Morgunblaðið - 07.10.2020, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.10.2020, Blaðsíða 21
DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 2020 Húðin Hátún 6b, 105 Reykjavík 519-3223 www.hudin.is Dekraðu við húðina í hlýlegu og notalegu umhverfi. „HEFUR EINHVER INNRITAÐ SIG OG ÞÓST VERA ÉG?” „SLÁÐU Á ÞRÁÐINN TIL RÖNTGEN- DEILDARINNAR. BRJÓSTMYNDATAKAN SÝNIR BARA HVIRFILINN Á HONUM.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þinn flippaði betri helmingur. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG GÆTI BREYTT HEIM- INUM EF ÉG REYNDI ÞAÐ! Ó, ÉG TRÚI ÞVÍ VEL AÐ ÞÚ GÆTIR ÞAÐ, JÓN … GERT HANN LEIÐINLEGRI, EF EITTHVAÐ ER VITUR MAÐUR SAGÐI EITT SINN VIÐ MIG: „ÞAÐ ER VEGURINN SEM ÞÚ FETAR EKKI SEM ÞÚ MUNT HARMA” JAH, EKKI GET ÉG ANDMÆLT ÞVÍ! VELKOMIN Á RÁÐ STEFNU UM AUÐKENNIS- ÞJÓFNAÐ MÓTTAKA lengra en í Mosfellsbæinn. „Hér er örstutt upp í Reykjalundarskóginn og þá er maður kominn út í allt ann- an heim, og hér líður mér vel.“ Eins og fram hefur komið líður Ásgeiri hvergi betur en uppi á fjöll- um og þegar toppnum er náð er oft- ar en ekki tekin upp pönnuköku- pannan og bakaðar pönnukökur. „Ég hef líklega bakað pönnukökur uppi á 15 fjallstoppum, en núna er ég farinn að baka þær þegar ég kem á sérstaka og skemmtilega staði,“ seg- ir Ásgeir, sem hefur bakað á Drang- jökli, Langajökli, Eiríksjökli, Vatna- jökli og Snæfellsjökli. „Ég hef ákveðið að sleppa Hofsjökli, því hann er svo sprunginn og ég er var- kár maður.“ Fjölskylda Eiginkona Ásgeirs er Berglind Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 26.5. 1976. Foreldrar hennar eru Gunnar Hinriksson rafvirki, f. 23.7. 1943, og Bertha Vigfúsdóttir húsmóðir, f. 20.1. 1945. Þau búa í Mosfellsbæ. Börn Ásgeirs og Berglindar eru Ari Ásberg, f. 17.1. 2011, og Agnes Aðalbjörg, f. 8.8. 2014. Bræður Ás- geirs eru Bjarni Sæmundsson, raf- iðnfræðingur í Kópavogi, f. 4.12. 1973; Einar Þór Sigurgeirsson, f. 16.3. 1979, verslunarmaður í Kópa- vogi; Davíð Sæmundsson, f. 23.4. 1981, verkamaður í Borgarnesi; Ei- ríkur Sæmundsson, f. 15.8. 1984, raf- magnstæknifræðingur í Mosfellsbæ, og Jóhann Hólmar Ragnarsson, f. 23.9. 1978, vélvirki Grund á Blöndu- ósi. Faðir Ásgeirs er Sæmundur Ás- geirsson, f. 12.2. 1950, rafveitu- virkjameistari í Borgarnesi, var gift- ur Steinunni Jóhannsdóttur, f. 23.11. 1959, verkakonu í Borgarnesi. Þau skildu. Móðir Ásgeirs er Þóra Ingi- björg Guðnadóttir, f. 11.8. 1952, skólaritari í Kópavogi, og fósturfaðir Sigurgeir Ólafsson, f. 15.5. 1938, bif- reiðastjóri. Ásgeir Sæmundsson Sæmundur Tómasson trésmiður í Reykjavík Guðný Sigurðardóttir húsmóðir í Reykjavík Ásgeir Sæmundsson rafmagnstæknifræðingur í Reykjavík Anna S. Jóhannsdóttir húsmóðir í Reykjavík Sæmundur Ásgeirsson rafveituvirki í Borgarnesi Jóhann Jóhannsson verkamaður á Siglufirði Guðrún Sigmundsdóttir verkakona á Siglufirði Theodór Jónsson verkamaður í Reykjavík Ingveldur Valdimarsdóttir húsmóðir í Reykjavík Guðni Þ. Theodórsson verslunarmaður í Reykjavík Sigurborg Einarsdóttir matráðskona í Reykjavík Einar Vídalín Einarsson loftskeytamaður í Rvík Þóra I. Gísladóttir húsmóðir í Reykjavík Úr frændgarði Ásgeirs Sæmundssonar Þóra I. Guðnadóttir skólaritari í Kópavogi Menn og menntir“ heitir ágættritsafn eftir Pál Eggert Óla- son sem gott og gaman er að fletta upp í. Oftar en ekki staldra ég við Þórð Magnússon á Strjúgi, en þar stendur: „Þórður hefur verið einna nafnkunnastur og vin- sælastur með alþýðu manna af skáldum á 16. öld. Jafnvel Páll lögmaður Vídalín, sem var manna vandlátastur um kveðskap, hælir mjög kveðskap Þórðar í vísu einni“: Þórður undir arnarhramm aldrei hreitti leiri; skaraði langt úr skáldum fram sem skírast gull af eiri. Í kvæði Þórðar „Mæðgnasennu“ er þessi vísa: Við skulum ekki hafa hátt, hér er margt að ugga; í allt kvöld hef ég andardrátt úti heyrt á glugga. Fjósarímur Þórðar varðveittust á vörum alþýðu. Efnið er skop. Maður kemur að bæ að heimta skuld og hittir skuldaþrjót sinn í fjósi; verður þeim brátt sundur- orða og lenda í handalögmáli. – „Rekur skáldið síðan kappa úr fornsögum, þá er hann veit mesta, en enga finnur hann jafningja þessara tveggja, því að aldrei hafa þeir átt vopnviðskipti í fjós- um.“ Karlamagnús keisari dýr kenndi trúna hreina; aldrei hann fyrir aftan kýr orrustu háði neina. Þórður hreða þegna vo, þessi bjó að Ósi; breytti aldrei bóndinn svo að berði menn í fjósi. Rollant bjó með Dýrumdal, drjúgum vakti hildi; bardagann í baulusal byrja aldrei vildi. Síðasta vísa Þórðar, hina síðustu hvítasunnu er hann lifði, er svo: Kær bið ég ráði Kristur því, kóngurinn öllum meiri, hvort ég lifi heimi í hvítasunnur fleiri. Þessi alkunna vísa er oft eignuð Þórði og telur Sveinbjörn Ben- teinsson svo vera: Þó slípist hestur og slitni gjörð slettunum ekki kvíddu hugsaðu hvorki um himin né jörð, haltu þér fast og ríddu. Árni Jónsson Stóra-Hamri kvað: Öslaði gnoðin, beljaði boðinn, blikaði voðin, kári söng, stýrið gelti, aldan elti, inn sér helti á borðin löng. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Þórði á Strjúgi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.