Morgunblaðið - 11.07.2020, Page 43

Morgunblaðið - 11.07.2020, Page 43
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Í fyrirlestrum mínum umsamfélagslegt mikilvægidægurtónlistar segi ég gjarnan að regluharka og íhalds- semi hvað útlit og ímynd varðar sé hvergi jafn mikil og í þunga- rokkinu. Ég segi þetta gjarnan með grínaktugum svip, jafnvel kersknislegum. En það er vissu- lega mikið til í þessu. Hvað veldur? Þungarokk er líklega öflugasti og stærsti undirgeiri samtíma dægurtónlistar, þeir sem aðhyllast stefnuna láta sér tón- listina einatt ekki nægja eina og sér heldur hefur þetta að gera með allsherjar lífsstíl; klæðnað, hárgreiðslu, framkomu og hvers- dagsheimspeki. Talað er um sen- ur en hér eiga mannfræðileg ætt- bálkafræði líka við, þar sem reglur, siðir og venjur eru með fastmótuðum hætti. En er hægt að leiða líkur að því að óvenju mikið sé um slíkt hugarfar í þungarokki? Er þessi mikla áhersla á reglur og rútínur mögulega lykillinn að farsæld og mikilli útbreiðslu þungarokksins? Við erum dýr vanans og viljum form og vissu, hvort sem við kjós- um að viðurkenna það eða ekki. Eru það þungarokkararnir sem vita það best eftir allt saman? Fyndið, að það sem átti upp- runalega að tákna eitthvað villt sé svo eftir allt saman svona fer- kantað. Ég þarf ekki að telja upp tákn hins hefðbundna þungarokk- ara, sem við sjáum í mönnum eins og Lemmy, James Hetfield og Bruce Dickinson. Fókussins vegna skulum við hins vegar færa okkur í átt að svartþungarokki, sem er einslags undirstefna þungarokks og nokkuð öfgakennt afbrigði þess. Þar eru reglurnar jafnvel enn stífari. Pistill þessi spratt reyndar upp úr netspjalli á milli mín og Morgunblaðskollega, hvar ég var að senda honum mynd með einhverjum svartþungarokkspistl- inum. Þar stóðu fjórir piltar, á svart/hvítri mynd, grimmúðlegir á svip, að baki snævi þöktum fjöllum (eða var skógur eða jafnvel kirkja?). Dulúð og dulmögn yfir – eins og á öllum þessum ljós- myndum. Nú er ég að ýkja, en lík- indin á milli kynningarmynda svona sveita, veri þær frá Rúss- landi, Noregi eða Íslandi eru iðu- lega mikil. En, það er samt, þegar vel tekst til, eitthvað svalt og spennandi við þetta. Eins barna- legt og það kann að hljóma. Það er tendrað í tíu ára stráknum í manni sem elskar skarplega fram sett og einföld ævintýr með for- ynjum og finngálknum. Teikni- myndaveruleikinn gerir þessum böndum síst einhvern miska. Spyrjið bara Iron Maiden. Svartþungarokkið er þó, eins þversagnakennt og það kann að hljóma, ein frjóasta undirstefnan hvað tilraunastarfsemi í sjálfri tónlistinni varðar. Ímyndarvinna hefur hins vegar ekki sveiflast í sömu átt. Sveitir eins og Liturgy og Deafheaven, sem leika af- brigði af svartþungarokki, hafa verið úthrópaðar af reglugerðar- riddurum þar sem sú fyrsta lítur út eins og neðanjarðarrokkband frá níunda áratugnum (hvítir bol- ir!) og Deafheaven klæðir sig eins og Interpol. Svartþungarokks- löggan var ekki lengi að gefa út handtökuskipun. Tónlistin skiptir engu. Kannski er þetta ekki mikið öðruvísi annars staðar. Tónlistar- tegundum fylgir ávallt ákveðin tíska sem er alveg sæmilega niðurnjörvandi. Hefðir skapast sem fylgt er í blindni. Lengi vel litu allir klassískir geisladiskar eins út, allir kántrílistamenn voru með hatt og allir svartþunga- rokkarar stafa sveitarnöfn sín með letri sem minnir á kræklótt- ar trjágreinar. Ég á enn eftir að fá íslenska kynningarmynd af svartþungarokkssveit hvar með- limir eru skellihlæjandi og með fíflagang. Mér rann kalt vatn á milli skinns og hörunds eftir að hafa skrifað þessa setningu. Ég held að ég myndi ekki meika þannig ljósmynd... Þunga- og öfgarokks- sveitir fylgja venjulega afar stífum fagurfræði- legum reglum þegar kemur að því að vinna að ímynd sinni út á við. Af hverju stafar þetta og er þetta eitthvað skárra í öðrum geirum? Ljósmynd/Valhallartworks Ljósmynd/Hafsteinn Viðar - Verði ljós. Ljótleiki fegurðarinnar Misþyrming Svartklæddir huldumenn, með nostagísk kúlnabelti. » Fyndið, að þaðsem átti uppruna- lega að tákna eitthvað villt sé eftir allt saman svona ferkantað. Nyrst Kunnugleg minni hjá svartþungarokkssveitinni Nyrst. MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is ©2019 Disney/Pixar SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Póstkortamorðin , hörkuspennandi þriller byggð á sögu eftir Lizu Marklund og James Patterson, sem komið hefur út í íslenskri þýðingu. EXTENDED EDITION EXTENDED EDITION Í FYRSTA SINN Í BÍÓ Á ÍSLANDI Í FYRSTA SINN Í BÍÓ Á ÍSLANDI Sýnd með íslensku tali Í TILEFNI AF 40 ÁRA AFMÆLI ÞESSI STÓRKOSTLEGA MYND SÝND Í ÖRFÁA DAGA.90% Variety Píanóleikarinn Magnús Jóhann Ragnarsson og bassaleikarinn Skúli Sverrisson koma fram á stofutónleikum á Gljúfrasteini á morgun, sunnudag, og hefjast þeir klukkan 16. Magnús og Skúli hafa komið víða við í sinni tónlistarsköpun sem flytj- endur, höfundar og útsetjarar, en leiða nú hesta sína saman sem tvíeyki. Þeir munu leika frumsamin verk Magnúsar sem hann samdi sérstaklega fyrir flutning þeirra fé- laga. Þeir hafa einnig hafist handa við hljóðritun á tónlistinni sem flutt verður. Morgunblaðið/Árni Sæberg Bassaleikarinn Skúli Sverrisson treður upp með Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni. Magnús og Skúli á Gljúfrasteini Sönghátíð í Hafnarborg lýk- ur með tvennum tónleikum. Á laugardag kl. 17 eru tónleikar ástralska stór- söngvarans Stuarts Skelton sem kemur fram með Matthildi Önnu Gísladóttur píanóleikara. Á sama tíma á sunnudag heiðra lista- menn tónskáldið ástsæla Jón Ás- geirsson. Fram koma söngvararnir Kristinn Sigmundsson, Herdís Anna Jónasdóttir, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Hrólfur Sæmundsson og Gunnlaugur Bjarnason, Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleik- ari og Francisco Javier Jáuregui gítarleikari. Skelton syngur og Jón hylltur Jón Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.