Morgunblaðið - 30.10.2020, Page 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2020
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir
Leirubakki 2, Seyðisfjörður, fnr. 216-8492, þingl. eig. Vilhjálmur
Konráðsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sýslumaðurinn á
Norðurlandi ves, miðvikudaginn 4. nóvember nk. kl. 13:30.
Sýslumaðurinn á Austurlandi
29. október 2020
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum
Athugun Skipulagsstofnunar
Þverárfjallsvegur í Refasveit og
Skagastrandarvegur um Laxá
Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar
frummatsskýrslu um Þverárfjallsveg í Refasveit og Skagastrandarveg
um Laxá.
Kynning á frummatsskýrslu: Tillaga að ofangreindri framkvæmd og
skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar
frá 30. október til 11. desember á bæjarskrifstofu Blönduósbæjar og hjá
Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á vef
Skipulagsstofnunar www.skipulag.is.
Athugasemdafrestur: Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt
fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi
síðar en 11. desember til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105
Reykjavík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:00-12:30 - Stólaleikfimi kl.10:00 -
BINGÓ kl.13:30, spjaldið kostar 250 kr. - Kaffi kl.14:30, kaffi/kakó og
kökusneið kostar 450 kr. Vegna fjöldatakmarkana þarf að skrá sig í
viðburði hjá okkur og jafnframt er grímuskylda í Samfélagshúsinu,
gestir bera ábyrgð á að koma með eigin grímu og passa uppá
sóttvarnir - Nánari upplýsingar eru í síma 4112701 og 4112702 -
Góðar stundir -
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11.
Thai Chi kl. 9:00-10:00. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Hæðargarðsbíó
kl. 13:00. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir óháð aldri og
búsetu. Nánari upplýsingar i síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Thai
Chi kl. 9:00-10:00. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Hæðargarðsbíó kl.
13:00. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Í dag verðum við með Halloween
þema, Allir velkomnir óháð aldri og búsetu.
Nánari upplýsingar i síma 411-2790.
Garðabæ Kæru gestir, íþrótta og félagsstarfið okkar er lokað
tímabundið en Jónshús er opið með fjöldatakmarkana sem er 20
manns í rými. Minnum á grímuskyldu í Jónshúsi og muna að halda
áfram upp á 2 metra regluna. Tilkynningar um breytingar koma líka
fram á facebooksíðu okkar https://www.facebook.com/eldriborgarar-
felagsstarfgardabaer
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Handavinna
- opin vinnustofa 9:00-16:00. Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Hrek-
kjavöku/Halloween prjónakaffi kl. 13:15.
Korpúlfar Gönguhópur kl. 10:00 gengið frá Borgum 2 metrar millibil
og spritt í hávegum haft. Skráning í mat og kaffi. Hannyrðahópur í
Borgum hámark 20 manns í hverju rými. Tréútskurður frestað áfram
um óákveðin tíma. Við erum öll almannavarbir.
Línudans verður næsta mánudag 2. nóv.
Samfélagshúsið Vitatorgi Dagurinn hefst á dansleikfimi í setustofu
2. hæðar kl. 9:30. Föstudagsspjallhópur hittist í handavinnustofu milli
10-11:30. Eftir hádegi, kl. 12:45, verður kvikmyndasýning í setustofu 2.
hæðar. Við minnum á að grímuskylda ríkir í húsinu. Verið öll velkomin
til okkar á Lindargötu 59.
Seltjarnarnes Ath. í dag er engin skipulögð dagskrá á vegum félags
og tómstundastarfsins. Hvetjum þá sem geta að fara út að ganga,
fylgjast með leikfimi í sjónvarpinu og nýta hreyfispjöldin sem svo
margir eiga. Fyrir þá sem ekki geta lesið eða verið með handavinnu
þá eru allar sjónvarpsstöðvarnar að sýna bæði gamalt efni og nýtt a
llan daginn sem vert er að kíkja á.
Verum bjartsýn og reynum að halda virkni.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Allir velkomnir.
Síminn í Selinu er 568-2586.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur fyrir
veturinn, og tek að
mér ýmis smærri
verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Smá- og raðauglýsingar
mbl.is
alltaf - allstaðar
✝ María GuðrúnGuðjónsdóttir
fæddist á Hesti í
Önundarfirði 19.
mars 1932. Hún lést
9. október 2020 á
hjúkrunarheim-
ilinu Sóltúni.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Guð-
jón Gísli Guð-
jónsson, bóndi á
Hesti, f. 28.10.
1897, d. 29.3. 1980, og Guðbjörg
Sveinfríður Sigurðardóttir
húsfrú, f. 22.8. 1901, d. 25.3.
1980. Systkini Maríu eru: Þor-
varður, f. 28.1. 1929, d. 24.1.
2011, Sigurbjörg Hervör, f. 27.1.
1931, Helga Jóna, f. 27.4. 1933,
d. 17.11. 2019, Svava, f. 19.5.
1934, d. 20.10. 2019, Ingólfur
Hafsteinn, f. 16.7. 1935, d. 25.7.
1987, og Sveinbjörn Guðjón, f.
14.6. 1940, d. 20.7.
2007.
María Guðrún
ólst upp í stórum
systkinahópi. Alls
voru systkinin
þrettán, sex
barnanna dóu í
frumbernsku.
María bjó ætíð
nálægt foreldrum
sínum en hún var
mjög náin móður
sinni. Þegar þau létust keyptu
María og Hafsteinn bróðir henn-
ar saman íbúð þeirra á Laug-
arnesvegi 40, en það var hennar
síðasta heimili.
María stundaði nám við Hús-
mæðraskóla Reykjavíkur vet-
urinn 1956-1957. Hún vann alla
sína tíð sem verkakona, meðal
annars á Júpíter og Mars og
Þvottahúsi Ríkisspítalanna.
Okkar ástkæra systir og mág-
kona, María Guðrún Guðjóns-
dóttir, fædd á Hesti í Önundar-
firði, er fallin frá. Maja ólst upp í
stórum systkinahópi. Æskuárin
liðu við leik og störf undir tign-
arlegu Hestfjalli þar sem horft
var út fagran Önundarfjörðinn
frá bæjarhlaðinu á Hesti. Mörg
spor áttu þau systkinin inn Hest-
dalinn þar sem spriklað var yfir
Hestá og oftar en ekki að foss-
inum Rjúkanda innar í dalnum.
Fiskur lá gjarna í leyni í Hestá
og Korpuá. Sveitin var þeirra og
umhverfið engu líkt. Systkinin
frá Hesti voru alls 13 en sjö
þeirra komust til fullorðinsára.
Foreldrarnir Guðjón Gísli og
Guðbjörg Sveinfríður voru sam-
hent um að koma barnahópnum
sínum upp, oft við erfiðar að-
stæður. Þau hófu búskap á Efsta-
bóli en keyptu svo bæinn Hest í
kringum 1930 og síðar bættist
jörðin Ármúli við í eigu þeirra.
Systkinin fæddust öll í torf-
bænum Hesti en síðar byggði
Guðjón steinhús nokkru ofar í
túninu með aðstoð sveitunga
sinna þar sem vinnuskipti voru
tíð og mikill vinskapur á milli
býla. Börnin tóku virkan þátt í
búskapnum. María tók að sér
mikla ábyrgð en hún sá um
mjólkurafurðirnar frá Hesti. En í
túnfætinum var kaldavermslal-
ind þar sem mjólkin var kæld.
María sá um þrif og að setja allt á
brúsa. Mat þeirra sem sóttu
mjólkina var að í umsjón Maríu
var mjólkin alltaf fyrsta flokks.
Handlagni og snyrtimennska var
Maju í blóð borið svo eftir var
tekið alla hennar starfsævi.
Systkinahópurinn: Þorvarður,
Hervör, María Guðrún, Helga
Jóna, Svava, Ingólfur Hafsteinn
og Sveinbjörn Guðjón, voru ein-
staklega dugleg og lífsglöð. Her-
vör lifir nú ein systkini sín og
minnist þeirra allra með mikilli
hlýju.
Vegna heyrnarleysis voru
Hervör og Hafsteinn flesta vetur
saman í skóla í Reykjavík frá sjö
ára aldri. Aðstæður leyfðu ekki
að þau kæmust heim í Önund-
arfjörðinn öll sumur. Þegar þau
komust heim að Hesti voru mikil
fagnaðarlæti enda kært á milli
allra systkinanna. Hervör svaf
ætíð í sama rúmi og Maja og
minnist hlýju hennar og kær-
leika.
Þrátt fyrir ýmsa erfiðleika og
mikla vinnu sveif ætíð andi gleði
og menningar yfir Hestsfólkinu.
Guðjón bóndi var afar léttur í
lund og hagur. Húsfreyjan Fríða
var afar fróð, las mikið þegar
færi gafst og uppfræddi börnin
sín.
Systurnar María og Svava
fluttu til Reykjavíkur veturinn
1956-1957 vegna náms við Hús-
stjórnarskólann. Á sama tíma
brugðu þau Fríða og Guðjón búi
og fluttu til Reykjavíkur. Þau
bjuggu fyrst hjá okkur hjónum í
Heiðargerði áður en þau keyptu
íbúð á Laugarnesvegi. Á þessum
tíma jukust samskipti við Maju
sem var tíður gestur en hún bjó
yfirleitt í nánu sambýli við for-
eldra sína í Laugarnesinu. Maja
var ógift og barnlaus og vann
lengst af í frystihúsi Júpiters og
Mars á Kirkjusandi og hjá
Þvottahúsi ríkisspítalanna.
Orðatiltækið úr ævafornu
kvæði „Römm er sú taug, er
rekka dregur föðurtúna til“ átti
svo sannarlega við um Maju en
hún notaði hvert tækifæri til að
fara vestur að Hesti og var mjög
umhugað um endurbætur á
Hestsbænum sem afkomendur
gætu notið um ókomna tíð.
Blessuð sé minning Maju frá
Hesti. Megi hún eiga góða heim-
ferð.
Hervör systir, Guð-
mundur mágur og börn.
Við kveðjum elsku Maríu okk-
ar. Það sem við erum heppnar að
hafa átt þig sem frænku, en betri
frænku er ekki hægt að hugsa
sér. Þú varst meira en frænka
okkar, þú varst „amma“ okkar.
Okkur fannst svo gaman að fara í
heimsókn til þín að það var ekk-
ert sem hét stutt heimsókn. Við
fengum oft að vera eftir og pabbi
kom síðan seinna að sækja okk-
ur.
Þá var ýmislegt brallað, t.d.
byggja mikil virki úr gömlum
skyr- og jógúrtdollum sem þú
safnaðir og geymdir. Ein af kær-
ustu minningum okkar er að sitja
hjá þér í eldhúsinu og horfa á þig
baka pönnukökur. Þú varst þol-
inmóð og brostir út í annað yfir
spurningaflóðinu frá okkur
systrum.
Leyfðir okkur að hjálpa þér
við baksturinn en þó áttum við að
halda okkur í fjarlægð frá heitri
hellunni, því þú hafðir svo miklar
áhyggjur af að við mundum slasa
okkur. Varst alltaf að biðja okkur
að fara varlega.
Þú áttir alltaf til Ritz-kex í ís-
skápnum. Við vorum varla komn-
ar úr skónum þegar við vorum
komnar í ísskápinn að fá okkur
kex.
Það var alltaf svo snyrtilegt og
fallegt hjá þér, mikið af smáum
hlutum. Okkur systur langaði að
gefa þér eitthvað fallegt í jólagjöf
og eftir mikla leit með pabba og
mömmu fundum við lítinn engil
úr plasti. Það sem við vorum
stoltar af þessari gjöf til þín og
þú vissir að þessi litli engill var
gefinn til þín af mikill ást. Enda
fékk hann að vera stofudjásn,
jafnvel þó að hann byrjaði að eld-
ast og verða frekar hrörlegur.
Þú komst oftast með okkur í
ferðalög þegar við vorum krakk-
ar. Ef ferðinni var heitið vestur
varstu alltaf með en þá vorum við
á uppáhaldsstaðnum þínum,
Hesti í Önundarfirði.
Þú varst svo stolt af okkur
þegar við fórum í nám til Dan-
merkur. María fór fyrst og
tveimur árum seinna kom Halla
til Danmerkur. Þú komst að
heimsækja okkur þangað með
Fríðu og Laufeyju systur. Leigð-
uð ykkur hús rétt hjá okkur. Það
var svo gaman.
Þegar Halla átti dóttur sína og
frumburð, hana Auði Maríu,
varstu fyrst (ásamt pabba og
mömmu) að koma og sjá hana. Þú
brostir út að eyrum þegar þú sást
hana en samt svo feimin að fá
hana í fangið.
Hrædd að halda ekki nægilega
vel á nýja fjölskyldumeðlimnum.
Þegar María kom í heimsókn frá
Danmörku með litla fyrirburann
sinn þá fannst þér hún svo lítil að
þú þorðir ekki að halda á henni.
Þú vildir bara dást að henni. Þér
fannst hún svo brothætt.
Elsku María, þú varst svo
dásamlega mikill sérviskupúki,
t.d. að fara út úr húsi þýddi að þú
varðst alltaf að fara ákveðinn
hring um íbúðina til þess að
tryggja að öll ljós væru slökkt,
allur rafmagnsbúnaður væri
slökktur eða ótengdur, t.d. allir
lampar, kaffikannan, ofninn,
eldavélarhellur og þess háttar.
Þá sagði maður: „Jæja, María,
ertu tilbúin?“ og þá áttir þú til að
horfa á mann og stoppa og segja:
„Alveg að koma!!“ og endurtókst
svo sama hringinn í íbúðinni.
Elsku María, takk fyrir að
vera svona góð við okkur og
börnin okkar. Þú munt alltaf eiga
stað í hjarta okkar.
Þínar alltaf,
Halla og María.
María Guðrún
Guðjónsdóttir
✝ Ella H. FuglöHlöðversdóttir
fæddist í Keflavík
17. janúar 1970.
Hún lést á gjör-
gæsludeild Land-
spítalans í Foss-
vogi 18. október
2020. Foreldrar
hennar eru Hlöð-
ver Magnússon, f.
11.12. 1946, og
Helena Fuglö, f.
12.7. 1947. Systkini Ellu eru
Svava H. Fuglö Hlöðversdóttir,
f. 1966, maki Sverrir Krist-
jánsson, f. 1959, Sigurborg
Fuglö Hlöðversdóttir, f. 1980,
maki Jón Ásgeir
Harðarson, f. 1981,
Thelma Sædís
Fuglö Hlöðvers-
dóttir, f. 1982,
maki Ólafur Vil-
hjálmsson, f. 1980,
Magnús Örn Fuglö
Hlöðversson, f.
1991.
Eftirlifandi maki
er Hlynur Ólafur
Pálsson, f. 10.4.
1962. Foreldrar hans voru
Helga Bergljót Magnúsdóttir, f.
16.9. 1942, d. 2.8 2012, og Páll
Rúnar Ólafsson, f. 1.1. 1938, d.
26.3. 2007. Börn Ellu og Hlyns
eru: 1) Helga Kristína Fuglö
Hlynsdóttir, f. 4.3. 1991, maki
Jóhann Már Smárason, f. 7.8.
1985. Börn Helgu úr fyrra
sambandi eru Andrea Lind
Garðarsdóttir og Elmar Freyr
Garðarsson. 2) Alexandra Mist
Fuglö Hlynsdóttir, f. 14.3.
2002.
Ella ólst upp í Sandgerði.
Ella og Hlynur hófu búskap
sinn í Innri-Njarðvík en síðustu
árin bjuggu þau í Sandgerði.
Ella starfaði aðallega við
verslunarstörf en frá árinu
2011 var hún stuðningsfulltrúi
í Holtaskóla.
Útförin fer fram frá Sand-
gerðiskirkju í dag, 30. október
2020, klukkan 13. Streymt
verður frá útförinni:
https://tinyurl.com/y5tqnu8f
Virkan hlekk á slóð má nálg-
ast á :
https://www.mbl.is/andlat
Það var okkur starfsmönnum
Holtaskóla mikið áfall þegar við
fréttum að vinnufélagi okkar og
vinur, Ella Hlö, eins og hún var
vanalega kölluð, hefði orðið
bráðkvödd sunnudaginn 18.
október síðastliðinn. Ella Hlö
kom til starfa sem stuðnings-
fulltrúi í Holtaskóla haustið
2011 og sinnti því starfi af alúð
ásamt því að ganga í hin ýmsu
störf við skólann. Á þessu skóla-
ári voru það nemendur í 4. bekk
sem voru svo lánsamir að fá að
njóta samverustunda með henni.
Það var gott að vinna með
Ellu Hlö, hún var hjálpsöm, góð-
hjörtuð og vinur vina sinna.
Nemendur tóku undir þessi orð
og bættu við að hún hefði verið
umhyggjusöm, skemmtileg og
góð að aðstoða þau við lestur,
sem eru bara nokkur af þeim
orðum sem nemendur höfðu að
segja þegar leitað var til þeirra.
Við minnumst Ellu Hlö með
virðingu og þakklæti og sendum
ástvinum hennar samúðarkveðj-
ur.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Fyrir hönd starfsfólks og
nemenda Holtaskóla, Reykja-
nesbæ,
Helga Hildur Snorradóttir
skólastjóri.
Elsku Ella, ég á svo bágt með
að trúa því að þú sért farin.
Margar hugsanir og mörg ef
hafa farið í gengum hug minn
undanfarna daga. Þú varst svo
heimakær og fjölskyldan var
þér allt, þá sér í lagi Helga
Kristína og Alexandra og barna-
börnin en þú fórnaðir öllu til að
geta verið til staðar fyrir þau.
Ég er svo þakklát fyrir tím-
ann sem við áttum í sumar og
haust. Ég hugga mig við það að
ég á margar góðar minningar.
Eins og þegar við gátum ekki
beðið eftir að karlarnir okkar
kæmust í helgarfrí því við vor-
um að fara í ferðalag með nýju
tjaldvagnana okkar. Við lögðum
af stað degi á undan Hlyni og
Davíð, voða spenntar yfir að fá
smá stelputíma saman. Þegar
við ætluðum svo að tjalda tjald-
vagninum föttuðum við að við
vorum bara ekki alveg nógu há-
vaxnar eða sterkar til að tjalda
honum. Eftir hláturskast inni í
hálftjölduðum vagni ákváðum
við að fara að leita að karlmanni
sem gæti aðstoðað okkur. Við
vorum svo heppnar að maðurinn
í fellihýsinu á móti okkur var
tilbúinn að aðstoða okkur. Við
hlógum mikið yfir þessu, bæði
þá um kvöldið og þegar við rifj-
uðum þetta upp.
Elsku Hlynur, Helga Krist-
ína, Alexandra, Andrea, Elmar,
Lena og Hlölli. Megi Guð gefa
ykkur styrk til að komast í
gegnum þennan erfiða tíma.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Þín vinkona,
Matthildur.
Ella Hvanney Fuglö
Hlöðversdóttir