Morgunblaðið - 30.10.2020, Side 29

Morgunblaðið - 30.10.2020, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 2020 SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALINánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. MYNDIN SEM HEFUR SLEGIÐ Í GEGN Í EVRÓPU UNDANFARNAR VIKUR. SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Hrekkjavökuvika í Sambíóunum Sjáðu nokkrar að frægustu Hrollvekjum allra tíma Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Djassplata þeirra Sölva Kolbeinssonar saxó- fónleikara og Magnúsar Trygvasonar Eliassen trymbils virðist við fyrstu sýn vera ein þeirra gömlu og sígildu, umslagið svarthvítt og efst merkt „stereo“ og uppi í vinstra horni kemur fram snúningshraðinn, 331⁄3 spm. Hér er þó um glænýjan grip að ræða og fyrstu breiðskífuna sem þeir félagar senda frá sér sem tvíeyki en platan er gefin út hjá Reykjavík Record Shop. Sölvi og Magnús hófu að spila saman sem dúett fyrir fimm árum og hafa haldið tónleika reglulega upp frá því og flesta í Mengi. Þeir hafa komið víða við í túlkun sinni á ýmsum djass- standördum og öðrum lögum sem þeir hafa gaman af. Má þar nefna verk stórmenna á borð við Thelonious Monk, John Coltrane, Paul Motian, Bud Powell og Antônio Carlos Jobim. „Þeir fara frjálst með lögin, nota þau sem einhvers konar stökkpall út í hyldýpi spunans, spinna inn og út úr þeim en leggja þó alltaf áherslu á að týna þeim aldrei,“ segir í tilkynn- ingu og að segja megi að platan sé afrakstur fimm ára samstarfs þeirra félaga. Ekkert sé ákveðið fyrirfram á henni nema í mesta lagi fyrsta lagið. Sölvi býr í Berlín og Magnús í Reykjavík og vegna þess og kófsins verður plötunni ekki fagnað með útgáfutónleikum en hún kemur út á vínyl hjá Reykjavík Record Shop í dag, 30. október, og er nú fáanleg í versluninni. Lítið ákveðið fyrir fram Sölvi segir lögin á plötunni mörg hver úr bandarískum söngleikjum, lög sem finna megi reglulega á efnisskrám djasstónlistarmanna. „Þetta er okkar verkefni og við höfum verið að gera þetta í fimm, sex ár, að reyna að finna okkar nálgun á þessi lög, og það sem er aðal- lega sérstakt við hana er að þetta eru bara saxófónn og trommur,“ segir hann. Sölvi er beðinn að nefna dæmi um lög á plöt- unni og nefnir hann „I’m Old Fashioned“ eftir Jerome Kern og „How Insensitive“ eftir Ant- onio Carlos Jobim. „Við erum búnir að fara í gegnum kannski hundrað lög eða eitthvað og þegar við spilum erum við ekki búnir að ákveða mikið fyrir fram en kunnum lögin báð- ir,“ segir Sölvi og fyrir vikið verði mikið flæði í spilamennskunni. „Við gerðum þetta þannig í stúdíóinu líka, vorum búnir að skrifa niður hvaða lög við gætum spilað en annars var þetta mjög opið,“ bætir hann við. Vandmeðfarin tónlist Sölvi segir þá Magnús þekkja hvor annan vel sem hljóðfæraleikara eftir alla þá tónleika sem þeir hafa haldið saman. „Okkur líður mjög vel að spila hvor með öðrum,“ segir Sölvi. Þeir hafi haldið sína fyrstu tónleika í Mengi og reyni að leika alltaf þar þegar hann er á land- inu. Sölvi segir íslensku djasssenuna frekar litla og að þeir Magnús hafi fyrst leikið saman á Faktorý á „djammsessjóni“ eða opnu sviði. „Ég er talsvert yngri en Maggi, um tíu árum, og hann er því með mun meiri reynslu og tók mig svolítið að sér þegar ég var að byrja að spila eitthvað af viti,“ segir Sölvi kíminn. – Með því að flytja standarda eruð þið að feta í fótspor margra sögufrægra djassara. Fylgja því ekki gæðakröfur? „Jú og þetta er vandmeðfarin músík. Við hlustum báðir mjög mikið á tónlist og mikið á þessa tónlist og mig langaði ekki að taka þessi lög nema hafa hlustað á mjög margar ólíkar útgáfur til að vita hvað fólk væri búið að gera og sjá hvað við vildum gera,“ svarar Sölvi og bendir á að þessi hljóðfærasamsetning, trommur og saxófónn, sé ekki algeng í djass- standardaplötuútgáfu. „Þetta er mikið flæði, við erum að spinna inn og út úr þessu þannig að fyrir mörgum mun þetta hljóma mikið sem frjáls spunatónlist ef þeir þekkja ekki lögin og jafnvel þótt þeir þekki þau. Við notum þessi lög mikið sem stökkpall út í spuna og reynum að halda þessu eins opnu og við getum.“ Platan var tekin upp í Sundlauginni í Ála- fosskvosinni sem Sölvi segir yndislegan stað. „Þetta er nú ekki langt frá borginni en ég er alltaf heillaður af því að fara aðeins út fyrir borgina til að kúpla sig aðeins út úr hinu dag- lega amstri. Við tókum plötuna upp á einum degi, dimmum og köldum sunnudegi snemma í janúar, og Albert Finnbogason var með okkur, tók þetta upp og mixaði og masteraði. Þetta var rosalega huggulegt,“ segir Sölvi. Vonandi tónleikar fyrir jól Sölvi flutti til Berlínar fyrir fimm árum, hlaut BA-gráðu í fyrra og hefur upp frá því verið sjálfstætt starfandi saxófónleikari þar í borg. „Það fór vel af stað en hefur auðvitað verið erfitt núna á þessu ári, talsvert minna um tónleikahald og ástandið í Berlín núna er frekar slæmt og fer versnandi,“ segir Sölvi og á þar við Covid-19-farsóttina. „Ég hef svolítið verið í upptökum með öðru fólki en við sjáum hvað gerist með tónleika. Okkur Magga lang- aði líka að spila hérna í haust en það lítur ekki út fyrir að það verði hægt,“ segir Sölvi og von- ast til að þeir Magnús geti haldið tónleika nú fyrir jól og þá á Íslandi. Ljósmynd/Þorleifur Gaukur Davíðsson Stökkpallur út í spuna  Sölvi Kolbeinsson og Magnús Trygvason Eliassen spinna út frá djassstandördum og öðrum þekkt- um lögum á nýútkominni plötu  „Reynum að halda þessu eins opnu og við getum,“ segir Sölvi Félagar Sölvi og Magnús ræða málin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.