Morgunblaðið - 30.10.2020, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.10.2020, Blaðsíða 1
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Ógn Sóttvarnarlæknir hefur lagt til harðari aðgerðir gegn veirunni. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir leggur til hertar aðgerðir á landsvísu vegna kórónuveirufaraldursins. Bú- ist er við því að tillögur Þórólfs verði ræddar á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Sóttvarnalæknir segir að hertar aðgerðir muni gilda á landsvísu í tvær til þrjár vikur hið minnsta. Alls greindust 42 kórónuveirusmit innanlands á miðvikudag. Þá lést einn úr Covid-19 og hafa því alls þrír fallið frá vegna sjúkdómsins í þess- ari bylgju faraldursins hérlendis. Ákveðið hefur verið að skima fyrir kórónuveirunni með skipulögðum hætti meðal starfsmanna Landspít- alans. Skimanirnar ná til starfs- manna á Landakoti og öðrum deild- um spítalans, í ljósi hópsýkingar sem kom upp á Landakoti. »4 Búist við að aðgerðir verði hertar  Starfsfólk Land- spítala í skimun F Ö S T U D A G U R 3 0. O K T Ó B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  256. tölublað  108. árgangur  SÖGULEGT ÍÞRÓTTAÁR Í LOS ANGELES VILL ÚRBÆTUR Í SVIÐSLISTUM MIKIL EFTIRSPURN EFTIR HUNDUM OG KÖTTUM BIRNA HAFSTEIN 28 KETTIR Á 16.000 HEIMILUM 2TITLAREGN Í ENGLABORG 26 Loftrýmisgæslu NATO yfir landinu lýkur í dag þegar F15- orrustuþotur bandaríska flughersins yfirgefa landið eftir fjögurra vikna dvöl. Hér eru þrjár þeirra á flugi yfir hálend- inu einn góðviðrisdag, með Langjökul í baksýn. Að sögn Jóns B. Guðnasonar hjá Landhelgisgæslunni gekk loftrýmisgæslan vel en veirufaraldurinn flækti hana þó töluvert. »10 Bandaríski flugherinn lýkur loftrýmisgæslu í dag Ljósmynd/Bandaríski flugherinn Andrés Magnússon andres@mbl.is Kaupfélag Skagfirðinga og dóttur- fyrirtæki þess í matvælaframleiðslu ætla að gefa fólki í erfiðleikum mat- vöru, sem svarar til 40.000 máltíða, fram til jóla. „Þetta er viðleitni okkar til þess að aðstoða fólk sem á í tíma- bundnum erfiðleikum vegna kórónu- veirunnar og afleiðinga hennar,“ segir Þórólfur Gíslason, kaupfélags- stjóri Kaupfélags Skagfirðinga. „Það kreppir víða að í þjóðfélaginu þessa dagana, en það á enginn að líða neyð vegna þess. Það er mikilvægt að við stöndum saman í þeirri baráttu.“ Ljóst er að verðmæti matvörunn- ar er verulegt, en Þórólfur vill ekki slá tölu á það. Maturinn er bæði kjöt, fiskur og mjólkurvara, allt íslensk hágæða- matvara, en Þórólfur segir að þar ræði ekki um mat, sem kominn er nálægt síðasta söludegi. „Nei, þetta er allt fyrsta flokks matur, hið sama og við erum að flytja úr landi eða selja í búðir hér innanlands.“ Hann telur mikilvægt að íslenskt atvinnulíf og matvælaiðnaður standi með þeim, sem standa höllum fæti í því óvenjulega þjóðfélagsástandi, sem við er að etja. Þessi gjöf sé þannig hugsuð. „Skagafjörður er mikið matvælaframleiðsluhérað og við lítum á það sem skyldu okkar að koma að liði við þessar aðstæður.“ Alger himnasending Á næstu dögum verður unnið að skipulagningu dreifingar matvör- unnar og verður hjálparstofnunum falið að koma matargjöfunum til þeirra, sem á þurfa að halda. Til þess þarf mikla skipulagningu, bæði við að útbúa matarpokana og koma þeim í réttar hendur, sem vitaskuld er enn erfiðara en endranær vegna sótt- varna. „Þetta er alger himnasending,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálparinnar. Þörfin fyrir aðstoð af þessu tagi sé gríðarleg og aukist dag frá degi. „Þetta er stærsta matargjöf allra tíma og hún gæti ekki komið á betri tíma. Ég veit ekki hvort fólk gerir sér grein fyrir því hvað ástandið er slæmt,“ segir Ásgerður og bætir við að hún hafi ekki kynnst öðru eins á 26 ára ferli við hjálparstörf. „Þörfin hefur aldrei verið meiri, ekki einu sinni í hruninu,“ bætir hún við, orðum sínum til áréttingar. „Ég get eiginlega ekki lýst því hvað ég varð glöð þegar Þórólfur hringdi í mig, þetta bjargar öllu,“ segir hún og bætir við að hún voni að þetta fordæmalausa örlæti verði öðr- um hvatning til að gefa til þeirra, sem nú þurfa á hjálp að halda. Gefa fólki í neyð 40.000 máltíðir  Kaupfélag Skagfirðinga gefur íslensk matvæli fram til jóla Þórólfur Gíslason Ásgerður Jóna Flosadóttir „Ég ber sterkar tilfinningar til þre- menninganna sem drápu tvo síðustu geirfuglana. Nútímamenn hafa gagnrýnt þá en ég tel það óréttmæta gagnrýni,“ segir Errol Fuller, list- málari, rithöfundur og fuglafræð- ingur. Hann er einn helsti sérfræð- ingur samtímans í geirfuglinum og höfundur fjölda bóka. Fuller er staddur hér í tengslum við útgáfu bókar Gísla Pálssonar mannfræð- ings um geirfuglinn, Fuglinn sem gat ekki flogið. Fuller mun ávarpa gesti í útgáfuhófi í Ásmundarsal á laugardag og taka þátt í málþingi um aldauða tegunda á sama stað á sunnudag. Viðburðinum verður streymt. »4 Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Geirfugl Stytta Ólafar Nordal. Óréttmæt gagnrýni  Drápu síðustu geirfuglana

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.