Morgunblaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 02.10.2020, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2020 Þessar stundir á Víðivöllum eru mér ógleymanlegar sem og Unnur með sína glaðværð og jafnaðargeð. Ég votta fjölskyldu Unnar samúð. Skúli Brynjólfur Steinþórsson. Það var sunnudagur, ég átti erindi á hótelið í Varmahlíð, lítil stúlka kom hlaupandi á móti mér. Það geislaði af henni og ég hugsaði: Hver á þetta fallega barn? Ég gekk inn í salinn og við afgreiðsluborðið stóð glæsi- leg ung kona. Þarna sáumst við Unnur í fyrsta sinn, og litla stúlkan var Gullý. Unnur flutti í Víðivelli 1960, hún lýsir komu sinni þannig: „Um kvöldið er komið var í Víðivelli, þar sem gamli bærinn beið, var sem álfkona birtist mér í dyrunum, það var Lilja í Ásgarði sem tók á móti mér. Engin manneskja reyndist mér betur en hún.“ Þetta eru falleg orð og lýsa Unni vel. Kynni okkar Unnar hófust vorið 1960 er við lágum saman á sæng á gamla sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Það var engin lognmolla í litlu sængurkvennastofunni þessa fögru daga í maí. Á þeim árum er Unnur flutti í Blöndu- hlíðina má segja að þar hafi orðið kynslóðaskipti. Víða voru ung hjón að hefja búskap. Sagt er um sum heimili að þau séu „á hvers manns vegi“. Þannig var með Víðivelli og það var sérgrein Unnar að taka á móti gestum og þess nutu margir. Oft var boðað til veislu á Víði- völlum. Aldrei lagði Unnur öðrum illt, en gerði gott úr öllu. Unnur féll vel inn í samfélag- ið í Blönduhlíðinni. Hún var í spilaklúbbi, saumaklúbbi að ógleymdu kvenfélaginu. Á kvenfélagsfundum var alltaf mesta fjörið þar sem Unnur sat. Hún var mjög snjöll eft- irherma og hefði vel getað sett á svið einleik og kallað fram suma sveitunga. Unnur hafði ótrúlegan hæfileika til að aðlag- ast breyttum aðstæðum. Þegar hún var komin á Dalbæ sagði hún við mig: „Nú er að fara að byrja nýr kafli í lífi mínu og nú má fara að skrifa ævisöguna og það átt þú að gera.“ En ég skrifaði aldrei ævisögu Unnar. Í stað þess minnist ég og þakka fyrir þá gæfu að hafa fengið að eiga hana að, þakka fyrir vináttu hennar í garð minnar fjöl- skyldu. Minning hennar laðar alltaf fram bros á vör. Farið var að líða að brottför til Kópavogs. Við sjáum Unni fyrir okkur í eldhúsinu sínu á Víðivöllum, hún horfir út um gluggann og tjáir hugsanir sín- ar þannig: „Náttúrufegurðin, fjöllin, Vötnin og slétturnar og allt þetta frábæra fólk í sveit- inni. Er þetta ekki líf sem alla getur dreymt um að búa við? Svo sannarlega segi ég.“ Þann- ig er hennar kveðja. Þetta er Unnur. Við þökkum vináttu þína, þig umluktu skagfirsk fjöll. Guð láti þér ljósið skína og launi þér brosin þín öll. Við þökkum þér fyrir árin þín í Blönduhlíðinni, elsku Unn- ur okkar. Samúðarkveðjur til fjölskyld- unnar. Helga Bjarnadóttir og fjölskylda frá Frostastöðum. Komið er að kveðjustund. Margar kærar og ljúfar minn- ingar eigum við hjónin um Unni Gröndal frá Miklabæjarárum okkar og við þökkum af alhug fyrir þær minningar. Víðivalla- hjónin reyndust okkur mjög vel og það var vissulega krydd í til- veruna að koma að Víðivöllum og njóta gestrisni þeirra hjóna. Dætur okkar töluðu um að það væri eins og að koma í höll þeg- ar við klæddum okkur upp og fórum í jólaboð til Unnar og Gísla á Víðivöllum. Unnur tók á móti okkur brosandi og ekki leið á löngu þar til Gísli dró fram tinstaupin og við skáluð- um fyrir góðum vinskap og hagsælli tíð. Já, það er margs að minnast þegar hugurinn reikar aftur í tímann til þessara ára og það er vissulega bjart yfir þeim minn- ingum. Við erum þakklát fyrir að hafa kynnst Unni og átt vin- áttu hennar og fjölskyldunnar. Við sendum aðstandendum okkar dýpstu samúðarkveðjur og biðjum góðan Guð að taka á móti Unni Elísabetu Gröndal í kærleiksríki sitt og blessa fjöl- skylduna í lengd og bráð. Elsa og Þórsteinn. Ellefu ára fór ég fyrst í sveit á Víðivelli í Blönduhlíð til Unn- ar og Gísla. Á þessum árum voru sveitaheimili oft fjölmenn og voru um 12 manns þetta sumarið þar. Bæði aðkomubörn í sumardvöl í sveit og svo fjöl- skyldan. Það ríkti góður andi á heim- ilinu og var Unni mjög annt um velferð aðkomubarna jafnt sem annarra og var vel hugsað um þarfir þeirra. Unnur stjórnaði heimilinu af mikilli röggsemd og var að frá morgni til kvölds en mér telst til að fimm mál- tíðir hafi verið yfir daginn að öllu jöfnu. Ég entist ansi vel þarna og var fimm sumur í sveit á Víðivöllum. Dvölin þar víkkaði mjög skilning minn á lífinu og lífsbaráttunni og stælti þrótt manns til verklegrar vinnu. Eftir þessi sumur hélt ég alltaf miklu sambandi við þau hjón og börn þeirra og síðar tengdabörn. Hefur Víðivallafjölskyldan orðið talsvert stór hluti af mínu nánasta fólki og kann ég vel að meta þá tryggð sem haldist hef- ur okkar á milli. Stundum er sagt að Unnur sé sveitamamma mín og finnst mér það fallegt. Unnur var húmoristi og glað- vær. Hún hafði góða frásagn- argáfu og oft sátum við lengi við eldhúsborðið að hlusta á lýsingar og sögur hennar af ýmsum uppákomum og atburð- um. Unnur var borgarbarn eins og ég en fluttist í Skagafjörðinn um 1960. Hún aðlagaðist fljótt sveitasamfélaginu og varð virk- ur þátttakandi í því. Samt sakn- aði hún alltaf bæjarlífsins og naut þess að koma til Reykja- víkur. Hún var dönnuð kona sem ólst upp á broddborgara- heimili. Hún hafði þann eiginleika að geta blandað geði við fólk af öll- um stigum samfélagsins og hafði talsverða víðsýni til að bera. Skagfirðingar kunnu vel að meta rausnarlegar móttökur og góðar veislur á Víðivöllum og var heimili Unnar og Gísla róm- að fyrir gestrisni og komu þar líka margir við á ferðalögum sínum norður í land. Það var alltaf tími til að bjóða gestum inn í kaffi og með því eða mat ef komið var ná- lægt matmálstímum. Stundum var fólki líka boðin gisting. Stundum fannst okkur „heimamönnum“ nóg um allar gestakomurnar en eftir á að hyggja þá lífguðu þær bara upp á dagana og bættu mannlífið. Skagfirðingar voru drjúgir við söng og hestamennsku á þessum árum og oft var lagið tekið og jafnvel boðið upp á dreitil í silfurstaupin fínu. Við Martha kveðjum þig elsku Unnur með söknuði og þökkum þér samfylgdina. Snorri Aðalsteinsson. ✝ Erling Andr-eassen fæddist í Reykjavík 30. sept- ember 1936. Hann lést á Landspít- alanum á Hring- braut 23. september 2020. Foreldrar hans voru Ole Christian Andreassen vél- stjóri, f. í Tønsberg í Noregi 1894, d. 1980, og Inga Lovísa Þorláks- dóttir húsmóðir, fædd á Ísafirði 1901, d. 1970. Systkini Erlings voru fimm: Sofie, fædd og dáin 1923, Erna, fædd og dáin 1926, Sofie Marie, f. 1925, d. 2019, Hugo, f. 1928, d. 1999 og Sverre, f. 1930, d. 1938. Erling giftist Kristínu Egilsdóttur og áttu þau þrjú börn saman. Leiðir þeirra skildi árið 1984. Börn þeirra eru: 1) Ásta Andreassen, fædd 1960, eiginmaður hennar er Ásgeir H. Bjarnason, synir þeirra eru: a) Bjarni Þór, fæddur 1983; eig- inkona hans er Hjördís Sigur- björnsdóttir, börn þeirra eru Foreldrar Erlings fluttu með fjölskylduna til Reykjavíkur seint á 3. áratugnum og bjuggu þau á nokkrum stöðum í gömlu Reykjavík en lengst af á Þórs- götu 21. Að loknu gagnfræða- prófi starfaði Erling meðal ann- ars sem sendill hjá Olíufélaginu Esso og hjá Loftleiðum í flug- afgreiðslunni. Þar fangaði flug- ið hug hans sem gerði það að verkum að árið 1958 hélt hann til Bandaríkjanna í nám í flug- virkjun. Eftir námið starfaði hann sem flugvirki hjá Flug- félagi Íslands og stuttu síðar flugvélstjóri hjá Loftleiðum. Þegar nýtískulegri flugvélar tóku við og flugvélstjórastarfið var lagt niður starfaði hann sem deildarstjóri hreyfladeildar Flugleiða allt fram til eft- irlaunaaldurs. Eftir að Erling fór á eftirlaun tók hann við við- haldi gamla þristsins DC-3 fyrir Þristavinafélagið og sinnti því starfi til 82 ára aldurs. Útför Erlings fer fram frá Digraneskirkju, 2. október 2020, klukkan 13. Athöfninni verður streymt á vefslóðinni www.facebook.com/groups/ erlingandreassen/. Virkan hlekk á streymi má nálgast á https://www.mbl.is/andlat/. Hekla Rán, Kristín, Ýmir Tryggvi, Al- dís Embla og Mýra Björk, b) Egill, fæddur 1989 og c) Friðrik Örn, fædd- ur 1992; unnusta hans er Jónína Kristjánsdóttir, sonur þeirra er Bjarni William. 2) Erna Andreassen, fædd 1962, eig- inmaður hennar er Þráinn Jó- hannsson, börn þeirra eru: a) Bjarki, fæddur 1984; unnusta hans er Rakel Gísladóttir, börn þeirra eru Nóel, Máni og Bóas, b) Ásta, fædd 1991 og c) Karen, fædd 1995; unnusti hennar er Michael. 3) Sverrir Andreassen, fæddur 1970, eiginkona hans er Brynja Andreassen Sigurð- ardóttir, börn þeirra eru: a) Rakel, fædd 1990, b) Orri, fædd- ur 1996; unnusta hans er Guð- björg María og c) Aron, fæddur 2003. Erling var um tíma í sambúð með Ingu Sigurgeirsdóttur og leiðir þeirra skildi árið 2008. Til elsku pabba. Þótt sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý. Því burt varst þú kölluð á örskammri stundu, í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða, svo gestrisin, einlæg og hlý. En örlög þín ráðin - mig setur hljóða, við hittumst ei framar á ný. Megi algóður Guð þína sálu nú geyma, gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó komin sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (SHL) Þínar dætur, Ásta og Erna. Pabbi minn átti litríka ævi. Ungur að árum vann hann í servisnum hjá Loftleiðum á Reykjavíkurflugvelli þegar hon- um bauðst að fara til Ameríku og læra flugvirkjun. Eftir námið fékk hann vinnu sem flugvirki hjá Flugfélagi Íslands en staldr- aði þar stutt við því til Loftleiða fór hann þegar honum bauðst flugvélstjórastaða á DC-6, gamla Monsanum og síðar DC-8 þotum Loftleiða. Hann bar alla tíð Loftleiðahjartað í brjósti sér. Eftir meira en 20 ára starf sem flugvélstjóri langaði hann að breyta til og hætti í fluginu og stofnaði innflutningsfyrir- tækið Ísvík sem flutti inn lag- erhillukerfi frá Þýskalandi. Hann langaði alltaf aftur í flugið og réð sig til Flugleiða þar sem hann tók við deildarstjórastöðu hreyfladeildar flugfélagsins og vann þar til 67 ára aldurs. Pabbi var góður maður, yf- irleitt glaður, mikill húmoristi og mikill handverksmaður. Hann hafði svo gaman af því að dunda sér í skúrnum bæði við viðgerðir og smíðar. Hann var einstaklega lausnamiðaður og hætti ekki fyrr en hann var kominn með einhver ráð um hvernig leysa ætti verkefnin. Oft dreymdi hann lausnirnar. Hann byggði hús í Garðabænum ásamt mömmu minni og leystu þau það verkefni með sóma. Hann endurbyggði sumarbú- stað við Þingvallavatn sem hann gerði að algjörum sælureit. Hann vildi alltaf hafa eitthvað fyrir stafni því þá leið honum vel. Þegar ég kláraði grunnskól- ann var ég óviss hvað ég vildi verða þegar ég yrði stór. Pabbi hringdi í mig einn daginn og sagðist vera búinn að finna nám í flugvirkjun í Svíþjóð fyrir mig. Hann studdi mig heilshugar í náminu og fannst skemmtilegt þegar ég var búinn að ná tökum á flugvirkjalingóinu. Þá gátum við talað saman um fagið. Það var mér mikill heiður að vinna með honum hjá Flugleiðum um nokkurra ára skeið. Hann var mikill fagmaður í sinni grein og kenndi mér mikið. Ég á honum margt að þakka. Það eru margar góðar minn- ingar sem ég á um hann pabba enda höfum við nánast alltaf verið í góðu sambandi, sama hvar við höfum búið. Þegar ég og fjölskyldan mín bjuggum í Svíþjóð náði hann að koma í heimsókn og kynna sér okkar nýju heimkynni. Það var okkur dýrmætt. Stuttu eftir eina heim- sóknina varð hann fyrir fyrsta heilsuáfallinu þegar hann fékk heilablóðfall. Hann sótti sér sjúkraendurhæfingu hjá Grens- ásdeild sem hann kallaði alltaf „að fara í ballett“ en það bjarg- aði því að lífsgæði hans minnk- uðu hægar en þau annars hefðu gert. En smátt og smátt fjaraði hann út, eins og gangur lífsins er. Nú er hann kominn í sum- arlandið til mömmu sinnar og pabba, Sossenar systur, Hugos og Sverre bræðra sinna. Í föðm- um þeirra á hann eftir að una sér vel. Hvíldu í friði, elsku pabbi, ég elska þig. Sjáumst síðar. Þinn Sverrir. Að geta ekki verið viðstaddur þegar Erling tengdapabbi verð- ur jarðsettur í dag er erfitt, en svona er þetta bara þegar al- heimsvírus er. Mér þótti óskaplega vænt um Erling en einhvern tímann kem- ur að leiðarlokum. Það sem stendur helst upp úr er allt það spjall sem við áttum einir saman og hvað hann kenndi mér margt. Allt það sem við gerðum saman var yndislegt, já og nákvæmt skyldi það vera. Var hann alltaf glaður og þakklátur fyrir mín verk þó mér fyndist þau aldrei jafnast á við allt sem hann snill- ingurinn gerði. Alltaf gat maður leitað til Er- lings ef mann vantaði t.d. batt- erí í borvél eða hvar ódýrasta eða besta efnið væri að finna. Hann hugsaði vel um sína og í næstu heimsókn kom: „Heyrðu, ég er búinn að panta þetta sem við vorum að tala um.“ Erling var einn sá slungnasti á tölvu sem ég hef hitt, kominn á efri ár. Ég hef verið búsettur erlend- is sl. misseri þannig að ég kveð þann mann sem ég hitti síðast, sprækan og hressan Erling, og það þykir mér vænt um. Ég vildi geta verið viðstaddur hans hinstu kveðjustund en nýti mér tæknina og verð með í huga og hjarta hjá fjölskyldunni hans heima. Takk fyrir allt kæri tengda- pabbi. Þinn Þráinn. Minn kæri tengdafaðir hefur nú kvatt okkur í síðasta sinn. Eftir sitjum við hljóð en þakklát fyrir lífið sem hann gaf okkur. Erling var ljúfur maður, bæði hógvær og kurteis með góðan húmor og grínaðist fram á síð- asta dag. Það sem einkenndi hann sterkt var að hann blótaði aldrei sama hversu mikið niðri fyrir honum varð. Hann hafði enga þörf fyrir að trana sér fram og var rólegur að eðlisfari og einstaklega dagfarsprúður. Okkur varð vel til vina. Þegar ég fór að vera með einkasyni hans fann ég hvað þeir feðgar voru nánir. Þeir deildu sama áhugamáli enda báðir flugvirkj- ar. Spjallið þeirra á milli fór mjög gjarnan út í eitthvað sem tengdist fluginu og á því var enginn stopptakki. Ég fann að honum fannst vænt um að son- urinn fetaði í sömu fótspor og hann. Við fjölskyldan áttum góðar stundir með afa Erling og vor- um svo heppin að fá hann oft í heimsókn þar sem hann bjó rétt hjá okkur. Hann var líka tíður gestur í bílskúrnum til skrafs og ráðagerða en þar fannst þeim feðgum gott að vera. Úrræða- góður var hann með eindæmum og við eigum eftir að sakna þess að geta ekki spurt hann um álit. Honum fannst gaman að fylgj- ast með ef einhverjar fram- kvæmdir voru í gangi og kom þá oft við til að taka verkin út. Við fjölskyldan bjuggum um tíma í Svíþjóð og þangað kom afi Erling líka í heimsókn. Það var notalegt að hafa hann inni á heimilinu og við upplifðum sam- veruna svo sterkt í útlöndunum. Erling var mjög tæknivædd- ur og elskaði græjur. Það kom alltaf glampi í augun á honum þegar hann kynnti til leiks nýtt dót eins og ég kallaði það. Hann sannfærði mig um að þetta væri bráðnauðsynlegt. Heimilið hans var allt fjarstýrt og ég beið eftir því að skjótast upp úr stólnum einn daginn. En fyrst og fremst var heim- ilið hans hlýlegt og bar þess merki að þar byggi mikill snyrtipinni og nákvæmnismað- ur. Það var notalegt að koma við í kaffibolla til hans og ekki klikkaði hann á bollastellinu fyr- ir vandlátu tengdadóttur sína. Hann passaði upp á að eiga allt- af til hnetutopp í frystinum því hann vissi að það væri mitt uppáhald. Elsku tengdapabbi, takk fyrir samfylgdina og þær góðu stund- ir sem við áttum saman. Við eig- um eftir að sakna þín mikið en ég þakka fyrir lífið sem þú gafst mér og fjölskyldunni minni. Þín tengdadóttir, Brynja. Nú kveð ég góðan vin Erling Andreassen flugvirkja. Þótt vin- átta okkar spannaði ekki langan tíma var eins og við hefðum þekkst alla ævi. Við kynntumst þegar Erling tók að sér að hafa umsjón með fyrrverandi land- græðsluflugvélinni Páli Sveins- syni. Þar var hann vakinn og sofinn og þristurinn átti hug hans allan. Ég gat átt von á sím- tölum á öllum tímum sólar- hringsins þegar eitthvað þurfti að gera og hvenær ég hefði tíma. Þær voru ófáar ferðirnar okkar saman milli Reykjavíkur og Akureyrar og þá oftast fljúg- andi. Þegar svo heilsan brást og hann hætti umsjón sinni á þrist- inum þá fylgdist hann samt með öllu sem gerðist í kringum hann. En nú er hann floginn til sólar- landsins og eftir situr söknuður vegna allra góðu stundanna sem við áttum saman. Við Hrefna sendum fjölskyldu hans innileg- ar samúðarkveðjur. Karl Hjartarson. Erling Andreassen Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum.         þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber       ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.