Morgunblaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 33
DÆGRADVÖL 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Nýja Tokyo línan
komin í sýningasal
„HÚN ER HÉR TIL ÞESS AÐ NÁ Í
UMSÓKNAREYÐUBLAÐ FYRIR „UNGFRÚ
ALHEIMUR” -KEPPNINA.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að dekra
afmælisstúlkuna.
GRETTIR, ÞÚ
ERT LATUR
ÞÚ ÆTTIR AÐ STUNDA
HREYFNINGU EINS OG ÉG
MEINARÐU AÐ GRENJA
ÞEGAR ÉG LYFTI
MEIRA EN TVEIMUR
KÍLÓUM? ÉG ER OF
STOLTUR FYRIR ÞAÐ
HERRAR MÍNIR, MATREIÐSLUMEISTARINN OKKAR
ER VEIKUR Í DAG EN GÓÐU FRÉTTIRNAR ERU ÞÆR AÐ
UPPVASKARINN ÆTLAR AÐ HLAUPA Í SKARÐIÐ!
SLÆMU FRÉTTIRNAR ERU ÞÆR AÐ
DISKARNIR YKKAR MUNU VERA SKÍTUGIR!
„ÞETTA STENST ENGAN VEGINN. LEYFÐU
MÉR AÐ SJÁ FLÆÐIRITIÐ AFTUR.”
öðru sviði, en finnst það gífurlega
spennandi því ég tel að þarna liggi
framtíðin. Það er allt meira og
minna að færast á netið, og áhuga-
verðir tímar fram undan.“
Helstu áhugamál Gunnsteins
eru fótbolti og þótt hann sé alltaf
Víkingur sé hann líka farinn að
fylgjast með Stjörnunni, enda býr
fjölskyldan í Garðabænum. „Ég er
mikill stuðningsmaður Liverpool
og hef notið þess gríðarlega að
fylgjast með velgengni liðsins síð-
ustu ár,“ segir Gunnsteinn. Hann
segir golf líka vera áhugamál, en
hann hafi lítið spilað hér heima
vegna anna en reynt að komast í
golfið þegar hann hefur verið er-
lendis í fríum með fjölskyldunni.
Fjölskylda
Eiginkona Gunnsteins er Gunn-
hildur Eva Arnoddsdóttir, f 19.1.
1980, sérfræðingur. Foreldrar
hennar eru hjónin Arnoddur Jóns-
son, f. 3.5. 1959, rafvirki og Guð-
finna Björk Arnbjörnsdóttir, f.
30.11.1956. Þau eru búsett í Kefla-
vík.
Börn Gunnsteins og Gunnhildar
eru Júlía Líf, f. 14.12. 2004 og
Ragnheiður Lovísa, f. 30.7. 2007.
Systkini Gunnsteins eru 1) Erla,
f. 23.4. 1964, vinnur í bókhaldi og
rekur fyrirtæki og 2) Kristinn
Þór, f. 27.7. 1966, framkvæmda-
stjóri.
Foreldrar Gunnsteins eru hjón-
in Geir Magnússon, f. 11.2. 1942,
fv. forstjóri Olíufélagsins ESSO
og þar áður bankastjóri Sam-
vinnubankans, og Kristín Björns-
dóttir, f. 25.10. 1943, heimavinn-
andi húsfreyja. Þau búa í
Garðabæ, en bjuggu lengst af í
Fossvoginum.
Gunnsteinn
Geirsson
Sigurveig Davíðsdóttir
húsmóðir í Hraunsmúla
Þórður Árnason
bóndi í Hraunsmúla í
Kolbeinsstaðahreppi
Sigríður Rósa Þórðardóttir
húsmóðir áAkranesi, síðar í Kópavogi
Björn Svavar Markússon
húsasmíðameistari áAkranesi, síðar í Kópavogi
Kristín Björnsdóttir
heimavinnandi húsmóðir
í Garðabæ
Kristfríður Sveinbjörg
Hallsdóttir
húsfreyja á Ölviskrossi í
Kolbeinsstaðahreppi
Markús Benjamínsson
bóndi á Ölviskrossi í Kolbeinsstaðahreppi
Gróa Þorleifsdóttir
húsmóðir í Stafholti
Gunnsteinn Eyjólfsson
fiskmatsmaður og
smiður í Stafholti
Kristín Þóra Gunnsteinsdóttir
húsmóðir í Kópavogi
Magnús S. Magnússon
kjötiðnaðarmaður í Kópavogi
Sigrún Árnadóttir
húsmóðir í Hvammsvík
og Móum
Magnús Þórðarson
bóndi í Hvammsvík og á Móum og verkamaður
Úr frændgarði Gunnsteins Geirssonar
Geir Magnússon
fyrrverandi forstjóri í
Garðabæ
Á þriðjudaginn birtist hér íVísnahorni kveðskapur eftir
Helga R. Einarsson um „Akureyr-
arlistann“ eins og ég kalla hann.
Enn yrkir Helgi og „hér kemur smá
viðbót um bæjarmálin á Akureyri. –
Að norðan“:
Þau koma frekar flott inn
fersku norðan-„plottin“.
Er gjöld skal spara
gamlir fara
grautar í sama pottinn.
Síðan bætir Helgi við: „Gaman
væri að þessi tilraun gengi upp og
að „hrepparígurinn“ fengi smá
hvíld. - Nágrannarnir, það er að
segja Þingeyingarnir, hafa nú ekki
verið samstiga í öllum málum, –
nánast óþekkt fyrirbæri“:
Stundum í augun stingur
er staðfastur Þingeyingur,
(sem vitaskuld hér
af í vitsmunum ber,)
veit ekki hvað hann syngur.
Sigrún Haraldsdóttir yrkir á
Boðnarmiði:
Eftir barning en vaxandi vímu,
vogun og spennandi glímu,
langsum um hreppinn,
ljómandi heppinn,
labbar nú Grímur með grímu.
Kristjana Sigríður Vagnsdóttir
hélt áfram:
Grímur er með grímuna;
gríman veldur spennu.
Vantar manninn vímuna,
venst hann happi í þrennu.
Friðrik Steingrímsson lagði fyrir
vísnagátu:
Af mér leggur illan daun
er því flestum mæða,
slæmsku veld ef kemst í kaun
kann þó sár að græða.
Kristján H. Theódórsson spyr:
Gætilegt ég geri boð,
gef mér þó sé –tökin mis.
Virðist þetta verkað roð
vinsælt mjög frá Kerecis?
Friðrik svarar:
Að vita svarið virðist létt
og varla nokkurn bítur.
Að nefna mig er nánast rétt
því nafnið það er skítur.
Kristján er ekki af baki dottinn:
Roð ég nefndi næst við slor,
í nasir stundum bítur.
Betur hefði gefist gor
sem gæða verður skítur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Að norðan og
Grímur með grímu