Morgunblaðið - 30.10.2020, Page 4

Morgunblaðið - 30.10.2020, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2020 Jóhann Ólafsson Ragnhildur Þrastardóttir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir leggur til hertar aðgerðir á landsvísu vegna kórónuveirufaraldursins. Frá þessu greindi hann á upplýsingafundi almannavarna og embættis landlækn- is í gær. Tillögunum var skilað í heil- brigðisráðuneytið síðdegis í gær. Alls greindust 42 kórónuveirusmit innanlands á miðvikudag. Þá lést einn úr Covid-19 og hafa því alls þrír fallið frá vegna sjúkdómsins í þessari bylgju faraldursins hérlendis. Þórólfur sagði áhyggjuefni að sam- félagssmit virtust vera að færast í vöxt. „Með þetta í huga tel ég nokkuð ein- sýnt að það sé ekki hægt að slaka á að- gerðum innanlands,“ sagði Þórólfur. Hann bætti við því að búast mætti við hertum aðgerðum í tvær til þrjár vikur. Útfærslan lægi ekki alveg fyrir en tillaga hans væri enn í smíðum. Ekki yrði um harðari aðgerðir að ræða á höfuðborgarsvæðinu og væg- ari aðgerðir á landsvísu, líkt og hefur verið undanfarnar vikur. Núgildandi reglugerð um aðgerðir á landsvísu gildir til 3. nóvember en Þórólfur segir að æskilegt væri ef hertar aðgerðir hans tækju gildi fyrr og helst fyrir helgi. Að tveimur til þremur vikum liðn- um væri hægt að slaka á aðgerðum ef vel gengi. Veiran nú meira smitandi Alma Möller landlæknir sagði á upplýsingafundi gærdagsins að af- brigði kórónuveirunnar sem nú fer um samfélagið virtist meira smitandi en í fyrstu bylgju veirunnar í vor. Alma benti á að smitstuðullinn hefði verið hærri og að raðgreiningar að utan bentu einnig til þess. Landlæknir ítrekaði mikilvægi smitvarna og sagði að við yrðum hvert og eitt að leggja okkar af mörkum í þeim. Alls má rekja 140 þeirra smita sem hafa greinst á síðustu dögum til hóp- sýkingar á Landakoti. Þá hafa 44 greinst með kórónuveiruna í tengslum við sýkingu sem kom upp í Öldusels- skóla. 23 nemendur skólans eru smit- aðir. Elínrós Benediktsdóttir skóla- stjóri Ölduselsskóla sagði í samtali við blaðamann í gær að skólinn hefði samt sem áður gengið lengra í sóttvörnum en reglugerð heilbrigðisráðherra kveður á um. Í skólanum var til að mynda grímuskylda í sameiginlegum rýmum. Nú verður hert enn frekar á sóttvörnum í skólanum. 62 liggja á spítala Af þeim 42 sem greindust innan- lands á miðvikudag voru 20 utan sóttkvíar við greiningu. Aldrei hafa jafn margir legið á spítala vegna Co- vid-19 en þar liggja nú 62 sjúklingar, þar af tveir á gjörgæslu. Alls voru 1.473 sýni tekin innan- lands á miðvikudag og 567 við landa- mærin. Um er að ræða mun færri sýni en voru tekin daginn áður, þriðjudag. Þá greindust 86 smit innanlands. Eng- inn greindist smitaður við landamærin á miðvikudag. Leggur til hertar aðgerðir  Aðgerðirnar sem Þórólfur leggur til eiga við á landsvísu  Vill að þær taki gildi sem allra fyrst  Viðbúið að þær gildi í tvær til þrjár vikur  42 ný innanlandssmit greindust á miðvikudag Kórónuveirusmit á Íslandi Staðfest smit frá 30. júní 4.719 staðfest smit Heimild: covid.is Nýgengi innanlands 28. október: 211,1 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa Nýgengi, landamæri: 24,3 14 daga nýgengi 62 einstaklingar eru á sjúkrahúsi, þar af 2 á gjörgæslu 42 ný inn an lands smit greindust 28. október 1.605 í skimunarsóttkví 100 80 60 40 20 0 1.730 einstaklingar eru í sóttkví 1.005 eru með virkt smit og í einangrun júlí ágúst september október Fjöldi smita innanlands Fjöldi smita á landamærum13 einstaklingar eru látnir Guðni Einarsson gudni@mbl.is Errol Fuller, listmálari, rithöfundur og fuglafræðingur, er einn helsti sérfræðingur samtímans í geirfugl- inum og höfundur fjölda bóka. Eina þeirra skrifaði hann í félagi við Dav- id Attenborough. Hann er nú stadd- ur hér á landi í tengslum við útgáfu nýrrar bókar dr. Gísla Pálssonar mannfræðings um geirfuglinn, Fuglinn sem gat ekki flogið. Fuller mun ávarpa gesti í útgáfuhófi bók- arinnar í Ásmundarsal á laugardag og taka ásamt fleirum þátt í mál- þingi um aldauða tegunda á sama stað á sunnudag. Viðburðinum verð- ur streymt. Fuller gaf út stóra bók um geir- fuglinn fyrir um tuttugu árum. Hann sagði margar ástæður vera fyrir því að hann varð hugfanginn af geirfuglinum og sögu hans, líkt og fleiri. „Helsta ástæðan er saga geir- fuglsins sem rís og hnígur eins og mikil harmsaga. Endalok hennar áttu sér stað hér á Íslandi, í Eldey. Þar komu við sögu þrír Íslendingar eins og víða hefur verið greint frá. Ég ber sterkar tilfinningar til þre- menninganna sem drápu tvo síðustu geirfuglana. Nútímamenn hafa gagnrýnt þá, en ég tel það órétt- mæta gagnrýni. Þessir menn bjuggu við harðan kost og voru einungis að reyna að sjá fjölskyldum sínum far- borða. Þeir urðu að gera allt sem þeir gátu til að komast af. Ég tel rangt af okkur sem lifum við miklu auðveldari aðstæður og kjör að gagnrýna þá sem veiddu síðustu geirfuglana. Við höfum ekkert leyfi til þess.“ Síðustu geirfuglarnir tveir voru veiddir í Eldey 3. júní 1844. Fuller kannaðist við óstaðfestar frásagnir um að geirfuglar hefðu sést á lífi eft- ir það. „Það var til dæmis saga um slíkt frá 1851. En ég tala um þá sem drepnir voru í Eldey sem síðustu geirfuglana sem vitað er um með vissu. Mögulega hafa einn eða tveir aðrir verið á lífi einhvers staðar á Atlantshafi og drepist skömmu síð- ar,“ sagði Fuller. Hann bætti því við að á þriðja áratug síðustu aldar hefðu borist sögur af geirfuglum við Noregsstrendur. Svo kom í ljós að þar var um að ræða mörgæsir sem höfðu verið fangaðar og svo sleppt á þeim slóðum. Fuller sagði að risaeðlur væru þekkt útdauð dýr sem lifðu fyrir mjög löngu. Dúdúfuglinn (dodo) er önnur þekkt útdauð tegund sem er miklu nær okkur í tíma en risaeðl- urnar. Fuller sagði að líklega kæm- ist geirfuglinn næst dúdúfuglinum þegar um er að ræða útdauðar teg- undir sem almenningur þekkir og útdauði hans er tiltölulega nærri okkur í tíma. Önnur þekkt útdauð tegund er norðurameríska flökku- dúfan (Passenger Pigeon). Þær voru mjög algengar þegar Evrópumenn settust að í Norður-Ameríku. Sjúk- dómar og veiðar gengu nærri þeim og síðasta villta flökkudúfan var skotin árið 1900. Síðasti fugl tegund- arinnar drapst í dýragarði árið 1914. Litlum sögum fer af flestum öðrum dýrategundum sem dáið hafa út og hvenær síðasti einstaklingurinn dó. „Fjöldi dýrategunda er nú í út- rýmingarhættu. Fyrir 20 árum skrifaði ég að þá væru nógu margar tegundir í útrýmingarhættu til að fylla heila bók. Í dag þyrfti mörg bindi til að rúma allar tegundirnar í útrýmingarhættu og eftir önnur tuttugu ár gæti ég að trúað að það þyrfti 20-30 bindi. Fuglategundum hefur mikið fækkað og margar í hættu. Margir kenna veiðum um en í rauninni er eyðilegging búsvæða aðalástæða útrýmingar fugla og annarra dýrategunda,“ sagði Fuller. Táknræn enda- lok geirfuglsins Morgunblaðið/Eggert Sérfræðingur Errol Fuller er hugfanginn af sögu geirfuglsins. Hann er staddur hér á landi í tilefni af útkomu nýrrar bókar um geirfuglinn. Morgunblaðið/ÞÖK Geirfugl Þjóðin á uppstoppaðan geirfugl sem var keyptur 1971.  Dráp síðustu geirfuglanna í Eldey undirstrikar útrýmingarhættu dýra

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.