa sé litið á mótmælendur eða lýðveldissinna sem „óvini“ og lagasetningin mun engin áhrif hafa á löghlýðna íbúa Hong Kong. Hong Kong býr yfir fjölbreyttu pólitísku kerfi og hefur kerfið „eitt ríki, tvö kerfi“ í Hong Kong nú þegar endur- speglað pólitískan sveigjanleika kín- versku ríkisstjórnarinnar. En eins og öll önnur kerfi hefur kerfið „eitt ríki, tvö kerfi“ sín tak- mörk. Eins og annars staðar ber íbúum að virða lögin og ættu að virða grundvallarreglur ríkisins. Lagasetningin dregur skýr mörk eins og hið tvíeggja sverð Damókles- ar sem hangir yfir höfðum þeirra and-kínversku afla sem hafa staðið fyrir upplausninni í Hong Kong. Þeir sem halda áfram að ögra lög- unum geta átt von á því að vera dregnir til ábyrgðar. Hong Kong er hluti af Kína. Mál- efni Hong Kong eru innanríkismál í Kína. Þessi lagasetning er til að styrkja löggjöf til verndar þjóðar- öryggi í einu héraði Kína, og er í fullu samræmi við væntingar íbúa Hong Kong um friðsælt líf, en því hefur verið stefnt í hættu síðasta ár- ið vegna óróa í þjóðfélaginu. Ég von- ast til að stofnskrá Sameinuðu þjóð- anna verði að fullu virt þar sem sú grundvallarregla er sett fram að virðing skuli ríkja gagnvart fullveldi og að ekkert ríki hafi rétt til að hlutast til um innanríkismál annarra ríkja. Ég vonast einnig til að mönn- um auðnist að líta á löggjöfina með yfirveguðum og óhlutdrægum hætti og að það náist að vinna að því lang- tímamarkmiði að í Hong Kong ríki friður og velmegun. Ritstjórnargrein um Hong Kong svarað Eftir Le Shuang Le Shuang » Talsmaður kín- verska sendiráðsins á Íslandi svarar ómak- legri gagnrýni í rit- stjórnargrein Morgun- blaðsins vegna nýrrar lagasetningar til varnar þjóðaröryggi í Hong Kong. Höfundur er talsmaður kínverska sendiráðsins á Íslandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.