Morgunblaðið - 07.10.2020, Qupperneq 4
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 2020
Freyr Bjarnason
Hallur Már Hallsson
Oddur Þórðarson
Viðar Guðjónsson
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra féllst í gærkvöldi á þær
takmarkanir sem Þórólfur Guðnason
sóttvarnalæknir lagði til í minnis-
blaði sínu, en hann kynnti meginefni
þeirra á upplýsingafundi almanna-
varna í gær.
Ástæðan er mikil aukning í smit-
um vegna kórónuveirunnar á undan-
förnum dögum. Hinar ýmsu hömlur
voru kynntar á fundi almannavarna í
gær. Aðgerðirnar sem kynntar voru
í gær munu gilda í tvær vikur eða til
19. október.
Búast við mörgum smitum
Ástæða hertra aðgerða nú er sú að
tilkynnt var í gær að 99 smit hefðu
greinst á mánudag. Þórólfur segir
ekki ólíklegt að smit verði áfram
mörg, jafnvel fleiri, á næstu dögum.
Meðal þess sem er gert, er að ekki
mega fleiri en 20 koma saman í einu
og tveggja metra reglan verður sett
á að nýju. Sundlaugum verður lokað,
keppnisstarfi í íþróttum hætt og
grímuskylda verður hert. Þá verður
einungis heimilt að vera með veit-
ingahús opin til kl. 21 í stað kl. 23 áð-
ur. Þórólfur segir ekki ólíklegt að
smit verði áfram mörg, jafnvel fleiri
en greindust á sunnudag. Þungt
hljóð var í honum og Víði Reynissyni
yfirlögregluþjóni á almannavarna-
deild ríkislögreglustjóra á fundinum
í gær. „Það eru allir orðnir mjög
þreyttir á þessu og við finnum það al-
veg að þolinmæðin fyrir aðgerðunum
hefur minnkað,“ segir Víðir. Hins
vegar segir hann að næstu skref séu
mikilvæg og árangur þeirra ætti að
birtast eftir viku.
Mikil fjölgun í sýnatöku
Mikil fjölgun hefur orðið í ein-
kennasýnatöku að sögn forstjóra
Heilsugæslunnar á höfuðborgar-
svæðinu. Um 1.500 manns fara nú í
einkennasýnatöku á dag sem er um
helmingi meira en fyrir viku.
„Það hefur verið mikið að gera,
já,“ segir Óskar Reykdalsson, for-
stjóri Heilsugæslunnar á höfuðborg-
arsvæðinu, í samtali við mbl.is. Ósk-
ar segir að mikil aukning hafi verið á
einkennasýnatökum, þ.e. að þeir sem
telja sig hafa einkenni kórónuveir-
unnar bóki skimun hjá Heilsugæsl-
unni. „Við vorum að fá líklega svona
7-800 manns á dag í einkennasýna-
tökur í síðustu viku en nú koma ríf-
lega 1.500 manns á dag,“ segir Ósk-
ar. Þá séu nokkur hundruð til
viðbótar sem fari í sýnatöku við lok
sóttkvíar á hverjum degi.“
Óskar segir að þeir sem bóki ein-
kennasýnatöku snemma dags geti
átt von á því að komast í skimun
samdægurs þótt engin eiginleg regla
sé á því. „Til að skipuleggja þetta
sem best höfum við reynt að boða þá,
sem bóka einkennasýnatöku fyrir
hádegi, í skimun samdægurs. Svo
þeir sem bóka síðar yfir daginn fara
yfirleitt snemma daginn eftir. Ef fólk
er svo með mikil eða alvarleg ein-
kenni þá er auðvitað tekið á því alveg
sérstaklega,“ segir hann.
Hertar sóttvarnaaðgerðir skella á
99 smit greindust Tveggja metra reglan aftur í gildi Afgreiðslutími veitingahúsa skertur frekar,
sundlaugar ekki opnar og ekki mega fleiri en 20 koma saman 1500 skimaðir á degi hverjum
Kórónuveirusmit á Íslandi
Staðfest smit frá 30. júní
3.081 staðfest smit
Heimild: covid.is
Nýgengi innanlands 5. október:
173,2 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa
15 einstaklingar eru á sjúkrahúsi, þar af 4 á gjörgæslu
99 ný inn an lands smit greindust 5. október
292.244 sýni hafa verið tekin
Þar af í landamæraskimun
154.705
sýni, samtals í skimun 1 og 2
1.913 einstaklingar eru í skimunarsóttkví
100
80
60
40
20
0
99
75
16
3.571 er í sóttkví
747 einstaklingar eru með virkt smit og í einangrun
júlí ágúst september
Fjöldi smita
innanlands
Fjöldi smita á
landamærum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Aðgerðir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir boðar hertar aðgerðir.
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
Litur: Silver/ Dark walnut að innan.
2020 GMC Denali, magnaðar
breytingar t.d. 10 gíra skipting,
auto track millikassi, multipro
opnun á afturhlera, flottasta
myndavélakerfið á markaðnum
ásamt mörgu fleira. Samlitaðir
brettakantar, gúmmimottur í húsi
og palli.
VERÐ
13.250.000 m.vsk
ATH. ekki „verð frá“
ATH. ekki „verð frá“
2020 GMC Denali Ultimate
Litur: Carbon Black/ Walnut
að innan. 2020 GMC Denali ,
magnaðar breytingar t.d. 10 gíra
skipting, auto track millikassi,
multipro opnun á afturhlera,
flottasta myndavélakerfið á
markaðnum ásamt mörgu
fleirra. Samlitaðir brettakantar,
gúmmimottur í húsi og palli.
VERÐ
13.250.000 m.vsk
ATH. ekki „verð frá“
2020 GMC Denali Ultimate
Litur: Silver/ Grár að innan.
6,7L Diesel, 450 Hö, 925 ft of
torque, 4X4, 10-speed Automatic
transmission, 6-manna.
Heithúðaður pallur.
VERÐ
11.290.000 m.vsk
2020 Ford F-350 XLT
Áhrif sóttvarnaaðgerða vegna kór-
ónuveirufaraldursins má sjá víða,
en allt vatn hefur verið tæmt úr
heita pottinum í Nauthólsvík, þar
sem hann er klórlaus. Gera má ráð
fyrir að svo verði áfram, þar sem
bað- og sundstöðum á höfuðborg-
arsvæðinu hefur nú verið lokað
fram til 19. október.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heiti potturinn tómur í Nauthólsvík
„Við viljum að allir borgarar lands-
ins hagi sér skynsamlega og nú er
best að halda sig heima,“ segir
Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri
á Norðurlandi eystra.
Talsverður straumur hefur verið
af ferðamönnum til Akureyrar síð-
ustu vikur, innlendra sem erlendra.
Virðist jafnvel sem einhverjir hópar
hafi séð sér leik á borði þegar skellt
var í lás á skemmtistöðum í Reykja-
vík og flutt gleðina norður yfir heið-
ar. Páley segir í samtali við Morgunblaðið að Akureyri
sé þannig staður að þangað komi fólk allan ársins
hring og sæki í afþreyingu.
„Hingað koma alls konar hópar og gera sér glaðan
dag. Í venjulegu árferði myndi maður skilja það en nú
er staðan þannig að allir ættu að stilla ferðalögum í
hóf. Fólk er enda hvatt til að takmarka ferðalög milli
svæða. Svo vonandi náum við tökum á baráttunni og
getum farið að þvælast um allt á ný,“ segir hún.
hdm@mbl.is
Best að halda sig heima
Talsverður straumur af ferðamönnum til Akureyrar
síðustu vikur Einhverjir flutt gleðina norður yfir heiðar
Páley
Borgþórsdóttir
Morgunblaðið/Eggert
Akureyri Brögð eru að því að hópar skemmtanaglaðra
Reykvíkinga hafi heimsótt höfuðstað Norðurlands.