Morgunblaðið - 15.07.2020, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 15.07.2020, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sveitarstjórn Djúpavogshrepps hef- ur samþykkt að úthluta lóð á at- hafnasvæði við Innri-Gleðivík á Djúpavogi fyrir byggingu frauð- plastskassaverksmiðju. Kassarnir eru ætlaðir fyrir flutning á laxi en rekið er laxasláturhús fyrir Austur- land á Djúpavogi. Stefnt er að því að hefja framleiðslu á kössum næsta vor. „Það hafa verið áform hjá okkur lengi um að koma þessu í gang. Ýmis áföll sem dunið hafa yfir hafa frestað þeim,“ segir Elís Hlynur Grétars- son, einn af eigendum sjávarútvegs- fyrirtækisins Ósness sem hyggst standa fyrir uppbyggingunni í sam- vinnu við norskt fyrirtæki sem rekur slíkar verksmiðjur um alla Evrópu. Kórónuveirufaraldurinn er eitt þeirra áfalla sem fyrirtækið varð fyrir. Tvær verksmiðjur framleiða frauðkassa fyrir fiskeldi og annan fisk hér á landi en Elís segir að vandræði séu með flutninga yfir endilangt landið. Hver kassi er fyrir- ferðarmikill þótt hann sé aðeins um 600 grömm að þyngd og því er að- allega verið flytja loft frá Hafnar- firði til Djúpavogs þegar kassarnir eru fluttir austur. Samvinna við Norðmenn Ósnes stendur að rekstri Búlands- tinds ásamt fleirum og þar er rekið laxasláturhús fyrir Fiskeldi Aust- fjarða og Laxa fiskeldi og unninn annar fiskur. Æskilegt hefði verið að byggja kassaverksmiðjuna við hús Búlands- tinds en ekki er pláss þar og þess vegna var sótt um fimm þúsund fer- metra lóð fyrir verksmiðjuhús og at- hafnasvæði við Innri-Gleðivík. Sótt var um lóðina í nafni félagsins BWEI box Iceland. Þar eru jafn- framt áform um byggingu laxa- sláturhúss og tók sveitarstjórn einn- ig vel í þau áform. Gengið verður í að gera deiliskipulag þannig að hægt verði að ganga frá lóð fyrir kassa- verksmiðjuna. Elís segir að gera megi ráð fyrir að uppbygging kassaverksmiðj- unnar kosti upp undir milljarð króna. Aðkoma norska fyrirtækisins sé nauðsynleg. Þeir hafi þekkinguna og muni eignast helming hlutafjár. Í upphafi er aðeins hugsað um að framleiða hefðbundna laxakassa sem taka 23 kíló. Elís vill ekki úti- loka að síðar verði hafin framleiðsla á fiskikössum í öðrum stærðum. Reiknað er með að fjórir starfsmenn verði við framleiðsluna til að byrja með. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Pökkun Allur lax fer í frauðplastskössum og þarf laxeldið því marga kassa. Myndin er frá pökkun á Bíldudal. Áform uppi um kassaverksmiðju fyrir laxeldið  Fengin lóð fyrir framleiðsluna við Innri-Gleðivík á Djúpavogi Gunnlaugur Snær Ólafsson Sighvatur Bjarnason Vinnudeila milli Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair er enn óleyst og fátt vitað um fram- haldið, en deiluaðilar funduðu í húsakynnum Ríkissáttasemjara í dag. „Við áttum ágætan fund í dag [gær] sem byrjaði klukkan tvö og var til hálf sex en framhaldið er óráðið. Ég ætla að vera í sambandi við samninganefndirnar með tímasetningu á næsta fundi, en hún hefur ekki verið ákveðin. Ég ætla aðeins að sjá til og vera í góðu sambandi [við samningsaðila],“ segir Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari. Spurður hver staðan sé nú segir hann hana óbreytta. „Það fór kjarasamningur í atkvæða- greiðslu sem var felldur og við erum ekki búin að ná samningum. Sú staða er óbreytt, þannig að verkefnið fer ekki í burtu. Okkur fannst ekki skynsamlegt að ákveða tímasetningu á næsta fundi núna. Við ætlum að sjá hvernig málin þróast en, enginn formlegur fundur hef- ur verið ákveðinn.“ Þá kveðst hann ekki geta sagt neitt um það hvort samningsaðilar hygg- ist halda viðræðum áfram. „Við verðum bara að sjá hvernig málin þróast á næstu dögum.“ Fátt gefið upp Samningsaðilar gefa lítið upp um framgang viðræðna og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir blaðamanns tókst ekki að ná sambandi við full- trúa Flugfreyjufélagsins. Jens Bjarnason, formaður samninganefndar Icelandair, sagði í samtali við mbl.is í gær að hann gæti ekki annað gert en að tilkynna for- stjóra félagsins að ekki hefði tekist að ná samn- ingum. Var hann afdráttarlaus með að Ice- landair gæti ekki teygt sig lengra og ljóst væri að hagræðingu yrði að ná fram til að tryggja framtíð reksturs félagsins. Tækist það ekki væri það í höndum stjórnar að ákveða fram- haldið. Bætti Jens því við að mikill fjöldi fé- lagsmanna Flugfreyjufélagsins hefði sett sig í beint samband og lýst yfir vonbrigðum með ástandið og spurt um úrræði sín. Óvíst um næstu fundi í deilunni  Fundi flugfreyja og Icelandair hjá Ríkissáttasemjara lauk án lausnar  Formaður samninganefndar Icelandair segir félagið ekki geta teygt sig lengra  Næsti fundur hefur ekki verið tímasettur Morgunblaðið/Eggert Deilumál Ekki er vitað hvenær samninga- nefndirnar munu hittast til fundar á ný. Giljaböðin skammt frá Húsafelli í Borgarfirði njóta vaxandi vinsælda meðal ferðamanna. Búnar voru til jarðhitalaugar, með mismunandi hitastigi, auk einnar kaldrar uppsprettu. Böðin eru byggð úr náttúrusteini úr gilinu og í þau er veitt vatni úr heitum uppsprettum á staðnum. Gengið er frá Húsafelli að laugunum um 1,5 km leið. Farnar eru skipulagðar ferðir með leið- sögn, sem taka um tvo tíma. Morgunblaðið/Eggert Giljaböðin í Húsafelli njóta vaxandi vinsælda Íslensk stjórn- völd fylgjast grannt með þró- un mála hjá ná- grannaþjóðum Íslands í tengslum við upp- byggingu á 5G- kerfi og aðkomu kínverska fjar- skiptarisans Hua- wei að þeirri upp- byggingu, sagði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra í sam- tali við mbl.is í gær inntur álits á ákvörðun breskra yfirvalda um að útiloka Huawei frá uppbyggingu 5G í landinu. „Okkar afstaða hefur verið mjög skýr og hún breytist ekkert: Net- öryggismál eru alvöru öryggismál og þjóðaröryggi er eitthvað sem við eigum alltaf að hafa í forgangi. Það er sömuleiðis þjóðaröryggismál fyrir Ísland að geta áfram átt greið fjar- skipti við bandalagsríki og að þau líti á Ísland sem öruggt fjarskiptaum- hverfi. Það er ekkert nýtt hvað okk- ur varðar,“ sagði hann. »11 & 12 Guðlaugur Þór Þórðarson Fjarskipti Íslands séu örugg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.