Morgunblaðið - 30.10.2020, Blaðsíða 32
PRÓFAÐU ÞÆGINDIN OG
SLÖKUNINA SEM ÞÚ FÆRÐ Í NÝJU
MODULAX HVÍLDARSTÓLUNUM
NÝTT
Á ÍSLANDI
SÆKTU APPIÐ MODULAX OG
SKOÐAÐU HVERNIG STÓLLINN
LÍTUR ÚT Á ÞÍNU HEIMILI.
JAMES
STÓLL MEÐ SKEMLI
verð 149.900
PANDORA
RAFSTILLANLEGUR
verð 219.900
Alla Modulax stóla er hægt að sérpanta sem lyftustóla.
IRIS
RAFSTILLANLEGUR
verð 209.900
MODULAX HVÍLDARSTÓLAR
HÖNNUN OG ÞÆGINDI Á HVERT HEIMILI
ZERO
GRAVITY
ZERO
GRAVITY MODULAX
• 3-mótora hvíldarstóll.
• Handvirk og þægileg
höfuðpúðastilling 42°.
• Innbyggð hleðslu-
rafhlaða. Endist 250
sinnum fyrir alla mótora.
NÝTT!
MODULAX
MARGAR GERÐIR
modulax.be
BALDURSNES 6 – AKUREYRI LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK
KYNNTU ÞÉR VÖRUÚRVALIÐ
OG VERSLAÐU Í RÓLEGHEITUM
Á SVEFNOGHEILSA.IS
FRÍR FLUTNINGUR
UM ALLT LAND
GERIÐ GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ
Þjóðleikhúsið mun, meðan
almennt sýningarhald er tak-
markað, opna dyr sínar fyrir
leik- og grunnskólabörnum.
Börnum í elstu deildum leik-
skóla er boðið á Ég get eftir
Peter Engkvist í leikstjórn
Björns Inga Hilmarssonar og
börnum í 2. bekk grunnskóla á Leitina að jólunum eftir
Þorvald Þorsteinsson í leikstjórn Þórhalls Sigurðs-
sonar. Samkvæmt upplýsingum frá leikhúsinu verður
sýnt á virkum dögum í nóvember og desember í nánu
samráði við skólana og að sjálfsögðu með öllum ýtr-
ustu varúðarráðstöfunum í samræmi við tilmæli yfir-
valda. Leikarar í Ég get eru Ernesto Camilo Aldazábal
Valdés og Þórey Birgisdóttir. Með hlutverk jólaálfanna í
Leitinni að jólunum fara Hallgrímur Ólafsson, Valgerður
Guðnadóttir, Sverrir Þór Sverrisson (Sveppi) og
Sigríður Eyrún Friðriksdóttir. Þjóðleikhúsið hyggst
bjóða upp á fleiri verkefni á næstu vikum meðan á
samkomubanni stendur og verða þau kynnt bráðlega.
Leik- og grunnskólabörnum boðið
í Þjóðleikhúsið næstu tvo mánuði
FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 304. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Rúnar Alex Rúnarsson varð í gær fjórði Íslendingurinn
til að spila mótsleik með aðalliði enska stórliðsins Ars-
enal þegar hann varði mark liðsins gegn Dundalk í Evr-
ópudeildinni í knattspyrnu í London í gærkvöldi. Áður
höfðu þeir Albert Guðmundsson, Sigurður Jónsson og
Ólafur Ingi Skúlason náð þeim áfanga að spila mótsleik
með aðalliði Arsenal. Rúnar Alex hélt markinu hreinu
en Arsenal vann öruggan 3:0-sigur og hefur liðið unnið
fyrstu tvo leikina í keppninni. Það hefur AZ einnig gert
og skoraði Albert Guðmundsson tvö mörk í gær. »27
Rúnar Alex Rúnarsson þreytti frum-
raun sína í mótsleik með Arsenal
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hjónin Guðbjörg Vilhjálmsdóttir og
Torfi Tulinius, prófessorar við Há-
skóla Íslands, einsettu sér fyrir um
sex árum að ganga á öll Búrfell lands-
ins. „Þá vissum við ekki hvað þau eru
mörg,“ segir Guðbjörg, „og við vitum
það eiginlega ekki enn,“ heldur Torfi
áfram. Þau gengu á Búrfell í Jökuldal
á Hauksstaðaheiði 15. október sl., 23.
Búrfellið frá 2014.
Fjöldi Búrfella er á reiki. Sigurður
Sigurðarson tiltekur 39 Búrfell í pistli
á Moggablogginu frá 2013. Torfi seg-
ir að samkvæmt lista nafnfræðisviðs
Árnastofnunar séu 47 fyrirbæri með
þessi örnefni um allt land, en sum
þeirra séu bæjarnöfn án þess að sýni-
legt Búrfell sé nálægt. „Við erum
sennilega vel hálfnuð með verkefnið,“
segir hann, en að minnsta kosti tvö
Búrfell eru í Noregi og eitt á Græn-
landi og þau eru á lista þeirra.
Frænkan kveikti óvænt í þeim
Guðbjörg segir að á fyrri hluta ný-
liðinnar aldar hafi frænka sín, Sigrún
Gísladóttir, kölluð Silla, ferðast mikið
um Ísland, ýmist á hestum eða hjól-
andi. „Eitt sinn sagði hún mömmu að
í Flóanum mætti sjá þrjú Búrfell, í
Þjórsárdal, Grímsnesi og í Þingvalla-
sveit,“ útskýrir hún. „Allar götur síð-
an hefur þetta setið í fjölskyldunni og
í hvert sinn sem við höfum ekið um
svæðið höfum við skimað eftir þess-
um Búrfellum,“ heldur Torfi áfram.
2014 hafi þau verið við Búrfell í
Grímsnesi og ákveðið að ganga upp á
það. „Að því loknu vorum við mjög
ánægð með okkur og vörpuðum fram
þeirri spurningu hvort við ættum
ekki að ganga á öll Búrfellin. Við
héldum að þau væru kannski þrjú til
fjögur umfram þessi þrjú fyrrnefndu
en komumst fljótlega að því að þau
voru margfalt fleiri. Ákváðum engu
að síður að halda þessu til streitu og
höfum gengið á nokkur Búrfell á
hverju sumri.“
Enginn kannaðist við Búrfell í
Eyjafjarðarsveit, þegar þau leituðu
að því í sumar. Þau höfðu samband
við Árnastofnun og þá kom í ljós að
seðlar höfðu ruglast. „Þetta er dæmi
um hvað verkefnið er skemmtilegt,“
segir Torfi. Hreyfingin og samveran
sé aðalatriðið, en svo sé gaman að
fara á staði sem fáum eða engum
detti í hug að fara á. „Við höfum mjög
oft uppgötvað staði sem við hefðum
annars ekki farið á, upplifað fegurð,
skemmtilegheit og einveru.“ „Fengið
annað sjónarhorn á landið,“ bætir
Guðbjörg við. Samskipti við fólk séu
líka eftirminnileg. Á kortum er merkt
Búrfell í Vopnafirði. „Þegar við bönk-
uðum upp á hjá bóndanum varð hann
bit. „Búrfell! Hér er ekkert Búrfell,
það heitir Búfell,““ rifjar Torfi upp.
„Þegar við komum að Búrfelli á
Hrútafjarðarhálsi kynntumst við
Jóni Eiríkssyni, bónda á sam-
nefndum bæ. Hann er málari með-
fram bústörfum, bauð okkur inn í
vinnustofu sína og sýndi okkur mál-
verkin sín. Skemmtilegur maður, og
svo má lengi telja.“
Hjónin voru leiðsögumenn með er-
lenda ferðamenn á námsárunum í
kringum 1980 og hafa haldið göngu-
ferðum áfram síðan. „Okkur líður vel
á fjöllum, sérstaklega á Búrfellum,“
segir Torfi. „Það er ávísun á vellíðan
að ganga úti í náttúrunni,“ áréttar
Guðbjörg.
Af einu Búrfelli á
annað ár eftir ár
Í safnið Torfi og Guðbjörg á Búrfelli við Skjálfandaflóa skammt frá Húsavík.
Torfi og Guðbjörg ætla að ganga á öll Búrfell landsins
Lausn Torfi fann planka til að brúa læk til að komast á Búrfell í Gilsfirði.