Morgunblaðið - 30.10.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2020
VINNINGASKRÁ
31 10005 17622 28416 37453 51933 62434 70992
226 10155 17743 28483 37770 52185 62490 71410
624 10225 18341 28716 38762 52293 62689 71730
666 10242 18447 28935 39112 52471 62801 71875
1552 10253 19409 29411 39376 52492 62857 72566
1582 10386 19532 29770 39934 52563 62960 72600
2336 10548 19552 29991 40047 53044 62964 72991
2489 10613 19821 30461 41893 53160 63378 73127
2989 10760 19824 30630 42148 53442 63582 73223
3784 11246 19829 30665 42420 54287 63673 73244
3811 11307 20071 30774 42471 54584 64074 74780
3871 11609 20200 31441 42489 54762 64310 74818
4149 12088 20397 32264 42597 54837 64607 74975
4432 12102 20471 32623 42659 55050 64820 75320
4549 12235 20482 32731 42913 55189 64889 75432
4637 12358 21349 32765 43190 55320 65367 75592
5458 12379 21451 32969 43460 55726 65672 76378
5529 13219 21925 33232 43744 55772 65798 76444
5659 13543 22084 33676 44009 56472 65969 76688
5684 14286 22175 33742 45083 56736 66383 76693
5692 14301 22315 33808 45391 56778 66423 76892
6005 14595 22569 33820 45507 57048 66445 77156
6449 14897 22963 33941 45805 57599 66497 77199
6450 15042 23474 34264 46428 59090 66571 77443
6595 15200 24414 34433 46504 59153 66735 77631
7192 15334 24897 34516 46621 59405 67255 77753
7618 15369 25811 34521 46777 59500 67398 78120
8024 15907 25948 34536 47108 59749 67430 78596
8026 16452 26321 35342 48452 59779 67874 78621
8075 16513 26379 35421 48847 60107 67955 78709
8287 16747 26459 35452 49254 60212 69080 79552
8542 16785 26558 35675 49942 60375 69278
8600 16953 26771 35954 50183 60651 69871
9215 17196 27683 36041 50301 61184 70221
9344 17359 27907 36092 50418 61236 70280
9774 17412 28127 37395 51369 61503 70509
9850 17466 28358 37450 51541 61571 70785
896 10766 17551 25879 39940 51689 60457 70850
2169 11705 18121 26203 40211 53603 60864 71583
2676 11726 19059 26834 41200 53605 61239 71849
2949 11926 19706 26948 43248 54434 62383 71992
3556 12313 20746 27271 43344 54602 63099 72925
3785 12844 21363 28130 45190 54763 64059 75126
4816 12918 21611 29668 45342 56665 64623 75154
6020 13433 22955 32458 45511 58158 64929 78947
6360 15817 22956 35025 47920 58641 64938 79898
6891 16156 23882 35998 48150 58867 65358
7148 16404 25125 36760 48893 59754 66480
7943 17004 25146 37412 49856 59899 67200
9331 17084 25432 38560 50908 59990 68647
Næstu útdrættir fara fram 5., 12., 19., 26. nóv & 3. desember 2020
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
6060 24917 39223 55051 60246
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
361 8895 25071 46491 51996 63423
3532 17513 30175 48486 52391 65417
5007 21124 42129 49716 54288 66317
5668 21525 46177 50861 56545 69880
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
5 6 8 1 2
26. útdráttur 29. október 2020
BAKSVIÐ
Sighvatur Bjarnason
sighvaturb@mbl.is
Senn líður að gildistöku laga um
hlutdeildarlán sem eru einhverjar
mestu kerfisbreytingar á íslenskum
fasteignamarkaði um langt skeið.
Blaðamaður hefur átt fjölmörg
samtöl við aðila sem koma að fast-
eigna- og byggingamarkaði og al-
mennt verður ekki annað séð en að
jákvæðni ríki í garð hins nýja kerfis.
Þrátt fyrir að ýmsar útfærslur séu
umdeildar er ein spurning sem trón-
ir á toppi efasemda: hvaðan koma
lóðir til byggingar nýrra íbúða?
Umfang nýrra íbúða í kerfinu
Eitt af yfirlýstum markmiðum
laganna er að stuðla að uppbyggingu
nýrra og hagkvæmra íbúða, sem
einnig er skilyrði fyrir lánveitingu á
höfuðborgarsvæðinu. Gert er ráð
fyrir því að ríkið muni veita lán til ca.
400 slíkra íbúðarkaupa á ári, næstu
tíu árin.
Til þess að átta sig betur á sam-
hengi hlutanna er gagnlegt að horfa
til þess hvert umfang nýbyggðra
íbúða hefur verið á ári, t.d. í Reykja-
vík, en þær hafa verið öðrum hvorum
megin við 2.500 síðustu ár. Viðmæl-
endur eru á því að sú viðbót sem
þetta kerfi geti haft í för með sér sé
hófleg og raunhæf en benda þó á að
samdráttur í byggingariðnaði sé
staðreynd sem megi rekja til tveggja
meginþátta: torsóttrar fjármögnun-
ar og lóðaskorts.
Viðhorf byggingariðnaðarins
Samtök iðnaðarins (SI) hafa kann-
að viðhorf félagsmanna sinna til
stöðu mála í byggingargeiranum.
Í ljós kemur mjög afgerandi af-
staða til núverandi ástands. Um 80%
hallast að því að skortur á lóðafram-
boði komi í veg fyrir hagkvæma hús-
næðisuppbyggingu og hagkvæm hús
verði ekki byggð á þéttingarreitum.
Einnig telur svipað hlutfall svarenda
að strangir deiliskilmálar komi í veg
fyrir nýsköpun í hönnun sem gæti
lækkað byggingarkostnað.
Könnunin gefur einnig sterklega
til kynna að bæta þurfi samræm-
ingu milli sveitarfélaga, stytta ferla
og gera þá rafræna. Athygli vekur
að 80% svarenda telja að huglægt
mat byggingarfulltrúaembætta hafi
áhrif á yfirferð hönnunargagna.
„Þetta undirstrikar það sem við
höfum verið að segja undanfarin
ár,“ segir Jóhanna Klara Stefáns-
dóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs
hjá SI. Hún segir það vilja fé-
lagsmanna að mæta eftirspurn eftir
hagkvæmu húsnæði, en lóðaskortur
og kröfur um þéttingu byggðar séu
flöskuháls í þeirri þróun. Hvað hlut-
deildarlánin varðar segir hún að
hugmyndir verktaka séu ekki að
byggja upp heilu hverfin fyrir það
úrræði, heldur sé almenna stefnan
sú að viðhalda blandaðri byggð eins
og hún hefur þróast undanfarin ár.
Þann 20. október sl. sendu SI bréf
til sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu með ákall um samtal til
lausna. Að sögn Jóhönnu hafa engin
viðbrögð borist.
Ógnir við yfirlýst markmið
Fyrir utan það markmið að veita
efnaminni kaupendum tækifæri til
fyrstu íbúðarkaupa standa vænting-
ar til þess að úrræðið muni örva
byggingariðnaðinn og jafnvel draga
úr sveiflum. Viðmælendur blaða-
manns eru á því að jafn víðtækt úr-
ræði og fjárhagsleg innspýting rík-
isins inn á fasteignamarkaðinn muni
hafa áhrif og skila árangri.
Efasemdirnar snúa að því að hve
miklu leyti núverandi ástand hafi
áhrif. Samdráttur sé nú þegar mjög
mælanlegur og vísbendingar um
meiri eftirspurn en framboð íbúða á
komandi misserum. Spurningin sé
þá sú hvort fasteignaverð muni
hækka umfram þann ramma sem
hlutdeildarlán gera ráð fyrir og ekk-
ert verði eftir fyrir efnaminni kaup-
endur, sem sitji eftir með sárt ennið.
Víst er að allir þurfa að leggjast á
árarnar til þess að markmiðin nái
fram að ganga. Enn virðast nokkrir
keipar lausir.
Hlutdeildarlán háð
framboði á lóðum
Margir þættir þurfa að koma saman til að úrræðið virki
„Það mætti vera meiri sveigjan-
leiki í kerfinu,“ segir Grétar Jóns-
son, formaður Félags fast-
eignasala, um álit sitt á
hlutdeildarlánum.
Lánin afmarkast við nýjar bygg-
ingar á höfuðborgarsvæðinu sem
Grétar segir að þrengi óþarflega
að búsetuúrræðum fólks. Hann
segist skilja að „gamlar og þreytt-
ar“ eignir eigi ekki erindi í kerfið,
en óttast að krafan gæti leitt til
þess að félagslega einsleit hverfi
geti myndast í kjölfarið.
Að sama skapi telur hann of
þröngar skorður settar við búsetu-
skilyrðum og takmörkunum á út-
leigu. Aðstæður fólks geti auð-
veldlega breyst á stuttum tíma, en
„vistarbönd“ geri því erfitt um vik
þegar í kerfið
er komið.
Sem mild-
ari leið telur
Grétar að
Húsnæðis- og
mannvirkja-
stofnun ætti
að hafa frjáls-
ari hendur við
að meta ein-
staka tilvik innan markmiða lag-
anna.
Að öðru leyti segir hann úrræðið
merkilegt og að það boði margar
jákvæðar breytingar fyrir þá sem
hafa verið fastir á leigumarkaði
um langt skeið og ekki haft raun-
hæfar leiðir til að koma sér þaki
yfir höfuðið.
Telur stakkinn of þröngan
FORMAÐUR FÉLAGS FASTEIGNASALA
Grétar Jónsson
Allt um sjávarútveg
Bláa lónið hefur sagt upp 26 starfs-
mönnum til viðbótar við þá sem sagt
hefur verið upp frá því kórónuveiru-
faraldurinn skall á. Lónið verður lok-
að í nóvember og aðeins opið um
helgar í desember. Þetta staðfesti
Grímur Sæmundsen, forstjóri fyrir-
tækisins og stærsti hluthafi, í gær.
„Í ljósi stöðunnar og vegna fyr-
irmæla stjórnvalda hefur verið
ákveðið að halda Bláa lóninu áfram
lokuðu í nóvember og á virkum dög-
um í desember. Þess ber að geta að
Bláa lónið hefur verið lokað frá því 8.
október í þessari bylgju. Lokunin
tekur til allrar starfsemi fyrirtækis-
ins í Svartsengi. Þá hefur verslun-
inni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
einnig verið lokað. Verslun okkar á
Laugavegi 15 verður þó áfram opin.“
Segir Grímur að reynt hafi verið
að halda í ráðningarsamband við
sem flesta starfsmenn eftir að kór-
ónuveirufaraldurinn hófst en nú
þurfi að grípa til þessara aðgerða
vegna samdráttarins.
„Það er einlæg von mín að við get-
um endurráðið þá áður en uppsagn-
arfrestur þeirra rennur út og helst
fleiri þegar birta tekur á ný. Eftir
þessar uppsagnir verða þó rúmlega
100 manns áfram að störfum hjá
Bláa lóninu hf.“
Bláa lónið segir upp 26
manns – lokað í nóvember
Rúmlega 100 manns við störf Opið um helgar í desember
Morgunblaðið/Eggert
Bláa lónið Alls var 26 starfsmönnum sagt upp í vikunni. Vonast er til að
hægt verði að endurráða þá áður en uppsagnarfrestur þeirra rennur út.