Morgunblaðið - 11.07.2020, Side 30

Morgunblaðið - 11.07.2020, Side 30
30 MESSUR Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2020 Það er ekki létt verk fyrir mig að skrifa minningar- orð um Skafta, þennan sómadreng sem ég kynntist þegar hann hóf störf í slökkviliðinu á Keflavíkurflug- velli 1975. Lengst af hefur það verið veiðiskapur sem hefur tengt okkur saman og þá allur veiði- skapur í sjó, ám og vötnum. Skafti var mikið náttúrubarn og honum leið hvergi betur en þegar hann var að lalla á milli veiðistaða og naut þess að vera úti í náttúrunni og ekki skemmdi félagsskapurinn í kringum Skafta, hann var allt- af góður. Ég man alltaf þegar við fór- um saman í Eyrarvatn 1979 og hann ætlaði að kenna mér að veiða lax. Það mátti ekki á milli sjá hvor okkar var glað- ari, ég eða kennarinn, þegar 7 p hrygna lá á bakkanum á milli okkar en ég veiddi. Það var líka eftirminnilegt þegar ég landkrabbinn fór með Skafta í minn fyrsta og eina róður á 11 tonna trillu sem Skafti og Ragnar Ragnarsson félagi okkar tóku á leigu og voru á honum á línu einn vetur. Auðvitað bilaði báturinn í skítabrælu og var báturinn dreginn í land af 250 t netabát. Við togið kastaðist þessi litla skel út og suður og ég var viss um að þetta væri mitt síðasta. Ég kvartaði en hann skellihló og dottaði í rólegheitum. Svona var Skafti. Ég var líka með Skafta í fyrsta skipti sem ég fór í golf en hann spilaði mikið golf og mér fannst alltaf eins og að hann þekkti hverja einustu þúfu á sínum ástkæra Sand- gerðisvelli en þar var hann löngum stundum í sínum frí- tíma. Það var eins með golfið og veiðina, alltaf var hann tilbú- inn að leiðbeina og hjálpa ef honum fannst eitthvað vera eins og það átti ekki að vera. Það var svo árið 2004 sem við félagar í Veiðifélaginu Víð- förla samþykktum að taka Skafta inn í hópinn og var það mikið gæfuspor og þá sérstak- lega fyrir yngri félaga okkar. Eins og áður sagði var Skafti óþreytandi að kenna öllum og leiðbeina með stangir, hjól, lín- ur og þá sérstaklega veiðiað- ferðir en það eru ekki margir sem hafa veitt eins víða og Skafti. Þá var Skafti hrókur alls fagnaðar í veiðiferðum fé- lagsmanna spilaði gúrku við hvert tækifæri og sagði enda- lausar veiðisögur. Skafti Þórisson ✝ Skafti Þóris-son fæddist 6. september 1941. Hann lést 29. júní 2020. Útförin fór fram 10. júlí 2020. Þegar hann var kominn í sagna- gírinn lá við að andlitin dyttu af mönnum sem ekki höfðu heyrt þær áður og efuðust margir um sann- leiksgildi sumra þeirra. En það veit ég, sem hef hlustað á þær flestallar, að þær eru sannar og það sem gerir þær svona skemmtilegar er að Skafti lék þær oft líka með miklum tilþrifum og þá var mikið hlegið. Öll börnin mín, tengdabörn og sonasynir voru svo lánsamir að kynnast og/eða vera í veiði með Skafta og það er ósjaldan sem þeir minnast á hann með miklu þakklæti fyrir kennsluna sem þeir að sjálfsögðu búa að alla ævi. Það var eins í slökkviliðinu, hann var mikill félagi þar og naut mikils traust hjá öllum starfsmönnum liðsins og var hann trúnaðarmaður slökkvi- liðsmanna í nokkur ár. Þá var Skafti kosinn formaður Félags slökkviliðsmanna á Keflavíkur- flugvelli á miklum umbrota- tímum á vellinum og gegndi þeirri stöðu í nokkur ár og gerði hann það af mikilli prýði. Að lokum viljum við Björg þakka Skafta fyrir samveruna og vonum að hann eiga góða heimkomu hvert sem hann fer. Þá viljum við veiðifélagar hans í Víðförla votta börnum hans og mökum þeirra og fjölskyldu hans allri okkar dýpstu sam- úðarkveðjur og þökkum fyrir lánið á þessum góða dreng. Við öll höfum misst góðan félaga og vin en minningin lifir. Jónas Marteinsson. Það var sárt að fá fréttir af andláti Skafta vinar míns og vinnufélaga til margra ára. Fyrstu kynni okkar Skafta voru þegar ég byrjaði í slökkvi- liði Keflavíkurflugvallar árið 1978. Það sem einkenndi Skafta var gleði og jákvæðni. Við misjafnar aðstæður á vakt- inni að nóttu sem degi sá Skafti alltaf ljósið, gerði gott úr hlutunum og lagði sig alltaf fram um að leysa sem best úr málum. Margar góðar stundir áttum við saman við bridsborðið en Skafti var góður á því sviði sem og í öðru sem hann tók sér fyrir hendur. Við Anna eigum margar góðar minningar um Skafta frá þeim tíma þegar við byggðum húsið okkar. Skafti sá um að múra húsið að utan og ég var handlangarinn og lærlingurinn en Skafti kenndi mér margt á þessum tíma varðandi múrverk. Bestu minningar mínar um Skafta eru frá þeim tíma þegar hann var formaður Félags slökkviliðsmanna á Keflavíkur- flugvelli. Þegar Skafti tók að sér formennsku í félaginu voru erfiðir tímar hjá okkur slökkvi- liðsmönnum á Keflavíkurflug- velli og þar fengum við mann í forystu sem lagði sig fram af lífi og sál með hagsmuni félag- anna í fyrirrúmi. Á þessum árum starfaði ég náið með Skafta og dáðist að áhuga hans og drifkrafti í okk- ar þágu, vil ég þakka Skafta fyrir ómetanlegt framlag hans til Félags slökkviliðsmanna á Keflavíkurflugvelli. Eftir að leiðir okkar skildi við starfslok í slökkviliðinu lágu leiðir okkar saman stöku sinnum á golfvellinum en eins og á öðrum sviðum var Skafti mjög liðtækur í golfi. Nú hefur Skafti kvatt okkur en minningin um frábæran fé- laga lifir áfram og kveð ég þennan mikla meistara með miklum söknuði. Ég votta öllum ættingjum og vinum Skafta mína innilegustu samúð. Ó. Ingi Tómasson. Vertu sæl, vor litla ljúfan blíða, líf sé Guði, búin ertu’ að stríða. Upp til sælu sala saklaust bam án dvala. Lærðu ung við engla Guðs að tala. (Matthías Jochumsson) Elsku Bjarghildur Vaka, litla stelpuskott, með sterkt nafn, svo brothætt og viðkvæm frá fyrstu tíð, svo hlédræg og þögul með fallegan rauðljósan makkann. Við sitjum eftir vanmáttug með sálarsár og spyrjum okkur spurninga sem engin svör eru við og óskir sem ekki verða. Hvíl í friði, elsku litla hjarta. Minning þín er ljós þess lífs sem þú lifðir, elsku Bjarghildur Vaka. Afi Hákon og Kristín (Stína). Þú komst í heiminn samferða bróður þínum. Lífið faðmaði ykk- ur og bauð velkomin. Við tóku falleg æskuár og margs góðs er að minnast. Ég man litla rauðhærða snót í sveitinni hjá ömmu sinni og afa; vaða í læknum, hlaupa berfætta Bjarghildur Vaka Einarsdóttir ✝ BjarghildurVaka Einars- dóttir fæddist 16. janúar 1998. Hún lést 27. júní 2020. Útför Bjarghild- ar fór fram 9. júlí 2020. út á túni, fara í hestaferðir um fjöll og firnindi þar sem sagðar voru sögur, sungið og hlegið. Þá var gott að vera til. Svo urðu kafla- skil. Þú varðst út undan, utanvelta og varðst fyrir einelti. Þú varðst fyrir meinsemd sem nær- ist í einföldu sam- félagi manna. Eftir sast þú með opið sár og brosið þitt bjarta dofnaði. Mömmukoss dugði ei til og verndarvængur bróður þíns var fjöðrum sínum reyttur. Nýtt upphaf á nýjum stað og vonin kviknaði á ný. Lífið spurði eftir þér og vildi fá þig með út að leika. En skugginn lét þig ekki í friði. Enginn leitar augna minna, sagðir þú og skuggavera þín leiddi þig í djúpan dal. Lífið tók á sig ýmsar skuggamyndir. Þetta er tímabil sem líður hjá vonuðum við. En þig hafði vetur merkt, grimmur geirsoddur. Pabba- faðmur dugði ei til og þú heyrðir ekki umhyggjuorð systkina þinna. Skuggamynd þín teymdi þig í burtu frá okkur og þú hvarfst inn í eilífðina. Ég er þakklát fyrir þann stutta en dýrmæta tíma sem við áttum með þér, elsku Bjarg- hildur. Minning þín mun lifa áfram í hjörtum okkar. Góða ferð í sumarlandið. Ragnhildur Helgadóttir. ÁRBÆJARKIRKJA | Sumarleg helgi- stund og ferming kl. 11. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir flytur hugvekju og þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Árbæj- arkirkju leiða sönginn og Benjamín Gísli Einarsson leikur á flygilinn. Kaffi og spjall eftir stundina. ÁSKIRKJA | Helgihald fellur niður vegna sumarleyfa sóknarprests og starfsfólks Áskirkju. Næst verður messað í kirkjunni sunnudaginn 9. ágúst 2020 kl. 11. BÚSTAÐAKIRKJA | Kvöldmessa sunnudaginn 12. júlí kl 20. Kvöld- messa með léttri stemmingu, séra Eva Björk Valdimarsdóttir leiðir stundina, Anna Sigríður Helgadóttir syngur létt sumarlög við undirleik Þórðar Sigurðs- sonar orgelleikara og messuþjónar að- stoða í helgihaldinu. DIGRANESKIRKJA | Yfir sumar- tímann er samstarf milli kirknanna í Kópavogi um helgihald. Sunnudaginn 12. júlí kl. 11. er guðsþjónusta með skírn í Hjallakirkju. Guðsþjónustan er í umsjá sr. Gunnars Sigurjónssonar og Láru Bryndísar Eggertsdóttur organista. Boðið er upp á kaffi og meðlæti að lok- inni guðsþjónustu. DÓMKIRKJA KRISTS KONUNGS, Landakoti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18, og má., mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 18 er vigilmessa og messa á pólsku kl. 19. DÓMKIRKJAN | Guðsþjónusta klukk- an 11. Prestur séra Elínborg Sturlu- dóttir, félagar úr Dómkórnum leiða sönginn. EGILSSTAÐAKIRKJA | Hádegisbæn í Safnaðarheimili alla þriðjudaga kl. 12:15. Orgeltónleikar í kirkjunni sunnu- daginn 12. júlí kl. 20. Jónas Þórir og ís- lensku þjóðlögin. Aðgangseyrir 2.500 kr. EGILSSTAÐAPRESTAKALL | Árleg útimessa í dreifbýli Egilsstaðapresta- kalls fer að þessu sinni fram á flötinni við Geirsstaðakirkju í landi Litla-Bakka í Hróarstungu (við Tunguveg nr. 925) sunnudaginn 12. júlí kl. 16. Prestur er Þorgeir Arason og Torvald Gjerde leikur á harmoniku undir sálmasöng. Skúli Björn Gunnarsson segir frá Geirsstaða- kirkju og tilgátunum að baki bygging- unni. Gott að taka með sér til messunnar eitthvað til að sitja á og ekki spillir nestisbiti fyrir messukaffi í lokin. GRAFARVOGSKIRKJA | Kaffihúsa- messa verður í Grafarvogskirkju sunnu- daginn 12. júlí kl. 11. Sr. Arna Ýrr Sig- urðardóttir þjónar. GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta sunnudag kl. 11. Organisti er Ásta Har- aldsdóttir, félagar úr kór Grensáskirkju syngja. Prestur er Eva Björk Valdimars- dóttir. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Sumar- kirkjan, samstarfsverkefni kirkna í Hafnarfirði og Garðabæ. Guðsþjónusta í Garðakirkju á Álftanesi kl. 11. Sr. Þór- hildur Ólafs leiðir stundina. Organisti er Kristín Jóhannesdóttir. Kaffisopi á eftir í Króki. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar að- stoða. Félagar úr Mótettukór Hallgríms- kirkju syngja. Organisti er Tómas Guðni Eggertsson. Hádegismessa miðvikud. kl. 12. Bænastundir kl. 12 fimmtudag og föstudag. Orgeltónleikar fimmtudag kl. 12.30. Matthías Harðarson leikur. HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Una Dóra Þorbjörnsdóttir syngur einsöng og leiðir safnaðarsöng. Gísli Magna leikur á píanó. Prestur er séra Helga Soffía Konráðsdóttir. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Yfir sumartímann er samstarf milli kirkn- anna í Kópavogi um helgihald. Sunnu- daginn 12. júlí kl. 11. er guðsþjónusta með skírn í Hjallakirkju. Guðsþjónustan er í umsjá sr. Gunnars Sigurjónssonar og Láru Bryndísar Eggertsdóttur organ- ista. Boðið er upp á kaffi og meðlæti að lokinni messu. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu- dagaskóli. Guðsþjónusta kl. 20. Tónlist er í höndum Óskars Einarssonar . Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar. NESKIRKJA | Kaffihúsaguðsþjónusta í safnaðarheimilinu kl. 11. Söngur, hressing og samfélag um Guðs orð. Kaffi og myntute úr garði Neskirkju auk vatns og safa í boði. Börnin fá myndir og liti. Ef veður er mjög gott verður guðsþjónustan færð út í garð. Félagar úr kór Neskirkju syngja og leiða söng á stundinni, prestur er sr. Steinunn Arn- þrúður Björnsdóttir. NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-Njarð- vík | Kvöldmessa í Njarðvíkurkirkju kl. 20. Sr. Baldur Rafn þjónar til altaris og félagar úr kirkjukórnum leiða söng undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar. SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson predikar og sönghópur undir stjórn Hjördísar Geirsdóttur syngur. Fermd verður ein stúlka í athöfninni. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason. Í messunni verður flutt tón- list frá sumartónleikum helgarinnar er Hildigunnur Halldórsdóttir og Halldór Bjarki Arnarson flytja tónlist eftir Jo- hann Sebastian Bach. SLEÐBRJÓTSKIRKJA í Jökulsár- hlíð | Sumarmessan á Sleðbrjót verður sunnudaginn 12. júlí kl. 14. Prestur Þor- geir Arason. Organisti Jón Ólafur Sig- urðsson. Kór Kirkjubæjar- og Sleð- brjótskirkna syngur. Meðhjálpari Margrét Dögg Guðgeirsd. Hjarðar. VALLANESKIRKJA | Messa laugar- daginn 11. júlí kl. 14. – Ferming. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Torvald Gjerde. Kór Vallaness og Þingmúla syngur. Morgunblaðið/Brynjar GautiSkálholtskirkja. á morgun Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Emilía Jónsdóttir, félagsráðgjafi Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.