Morgunblaðið - 15.07.2020, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 15.07.2020, Blaðsíða 17
heimilum hvor annarrar. Við fylgdumst að í Ísaksskóla og það- an í Hvassaleitisskóla og Ármúla- skóla. Á uppvaxtarárum okkar í Hvassaleitinu var hverfið að byggjast upp. Gríðarlegur fjöldi barna og endalausir möguleikar til leikja í hálfbyggðum húsum og svo allt það óbyggða svæði sem þarna var, þetta er svæðið þar sem Kringlan, Borgarleikhúsið og öll sú byggð er í dag. Svo tóku fullorðinsárin við. Þrátt fyrir að við værum að fast við ólíka hluti í lífinu, og búsetu beggja erlendis um skeið, héldum við alltaf sambandi. Á milli okkar var þráður sem aldrei slitnaði. Það skipti engu máli þótt margir mán- uðir gætu liðið milli þess að við værum í sambandi, þegar við hitt- umst var alltaf eins og við hefðum hist daginn áður. Í seinni tíð þegar um fór að hægjast hjá báðum urðu svo samskipti okkar tíðari. Það var alltaf tilhlökkunarefni að hitta Bryndísi. Hún var einhver eðlis- greindasta manneskja sem ég þekkti og nálgaðist alltaf hlutina með skynsamlegum og öfgalaus um hætti. Svo var svo gott að hlæja með henni. Það er ekki hægt að minnast Bryndísar öðruvísi en að nefna Kristján manninn hennar. Það var svo gott að vera nálægt þeim vegna þess að þau voru ástfangin og þeim leið vel saman. Það eru grimm örlög fyrir Kristján og fjölskyldu Bryndísar að missa hana allt of snemma. Ég á erfitt með að trúa því að samtöl okkar Bryndísar verði ekki fleiri, við vorum alls ekki búnar að ræða allt það sem þurfti að ræða. Ég bið allar góðar vættir að vaka yfir minningu Bryndísar og yfir fólkinu hennar. Þórunn Guðmundsdóttir. Í dag kveð ég með sorg í hjarta kæra vinkonu til margra ára. Við Bryndís kynntumst þegar eigin- menn okkar voru að fara í sérnám til Bandaríkjanna. Það tókst mikill vinskapur meðal okkar og fleiri stelpna í sömu stöðu. Eftir tveggja ára dvöl í Banda- ríkjunum flutti hún ásamt fjöl- skyldu sinni til Svíþjóðar. Við vor- um duglegar að halda sambandi þótt fjarlægðin væri mikil og eng- ar tölvur til staðar. Við vorum heimavinnandi með börnin og tók- um upp á segulband sem við send- um á milli landa. Eftir heimkomu til Íslands tók- um við vinkonurnar sex upp á að hittast reglulega og var það ekki síst Bryndísi að þakka, sem var alltaf svo hress og drífandi. Við fórum í nokkrar utanlands- ferðir saman og þá var alltaf kíkt í búðir. Þá var gott að hafa Bryndísi með til að gefa sitt álit en hún var mikil smekkmanneskja, alltaf svo sæt og fín til fara. Bryndís var mér mjög kær vin- kona og mat ég það mikils þegar hún bað mig að vera svaramaður sinn þegar hún giftist seinni manni sínum, Kristjáni, fyrir nokkrum árum. Bryndís og Kristján voru mjög samrýnd hjón og áttum við hjónin margar góðar stundir með þeim. Við vorum dugleg að skella okkur saman út að borða og í bíó. Eft- irminnileg er ferð okkar til Parísar og einnig til Frankfurt þar sem við hittum bróður Kristjáns og mág- konu. Bryndís var kletturinn í fjöl- skyldunni, hélt vel utan um börnin sín og ekki síður barnabörnin. Var alltaf að gera skemmtilega hluti með þeim, hvort heldur var hjóla- ferðir, fjöruferðir, föndur eða bakstur. Hún var dugleg að taka myndir og senda og leyfa manni að fylgjast með hópnum sínum sem hún var mjög stolt af. Hún sinnti móður sinni af mikilli ást og umhyggju öll þau ár sem hún lifði og einnig móðurbróður sínum, Ara frænda, eins og hann er alltaf kallaður. Það var mikið reiðarslag að taka á móti símtalinu um andlát hennar. Hún var alltaf svo hress og dugleg, stundaði líkamsrækt af fullum krafti, snögg í hreyfingum og geisl- andi af hreysti. Það mun taka lang- an tíma að sætta sig við að hún sé farin frá okkur. Elsku Kristján, Ingigerður, Edda, Rannveig Ása og Magnús Ari, ykkar missir er mikill. Ég bið góðan guð að styrkja ykkur í þess- ari miklu sorg. Takk fyrir allt, elsku vinkona. Margrét Sigurðardóttir (Gréta). Fréttin um lát okkar elskulegu vinkonu kom sem reiðarslag yfir hópinn. Orð eins og umhyggjusöm, hlý, hvetjandi og skemmtileg koma upp í hugann. Bryndís hvatti okkur áfram í ræktinni og var alltaf til í einn kaffibolla eftir góða æfingu, áður en hún dreif sig heim til Krist- jáns svo hann vaknaði ekki einn. Það lýsir elsku Bryndísi svo vel, sinnti okkur ræktarfélögunum í 6- hópnum með hlýlegri hvatningu og gaf sér tíma sem var svo mikilvæg- ur í andlegu heilsuræktinni. Síðan dreif hún sig heim til að vekja ást- ina sína. Alltaf tók hún brosandi á móti öllum með sínum kærleika. Fögur að utan sem innan. Barna- börnin voru henni alltaf efst í huga og missir þeirra er mikill. Margar góðar minningar koma upp í hug- ann eins og þegar þau hjónin buðu okkur vinunum í 6-hópnum á sitt glæsilega heimili í Kópavoginum. Við stelpurnar orðlausar yfir glæsileikanum og strákarnir struku yfir vandaðan viðinn fullir aðdáunar. Að öðrum ólöstuðum er veislan hjá þeim Bryndísi og Kristjáni sú skemmtilegasta, dýr- mæt minning sem lifir í hjörtum okkar. Stórt skarð er nú höggvið í hópinn okkar en meiri er sorgin og söknuðurinn hjá Kristjáni og börnunum. Hugur okkar er hjá þeim. Með þakklæti í huga fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum með elsku Bryndísi okkar sendum við fjölskyldunni innilegustu sam- úðarkveðjur. Minning um yndis- lega vinkonu lifir. Þínir vinir, Þyrí, Íris, Ragnhildur, Erla, Margrét, Andri, Valgerður, Atli, Ásta K., Auður, Svava, Sigurður, Kristín, Ingólfur, Bjartur, Lárus, Kristján, Kristinn, Patrick, Erla Leifs, Heiða, Björn, Ásta Á., Ingólfur og Guðný Lára. Í dag kveðjum við okkar góðu vinkonu og félaga Bryndísi. Hver hefði trúað því fyrir nokkrum dög- um þegar við hittumst að örlög Bryndísar yrðu slík. Við vorum svo heppnar að kynnast Bryndísi fyrir um 30 ár- um í New York þegar við vorum flestar búsettar þar. Við héldum áfram að hittast þegar við fluttum heim til Íslands, hver af annarri, og höfum haldið hópinn undir heit- inu Ameríkuklúbburinn. Við höfum hist reglulega á kaffi- húsum borgarinnar, heima hjá hver annarri og átt margar góðar stundir saman. Bryndís var alltaf mætt og hafði frá mörgu skemmti- legu að segja og skal þá helst nefna barnabörnin sem hún unni mikið og var dugleg að heimsækja og sinna. Þau, eins og við öll, eiga eftir að sakna hennar. Árleg aðventu- eða jólaboð hafa líka verið fastur liður hjá hópnum okkar og þá eru eiginmennirnir með og hafa þeir náð vel saman. Síðasta boð var einmitt hjá Bryn- dísi og Kristjáni og var vel veitt hjá þeim, enda miklir gestgjafar. Bryndís var dugleg að hvetja okkur stelpurnar til að ferðast saman til útlanda og fórum við í nokkrar mjög skemmtilegar og eftirminnilegar ferðir í gegnum ár- in; París, Berlín, Kaupmannahöfn, Barcelona og Boston. Næsta ferð átti að vera til London nú í sept- ember. Það var því reiðarslag þegar Bryndís var tekin svo snögglega frá okkur á þessum fallega degi, 2. júlí, í blóma lífsins. Við erum þakklátar fyrir að hafa kynnst þér elsku Bryndís okkar. Fjölskylda þín á samúð okkar allra. Far þú í Guðs friði. Þínar vinkonur, Guðbjörg, Hafdís, Gréta, Barbara og Oddný. Stórt skarð hefur verið höggvið í vinkvennahópinn! Yndisleg vinkona og bekkjar- systir frá unga aldri er skyndilega horfin burt frá okkur, allt of snemma – svo snöggt. Bryndís var allra manna hugljúfi, falleg og glæsilegur töffari, eiginkona, fjög- urra barna móðir og margföld yndisleg amma. Við höfum fylgst að í gegnum lífið, frá frumbernsku eða fyrstu sporum í grunnskóla, en allar vor- um við svo saman í bekk í Hvassa- leitisskóla og höfum haldið hópinn í ríflega hálfa öld. Þegar grunn- skólagöngu lauk fórum við í ýmsar áttir til þroska og mennta. Um það leyti ákváðum við að setja á stofn saumaklúbb svo við myndum ekki missa hver af ann- arri. Við hlógum að því að kannski yrðum við enn í þessum sauma- klúbbi um fimmtugt – það var langt í það þá. Seinna fóru sumar okkar til útlanda og allar bjuggum við á ýmsum stöðum til lengri eða skemmri tíma, en alltaf var taugin sterka til staðar á milli okkar. Fyrir 32 árum eignuðumst fimm af okkur börn á rúmlega þriggja mánaða tímabili. Okkur fannst það fyndið og skemmtilegt að mæta í saumaklúbb og komast að því að svo margar ættu von á sér á sama tíma. Þessir jafnaldrar urðu skólafélagar í Ísaksskóla um nokkurra ára skeið, sum líka bekkjarfélagar. Flest hittust þau svo aftur í Versló. Það fannst okk- ur vinkonunum ekki leiðinlegt. Vinskapur og kærleikur innan hópsins hefur vaxið með árunum og við hist reglulega, þótt við höf- um verið hættar að þykjast sauma. Okkur þótti meira um vert að hittast og deila upplifunum okkar og fylgjast með lífi hver annarrar, sitja saman og spjalla um gamla daga og nýja. Síðustu 15 árin höf- um við haldið hópinn og hist nokkrum sinnum á ári, notið kær- leikans og skilningsins hver hjá annarri, eins og við hefðum aldrei verið aðskildar. Það var einstaklega ánægjulegt þegar Bryndís og Kristján buðu okkur ásamt mökum heim, í glæsi- lega veislu á sínu fallega heimili. Þessi kvöldstund verður alltaf í minnum höfð. Snöggt fráfall góðrar vinkonu er mikið áfall. Við vottum Kristjáni, börnum, barnabörnum og öðrum aðstand- endum innilega samúð. Minning okkar góðu vinkonu mun lifa! Arnheiður E. Sigurðardóttir, Álfheiður Magnúsdóttir, Erna M. Viggósdóttir, Guðrún Jóhannsdóttir, Halldóra Björnsdóttir, Hjördís Fenger, Ólöf G. Hafsteinsdóttir og Þórunn Guðmundsdóttir. MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2020 ✝ Hörður ÞórHelgu Jóhannesson fædd- ist á Akureyri 23. janúar 1982. Hann lést á heimili sínu á Spáni 1. júní 2020. Foreldrar hans eru Elínrós Helga Harðardóttir, f. 12. febrúar 1964, d. 26. mars 1995, og Jóhannes Stein- grímsson, f. 8. desember 1961. Bróðir Harðar er Steingrímur Jóhannesson, f. 30. september 1984. Á unglingsárum bjó Hörður í Hrísey hjá ömmu sinni og afa, Þór- dísi Sólveigu Valdimarsdóttur, f. 4. ágúst 1945, og Herði Þór Snorra- syni, f. 27. júní 1941, d. 15. júní 2011. Synir Harðar eru Kristófer Freyr Ástuson, f. 7. júlí 2010, og Elv- ar Andri Harðarson Ísdal, f. 24. febrúar 2015. Útför Harðar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 15. júlí 2020, klukkan 13.30. Elsku bróðir. Nú ertu farinn, en ég finn samt ennþá fyrir þér hjá mér. Þú hefur alla tíð verið sjó- maður inn að beini. Ég á þús- und minningar af þér tengdar sjómennsku. Við vorum saman á sjó í nokkur ár, bæði á Ís- landi og í Noregi. Fyrsta minn- ingin er kannski þegar þú varst um tíu ára gamall og við bjugg- um í Móasíðunni. Þú týndist í heilan dag og það var leitað og leitað. Það var ekki fyrr en mamma keyrði niður á smá- bátahöfn sem hún fann þig, en þá varst þú bara að spjalla við trillukarlana og kynna þér starfsemina þar. Kannski hefur þetta verið byrjunin á sjó- mennskuferlinum þínum. Þú hefur alla tíð verið rokk- ari og ég man eftir því að þú stilltir upp glösum og diskum í herberginu hjá þér, hækkaðir græjurnar í botn og trommaðir á glösin og diskana í takt með trommukjuðum. Mamma þurfti endalaust að koma og segja þér að hætta þessum hávaða og tína upp glerbrot. Eins fékk ég Mikka mús- trommusett frá pabba í af- mælisgjöf sem þú varst fljótur að skemma með trommukjuð- unum. Þú áttir það til að vera frek- ar langrækinn og standa fast á þínu. Í eitt skipti fékk ég lánuð jakkaföt hjá þér. Það var rign- ing og þau blotnuðu og þegar ég kom heim hengdi ég þau út á snúru til þerris. Það var há- sumar og ég gleymdi þeim þar í 4-5 daga í sólinni. Þú hringdir svo í mig og þurftir að nota þau en ég var ekki heima og sagði þér að sækja þau á snúruna. Eftir smá tíma hringdir þú svo í mig, ekki sáttur og sagðir mér að jakkafötin væru orðin upp- lituð og mislit út af sólinni. Um þetta talaðirðu í 18 ár. Við bræðurnir höfum alltaf verið nánir og hringt hvor í annan ef eitthvað bjátar á. Við höfum gengið í gegnum marga erfiðleika. Við misstum móður okkar mjög ungir sem tók mjög á okkur bræðurna og hann tal- aði um það alla sína ævi. En við höfum alltaf staðið saman í gegnum súrt og sætt. Hörður var hjá okkur í nokkra daga núna um daginn, rétt áður en hann fór til Spánar. Við fórum út að borða, á söfn og ég sá ekki annað en að lífið léki við hann. Við áttum yndislegan tíma saman. Svo fór ég út á sjó og við töluðum mik- ið saman. Svo fæ ég fréttirnar. Elsku Hörður minn. Nú ertu kominn til mömmu. Við sjáumst þegar minn tími kemur. Ég sakna þín. Þinn bróðir. Steingrímur (Steini) Jóhannesson. Hörður Þór Jóhannesson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, MÁLFRÍÐUR EMILÍA BRINK, Súsý, Tröllakór 8, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ föstudaginn 10. júlí. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 16. júlí klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Rúnar Sigurðsson Björn M. Sveinbjörnss. Brink Tinna Dahl Christiansen Einar Freyr Sveinbjörnsson Sukanya Nuamnui John Arnar Sveinbjörnsson María Katrín Sveinbjörnsdóttir Sveinbjörn Sophus Björnsson Jóhann Sophus Björnsson Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elskulegu eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, ÖNNU ELÍNAR EINARSDÓTTUR HAUKDAL, sem lést mánudaginn 8. júní. Sigurður Haukdal Hólmfríður Haukdal Eðvald Smári Ragnarsson Benedikta Haukdal Runólfur Maack Anna Björg Haukdal Gísli Gíslason barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SNORRI EDVIN HERMANNSSON húsasmíðameistari, lést fimmtudaginn 9. júlí á hjúkrunarheimilinu Eyri, Ísafirði. Útför hans fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 18. júlí klukkan 11. Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlegast bent á Björgunarfélag Ísafjarðar eða önnur líknarfélög. Auður H. Hagalín Hrafn Snorrason Rannveig Björnsdóttir Ingibjörg S. Snorra Hagalín Hávarður G. Bernharðsson Snorri Már Snorrason Kristrún H. Björnsdóttir Heimir Snorrason Hagalín Fjóla Þorkelsdóttir Hermann Þór Snorrason Helga Harðardóttir afa- og langafabörn og aðrir ástvinir Ástkær eiginmaður, faðir okkar og afi, GUNNAR SIGURÐSSON, áður til heimilis á Tindstöðum, Kjalarnesi, lést í Danmörku 21. júní. Útförin hefur farið fram frá heimabæ hans Tølløse. Minningarathöfn verður haldin í Laugarneskirkju fimmtudaginn 30. júlí klukkan 11. Anne-Marie Sigurdsson Sigurður Gunnarsson Carmen Isabell Schmidt Tryggvi Þór Gunnarsson Linda Björk Ómarsdóttir Gígja Gunnarsdóttir Þorkell Guðjónsson Guðlaug Dröfn Gunnarsd. Eymar Birnir Gunnarsson Dagný Kristín Jakobsdóttir og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, bróðir, mágur, tengdasonur og frændi, BALDVIN HRÓAR JÓNSSON, Vogagerði 33, Vogum, varð bráðkvaddur á heimili sínu fimmtudaginn 9. júlí. Útförin fer fram frá Kálfatjarnarkirkju föstudaginn 17. júlí klukkan 13. Viktoría Ólafsdóttir Jón Hilmar Baldvinsson Ólína Auður Baldvinsdóttir Jón Ingi Baldvinsson Guðrún Egilsdóttir Magnea Jónsdóttir Weseloh Friedhelm Weseloh Erna Margrét Gunnlaugsd. Kristinn Þór Guðbjartsson Arnar Daníel Jónsson Binný Skagfjörð Einarsdóttir Ólafur Auðunn Þórðarson Hilda Emilía Hilmarsdóttir og frændsystkini

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.