Morgunblaðið - 30.10.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 30.10.2020, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2020 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þessar niðurstöðu koma mér satt að segja á óvart. Í einfeldni minni hélt ég að við værum komin lengra. Sú staða sem blasir við er hreint ekki nógu góð,“ segir Birna Haf- stein, forseti Sviðslistasambands Íslands og formaður Félags íslenskra leikara, um niðurstöðu skýrslunnar „Einelti og áreitni í starfsumhverfi sviðslista“ sem RIKK – Rann- sóknastofnun í jafnréttis- fræðum við Háskóla Íslands vann að beiðni Sviðslista- sambandsins og kynnt var form- lega í vikunni. Í skýrslunni er leitast við að kortleggja umfang og eðli kynferðis- legrar áreitni, kynbundinnar áreitni og eineltis í starfsumhverfi sviðs- listafólks á Íslandi. 52% þátttakenda svöruðu spurningu um reynslu af kynferðislegri áreitni í tengslum við nám sitt og störf í sviðslistum ját- andi og 46% samsvarandi spurningu um kynbundna áreitni. Það er mat skýrsluhöfundar að áreitni og einelti hafi verið og séu enn umfangsmikið vandamál innan sviðslista á Íslandi. Há tíðni bendi til þess að skýringa sé ekki síður að leita í menningu sviðs- listanna en hjá einstaklingum Vanlíðan í starfi sem afleiðing Höfundur skýrslunnar er Kristín A. Hjálmarsdóttir kynjafræðingur og ritstjóri hennar er Elín Björk Jóhannsdóttir, verkefnisstjóri RIKK. Gagna var aflað vorið 2019 með rafrænni spurningakönnun sem send var til 931 félagsmanns í átta fagfélögum sviðslistafólks á Íslandi, þar sem Félag íslenskra leikara er langfjölmennasta félagið. Svarhlut- fallið var 42% og gáfu 95% svarenda upp kyn sitt, en 59% svarenda voru konur og 41% karlar sem er sama kynjahlutfall og í úrtakinu. Notaður var einn spurningalisti sem saman- stóð af 97 spurningum um bakgrunn þátttakenda, viðhorf til kynferðis- legrar áreitni og reynslu af kynferð- islegri áreitni, kynbundinni áreitni og einelti. Sé rýnt frekar í skýrsluna má sjá að konur (60%) verða fremur fyrir kynferðislegri áreitni en karlar (30%). Sviðslistakonur (55%) eru lík- legri en starfsbræður þeirra (31%) til að verða fyrir kynbundinni áreitni. Um þrír af hverjum tíu þátt- takendum sögðust hafa upplifað ein- elti í tengslum við störf sín eða nám í sviðslistum. Bæði konur og karlar áreita og leggja í einelti, en meiri- hluti gerenda eru karlar. Helsta af- leiðing áreitni og eineltis hjá bæði konum og körlum er vanlíðan í starfi. Einnig má greina löngun til að hætta í vinnunni og öryggisleysi utan vinn- unnar hjá báðum kynjum. Spurð um tilurð skýrslunnar segir Birna að áður en hún tók við sem forseti Sviðslistasambandsins hafi stjórnin ákveðið að láta vinna fyrir sig rannsókn, að norrænni fyrir- mynd, á stöðu kynjanna í sviðs- listum, m.a. með tilliti til kynbundins launamunar, hlutfalls kvenna í hópi listrænna stjórnenda og tækifæra kvenna almennt innan sviðslista. „Aðdragandinn hefur verið nokkuð langur þar sem tíma tók að finna fjármagn til að láta gera rannsókn- ina. Í millitíðinni reið #metoo- bylgjan yfir og þá breyttist fókusinn út frá þeirri stöðu sem blasti við í samfélaginu,“ segir Birna og bendir á að rannsókn RIKK taki mið af þeim rannsóknum sem gerðar hafa verið um málefnið í nágrannalönd- um. „Okkur langaði að skoða kvik- myndabransann í leiðinni en það var ekki fjármagn til þess.“ Í ljósi þess að Birna er líka for- maður Félags íslenskra leikara, sem er fjölmennasta stéttarfélagið sem á aðild að rannsókninni, liggur beint við að spyrja hvort félagið hafi feng- ið inn á borð til sín umkvartanir og ábendingar sem endurspegla rann- sóknarniðurstöðurnar. „Við höfum fengið fáar kvartanir um kynferðislega áreitni á undan- förnum árum og fólk kvartað lítið undan kollegum sínum. Þær kvart- anir sem við höfum fengið á undan- förnum árum, bæði úr sviðslista- og kvikmyndageiranun, snúa mun frek- ar að eineltis- og kúgunartilburðum stjórnenda,“ segir Birna og bendir á að mögulega skýrist þetta af því að félagsmönnum finnist erfiðara að kvarta undan samstarfsfólki sínu en stjórnendum við stéttarfélag sitt. Segir hún það líka flækja málin hversu veikburða öll umgjörð utan um sjálfstætt starfandi listafólk sé. Styrkja þarf innviðina betur Í skýrslunni kemur fram að fast- ráðið starfsfólk er ólíklegra en laus- ráðið og sjálfstætt starfandi til að greina frá kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og einelti. Endurspegla þessar tölur ekki að sjálfstætt starfandi sviðslistafólk er í mun viðkvæmari stöðu? „Jú. Þess vegna þarf að ramma betur inn og styrkja til muna umgjörð og innviði sjálfstæða geirans hérlendis. Sjálf- stætt starfandi sviðslistafólk er langstærsti hópurinn innan sviðs- listageirans, en hann er á sama tíma mjög berskjaldaður,“ segir Birna. Af svörum þátttakenda má sjá að helmingur segist einkum hafa verið sjálfstætt starfandi, rétt tæplega þriðjungur með tímabundna ráðn- ingu eða verkefnaráðningu og rúm- lega fimmtungur með fastráðningu. Kynjamunur kemur fram og er hann mestur meðal fastráðinna, en 31% karlanna og 15% kvennanna voru fastráðin. Verkefni sem klárast aldrei Að mati skýrsluhöfundar skortir fræðslu, skýra stefnu, formlega ferla og úrræði fyrir þolendur. Í svörum þátttakenda kom fram að hópur þol- enda sagðist ekki hafa tilkynnt áreitnina og eineltið vegna nei- kvæðra viðhorfa til tilkynninga, skorts á verkferlum fyrir tilkynn- ingar eða þekkingu á þeim. Í spurn- ingalistanum var samtímis óskað eft- ir tillögum frá þátttakendum um aðgerðir. Rauði þráðurinn í tillögum þeirra var skýr stefna um ekkert umburðarlyndi gagnvart áreitni og einelti, skýrar verklagsreglur, úr- ræði fyrir þolendur, siða- og sam- skiptareglur, fræðsla og umræður. Það er mat skýrsluhöfundar að brýnt sé að allir vinnustaðir taki skýra afstöðu gegn ofbeldi og áreitni og skipuleggi markvissa eftirfylgni. Leiðtogar, stjórnendur, yfirmenn og kennarar eru í hópi gerenda og mjög mikilvægt að fá þann hóp að borðinu. Ábending barst um að æskilegt væri að fagstéttarfélög sviðslistafólks skerptu einnig á stefnu sinni. „Í skýrslunni má sjá mjög mikið af flottum tillögum til úrbóta,“ segir Birna og tekur fram að mikilvægt sé að allir í sviðslistageiranum séu kall- aðir að borðinu til að ræða þessi mál, finna lausnir og innleiða úrræði í formi aðgerðaáætlunar. „Við þurfum þannig að kalla alla hagaðila að því borði. Síðast en ekki síst þurfum við auðvitað að kalla ríkið, sem í formi fjárveitinga er stærsti vinnuveitand- inn í menningargeiranum, til ábyrgðar og að þessu samtali,“ segir Birna og undirstrikar að málefnið þurfi að vera í sífelldri endurskoðun. „Þetta er verkefni sem klárast aldrei og því þurfum við alltaf að halda vöku okkar.“ Staðan hreint ekki nógu góð  52% þátttakenda hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni í tengslum við nám sitt og störf í sviðslistum  Gerendur kynferðislegrar áreitni, kynbundinnar áreitni og eineltis eru langoftast í hópi kollega Birna Hafstein Gerendur kynferðislegrar áreitni, kynbundinnar áreitni og eineltis Skv. könnun meðal starfsfólks í sviðslistum* Kollegi (án ábyrgð- ar á starfsmanna- málum) Einhver hærra settur úr listrænu starfsliði Stjórnandi/ yfi rmaður Kennari Samnemandi Einhver sem tengist greininni en er ekki í stjórnendahlutverki Tæknimaður/ starfsmaður skrifstofu Einhver úr hópi áhorfenda/gesta 66% 28% 12% 14% 11% 8% 9% 14% 58% 30% 25% 22% 17% 14% 15% 12% 52% 40% 35% 13% 12% 8% 5% 1% *Viðhorfskönnun sem send var út til skráðra félaga í átta íslenskum fagfélögum innan Sviðslistasambands Íslands Einelti Kynbundin áreitni Kynferðisleg áreitni H ei m ild : R IK K – Ra nn só kn as to fn un í ja fn ré tt is fr æ ðu m , s ep te m be r 2 02 0 Nígeríska Nóbelsskáldið Wole Soyinka mun á næstunni senda frá sér fyrstu skáldsöguna sem hann skrifar í nær hálfa öld. Samkvæmt The Guardian er heiti sög- unnar Chronicles of the Happiest People on Earth en Soyinka, sem hefur einbeitt sér að leikritun og ljóða- skrifum, kveðst einnig hafa unnið að nýju leikriti í ein- angrun af völdum kórónuveirunnar. Soyinka var fyrstur Afríkubúa til að hljóta Nóbels- verðlaun í bókmenntum, árið 1986. Hann hafði þá með- al annars sent frá sér tvær rómaðar skáldsögur, The Interpreters (1965) og Season of Anomy (1973). Fyrsta skáldsaga Soyinka í hálfa öld Wole Soyinka Í Listasafni Íslands er hafinn undir- búningur fyrir yfirlitssýningu á verkum Muggs – Guðmundar Thor- steinssonar (1891-1924) sem fyrir- hugað er að setja upp seint á næsta ári. Vegna rannsóknar á ferli Muggs og skráningar á verkum hans í tengslum við sýninguna hefur safnið auglýst eftir verkum eftir listamanninn af öllum gerðum: málverkum, vatnslitamynd- um, teikningum, klippimyndum, útsaumi og dúkk- um. Einnig óskar safnið eftir að fá vitneskju um bréf eða póstkort sem tengjast Muggi. Eru allir þeir sem telja sig eiga verk eða efni sem hefur heimildargildi hvattir til að hafa samband við Kristínu G. Guðnadóttur sýningar- stjóra. Kristín segist hafa fengið mikil viðbrögð við auglýsingunni. Leitin að sem flestum verkum sé fyrsti hluti undirbúnings sýningarinnar, til að geta fengið góða sýn yfir ævistarf Muggs. „Það hefur gengið vonum framar og mjög margir hafa haft samband og margt áhugavert komið í ljós. Það er greinilegt að mjög margir hafa áhuga á Muggi og hans lífi og verkum,“ segir hún. Listasafn Íslands á 70 verk eftir Mugg og uppistaðan í því er gjöf dansks listamanns, Elofs Riseby, sem hreifst af verkum Muggs og safnaði þeim eftir dauða hans. Hann gaf síðan Listasafninu 46 verk árið 1958. „Þau verða þungamiðja sýn- ingarinnar, enda stórmerkilegt safn,“ segir Kristín. „En til þess að fá sem besta mynd af ævistarfi Muggs þá er nauðsynlegt að vita hvað er til af verkum vítt og breitt um landið, bæði í söfnum og hjá einkaaðilum. Út frá þeirri heildar- mynd munum við móta yfirlits- sýninguna.“ Kristín segir þau sem hafa þegar haft samband ýmist hafa bent á verk í eigu annarra eða sagt frá verkum sem þau eiga sjálf. „Við höfum til dæmis fengið mjög góð viðbrögð frá afkomendum systkina Muggs, það er stór hópur sem hefur sýnt minn- ingu Muggs ræktarsemi. Smám saman eru línurnar að skýrast. Muggur ferðaðist mikið og var í bréfaskiptum við marga en eftir að hafa rætt við ýmsa heyrist mér að mörg þessara bréfa séu glötuð, sem er sorglegt. En ég vonast til að finna eitthvað því í bréfum má finna lykla að persónu Muggs og hans lífi. Ég er alls ekki úrkula vonar um að finna bitastæð bréf, á eftir að leita víða.“ Muggur var aðeins 34 ára er hann lést úr tæringu. Ferill hans var því stuttur en hann var afkastamikill og vann í ýmsa miðla. „Hann var fjöl- hæfur og gerði ýmiskonar tilraunir. Það var heldur ekki algengt á þess- um tíma að karlar saumuðu út, eins og hann gerði, hann saumaði til dæmis dúkkur. Og sá miðill sem hentaði honum hvað best voru klippimyndir,“ segir Kristín. Muggur gerði fjölda teikninga, oft litlar, en stærsta verk hans er alt- aristaflan í Bessastaðakirkju. Netfang Kristínar er kristin- @listasafn.is og sími 896-6559. Leita verka eftir Mugg  Listasafns Íslands leitar verka og hvers kyns upplýsinga um listamanninn vegna væntanlegrar yfirlitssýningar Listasafn Íslands Klippimynd Hið fræga verk Muggs Sjöundi dagur í paradís, frá 1920. Muggur Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Mynd í ferilskrá Tímapantanir í síma 568 0150 eða á rut@rut.is Förum eftir öllum sóttvarnartilmælum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.