Morgunblaðið - 11.07.2020, Side 38

Morgunblaðið - 11.07.2020, Side 38
38 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2020 Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 ára og eldri 60 ára Júlía ólst upp í Nígeríu fyrstu árin en síðan í Reykjavík og er búsett í Kópavogi. Júlía er hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir að mennt og er verkefnastjóri á Heilsugæslunni í Garðabæ. Maki: Stefán Jóhannesson, f. 1963, framkvæmdastjóri Þekkingar. Börn: Helga Þórey, f. 1978, Sara María, f. 1980, Jóhannes, f. 1988, Alexander, f. 1990, Hugrún Hanna, f. 1992, og Stefán Örn, f. 1998. Stjúpbarn er Andri, f. 1985. Barnabörn eru átta og eitt langömmu- barn. Foreldrar: Ómar Tómasson, f. 1934, d. 1970, flugstjóri, og Patricia Ann Hardy, f. 1940, fv. bókari, bús. í Manchester. Júlía Linda Ómarsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert svo sjálfstæður að stundum manstu ekki eftir því að biðja um hjálp. Reyndu að minna þig á forgengileika hlut- anna. 20. apríl - 20. maí  Naut Ákafi þinn kallar á hrifningu annarra og aðdáun svo það er eins gott að þú getir fylgt honum eftir af fullum krafti. Gerðu þitt til að ná fram jákvæðum breytingum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Deilur um eignir eða peninga geta spillt vináttu. En líttu ekki of lengi um öxl því það er framtíðin sem skiptir máli. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Vertu ekki stífur og þver því með því ertu að grafa þína eigin gröf. Gættu þess bara að ganga ekki á rétt annarra. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er undir sjálfum þér komið hvort samskipti þín eru góð eða slæm við annað fólk. Samstarfsfólk þitt getur líka komið þér á óvart með einhverjum hætti. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Samstarfsmenn þínir bera traust til þín og leita aðstoðar þinnar þegar á bjátar. Gættu þess samt sem áður að fara varlega með fé annarra. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ekki reyna að sannfæra aðra um þitt sjónarmið núna. Sýndu þínar bestu hliðar til þess að allt fari vel. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú þarft að leggja þitt af mörkum til þess að vináttan dafni. Ef þú misstígur þig hvergi muntu uppskera ánægjuleg laun erfiðis þíns í aðdáun vinnufélaga þinna. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Til að komast af er þér nauð- synlegt að hafa frelsi. Vertu samt við- búin/n því að stórir og góðir hlutir geti reynst erfiðir meðan á þeim stendur. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þér kann að finnast eigin til- finningasemi fullmikil í dag. En það er nauðsynlegt svo krefjandi verkefni verði leyst eins og vera ber. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Gættu þess að ganga ekki svo hart fram að þú bíðir tjón á heilsu þinni. Reyndu að skapa sjálfum þér sóknarfæri og fylgdu þeim svo fast eftir. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér finnast of margir sækja að þér í einu og vilt því leita uppi einveruna. Hug- urinn dvelur hugsanlega við ferðaáætlanir eða einhvern sem er langt í burtu. 50 ára starf varðandi skip, þá fylgist maður eins og hægt er með afla- brögðum þeirra skipa sem maður hefur hannað og sjóhæfni þeirra. Í síðustu viku las ég mér til ánægju að þrír aflahæstu ísfisktogararnir í síðasta mánuði voru ms. Drangey, ms. Málmey og ms. Björgúlfur, sem eru allir hannaðir af mínu fyrir- tæki.“ Bárður er hluthafi og situr í stjórn Nautic ehf., sem er hönn- unarfyrirtæki í skipahönnun, sem starfar aðallega á erlendum mark- aði, einkum í Rússlandi með stóra skrifstofu í Pétursborg. Bárður tók þátt í rekstri Hand- knattleiksdeildar ÍR um nokkra ára skeið og hefur verið virkur í stjórn sumarhúsafélags í Skorradal í þó stúdent frá stærðfræðideild MA 1965, tók fyrrihlutapróf í vélaverk- fræði frá Háskóla Íslands 1968 og MS-próf í skipaverkfræði í janúar 1972 frá DTH í Kaupmannahöfn. Bárður starfaði þrjá mánuði á Siglingamálastofnun Íslands 1972 og var ráðinn eftirlitsmaður með ný- smíði á sex skuttogurum fyrir ís- lenska útgerðarmenn, sem byggðir voru í Flekkefjord í Noregi 1972- 1974. Hann stofnaði verkfræðistof- una Skipatækni ehf. ásamt Ólafi H. Jónssyni 1974 (d. 1984) og hefur starfað þar síðan við hönnun á ný- smíði skipa og breytingar á skipum, eftirlit, samningagerð o.fl. Skipa- tækni hefur hannað stóran hluta af farsælustu og endingarbestu fiski- skipum íslenska flotans. „Eftir nær B árður Hafsteinsson fæddist 11. júlí 1945 á Ísafirði og bjó þar samfellt þar til hann fór í Menntaskólann á Akureyri. „Það var gott að alast upp á Ísafirði sem var lítið sam- félag, þar sem allir þekktust. Ég bjó alla tíð í Túngötu nr. 1, efri- bæjarpúki, eins og það var kallað. Ég man eftir því að Torfnes-slipp- urinn var vinsælt leiksvæði okkar strákanna í þessum bæjarhluta. Rækjuverksmiðja var byggð á Torfnesinu á þessum árum og fékk maður vinnu þar á sumrin við að pússa dósirnar eftir að þær komu úr suðunni. Þetta var fyrsta laun- aða starfið að mig minnir. Síðan tók við vegavinna og uppskipun úr síðu- togurunum Ísborgu og Sólborgu, sem voru nýsköpunartogararnir á Ísafirði. Stundum fékk maður ekki vinnu við löndun og þá fór maður heim og hnýtti net, sem var notað í trollið á þessum síðutogurum. Ég var handlangari hjá múrurum í nokkur sumur og var það mjög góð- ur skóli, sérstaklega er maður fór sjálfur að byggja sitt eigið hús.“ Í kringum fermingu vann Bárður á sumrin hjá Skipasmíðastöð Marselíusar á Ísafirði. „Þá var enn verið að smíða tréskip þar og var það fróðlegt að kynnast því hand- verki. Ég man svo eftir því þegar fyrsta stálið fyrir fyrstu nýsmíðina kom frá Noregi og við vorum settir í það að landa því á Ísafirði. Þarna var hugurinn farinn að reika um framtíðarstarf varðandi skipin. Sumarstörfin á menntaskólaárun- um voru í skipasmíðastöðinni á Ísa- firði. Þetta voru mjög lærdómsrík störf fyrir unglinga á þessum árum og sá maður það glöggt, er ég hóf nám við DTH í Kaupmannahöfn, hvað við Íslendingarnir höfum fjöl- breytta starfsreynslu miðað við dönsku félaga okkar.“ Bárður var virkur í starfi skátafélagsins Einherja á Ísafirði á meðan hann var á Ísafirði, spilaði í Lúðrasveit Ísafjarðar um skeið og stundaði skíðaíþróttina á Ísafirði. Eftir nám við barna- og gagn- fræðaskóla Ísafjarðar varð Bárður nokkur ár. „Vegna starfsins hef ég ferðast víða um heiminn, auk Evrópulanda, til Kína, Nýja- Sjálands, Chile og nú síðustu árin Tyrklands. Helsta áhugamálið síð- ustu árin hefur verið fjölskyldulífið, fylgjast með uppvexti barnabarn- anna, sumarbústaðurinn í Skorra- dal, svo og ferðalög til útlanda með eiginkonunni og gömlum skóla- félögum.“ Fjölskylda Eiginkona Bárðar er Edda Gunn- arsdóttir, f. 2.10. 1948, leikskóla- kennari. Þau eru búsett í Reykjavík. Foreldrar Eddu: Hjónin Gunnar Tómasson, f. 26.3. 1919, d. 14.9. 1989, vélaverkfræðingur, og Doris Jessen, f. 25.9. 1925 í Kaupmanna- Bárður Hafsteinsson, skipaverkfræðingur og framkvæmdastjóri – 75 ára Ljósmynd/Bjarni Felix Bjarnason Fjölskyldan Myndin er tekin 2018 en á hana vantar yngsta barnabarnið, Arnar Felix Pálmason. Hannar endingargóða togara Kaldbakur EA-1 Það fyrsta af fjórum systurskipum sem voru smíðuð í Tyrk- landi fyrir Íslendinga, hannað af Skipatækni, á heimleið í febrúar 2017. Hjónin Edda og Bárður þegar hann hlaut fálkaorðuna 17. júní sl. 50 ára Svanur er Vestmannaeyingur, fæddur þar og uppal- inn. Hann er vélfræð- ingur að mennt frá Vélskóla Íslands og er vélstjóri á Herjólfi. Svanur situr í knatt- spyrnuráði ÍBV, er frímúrari og er vara- maður í stjórn Félags vélstjóra og málm- iðnaðarmanna. Maki: Ingunn Arnarsdóttir, f. 1976, skóla- liði í Grunnskóla Vestmannaeyja. Dætur: Helga Sigrún, f. 2002, Anna Mar- grét, f. 2006, og Lilja Kristín, f. 2009. Foreldrar: Helga Björgvinsdóttir, f. 1941, d. 2000, fiskvinnslukona, og Gunnsteinn Jón Ársælsson, f. 1923, d. 1996, fiski- matsmaður. Þau voru búsett í Vest- mannaeyjum. Svanur Gunnsteinsson Til hamingju með daginn Garðabær Pétur Darri fæddist 23. ágúst 2019 kl. 3.53. Hann vó 4.455 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Guðrún Sigurðardóttir og Þröstur Pétursson. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.