Morgunblaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020
Lyklasmíði & öryggiskerfi Skútuvogur 1E | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 533 2900 |WWW.LYKLALAUSNIR.IS
HJÓLALÁSAR
FRÁ TRELOCK
Sjáðu úrvalið og veldu lásinn
sem hentar þér á www.lykillausnir.is
40 ára Guðbjörn
Gunnar ólst upp í Bol-
ungarvík en býr núna í
Kópvoginum. Guðbjörn
er stýrimaður á togara
hjá Kaupfélagi Skag-
firðinga. Áhugamálin
eru fjölskyldan, fótbolti
og golf.
Maki: Auður Dögg Árnadóttir, f. 1984,
heimavinnandi.
Börn: Árni Gunnar, f. 2010, Nína Rakel, f.
2014, Telma Dögg, f. 2016 og nýfæddur
drengur, f. 2020.
Foreldrar: Elín Elísabet Halldórsdóttir, f.
1958, vinnur í Múlakaffi og Jón Marinó
Guðbrandsson, f. 1954, starfar hjá Vatns-
virkjanum. Þau búa í Reykjavík.
Guðbjörn Gunnar
Jónsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Mundu að þótt allt gangi þér í hag-
inn eina stundina, er lánið fallvalt og betra
að vera við öllu búinn. Næstu dagar verða
spennandi.
20. apríl - 20. maí
Naut Það getur reynst dýrt spaug að gera
mistök þegar allt ríður á því að hlutirnir klár-
ist sem fyrst. Reyndu að hrista slenið af þér
og taktu ærlega til hendinni.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Sambönd þarfnast þess að þú tak-
ir almennilega þátt til þess að þau virki.
Gakktu ekki of hart fram í að koma skoð-
unum þínum á framfæri við ástvini.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Gerðu langtímafjárhagsáætlanir fyr-
ir heimili og fjölskyldu í dag. Leitaðu vinina
uppi og leyfðu þeim að auðvelda þér lífið
með elsku sinni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það getur létt álagið að bera málin
undir náinn vin. Hugmyndir þær, sem þú
hefur í sambandi við fjármál eru frábærar.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Gerðu þér far um að halda jafnvæg-
inu milli persónulegra markmiða og tengsla
þinna við aðra. Þú ert aldrei of gamall til
þess að læra.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þér líður afskaplega vel um þessar
mundir og mátt ekki láta neinn hafa neikvæð
áhrif þar á. Verkefni sem þú hefur verið að
vinna að lengi mun leysast á auðveldan hátt.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Vertu óhræddur að eiga skoð-
anaskipti við aðra. Þú umgengst fólk sem er
með álíka margar spurningar og þú og er að
takast á við svipaða hluti.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Yfirmenn og aðrir ráðamenn
reyna oft á sjálfálitið, og það er erfitt að láta
það ekki á sig fá. Ekki láta neikvæðni þeirra
slá þig út af laginu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er ástæðulaust að hafna
samstarfi við aðra fyrir fram því einn þíns
liðs getur þú ekki klárað öll verkefni. Mála-
miðlanir koma til greina.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hefur slegið slöku við í lík-
amsræktinni undanfarið sem er synd. Gefðu
sjálfum þér það loforð að snúa blaðinu við.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Einhver eða eitthvað stendur í vegi
fyrir fjáröflunartilraunum þínum í dag. Skap-
andi nálgun hjálpar þér við að leysa lífsgát-
una.
Sumarið 2017 stofnaði Gunn-
steinn ásamt félaga sínum, Guð-
mundi Má Ketilssyni, Smart Socks
sem er netverslun sem selur mán-
aðarlegar áskriftir að sokkum og
starfaði hann í félaginu til byrj-
unar árs 2020.
bankanum (áður Landsbanka Ís-
lands) og var lengst af við-
skiptastjóri fyrirtækja, nú síðast í
fyrirtækjamiðstöð Landsbankans.
Að auki sat hann í stjórn starfs-
mannafélags Landsbankans
(FSLÍ).
G
unnsteinn Geirsson
fæddist 2. október
1980 í Reykjavík og
elst upp í Fossvogi.
Segja má að hann sé
sparibarn foreldranna því svo
langt er á milli hans og systk-
inanna. „Ég er nánast einkabarn
því það munar bara þremur árum
á mér og elsta barnabarni foreldra
minna.“
Gunnsteinn segir það hafa verið
frábært að alast upp í Fossvog-
inum. „Við bjuggum neðst í vog-
inum Reykjavíkurmegin og maður
var allan daginn úti í móa og að
spila fótbolta, enda þetta alveg
frábært svæði fyrir krakka.“ Það
fylgdi lífinu í Fossvoginum að
verða snemma Víkingur og Gunn-
steinn segir það enn vera sitt lið.
Skólagangan hófst í Ísaksskóla
og Gunnsteinn fór síðan 9 ára í
Fossvogsskóla og í framhaldi af
því í Réttarholtsskóla.
Fjölskyldan fluttist í Skerja-
fjörð þegar Gunnsteinn var á 15.
aldursári. „Við fluttum um sum-
arið áður en ég átti að fara í 10.
bekk, og ég ákvað strax að ljúka
við grunnskólann í Réttó í gamla
hverfinu mínu, svo ég var alltaf
með annan fótinn þar.“
Það var kannski skynsamleg
ákvörðun því það hefði verið erfitt
fyrir Víkinginn að vera í miðjum
KR-inga hópi. „KR var eiginlega
bara óvinurinn, það verður bara
að segjast,“ segir Gunnsteinn, sem
segir að þótt hann hafi flutt í KR-
hverfið í nokkur ár kom það aldrei
til greina að skipta um lið.
Gunnsteinn fór í Verzlunarskóla
Íslands og kláraði stúdentspróf
árið 2000 og þaðan fór hann í við-
skiptafræði í Háskólanum í
Reykjavík og útskrifast með
B.Sc.-gráðu árið 2004. „Það lá eig-
inlega bara alltaf í loftinu að ég
myndi fara í viðskiptin, því pabbi
rak fyrirtæki og mikið talað um
viðskiptalífið á heimilinu.“
Haustið 2007 hóf Gunnsteinn
nám í fjármálum fyrirtækja í HR
og útskrifast þaðan með M.Sc.-
gráðu í byrjun árs 2010. Frá vori
2004 starfaði hann hjá Lands-
Gunnsteinn segir að hugmyndin
að stofnun Gáfusokka hafi komið
frá Guðmundi og verið líka byggð
á sambærilegum rekstri í Banda-
ríkjunum. „Við ákváðum bara að
slá til og opna netverslun með
skrautlegum sokkum á netinu.
Það hafa allir gaman af því að fá
pakka og með því að vera í áskrift
fær maður alltaf pakka og veit
ekki hvernig sokka maður fær, því
við vorum ekkert með þessa hefð-
bundnu svörtu eða hvítu sokka.“
Gunnsteinn segir það hafa verið
frábæra reynslu að fara í gegnum
allt ferlið að stofna fyrirtæki og
sjá það vaxa úr engu og verða að
einhverju. „Þetta var mjög
skemmtilegur tími, en ég varð
samt að draga mig út úr fyrir-
tækinu, því ég hafði bara allt of
mikið að gera.“
Haustið 2018 hóf Gunnsteinn
nám í tölvunarfræði í HR og stefn-
ir á að útskrifast með B.Sc.-gráðu
í tölvunarfræði vorið 2021. „Núna
er ég að prófa mig áfram á svolítið
Gunnsteinn Geirsson viðskiptafræðingur og tölvunarfræðinemi - 40 ára
Fjölskyldan Dæturnar, f.v. Ragnheiður Lovísa og Júlía Líf, og foreldrarnir Gunnhildur Eva og Gunnsteinn.
Framtíðin er í tölvuheiminum
Golfið Gunnsteinn hefur gaman af
golfi og þótt lítill tími gefist í dags-
ins önn, þá eru fríin nýtt vel.
Liverpool Gunnsteinn er mikill Liv-
erpool-aðdáandi og hér er hann á
leik klæddur treyju liðsins.
Til hamingju með daginn
Kópavogur Drengur
Guðbjörnsson fædd-
ist heima hjá sér í
Kópavoginum, þriðju-
daginn 22. september
2020. Hann vó 4.030
g og var 51 cm að
lengd. Foreldrar hans
eru Auður Dögg Árna-
dóttir og Guðbjörn
Gunnar Jónsson.
Nýr borgari
30 ára Agnes Ósk
ólst upp í Vesturbæ
Reykjavíkur en býr
núna í Mosfells-
bænum. Hún er
sjúkraþjálfari og rekur
fyrirtækið Hraust í
Kópavogi, þar sem
hún vinnur mest með endurhæfingu
kvenna eftir barnsburð og með konum
með streitueinkenni.
Maki: Joshua Guðsteinsson, f. 1994, í
rafvirkjanámi.
Synir: Dagur Guðsteinn, f. 2017 og
Brynjar Snorri, f. 2019.
Foreldrar: Snorri Kristinsson, f. 1962,
kranamaður hjá Samskipum, og Krist-
jana Kristjánsdóttir, f. 1967, sjúkraliði á
Grund. Þau búa í Mosfellsbæ.
Agnes Ósk
Snorradóttir