Morgunblaðið - 30.10.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 30.10.2020, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2020 Evrópudeild UEFA A-RIÐILL: CFR Cluj – Young Boys .......................... 1:1 Roma – CSKA Sofia ................................. 0:0  Cluj 4 stig, Roma 4, Young Boys 1, CSKA Sofia 1. B-RIÐILL: Arsenal – Dundalk................................... 3:0  Rúnar Alex Rúnarsson varði mark Ars- enal. Molde – Rapid Vín.................................... 1:0  Arsenal 6 stig, Molde 6, Rapid Vín 0, Dundalk 0. C-RIÐILL: Nice – Hapoel Beer Sheva....................... 1:0 Slavia Prag – Leverkusen ....................... 1:0  Leverkusen 3 stig, Hapoel 3, Slavia Prag 3, Nice 3. D-RIÐILL: Benfica – Standard Liege........................ 3:0 Rangers – Lech Poznan........................... 1:0  Benfica 6 stig, Rangers 6, Standad Liege 0, Lech Poznan 0. E-RIÐILL: Granada – PAOK..................................... 0:0  Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með PAOK. Omonia Nikósía – PSV............................. 1:2  Granada 4 stig, PSV 3, PAOK 2, Omonia Nikósía 1. F-RIÐILL: AZ Alkmaar – Rijeka .............................. 4:1  Albert Guðmundsson lék í 89 mínútur með AZ og skoraði tvö mörk. Real Sociedad – Napoli ............................ 0:1  AZ 6 stig, Real Sociedad 3, Napolí 3, Rij- eka 0. G-RIÐILL: AEK Aþena – Leicester........................... 1:2 Zorya Luhansk – Braga........................... 1:2  Leicester 6 stig, Braga 6, AEK 0, Zorya Luhansk 0. H-RIÐILL: AC Milan – Sparta Prag .......................... 3:0 Lille – Celtic.............................................. 2:2  AC Milan 6 stig, Lille 4, Celtic 1, Sparta Prag 0. I-RIÐILL: Qarabag – Villarreal................................. 1:3 Sivasspor – Maccabi Tel Aviv.................. 1:2  Villareal 6 stig, Maccabi Tel Aviv 6, Qara- bag 0, Sivasspor 0. J-RIÐILL: LASK Linz – Ludogorets........................ 4:3 Antwerpen – Tottenham ......................... 1:0  Antwerpen 6, Tottenham 3, Linz 3, Lu- dogorets 0. K-RIÐILL: CSKA Moskva – Dinamo Zagreb........... 0:0  Hörður Björgvin Magnússon lék allan leikinn með CSKA og Arnór Sigurðsson kom inn á sem varamaður á 75. mín. Feyenoord – Wolfsberger ....................... 1:4  Wolfsberger 6, CSKA 2, Dinamo Zagreb 2, Feyenoord 0. L-RIÐILL: Rauða stjarnan – Slovan Liberec ........... 5:1 Gent – Hoffenheim................................... 1:4  Hoffenheim 6, Rauða stjarnan 3, Slovan Liberec 3, Gent 0. Svíþjóð Sirius – AIK.............................................. 0:0  Kolbeinn Sigþórsson kom inn á sem varamaður hjá AIK á 67. mínútu. Bandaríkin Toronto – New York City....................... 0:1  Guðmundur Þórarinsson kom inn á hjá New York á 72. mínútu.  Efst í Austurdeild: Philadelphia 44, To- ronto 41, Columbus Crew 35, Orlando City 35, New York City 33, New York RB 29.  Meistaradeild karla A-RIÐILL: Porto – Kielce ...................................... 32:32  Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 3 mörk fyrir Kielce en Haukur Þrastarson er meiddur.  Kielce 9 stig, Flensburg 8, Meshkov Brest 6, Porto 6, Vardar Skopje 3, París SG 2, Elverum 2, Pick Szeged 0. B-RIÐILL: Barcelona – Aalborg........................... 42:33  Aron Pálmarsson skoraði 5 mörk fyrir Barcelona og gaf 5 stoðsendingar.  Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal- borg.  Barcelona 10, Veszprém 9, Aalborg 8, Kiel 7, Nantes 2, Motor Zaporozhye 2, Celje Lasko 2, Zagreb 0. Þýskaland Göppingen – Lemgo............................ 28:28  Janus Daði Smárason skoraði 3 mörk fyrir Göppingen.  Bjarki Már Elísson skoraði 7 mörk fyrir Lemgo. Stuttgart – Leipzig.............................. 30:24  Viggó Kristjánsson skoraði 7 mörk fyrir Stuttgart en Elvar Ásgeirsson skoraði ekki.  Efstu lið: Stuttgart 9, RN Löwen 8, Flensburg 8, Kiel 8, Lemgo 8 Leipzig 7, Bergischer 7, Melsungen 7, Magdeburg 6. Danmörk Tvis Holstebro – Lemvig .................... 30:23  Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 2 mörk fyrir Tvis Holstebro.   Sara Björk Gunnarsdóttir lands- liðsfyrirliði er í hópi tuttugu bestu leikmanna í Evrópu á þessu ári, samkvæmt mati FourFourTwo, út- breiddasta knattspyrnutímarits á Bretlandseyjum. FourFourTwo gengst fyrir kjöri á besta leikmanni Evrópu í kvennaflokki árið 2020 og fær sérfræðinga víðsvegar að úr álfunni til að greiða atkvæði. Tíma- ritið hefur valið tuttugu leikmenn sem það telur þá bestu á þessu ári og Sara Björk er í þeim hópi, en sérfræðingarnir velja síðan fimm bestu leikmennina, hver fyrir sig. Sara í hópi 20 bestu í Evrópu AFP Lyon Sara Björk Gunnarsdóttir varð Evrópumeistari í ágúst. Handknattleiksmennirnir Bjarki Már Elísson og Viggó Kristjánsson voru markahæstir í sínum liðum í Þýskalandi í gær. Göppingen og Lemgo gerðu jafn- tefli 28:28 og var Bjarki marka- hæstur hjá Lemgo með sjö mörk en Janus Daði Smárason skoraði þrjú mörk fyrir Göppingen. Viggó var markahæstur hjá Stuttgart þegar liðið vann Leipzig 30:24 og skoraði sjö mörk gegn sínu gamla liði. Elvar Ásgeirsson skor- aði ekki fyrir Stuttgart en kom við sögu í leiknum. kris@mbl.is Bjarki og Viggó markahæstir Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson 7 mörk Viggó Kristjánsson var markahæstur hjá Stuttgart. LA 2020 Gunnar Valgeirsson Los Angeles Hafnaboltaliðið Los Angeles Dod- gers vann sinn fyrsta meistaratitil í 32 ár eftir sigur á Tampa Bay Rays í svokallaðri „Heimsrimmu“ MLB- deildarinnar á þriðjudagskvöld. Þar með kórónaði liðið Englaborgina sem meistaraborg Bandaríkjanna í ár, en Los Angeles Lakers vann NBA-meistaratitilinn sextán dögum fyrr. Þessi lið endurtóku því söguna með því að vinna meistaratitilinn í sínum deildum, rétt eins og 1988. Það ár vann Lakers sinn fimmta titil á áratugnum og Dodgers sinn annan. Þetta var tímabil Pat Riley, Magic Johnson og Kareem Abdul- Jabbar hjá Lakers (sá kafli liðsins endaði þegar Johnson fékk alnæmi 1991), og Dodgers virtist ávallt í bar- áttunni um titilinn í þjóðaríþróttinni. Þetta eru því góðir dagar fyrir íþróttaunnendur hér í bæ og endur- koma þessara titla hingað til borg- arinnar kærkomin íþróttaunnendum nú eftir erfitt ár hér í borg sem og annars staðar. Af rakettum og kvöldmat Ég hafði annað augað á loka- leiknum í MLB á þriðjudag í imban- um á meðan kvöldmatur var undir- búinn, en setti leikinn svo á pásu í sjónvarpinu seint í honum á meðan við skötuhjúin hér skammt austur af miðborginni nutum kvöldmatarins. Rétt þegar við vorum að klára hóf- ust miklar rakettusprengingar hérna í austuhluta borgarinnar og þá vissi ég um leið að Dodgers-liðinu hefði tekist að innbyrða sigurinn eft- ir að hafa tekið forystuna seint í leiknum. Vegna farsóttarinnar í sumar var mun minna um rakettu- sprengingar hér í bæ á lýðveldisdeg- inum 4. júlí og því áttu víst margir enn slatta eftir. Maður fór að heyra þessar sprengingar í borginni eftir sigur- leiki Lakers í lokarimmu NBA- deildarinnar og að nýju síðustu daga eftir sigurleiki Dodgers gegn Tampa Bay. Hér í borg rekur stór hluti borgarbúa ættir sína til Mexíkó og það er lenskra margra þeirra að verða sér úti um ólöglegar rakettur og blys sunnan landamæranna til notkunar um áramót og 4. júlí. Þess- ar vörur eru ólöglegar hér í Kali- forníu vegna hættunnar á íkveikju í kjarri víðsvegar hér í Suður- Kaliforníu, en hér loga nú eldar bæði sunnan og austan borgarinnar. Þetta stöðvar hinsvegar ekki margan íþróttaeðjótinn hér í bæ þennan mánuð, enda virðist svo sem erfitt að halda aftur af sér eftir langa bið eftir meistaratitlum. Dodgers yfirvinnur loks óheppni og svindl Þessi meistaratitill Dodgers var stuðningsfólki liðsins afar kærkom- inn, en Dodgers hafði lent í stöðu sem margt stuðningsfólk íþróttaliða þekkir, þar sem lið berst ár eftir ár um meistaratitilinn en eitthvað rétt vantar upp á, eða að heppnin er ekki á bandi liðsins. Við sem höfum verið stuðningsfólk liða í langan tíma höf- um sjálfsagt flest upplifað þetta þeg- ar uppáhaldsliðið okkar loks kemst yfir hjallann. Þá er ekki laust við að titillinn verði manni því kærkomn- ari. Þetta var staða sem Dodgers-liðið gekk í gegnum undanfarin ár. Liðið hafði verið í lokaúrslitunum þrjú af síðustu fjórum árum og ávallt klúðr- að því í lokin. Verst gegn Houston Astros fyrir þremur árum, en eftir þá úrslitakeppni komst rannsóknar- nefnd MLB-deildarinnar að því að leikmenn og þjálfarar Houston hefðu svindlað allt það keppnistíma- bil með því að „stela“ ólöglega fingramerkingum grípara andstæð- inganna. Af þeim sökum vissu leik- menn Astros hverskonar kast var að koma til þeirra þegar þeir voru að reyna að slá boltann. Þetta væri álíka og að markmaður í knattspyrnu vissi hvar leikmaður væri að skjóta í vítaspyrnu. Vegna þessarar reynslu aðdáenda Dodgers hér í bæ var þessi sigur liðsins því enn kærkomnari. Sögulegt íþróttaár Los Angeles er mikil íþróttaborg, enda slatti af atvinnu- og háskólalið- um í borginni og íþróttamannvirkin eftir því. Ólympíuleikarnir munu fara fram hér í þriðja sinn eftir sjö ár og Los Angeles Rams og Char- gers í NFL-ruðningsdeildinni voru að taka í notkun nýjan fimm millj- arða dala leikvang fyrir fáeinum vik- um. Við upphaf ársins voru áhang- endur Lakers, Clippers og Dodgers vongóðir um lið sín þetta árið, og bygging nýja leikvangs NFL- liðanna var smám saman að klárast. Þyrluslys breytti því öllu 26. jan- úar. Þann sunnudagsmorgun flaug þyrla með Kobe Bryant, fyrrverandi stjörnuleikmann Lakers, og átta aðra einstaklinga í fjallshlíð norðan við borgina. Allir um borð létust og var andlát Bryants mikið andlegt áfall fyrir marga hér í bæ, en Bryant var mikið lofaður eftir fimm meist- aratitla með Lakers og Óskars- verðlaun í þokkabót. Það var þá sem LeBron James sýndi hvað í honum bjó þegar hann tók að sér að halda Lakers-liðinu saman og notaði nákvæmlega réttu orðin þegar hann ávarpaði borg í sorg fyrir næsta leik Lakers í Stapl- es Center. LeBron og Lakers höfðu nú köll- un til að vinna titilinn, sem tókst að lokum. 8. mars fór síðan maraþonhlaup borgarinnar fram, en aðeins fáeinum dögum seinna var öllum íþrótta- keppnum hætt vegna kórónuveiru- faraldursins, rétt eins og víðsvegar um heiminn. Svo virtist sem titlavonir Los Angeles yrðu að bíða enn eitt árið. Lakers og Dodgers fá annað tækifæri Það var svo NBA-deildin sem tók af skarið og brást vel við stöðunni með því að skipuleggja vel og hefja keppni að nýju í kúlunni svokölluðu í Flórída. MLB-hafnaboltadeildin fylgdi síðan á eftir. Þegar Lakers vann svo NBA- titilinn hafði LeBron James uppfyllt loforð sitt til íþróttaunnenda hér í borg að vinna titilinn í minningu Kobe Bryants. Við það vann hann hug og hjörtu flesta borgarbúa og enginn efaðist lengur um hæfni hans og markmið eftir að hann ákvað að semja við Lakers fyrir tveimur árum. Nú var því einnig tækifæri fyrir Dodgers að fylgja þessu eftir og innbyrða titilinn í fyrsta sinn í 32 ár. Það tókst liðinu á þriðjudag og nú vilja aðdáendur þessara liða fá sínar skrúðgöngur um stræti borg- arinnar, sem eru orðnar hefð hér í Bandaríkjunum eftir sigur í at- vinnudeildunum fjórum. LeBron tístaði eftir sigur Dodg- ers: „Getum við vinsamlega fengið skrúðgöngu! Ég veit, ég veit að það er ekki hægt, en andskotinn, ég vil endilega halda upp á titla Lakers og Dodgers með stuðningsfólkinu. LA er borg meistaranna.“ Borgarstjór- inn hér í Los Angeles, Eric Gar- cetti, sagði á miðvikudag að það væri sín ósk að koma því í fram- kvæmd, en það gæti orðið erfitt í farsóttinni. „Kannski getum við komið leikmönnum fyrir á svöl- unum á Stjörnustöðinni og látið þá stjórna bænum sem meistara,“ en gamla Griffith Park-stjörnustöðin er sýnileg frá allri vesturhlið bæj- arins, enda nálæg Hollywood- skiltinu uppi í hlíðunum ofan við borgina. Tveir titlar í tveimur af vinsæl- ustu íþróttadeildum landsins á sex- tán dögum. „Það verður aldrei aftur mánuður eins og þessi fyrir okkar borg, rétt eins og ég vona að við upplifum aldrei aftur ár eins og þetta,“ bætti borgarstjórinn við réttilega. gval@mbl.is Tveir titlar á 16 dögum  Meistaratitill Dodgers innsiglar sögulegt íþróttaár í Los Angeles  Fylgdu eftir sigri Lakers í NBA  Beðið eftir skrúðgöngum í íþróttaborginni AFP Gleði Margt af stuðningsfólki LA Dodgers kom saman í Elysian-garðinum í Los Angeles þegar úrslitaleikur Dodg- ers og Tampa Bay fór fram og fylgdist með leiknum úr bílum sínum, eða utan þeirra, á stórum skjá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.