Morgunblaðið - 30.10.2020, Blaðsíða 8
Morgunblaðið/Eggert
Hvítserkur Ferðamenn taldir.
Næsta vor verða komnir teljarar við
gönguleiðir á 24 vinsælum ferða-
mannastöðum víða um land. Nýju
teljararnir gefa mikilvægar upplýs-
ingar strax daginn eftir um álag á
viðkomandi stað og eru þær einnig
dýrmætar fyrir fyrirtæki í ferða-
þjónustu á viðkomandi svæði um
fjölda einstaklinga á ferðinni. Um er
að ræða samstarfsverkefni Ferða-
málastofu og Umhverfisstofnunar
og kostar hver nýr mælir um 600
þúsund krónur, að sögn Jakobs
Rolfssonar á Ferðamálastofu.
Áður voru teljarar komnir upp í
Dimmuborgum, austan og vestan
Goðafoss, við Gullfoss, í þjóðgarð-
inum á Þingvöllum og í sumar var
settur upp teljari við Geysi. Fyrsta
áfanga verkefnisins lauk um miðjan
október með uppsetningu á teljurum
við Hvítserk, Dynjanda, Súgand-
isey, Saxhól, Hraunfossa og Seltún.
Talning er byrjuð að skila sér af
fjórum áfangastöðum og bætast
Dynjandi og Súgandisey við á næstu
dögum.
Annar áfangi hefst í byrjun nóv-
ember og verða teljarar þá settir
upp við Dettifoss, Stuðlagil, Jökuls-
árlón, Skaftafell, Fjaðrárgljúfur,
Reynisfjöru og í Reykjadal. Áætlað
er að þriðja áfanga ljúki svo næsta
vor en þá verða settir upp teljarar
við Fimmvörðuháls, Laugaveginn,
Látrabjarg og Hveravelli. aij@mbl.is
Ferðamenn taldir á 24 stöðum
Upplýsingar um álag Hver nýr teljari kostar um 600 þúsund krónur
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2020
SÖFNUNARÁTAK
Á RAFTÆKJUM í október
Í tilefni af alþjóðlegu átaki í söfnun raftækja 14. október
Við hvetjum landsmenn til að skila inn raftækjum, ljósaperum
og rafhlöðum til endurvinnslu á næsta gámasvæði.
Lestu meira um átakið á: www.gamafelagid.is
Í ritstjórnardálkinum Huginnog Muninn í Viðskiptablaðinu
segir frá grein sem Ágúst Ólafur
Ágústsson, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, ritaði á dögunum
undir fyrirsögninni
„Milljón krónu
spurningin“ og
fjallar um kosti
ESB-aðildar.
Um þetta segjahrafnarnir:
„Eftir bankahrunið
gengu Íslendingar í gegnum átta
ára samfellt hagvaxtarskeið.
Hrafnarnir muna ekki eftir því að
Samfylkingarfólk hafi haldið
ESB-aðildarstefnu sinni sérlega
hátt á lofti á þessu tímabili. Þau
héldu henni hins vegar nokkuð á
lofti þegar bankahrunið skall á
en sú umræða þagnaði á hagvaxt-
arskeiðinu. Nú er ný kreppa
skollin á og þá er rykið dustað af
ESB-plagginu. Í byrjun grein-
arinnar spyr Ágúst Ólafur: „Eig-
um við að tala um Evrópusam-
bandið núna? Er núna rétti
tíminn? Vill þjóðin það?“ Stutta
svarið er nei.“
Það er rétt hjá Viðskipta-blaðinu að þjóðin vill ekki
ganga í Evrópusambandið, en það
er alltaf jafn áhugavert að sjá
fólk í Samfylkingu og systur-
flokkunum viðra þessar skoðanir.
Ekki er síður athyglisvert aðþingmaður Samfylkingar
skuli nú sjá tækifæri til að draga
aðildarumsóknina fram á ný og
vilji þvæla þjóðinni í gegnum þau
átök aftur.
Er það virkilega svo að ESB-sinnarnir ætli aftur að efna
til ófriðar í tilefni efnahags-
samdráttar og gera þjóðinni
þannig erfitt fyrir að standa sam-
an í gegnum þrengingarnar?
Ágúst Ólafur
Ágústsson
Samfylking
sundrungar
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Pétur Bjarnason mynd-
höggvari er látinn, 65
ára að aldri. Hann
fæddist í Reykjavík 20.
september árið 1955,
sonur hjónanna Bjarna
Kristinssonar og Ernu
Árnadóttur. Pétur lést
á Landspítalanum við
Hringbraut 26. október
sl.
Hann ólst upp í Vest-
urbænum, gekk í Mela-
skóla og Hagaskóla, fór
síðan í Verzlunarskólann, lauk versl-
unarprófi og stundaði síðan nám í
Myndlista- og handíðaskóla Íslands.
Hann nam myndlist við Fachhoch-
schule í Aachen í Þýskalandi og öðl-
aðist síðan MA-gráðu við National
Higher Institute for Fine Arts í Ant-
werpen í Belgíu þar sem hann lærði
m.a. málmsteypu.
Eftir heimkomu setti hann upp
verkstæði á lóð fjölskyldufyrirtæk-
isins Glerborgar ehf. í Hafnarfirði og
kom sér síðan upp stærri aðstöðu á
eigin verkstæði í Hafnarfirði þar
sem hann hafði m.a. bronssteypu.
Hann vann til verðlauna í sam-
keppnum hérlendis og erlendis og
var fenginn til þess að búa til lista-
verk af ýmsum tilefnum fyrir fyrir-
tæki og stofnanir.
Eftir hann liggja m.a. mörg vegleg
málmlistaverk sem bera
vott um hæfileika hans
sem listamanns. Má þar
nefna verðlaunaverkið
Farið við Pollinn á
Akureyri, Partnership
við Sæbraut í Reykjavík
og í Flórída, vatnslista-
verkið Uppsprettu við
Vídalínskirkju í Garða-
bæ, listaverkið Ægisdyr
við Ásgarð í Garðabæ,
listaverk við KR-
heimilið við Frostaskjól
og listaverkið Fyrir stafni við höfuð-
stöðvar Eimskips í Sundahöfn og
minnisvarða um Sigurjón Rist við
Tungnaá. Auk þessa liggja eftir
hann fjölmörg smærri listaverk.
Pétur sinnti kennslu í Myndlista-
og handíðaskóla Íslands og Listahá-
skólanum. Hann hélt nokkrar einka-
sýningar og tók þátt í samsýningum.
Á seinni árum sinnti hann við-
gerðum og viðhaldi á listaverkum
eftir látna og núlifandi myndhöggv-
ara.
Pétur var bæjarlistamaður Garða-
bæjar árið 1992.
Eftirlifandi eiginkona Péturs er
Sigríður Jóhannesdóttir og eru börn
þeirra Jón Bjarni, Skúli Steinar og
Guðrún María.
Útför Péturs mun fara fram í
kyrrþey.
Andlát
Pétur Bjarnason
myndhöggvari