Morgunblaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 34
34 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020 Afturelding er komin upp í efsta sæti Olísdeildar karla í handbolta eftir 20:17-sigur á nýliðum Gróttu á úti- velli í gærkvöld. Leikurinn var spennandi og var staðan 17:16, Aftur- eldingu í vil, þegar sex mínútur voru til leiksloka. Skoraði Afturelding þrjú af fjórum síðustu mörkunum og fagnaði sigri. Guðmundur Árni Ólafs- son og Bergvin Þór Gíslason skoruðu fimm mörk hvor fyrir Aftureldingu og Arnór Freyr Stefánsson varði 16 skot í markinu. Andri Þór Helgason og Hannes Grimm skoruðu þrjú mörk hvor fyrir Gróttu. Afturelding í efsta sætinu Ljósmynd/Afturelding Markvörður Arnór Freyr Stef- ánsson varði vel gegn Gróttu. Arsenal mætir Manchester City og Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton mæta Manchester United í átta liða úrslitum enska deildabik- arsins í knattspyrnu en dregið var til þeirra strax og sextán liða úrslit- unum lauk í gærkvöld. Arsenal vann þá Liverpool í vítaspyrnu- keppni eftir markalausan leik lið- anna á Anfield þar sem Rúnar Alex Rúnarsson var varamarkvörður Arsenal. Brentford sló út Fulham og dróst gegn Newcastle og Stoke sló út Aston Villa og fær Tottenham í heimsókn. AFP Áfram Arsenal fagnaði á Anfield í gærkvöld eftir vítaspyrnukeppni. Stórleikir í átta liða úrslitum BREIÐABLIK – KA 1:1 0:1 Sveinn Margeir Hauksson 18. 1:1 Viktor Karl Einarsson 53. M Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki) Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki) Brynjólfur Willumsson (Breiðabliki) Andri Rafn Yeoman (Breiðabliki) Mikkel Qvist (KA) Rodrigo Gómez (KA) Brynjar Ingi Bjarnason (KA) Sveinn Margeir Hauksson (KA) Dómari: Þorvaldur Árnason – 7. Áhorfendur: 303. VÍKINGUR R. – KR 0:2 0:1 Ægir Jarl Jónasson 1. 0:2 Óskar Örn Hauksson 72. MM Guðjón Orri Sigurjónsson (KR) M Ingvar Jónsson (Víkingi) Viktor Örlygur Andrason (Víkingi) Adam Ægir Pálsson (Víkingi) Kennie Chopart (KR) Kristinn Jónsson (KR) Pablo Punyed (KR) Óskar Örn Hauksson (KR) Ægir Jarl Jónasson (KR) Dómari: Pétur Guðmundsson – 7. Áhorfendur: Um 400. STJARNAN – FH 1:1 0:1 Pétur Viðarsson 54. 1:1 Hilmar Árni Halldórsson 90. M Guðjón Pétur Lýðsson (Stjörnunni) Haraldur Björnsson (Stjörnunni) Heiðar Ægisson (Stjörnunni) Hilmar Árni Halldórsson (Stjörnunni) Gunnar Nielsen (FH) Guðmundur Kristjánsson (FH) Pétur Viðarsson (FH) Þórir Jóhann Helgason (FH) Dómari: Erlendur Eiríksson – 7. Áhorfendur: Um 300.  Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fotbolti. FÓTBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Hilmar Árni Halldórsson færði Valsmenn enn nær Íslandsmeist- aratitli karla 2020 þegar hann jafnaði metin fyrir Stjörnuna gegn FH, 1:1, í uppbótartíma í granna- slag liðanna í Garðabæ í gærkvöld. Allt stefndi í sigur FH-inga eftir mark Péturs Viðarssonar snemma í seinni hálfleik og þá hefði verið komin áhugaverðari staða í topp- baráttunni. FH hefði þá verið sex stigum á eftir Val og enn fimm umferðir eftir, ásamt innbyrðis leik. Nú er munurinn hinsvegar átta stig og draumur FH-inga um að ná Hlíðarendaliðinu dofnar veru- lega eftir þessa atburðarás í lokin á Samsung-vellinum. En baráttan um Evrópusætin harðnar hinsvegar enn og nú skil- ur aðeins eitt stig að Breiðablik, Stjörnuna, Fylki og KR í þriðja til sjötta sæti deildarinnar. Stjarnan og KR eiga auk þess inni frest- aðan leik sín á milli. „FH-ingar naga sig eflaust í handarbökin yfir færunum sem fóru forgörðum, sérstaklega Len- non. Haraldur Björnsson sýndi það hins vegar að hann er einn af sterkari markvörðum deildarinnar og hélt liði sínu á floti nokkrum sinnum,“ skrifaði Kristófer Krist- jánsson m.a. í grein um leikinn á mbl.is.  Steven Lennon og Morten Beck Guldsmed nýttu ekki sann- kölluð dauðafæri til að koma FH í 2:0. Lennon hefur fatast flugið að undanförnu og aðeins náð að skora eitt mark í síðustu fimm leikjum í deildinni eftir að hafa gert sex mörk í þremur leikjum þar á undan. Enn vinnur KR á útivelli KR-ingar halda öllum mögu- leikum galopnum í baráttunni um Evrópusæti eftir sigur á Víkingum í Fossvogi í gærkvöld, 2:0. Þetta var fimmti útisigur KR í sex leikjum á meðan þeir hafa að- eins unnið þrjá af tíu heima- leikjum sínum á tímabilinu. Víkingar léku sinn tíunda leik í röð án sigurs en frá því þeir gjör- sigruðu ÍA 6:2 þann 19. júlí hafa þeir gert fimm jafntefli og tapað fimm leikjum í deildinni. Þeir halda sér samt áfram átta stigum ofan við fallsæti. „Víkingum hefur gengið illa að skora og það breyttist ekki í kvöld. Vítaspyrna fór meira að segja í súginn. Víkinga vantar odd á spjótið og ekki bætir úr skák að Óttar Magnús Karlsson er farinn í atvinnumennsku. Í mörgum leikj- um hefur vantað að opna varnir andstæðinganna þegar komið er fram völlinn en í kvöld geta Vík- ingar þó bent á góð færi sem þeir fengu,“ skrifaði Kristján Jónsson m.a. í grein um leikinn á mbl.is.  Guðjón Orri Sigurjónsson lék sinn fyrsta leik í deildinni í marki KR og varði vítaspyrnu Erlings Agnarssonar í fyrri hálfleik. Guð- jón lék í stað Beitis Ólafssonar sem tók út leikbann.  Óskar Örn Hauksson skoraði sitt 80. mark í deildinni þegar hann kom KR í 2:0. Hann er sá 14. frá upphafi sem skorar 80 mörk.  Óskar lagði líka upp fyrra mark KR sem Ægir Jarl Jónasson skoraði eftir aðeins 35 sekúndur. KA tapar ekki leikjum KA-menn léku sinn áttunda leik í röð án taps þegar þeir gerðu jafntefli, 1:1, við Breiðablik á Kópavogsvelli í gærkvöld. Tveir sigrar og sex jafntefli er uppskera Arnars Grétarssonar og hans manna síðan þeir töpuðu 1:0 fyrir Val 15. ágúst. KA reytir því inn stigin hægt og rólega og liðið hefur fengið á sig næstfæst mörk allra liða. Hinsvegar hafa aðeins Grótta og Fjölnir skorað færri mörk en Akureyrarliðið. Fyrir Blika eru þetta tvö töpuð stig á heimavelli í harðri baráttu um Evrópusæti. Hjá þeim munar miklu að Thomas Mikkelsen hefur verið ólíkur sjálfum sér og aðeins gert eitt mark í síðustu fimm leikjum. Það kom úr vítaspyrnu. „Blikar voru mun meira með boltann í leiknum og stjórnuðu ferðinni frá A til Ö en eins og svo oft áður í sumar gekk liðinu illa að skapa sér afgerandi marktækifæri. Blikum til varnar þá voru Akur- eyringar ansi þéttir til baka og virtust ekki hafa nokkurn einasta áhuga á því að vera með boltann á vallarhelmingi Blika,“ skrifaði Bjarni Helgason m.a. um leikinn á mbl.is.  Sveinn Margeir Hauksson skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild þegar hann kom KA- mönnum yfir í leiknum.  Viktor Karl Einarsson gerði sitt fjórða mark í sex leikjum og það fimmta á tímabilinu þegar hann jafnaði metin fyrir Blika.  KA gerði sitt 11. jafntefli í 17 leikjum og er nú aðeins einu jafn- tefli frá því að jafna met Breiða- bliks í deildinni. Blikar gerðu 12 jafntefli í 22 leikjum tímabilið 2014. Hæsta hlutfall jafntefla í deild- inni eiga hinsvegar KR-ingar sem gerðu 11 jafntefli í 18 leikjum árið 1982. KA er með enn hærra hlut- fall en það eins og staðan er núna. Hilmar færði Val enn nær titlinum Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Kópavogur Damir Muminovic miðvörður Breiðabliks skallar með tilþrifum í átt að marki KA-manna í jafnteflisleiknum á Kópavogsvelli í gærkvöld.  Jafnaði gegn FH-ingum í blálokin  Evrópuslagurinn harðnar enn Morgunblaðið/Eggert Mikilvægur Annan leikinn í röð var Hilmar Árni Halldórsson bjargvættur Stjörnumanna á lokamínútum. Hann jafnaði gegn FH í uppbótartímanum. Pepsi Max-deild karla Breiðablik – KA........................................ 1:1 Víkingur R. – KR...................................... 0:2 Stjarnan – FH........................................... 1:1 Staðan: Valur 17 13 2 2 44:17 41 FH 17 10 3 4 33:23 33 Breiðablik 17 8 4 5 33:26 28 Stjarnan 16 7 7 2 26:20 28 Fylkir 17 9 1 7 26:26 28 KR 16 8 3 5 29:20 27 ÍA 17 6 3 8 39:39 21 KA 17 3 11 3 18:19 20 HK 17 5 4 8 28:35 19 Víkingur R. 17 3 7 7 23:28 16 Grótta 17 1 5 11 15:37 8 Fjölnir 17 0 6 11 15:39 6 Lengjudeild kvenna Augnablik – Völsungur ............................ 1:1 Staða efstu liða: Tindastóll 16 14 1 1 46:5 43 Keflavík 16 12 3 1 42:15 39 Haukar 16 9 2 5 26:18 29 Afturelding 16 7 4 5 22:19 25 Augnablik 16 6 5 5 27:30 23 Evrópudeild UEFA Umspil um sæti í riðlakeppninni: FC Köbenhavn – Rijeka .......................... 0:1  Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn með FCK. Malmö – Granada .................................... 1:3  Arnór Ingvi Traustason kom inn á hjá Malmö á 71. mínútu. Rosenborg – PSV Eindhoven................. 0:2  Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn með Rosenborg. Dundalk – KÍ Klaksvík ............................ 3:1 Tottenham – Maccabi Haifa .................... 7:2 CFR Cluj – KuPS Kuopio ....................... 3:1 Ararat Armenia – Rauða stjarnan.......... 1:2 Dinamo Zagreb – Flora Tallinn .............. 3:1 Slovan Liberec – APOEL Nikósía.......... 1:0 Charleroi – Lech Poznan ......................... 1:2 Hapoel Beer Sheva – Viktoria Plzen ...... 1:0 Dinamo Brest – Ludogorets Razgrad.... 0:2 Sarajevo – Celtic....................................... 0:1 Legia Varsjá – Qarabag........................... 0:3 Standard Liege – Fehervár..................... 3:1 Basel – CSKA Sofia.................................. 1:3 Young Boys – KF Tirana......................... 3:0 AEK Aþena – Wolfsburg......................... 2:1 Rangers – Galatasaray ............................ 2:1 Rio Ave – AC Milan................. (2:2) 10:11(v) Sporting Lissabon – LASK Linz ............ 1:4 Kasakstan Astana – Kaspij Aktau ............................ 1:2  Rúnar Már Sigurjónsson skoraði mark Astana og lék í 78 mínútur. Svíþjóð Bikarkeppnin, 2. umferð: Karlslund – AIK....................................... 1:2  Kolbeinn Sigþórsson lék seinni hálfleik- inn með AIK. Danmörk B-deild: Hvidovre – Fredericia ............................ 0:3  Elías Rafn Ólafsson varði mark Fredericia í leiknum. England Deildabikarinn, 16-liða úrslit: Liverpool – Arsenal................... (0:0) 4:5 (v)  Rúnar Alex Rúnarsson var varamark- vörður Arsenal í leiknum. Brentford – Fulham................................. 3:0 Aston Villa – Stoke................................... 0:1  Olísdeild karla Grótta – Afturelding ............................ 17:20 Staðan: Afturelding 4 3 1 0 97:90 7 Haukar 3 3 0 0 82:68 6 ÍBV 3 2 0 1 89:85 4 Valur 3 2 0 1 100:82 4 KA 3 1 2 0 72:70 4 FH 3 2 0 1 82:74 4 Selfoss 3 1 1 1 75:76 3 Þór Ak. 3 1 0 2 67:69 2 Grótta 4 0 2 2 86:90 2 Stjarnan 3 0 1 2 77:84 1 Fram 3 0 1 2 70:78 1 ÍR 3 0 0 3 76:107 0 Þýskaland Magdeburg – Bergischer ................... 27:31  Ómar Ingi Magnússon skoraði eitt mark fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist- jánsson eitt.  Arnór Þór Gunnarsson skoraði 2 mörk fyrir Bergischer. Lemgo – Coburg.................................. 33:26  Bjarki Már Elísson skoraði 8 mörk fyrir Lemgo. Gulldeild kvenna Danmörk – Noregur ........................... 21:28  Þórir Hergeirsson þjálfar Noreg. Meistaradeild karla Elverum – Kielce ................................. 22:31  Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 1 mark fyrir Kielce og Haukur Þrastarson 1. Nantes – Barcelona ............................. 27:35  Aron Pálmarsson skoraði 6 mörk fyrir Barcelona.  

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.