Morgunblaðið - 30.10.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2020
591063
KIA Picanto LX ‘16, beinskiptur,
ekinn 100 þús. km. Verð: 599.000 kr.
550165
Toyota C-hr c-ult ‘19, sjálfskiptur,
ekinn 50 þús. km. Verð: 3.690.000 kr.
446408
Opel Corsa Enjoy ‘15, beinskiptur,
ekinn 117 þús. km. Verð: 690.000 kr.
Opel Astra Innovation ‘18, beinskiptur,
ekinn 80 þús. km. Verð: 2.190.000 kr.
446452
Opel Crossland X Innovation ‘18, sj.skiptur,
ekinn 29 þús.km. Verð: 2.890.000 kr.
590964
446230 446525 446471
BMW X5 Xdrive ‘11, sjálfskiptur,
ekinn 187 þús.km. Verð: 3.490.000 kr.
590500 112900
Notaðir bílar
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Bílasala Suðurnesja
Sími: 420 3330
Opnunartímar:
Virka daga 12-17Meira úrval á
notadir.benni.is
Reykjavík
Krókháls 9
Sími: 590 2035
Opnunartímar:
Virka daga 9-18
Laugardaga 12-16
* Birt með fyrirvara um mynda- og textabrengl.
Öryggi á góðum bíl í vetur!
Nissan Navara Np300 Tekna ‘17, sj.skiptur,
ekinn 103 þ. km. Verð: 5.590.000 kr.
Jeep Grand Cherokee Laredo ‘09. sj.skiptur,
ekinn 139 þús. km. Verð: 1.690.000 kr.
SsangYong Tivoli DLX ‘18, sjálfskiptur,
ekinn 9 þús. km. Verð: 2.990.000 kr.
SsangYong Rexton DLX ‘18, sjálfskiptur,
ekinn 53 þús. km. Verð: 4.790.000 kr.
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Þetta gekk ágætlega, enda byggist
verkefnið á áratuga reynslu. Það er
krefjandi að geta ekki átt í hefð-
bundnum samskiptum við liðsaflann
og það hefur kallað á nýtt skipulag
og breyttar boð-
leiðir sem við
munum draga
lærdóm af,“ segir
Jón B. Guðnason,
framkvæmda-
stjóri varnar-
málasviðs Land-
helgisgæslunnar,
en loftrýmis-
gæslu NATO við
Ísland lýkur í dag
þegar þotur og liðsafli bandaríska
hersins yfirgefa landið.
Kórónuveirufaraldurinn hefur
haft sín áhrif á verkefnið, en Land-
helgisgæslan annaðist framkvæmd
þess í samvinnu við Isavia. Hér voru
ríflega 260 liðsmenn bandaríska
flughersins. Komu þeir frá Bretlandi
og í loftrýmisgæslunni tóku fjórtán
F15 orrustuþotur þátt.
„Farsóttin hefur sett mikinn svip
á öll varnartengd verkefni Land-
helgisgæslunnar. Undirbúningur,
skipulag og framkvæmd er mun
flóknari og umfangsmeiri en áður.
Allir liðsmenn sem hingað komu
þurftu að fylgja ströngum sótt-
varnareglum. Allir fóru í tvær skim-
anir og sóttkví og jafnvel í sóttkví
áður en komið var til landsins,“ segir
Jón. Herinn hefur haft aðsetur á ör-
yggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Þar er hægt að hýsa um 200 manns
en Jón segir að vegna aðstæðna hafi
ekki öll gistirými verið nýtt. Fjöldi
liðsmanna hefur einnig verið á hót-
elum á Suðurnesjum og höfuðborg-
arsvæðinu. Auk bandaríska flug-
hersins tóku þátt starfsmenn frá
stjórnstöð NATO í Uedem í Þýska-
landi og liðsmenn úr eistneska flug-
hernum.
Að sögn Jóns var öryggissvæðinu
skipt niður í sóttvarnahólf og svæði
þar sem liðsmönnum var óheimilt að
fara á milli.
„Mikið eftirlit hefur verið með
heilsu liðsmanna og skýrslur gerðar
daglega fyrir hvern hóp. Bandaríski
flugherinn og sjóherinn hafa verið
með lækna og heilbrigðisstarfsmenn
á sínum snærum. Þar sem um fjöl-
mörg varnarverkefni er að ræða, og
hóparnir margir, getur flækjustigið
orðið töluvert,“ segir Jón.
Aðspurður segir hann vel hafa
gengið að halda mannskapnum inn-
an sóttvarnahólfa. Samstarf við hér-
lenda aðila hafi tekist vel, eins og við
starfsmenn landlæknis og sótt-
varnalæknis, heilbrigðisstarfsmenn
og lögregluembætti.
„Hjá Landhelgisgæslunni hefur
byggst upp víðtæk sérfræðiþekking
og reynsla í að taka á móti erlendum
liðsafla og halda utan um alla ein-
staklinga í samvinnu við alla þá aðila
hér á landi sem að verkefninu og
sóttvörnum koma,“ segir Jón enn-
fremur.
Norðmenn verða með næstu loft-
rýmisgæslu NATO, koma hingað í
lok febrúar og verða hér í fjórar til
fimm vikur.
Gæsla Fjórtán F15-orrustuþotur tóku þátt í loftrýmisgæslunni. Með þeim fylgdu um 260 manns.
Faraldur flækti loftrýmisgæsluna
Bandaríski herinn lýkur loftrýmisgæslu fyrir NATO í dag Gæslan segir verkefnið hafa tekist vel
Ljósmyndir/Bandaríski flugherinn
Æfingar Þoturnar sýna listir sínar yfir snævi þöktu hálendinu. Ekki amalegt útsýni sem flugmenn fengu.
Jón B. Guðnason
NATO Flugsveitin bandaríska kom frá Bretlandi vegna verkefnisins hér. Langjökull í bakgrunni.