Morgunblaðið - 30.10.2020, Síða 13

Morgunblaðið - 30.10.2020, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2020 Álagningu opinberra gjalda á lögaðila árið 2020 er lokið Álagningu tekjuskatts 2020 á lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla, sbr. og 4. mgr. 71. gr., sem og álagningu annarra opinberra gjalda lögaðila sem lögð skulu á vegna tekjuársins 2019 skv. VIII.-XIV. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, er lokið. Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef Skattsins á www.skattur.is. Með vísan til ákvæðis til bráðabirgða LXVI með lögum nr. 37/2020 verður álagningarskrá lögaðila ekki lögð fram á árinu 2020. Framlagning skattskrár á árinu 2021 vegna álagningar á tekjur lögaðila á árinu 2019 verður auglýst síðar. Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur föstudaginn 30. nóvember 2020. Auglýsing þessi er birt, sbr. 98. gr. framangreindra laga. skatturinn@skatturinn.is 442 1000 Upplýsingaver opið: Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Þjóðarsorg ríkir nú í Frakklandi eft- ir að þrír létust í hnífstunguárás í borginni Nice í gær. Litið er á árás- ina sem hryðjuverk, en lögreglan skaut og særði árásarmanninn. Christian Estrosi, borgarstjóri Nice, sagði að maðurinn hefði hrópað „Al- lahu Akbar“, jafnvel eftir að sjúkra- liðar veittu honum lyf og færðu á sjúkrahús. Franskir fjölmiðlar greindu frá því síðar um daginn að hinn grunaði væri 21 árs Túnisbúi, Brahim Ao- ussaoui að nafni, sem hefði komið til Ítalíu seint í síðasta mánuði, þar sem hann var fyrst sendur í sóttkví og síðan gert að yfirgefa landið. Hann kom til Frakklands í byrjun október. Árásin átti sér stað í Notre-Dame- basilíkunni, stærstu kirkju borgar- innar, og reyndi árásarmaðurinn að afhöfða eitt fórnarlamb sitt, konu á áttræðisaldri sem fannst inni í kirkj- unni. Þar var einnig lík kirkjuvarð- arins, manns á fimmtugsaldri, en þriðja fórnarlambið, kona á fertugs- aldri, lést eftir að hafa leitað sér skjóls á nálægu veitingahúsi. Engin guðsþjónusta var þegar árásin átti sér stað, en kirkjan var opin fyrir gestum og gangandi. „Frakkland er undir árás“ Emmanuel Macron Frakklands- forseti hélt til Nice í gær og tilkynnti að fjölgað yrði í liði herlögreglu- manna sem gætt hafa kirkna í land- inu að undanförnu úr 3.000 manns upp í 7.000 manns. „Það er augljóst að Frakkland er undir árás,“ sagði Macron og bætti við að ljóst væri að það væri vegna þeirra gilda lýðræðis og málfrelsis sem Frakkar stæðu fyrir. Sagði Macron að þau yrðu ekki gefin eftir og hét því að áfram yrði hert á bar- áttu Frakka gegn íslömskum öfga- mönnum. Stjórnvöld í Frakklandi ákváðu að setja landið á hæsta viðbúnaðarstig gegn hryðjuverkum í kjölfar árásar- innar í Nice, en minnst þrjú önnur atvik áttu sér einnig stað í gær. Þannig skaut lögreglan í bænum Montfavet, í nágrenni Avignon, mann til bana, en hann hafði ógnað lögreglumönnum með skammbyssu. Stuttu eftir árásina í Nice handtók lögreglan í Lyon mann frá Afganist- an, sem hugðist fara um borð í spor- vagn með 30 cm langan hníf í hendi, en talsmaður lögreglunnar sagði að hann hefði virst „reiðubúinn til að- gerða“. Þá særðist starfsmaður ræðis- skrifstofu Frakklands í borginni Jeddah í Sádi-Arabíu eftir að Sádi- Arabi réðst á hann með hníf. Samúðarkveðjur víða að Fjölmörg erlend ríki og alþjóða- stofnanir sendu Frökkum samúðar- kveðjur í gær vegna árásarinnar. Þar á meðal voru stjórnvöld í Tyrk- landi, sem hafa síðustu daga kallað eftir því að múslimar sniðgangi franskar vörur vegna ummæla Mac- rons Frakklandsforseta þar sem hann varði málfrelsið. Sagði í til- kynningu Tyrkja að þeir fordæmdu harðlega hina grimmilegu árás og vottuðu aðstandendum hinna látnu samúð. Angela Merkel Þýskalandskansl- ari fordæmdi sömuleiðis hryðjuverk- in, sem og Boris Johnson, forsætis- ráðherra Bretlands. Donald Trump Bandaríkjaforseti sendi einnig sam- úðarkveðjur á twittersíðu sinni, og sagði að binda yrði enda á árásir öfgafullra íslamista þegar í stað. AFP Hryðjuverk Mikill viðbúnaður var í Nice eftir árásina og voru bæði her og vopnaðir lögreglumenn kallaðir út. Á hæsta viðbúnaðarstigi  Þrjú látin eftir hnífstunguárás í Nice í Suður-Frakklandi  Macron heitir því að herða á baráttunni gegn íslamistum  Tyrkir fordæma hina „grimmilegu“ árás Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Rannsakendur hjá breska háskólan- um London School of Hygiene & Tropical Medicine (LSHTM) hafa beitt myndavélum gervitungla í von um að varpa ljósi á dánartíðni af völdum Covid-19 í Jemen. Fremur litlar upplýsingar hafa borist um stöðu kórónuveirufaraldursins þar í landi undanfarna mánuði. Tölur bandaríska háskólans Johns Hopk- ins, sem meðal annars eru byggðar á upplýsingum frá stjórnvöldum, sögðu í gær einungis 599 hafa látið lífið í Jemen vegna Covid-19, sjúk- dómsins sem kórónuveiran veldur. Talið er afar ólíklegt að það sé rétt. Fram kemur í umfjöllun breska ríkissjónvarpsins (BBC) að rannsak- endur hafi beint myndavélum gervi- tungla að þekktum og líklegum graf- reitum og þannig myndað og talið nýjar grafir. Var sá fjöldi svo borinn saman við tölur yfir andlát fyrri ára yfir sama tímabil, þ.e. apríl til sept- ember. Eru dauðsföll nú um 2.100 fleiri en í venjulegu árferði. Taka skal þó fram að ekki er hægt að slá því föstu að þessir einstaklingar hafi allir látið lífið vegna Covid-19. Stjórnvöld í Jemen hafa ekki vilj- að tjá sig um rannsóknina. Segjast þau reglulega safna saman og gefa út upplýsingar um andlát. Þau hafi því ekkert að fela í þeim efnum. Ein helsta ástæða þess að efast hefur verið um opinberar dánartölur er afar veikt heilbrigðiskerfi í land- inu. Hefur það þurft að þola mikinn skort og álag sökum langvarandi vopnaðra átaka þar. Þá hefur Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) lýst áhyggjum af stöðu mála í Jemen. Bendir stofnunin á að ekki sé líklegt að tölur séu réttar um fjölda þeirra sem sýkst hafa af kór- ónuveiru þar. Máli sínu til stuðnings hefur stofnunin bent á að lítið sé um sýnatökur og sýnatökustaði í land- inu. Staðfest tilfelli kórónuveiru í heiminum voru í gær rúmlega 44,6 milljónir, flest í Bandaríkjunum. Gervitungl mynduðu grafir  2.100 fleiri dauðsföll nú en vanalega AFP Veira Heilbrigðisstarfsmaður í Jem- en sótthreinsar skólabyggingu. Andófsmaðurinn Tony Chung var í gær ákærður af stjórnvöldum í Hong Kong á grundvelli nýrra þjóðaröryggis- laga, en hann var handtekinn fyrir framan ræðis- skrifstofu Bandaríkjanna fyrr í vikunni. Talið er að Chung, sem er 19 ára, hafi ætlað að leita þar skjóls og sækja um pólitískt hæli í Bandaríkjunum. Chung er sakaður um að hafa hvatt til aðskilnaðar Hong Kong frá meginlandi Kína og að hafa tekið þátt í peningaþvætti. Hans bíður allt að lífstíðarfangelsi verði hann fundinn sekur. HONG KONG Ákærður á grunni þjóðaröryggislaga Tony Chung Tundu Lissu, for- setaframbjóð- andi CHADEMA- flokksins í Tans- aníu, lýsti því yfir í gær að hann hygðist ekki viðurkenna niðurstöðu kosn- inganna sem fram fóru þar í landi á miðviku- daginn var, en kosið var til bæði þings og forseta. Fyrstu tölur bentu til þess að Chama Cha Mapinduzi-flokkurinn, sem verið hefur við stjórnvölinn frá því að landið fékk sjálfstæði árið 1961, hefði unnið 51 af þeim 52 þingsætum þar sem talningu var lokið. Þá er John Magufuli, forseti landsins, með örugga forystu á mótframbjóðendur sína, en hann fékk t.d. 99% atkvæði í einu kjör- dæmi, skv. opinberum tölum. TANSANÍA Viðurkenna ekki niðurstöðu kosninga Tundu Lissu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.