Morgunblaðið - 30.10.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2020
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Nýja Tokyo línan
komin í sýningasal
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Stundum ertu svo þrjósk/ur að
það gengur út í öfgar. Þú ættir að gera
eitthvað í því, það nennir enginn að
standa í stappi við þig til lengri tíma.
20. apríl - 20. maí
Naut Það sem þú aðhefst núna hefur
áhrif á það sem þú átt ógert. Eftir alla
sigra þína í lífinu er ekki nema von að
leitað sé til þín.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú græðir lítið á því að láta
alla hluti fara í taugarnar á þér. Mundu
að gæði og magn fara ekki endilega
saman.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú getur mætt hvaða áskorun
sem er ef þú nýtir hæfileika þína til fulls.
Nýttu allan þann tíma sem þú getur til
að hvíla þig og safna kröftum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Forðastu loforð og skuldbindingar í
einhvern tíma. Einhver kemur óvænt til
þín og biður um hjálp eða álit á ein-
hverju.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú þarft að læra að notfæra þér
betur þá góðu strauma sem leika um
þig. Hlutirnir eru þér hliðhollir og þér eru
allir vegir færir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hlustaðu fyrst og fremst á þína
innri rödd, jafnvel þótt hún sé ekki há-
vær. Slökun í hvaða formi sem er er það
sem gildir fyrir þig næstu vikur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það býr sofandi eldfjall í
okkur öllum. Þú sérð stundum eftir því
sem þú segir, æfðu þig í að telja upp að
tíu áður en þú talar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur nú beðið nógu lengi
eftir tækifærinu til þess að láta til skarar
skríða. Mundu þó að Róm var ekki byggð
á einum degi.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert óvenju örlát/ur í dag
og því er hætt við að þú eyðir um efni
fram. Orð þín geta valdið misskilningi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Einhver gefur þér góð ráð
varðandi fjármálin í dag. Reynið að líta
hlutina jákvæðum augum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert hrókur alls fagnaðar og
allir vilja vera nálægt þér. Brettu upp
ermarnar, þú verður kraftmeiri en endra-
nær á næstu vikum.
Baby en flest lögin voru þýdd á ís-
lensku af Agli bróður hennar.
Kokkur til sjós
Guðrún skrifaði reglulega greinar í
Velvakanda Morgunblaðsins til
margra ára sem og greinaþætti í
sama blaði um reynslu sína sem
„Kokkur til sjós“, enda var Guðrún
skipskokkur á olíuflutningaskipinu
Hamrafelli, sem var þá stærsta skip
sinnar tegundar á landinu, og milli-
landaskipinu Svaninum frá Grinda-
húsinu. Guðrún söng í mörgum söng-
leikjum og óperum, m.a. Kabarett,
Kátu ekkjunni og Tosca. Hún ferðað-
ist einnig með Þjóðleikhúskórnum til
Kanada og Færeyja þar sem kórinn
kom fram og flutti söngva úr vinsæl-
um óperum og söngleikjum við góðan
orðstír.
Síðan var Guðrún djasssöngkona í
hljómsveit með bróður sínum Agli
Halldórssyni sem spilaði á trommur
og fluttu þau vinsæl lög frá stríðs-
árunum, meðal annars Shoo, Shoo
G
uðrún Jacobsen er 90 ára
í dag, en hún fæddist í
Reykjavík 30. október
1930. Guðrún hefur alla
tíð búið í Reykjavík og
lengst af í miðborginni. Guðrún er
stórglæsileg og hæfileikarík kona og
var margt til lista lagt á tíma þar sem
lífsbaráttan var hörð. Hún hefur alla
tíð verið lítil og nett og þekkt fyrir að
vera frá á fæti. Hún hitti föður sinn
aðeins einu sinni og móðir hennar var
ung send til vandalausra og kom úr
þeirri vist með fingurna kreppta af
þrældómi.
Þekktur dansari í Gúttó
Guðrún bjó á sínum trúlofunar-
árum í braggahverfinu Camp Knox
og var vinsæll og þekktur dansari í
Gúttó og fleiri dansstöðum. Jitterbug
var hennar uppáhaldsdans og var
henni sveiflað um allt enda fim, nett
og grönn. Sagan segir að eitt kvöldið
sveiflaði dansherrann henni gegnum
klofið og upp í mikilli sveiflu. Fætur
hennar lentu í afturenda hljómsveit-
arstjórans sem missti sprotann inn í
hljómsveitina! Á þessum tíma var sko
dansað almennilega og sveiflan góð.
Guðrún tók þátt í fyrstu fegurðar-
samkeppninni sem haldin var í Tív-
olíinu í Vatnsmýri, en var svo feimin
að hún þorði varla að ganga yfir svið-
ið, og hreppti hún því ekki hnossið.
Bróðir hennar, Egill, var að fylgjast
með og sagðist hafa skammast sín
svo fyrir feimni systur sinnar að
hann hefði farið út og ákveðið að
sturta í sig úr heilum brennivínspela
á bak við hús.
Sópran, djass og söngleikir
Guðrún lærði söng hjá Guðrúnu Á.
Símonar en það var í söngnámi hjá
Sigurði Vincenzo Demetz að hún
lærði að anda með þindinni og náði
hæsta sópran. Guðrún söng með
Pólýfónkórnum sem efsti sópran á
gullaldarárum þess kórs, undir
stjórn Ingólfs Guðbrandssonar, og
ferðaðist með kórnum um alla Ítalíu
við frábærar viðtökur heimamanna.
Guðrún söng um tuttugu ára skeið
með Dómkirkjukórnum auk þess að
syngja nánast frá upphafi með Þjóð-
leikhúskórnum sem þá var í Þjóðleik-
vík. Á sjóferðunum kynntist hún eig-
inmanni sínum, Karli Júlíussyni
bryta, og þau tóku saman. Þau eign-
uðust þrjú börn og ráku um tíma
Hótel Þröst í Keflavík, en þau skildu
síðar.
„Þrælsjóuð í lífsbaráttunni“
Guðrún er dugnaðarforkur og lét
ekkert stoppa sig. Hún seldi litla íbúð
í bakhúsi á Laugaveginum til að
kaupa lítið einbýlishús í Bergstaða-
stræti því hennar stærsti draumur
var að búa í einbýlishúsi sem hún
ætti sjálf. Eins og hún segir sjálf í
grein í Lesbók Morgunblaðsins frá
21.6. 1980: „Þá var maður líka orðinn
þrælsjóaður í lífsbaráttunni. Búin að
flækjast íbúð úr íbúð, frá kjallara upp
á háaloft – og af kvisti niður í kjall-
arann aftur, með tilheyrandi kola-
eldavél og útikamri.“
Húsið var í algjörri niðurníðslu og
moldargólf í kjallaranum, en Guðrún
lét það ekki á sig fá heldur vann
sleitulaust í húsinu, málaði, veggfóðr-
aði, lagði gólfdúk og setti sinn list-
ræna svip heimilið, sem var hennar
og einungis hennar.
Rithöfundur og málari
Guðrún var feikigóður penni og
eftir hana hafa verið gefnar út meðal
annars skáldsagan Listamanns-
raunir (1955) og heimildarsagan Píla-
grímsferð til Lourdes (1961) sem er
um ferðalag sem Guðrún fór með
móður sína til Lourdes í von um að fá
lækningu við krabbameini. Skáldsag-
an Alþýðuheimilið kom út 1963 og
smásagnasöfnin Gulltárin (1957),
Smáfólk (1963) og List trúður Drott-
ins var gefið út í Danmörku í þýðing-
unni Den Lille Mester (1977). Guð-
rún myndskreytti Alþýðuheimilið og
eftir hana liggja bæði teikningar og
málverk.
Hraðlestin í póstinum
Guðrúnu féll aldrei verk úr hendi.
Á tímabili sá hún um mötuneytið hjá
Flugmálastjórn á þeim tíma sem
Agnar Kofoed-Hansen var flugmála-
stjóri. Hún var vinsæl í vinnunni, svo-
lítill flautaþyrill en hörkudugleg og
fékk alltaf fólk með sér. Seinna var
hún næturvörður á Grund, kom svo
Guðrún Jacobsen rithöfundur og sópransöngkona – 90 ára
Listakonan Guðrún Jacobsen var listhneigð með afbrigðum og hún skrif-
aði, teiknaði, málaði, dansaði og söng bæði djass og óperu og samdi tónlist.
Kraftmikil kona og listræn
Til hamingju með daginn
30 ára Guðrún Eyja
ólst upp á Hvamms-
tanga en flutti til
Reykjavíkur 2011. Hún
er sjúkraliði og vinnur
á Vogi, en er í fæð-
ingarorlofi sem
stendur. Hún hefur
mikinn áhuga á útivist og hreyfingu og
prjónaskap og sundi.
Maki: Ásgeir Óttar Ásgeirsson, f. 1981,
húsasmiður.
Börn: Mikael Máni, f. 2009, Gabríel
Jakob, f. 2014, Rafael Bjarmi, f. 2015,
eru börn Ásgeirs úr fyrra hjónabandi.
Síðan eiga þau Guðrún Margréti Rós, f.
2020.
Foreldrar: Margrét Þóra Jakobsdóttir, f.
1963 og Erlingur Sverrisson, f. 1966.
Guðrún Eyja
Erlingsdóttir
30 ára Guðrún ólst
upp á Snæfellsnesi og
í Fljótsdalshéraði. Hún
er nýflutt til Seyð-
isfjarðar út af Covid,
en Guðrún er í námi í
Dublin í upptökutækni
(music production) og
er núna í fjarnámi. „Ég ákvað að fara
bara í minnsta og rólegasta bæinn til
að sinna tónlistinni, en hér er mjög
virkt menningarlíf.“ Svo vinnur Guðrún
fyrir Synfóníu Nord í kvikmynda-
upptökum á Akureyri sem tæknikona
og sviðsstjóri.
Foreldrar: Ragnheiður Haraldsdóttir, f.
1954, grunnskólakennari og Veturliði
Rúnar Kristinsson, f. 1957, sauð-
fjárbóndi. Þau búa á Surtsstöðum í
Jökulsárhlíð.
Guðrún
Veturliðadóttir
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is