Morgunblaðið - 11.07.2020, Qupperneq 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2020
Þeir sem leggja fyrir sig at-
vinnumannsferil í liðsíþróttum
fara vandrataða leið. Að vera á
réttum stað á réttum tíma og
taka rétta ákvörðun um næsta
skref á ferlinum er mikil kúnst.
Það hefur verið gaman að
fylgjast með ferli körfubolta-
mannsins Martins Hermanns-
sonar frá því hann hélt í atvinnu-
mennsku til Frakklands árið
2016.
Hann hefur tekið réttu skref-
in. Fór í frönsku B-deildina, það-
an í A-deildina, og frá Frakklandi
til eins besta liðs Þýskalands, og
um leið í Euroleague. Eftir að
hafa unnið stóru titlana í Berlín
og leikið til úrslita í Evrópu-
keppni liggur leiðin í bestu deild í
Evrópu, með Valencia á Spáni.
Alls staðar hefur Martin fest
sig í sessi sem lykilmaður og
hefur vaxið og þroskast með
hverju verkefni. Við höfum svo
séð hann á sama tíma verða sí-
fellt mikilvægari hlekk og leið-
toga í íslenska landsliðinu.
Hann mun án efa halda sínu
striki hjá Valencia, sem hefur
fengið Martin til sín til að gegna
stóru hlutverki, ekki bara til að
auka breiddina í hópnum.
En svo er það mínusinn við
velgengni körfuboltamanna. Þar
sem deildirnar Euroleague og
EuroCup eru reknar af sjálf-
stæðu fyrirtæki, eins og NBA, án
aðkomu Alþjóða körfuknattleiks-
sambandsins, eru möguleikar
þeirra sem þar spila á að leika
með landsliðum sínum mjög tak-
markaðir.
Martin, Haukur Helgi og
Tryggvi Snær eru á stærsta svið-
inu í Evrópu, þeir eru allir í liðum
sem eru í hópi þeirra bestu á
Spáni og spila í Evrópukeppni.
Þar með fáum við líkast til lítið
að sjá til þeirra í landsliðsbúningi
Íslands á næstu árum. Ekki er við
þá að sakast og vonandi setja
þeir sterkan svip á spænsku
deildina á komandi vetri.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Handknattleiksmaðurinn Tumi
Steinn Rúnarsson hefur gert
tveggja ára samning við Val.
Kemur hann til félagsins frá Aftur-
eldingu, en Tumi er uppalinn hjá
Val og lék þar áður en hann hélt í
Mosfellsbæinn. Hefur Tumi verið á
meðal bestu leikmanna Aftureld-
ingar síðustu tvö ár og lykilmaður
hjá yngri landsliðum Íslands. Tumi
skoraði 45 mörk í 19 leikjum með
Aftureldingu á síðustu leiktíð og
var í fjórða sæti yfir markahæstu
menn liðsins. Valur er ríkjandi
deildarmeistari.
Tumi aftur á
heimaslóðir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heim Tumi Steinn Rúnarsson er
kominn heim á Hlíðarenda.
Kjartan Henry Finnbogason og
samherjar hans hjá Vejle þurfa að-
eins eitt stig til viðbótar úr síðustu
þremur leikjum sínum til að komast
upp úr dönsku 1. deildinni í fótbolta
og upp í úrvalsdeildina eftir 2:0-
útisigur á Vendsyssel í gær. Viborg
náði aðeins jafntefli gegn Fremad
Amager og munar því níu stigum á
liðunum þegar aðeins þrjár umferð-
ir eru eftir. Kjartan komst ekki á
blað í gær, en hann er markahæst-
ur í deildinni með 17 mörk. Vejle
féll á síðasta ári og virðist ætla að
staldra stutt við í 1. deild.
Þurfa eitt stig
til viðbótar
Ljósmynd/Vejle
Nálægt Kjartan Henry Finn-
bogason er nálægt sæti í efstu deild.
SPÁNN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Martin Hermannsson hefur verið
spenntur fyrir því að spila með
spænska félaginu Valencia frá tólf
ára aldri. Nú hefur sá draumur ræst
því í gærmorgun tilkynnti Valencia
formlega að samið hefði verið við
Martin til næstu tveggja ára, auk
þess sem þriðja árið er í samningn-
um líka en Martin hefur möguleika á
að fara annað að tveimur árum liðn-
um. Um svokallaðan 2+1-samning
er því að ræða.
Martin sagði við Morgunblaðið í
gær að áhugi sinn fyrir Valencia
hefði vaknað þegar Jón Arnór Stef-
ánsson lék með liðinu tímabilið 2006-
2007.
„Ég fór þá með fjölskyldunni í frí
til Alicante og við fórum og hittum
Jón Arnór í Valencia. Þetta hefur
verið mjög spennandi félag í mínum
augum alla tíð síðan og ég er afar
spenntur fyrir því að leika með því
næstu árin.
Það er ekki bara körfuboltinn sem
heillar í Valencia, heldur líka lífið og
borgin, góða veðrið og ströndin.
Þetta verður allt annað en í Frakk-
landi og Þýskalandi að þessu leyti,
og svo er deildin á Spáni sú sterk-
asta í Evrópu,“ sagði Martin.
Hann þekkir líka vel til Valencia,
liðsins og heimavallarins, eftir að
hafa spilað þar þrisvar með Alba
Berlín undanfarin tvö ár. Liðin léku
til úrslita í EuroCup vorið 2019 þar
sem Valencia vann einvígið 2:1 og
liðin unnu sína heimaleiki. Í Euro-
league í vetur vann svo Valencia
fjórtán stiga sigur á Alba á heima-
velli en leikurinn í Þýskalandi fór
ekki fram vegna kórónuveirunnar.
„Þeir höfðu yfirhöndina í öllum
leikjunum á sínum heimavelli á móti
okkur, enda er það gríðarlega sterkt
vígi hjá þeim,“ sagði Martin og veit
því vel að hverju hann gengur en
honum er ætlað stórt hlutverk í liði
Valencia næstu árin.
„Þeir lögðu mikla áherslu á að fá
mig en í vikunni var útlit fyrir að ég
væri á leið til Fenerbahce í Tyrk-
landi. Þá komu upp atriði í samn-
ingnum sem ég var ekki ánægður
með og um leið kom Valencia fram
með mun betra tilboð og yfirbauð
allt sem aðrir höfðu boðið. Ég talaði
við þjálfarann og fékk sama fiðring
og ég fékk þegar ég ákvað að semja
við Alba Berlín fyrir tveimur árum.“
Breiddin er mest á Spáni
Hann sagði að breiddin á Spáni
gerði útslagið um að deildin þar væri
sterkari en annars staðar í Evrópu.
„Já, þetta er eina deildin í Evrópu
þar sem topplið getur ekki bókað
sigur gegn botnliðinu, liðin eru öll
það sterk. Svo á Spánn fjögur lið í
Euroleague, fleiri en nokkur önnur
þjóð. Munurinn á Spáni og Þýska-
landi er sá að Spánverjar eiga svo
mikið af góðum körfuboltamönnum
sem dreifast vel á liðin á meðan
breiddin er minni í Þýskalandi og
bestu þýsku leikmennirnir safnast
saman í sterkustu liðunum.“
Frábært að vera þrír íslenskir
„Svo verður frábært að við skul-
um verða þrír Íslendingarnir í þess-
ari sterku deild í vetur,“ sagði Mart-
in en Haukur Helgi Pálsson samdi
fyrr í vikunni við Andorra, sem var í
sjötta sæti þegar keppni var hætt í
mars, og Tryggvi Snær Hlinason
leikur með Zaragoza sem var í þriðja
sætinu. Öll liðin verða í Evrópu-
keppni, Valencia og Martin í Euro-
league, Andorra og Haukur í Euro-
Cup og Zaragoza og Tryggvi í
Meistaradeild FIBA.
Dettur ekki í hug að kvarta
Martin fékk að kynnast miklu
leikjaálagi á síðasta tímabili því í
þýsku deildinni eru spilaðir 34 leikir
og svo eru 34 leikir líka í Euro-
league. Síðan bætist við úrslita-
keppni ef vel gengur. Sami fjöldi liða
er á Spáni og í Þýskalandi.
„Já, þetta eru 70-80 leikir á tíma-
bili ef vel gengur, nánast eins og
fjögur tímabil á Íslandi, en þó varð
þetta allt styttra á þessu ári út af
kórónuveirunni. Álagið er mikið en
það er vel hugsað um okkur. Við er-
um með breiðan og góðan hóp, eins
og hjá Alba Berlín þar sem reynt var
að láta mann ekki spila mikið meira
en 20 mínútur í hverjum leik og
dreifa álaginu sem mest á hópinn.
En mér dettur ekki í hug að kvarta,
þetta er það sem ég vil gera í lífinu
umfram allt annað,“ sagði Martin.
Unnu spænsku deildina 2017
Valencia hefur verið í fremstu röð
í Evrópu, sem og á Spáni, um árabil
og leikið samfleytt í efstu deild frá
1996. Félaginu hefur ekki tekist að
vinna spænska meistaratitilinn. Það
vann spænsku ACB-deildina 2017 en
tapaði úrslitaeinvíginu um titilinn.
Liðið vann Evrópubikarinn (Euro-
Cup) 2019 og þar áður 2014, 2010 og
2003.
Eftir sigurinn 2019, þar sem
Martin og félagar í Alba Berlín töp-
uðu áðurnefndu úrslitaeinvígi gegn
Valencia, færðist liðið upp í Euro-
league, sterkustu deild Evrópu. Þar
var liðið í tíunda sæti þegar keppni
var hætt í marsmánuði, sex sætum
og sex stigum ofar en Alba Berlín.
Valencia hefur af og til leikið í Euro-
league á undanförnum árum en ekki
verið með fastan keppnisrétt þar.
Valencia var í 7. sæti í spænsku
deildinni þegar keppni var hætt í
mars og lék í úrslitakeppninni sem
fór fram í júní en komst ekki í
undanúrslitin.
Sömdu við NBA-leikmann
Valencia hefur verið stórtækt á
leikmannamarkaðnum í sumar.
Martin er þriðji leikmaðurinn sem
félagið semur við á nokkrum dögum.
Bandaríski framherjinn Derek
Williams er kominn frá Fenerbahce
í Tyrklandi en hann hefur leikið með
sex liðum í NBA-deildinni, Minne-
sota, Sacramento, New York
Knicks, Miami og Cleveland, og síð-
ast nokkra leiki með Los Angeles
Lakers árið 2018. Slóvenski lands-
liðsbakvörðurinn Klemen Prepelic
er kominn frá Real Madrid þar sem
hann hefur verið á mála í tvö ár en
hann lék síðasta tímabil sem láns-
maður með Joventut Badalona í
sömu deild.
Fleiri Íslendingar í Valencia
Eins og áður kom fram lék Jón
Arnór Stefánsson með Valencia
tímabilið 2006-2007 og lauk síðan at-
vinnuferlinum með liðinu tímabilið
2015-2016. Tryggvi Snær Hlinason
var í röðum Valencia frá 2017 til
2019 en var lánaður þaðan til
Obradorio seinna árið. Þá er Hilmar
Smári Henningsson á meðal leik-
manna varaliðs Valencia og spilar
með því í fjórðu efstu deild.
Nýtir tímann á Íslandi
Martin er í góðu fríi á Íslandi eftir
að hafa átt stóran þátt í að tryggja
Alba Berlín þýska meistaratitilinn í
úrslitakeppninni í München í lok
júní.
„Ég á að mæta til Valencia 10.
ágúst til að hefja undirbúnings-
tímabilið en það er ekki komin end-
anleg dagsetning hvenær við byrjum
að æfa og svo á eftir að koma í ljós
hvort ég þarf að fara fyrr til að fara í
sóttkví. Euroleague á að byrja í
október og væntanlega byrjar
spænska deildin í lok september. En
ég einbeiti mér fram að því að lifa í
núinu hér á Íslandi og nýta tímann
sem best með fjölskyldu og vinum
áður en við förum til Spánar,“ sagði
Martin Hermannsson.
Martin spenntur fyrir
Valencia frá 12 ára aldri
Heimsótti Jón Arnór og er nú sjálfur orðinn leikmaður spænska stórliðsins
AFP
Flytur Martin Hermannsson í síðasta leiknum með Alba Berlín, seinni úr-
slitaleiknum gegn Ludwigsburg um þýska meistaratitilinn 28. júní.
Real Madrid, Manchester City, Juv-
entus, Lyon, Napoli, Barcelona,
Chelsea og Bayern München munu
bítast um eitt sæti í úrslitaleik
Meistaradeildar karla í fótbolta í
ágústmánuði.
Á meðan eru aðeins fjögur lið
sem koma til greina sem hitt liðið í
úrslitaleiknum en það eru Atlético
Madrid, RB Leipzig, Atalanta og
París SG.
Þetta varð niðurstaðan í gær
þegar dregið var til átta liða úrslita
og undanúrslita keppninnar sem
leikin verða í Portúgal 12.-19.
ágúst. Þar verður síðan úrslitaleik-
urinn spilaður 23. ágúst.
Fjögur einvígi eru óútkjáð í 16-
liða úrslitum, Man.City – Real Mad-
rid (2:1), Juventus – Lyon (0:1),
Bayern – Chelsea (3:0) og Barce-
lona – Napoli (1:1). Þeim verður
lokið 7. og 8. ágúst.
Í 8-liða úrslitum mætast:
Real /Man.City – Lyon/Juventus
Napoli/Barca– Chelsea/Bayern
RB Leipzig – Atlético Madrid
Atalanta – París SG
Í undanúrslitum leika sigurveg-
arar tveggja efri leikjanna við
sigurvegara í leik hinna tveggja.
Alls staðar er um einn leik að ræða.
Stærstu fé-
lögin mætast
innbyrðis