Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.10.2020, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.10.2020, Blaðsíða 17
svo er óhjákvæmilegt að undirbúa nýjan kafla. Hann getur varla orðið algjörlega óbreyttur, þótt of mikið væri að tala um algjör þáttaskil. Auðvitað verður áfram að gæta varúðar og missa hvorki móð né úr- slitatök. En leiða þarf hópinn áleiðis í öruggum skrefum í átt til eðlilegs mannlífs í landinu og það þótt eitthvað lulli enn eftir af veirufýlunni. En henni sjálfri þarf að koma sem fyrst í ómerkilegt aukahlutverk og hætta að færa henni fórnir sem við ráðum ekki við til lengdar. Nú er enginn vafi á því að ekki er betra fólk á lausu í þetta snúna verkefni en það sem sinnir því nú af mikilli elju og fórnarlund. Það er lykillinn að miklum árangri, að náðst hefur að nýta og kalla út mikið lið í mörgum greinum öryggis- og heilbrigðisgæslu sem leggur sig fram, langt umfram allar kröfur, því að það veit að þjóðin á allt sitt undir því. Allt er það mikið þakkarefni, en svo mikið og öflugt úthald hlýtur einnig að eiga sín þolmörk. Erum við fleiri en milljón? Í upphafi þessarar hugleiðingar var vitnað í glaðning- inn sem þeir Gylfi og félagar skenktu okkur, eins og dálítið óvænt. Fyrir fáeinum vikum komust Englendingar með sig- ur frá okkar borði, fyrir helbera heppni. Það er ekkert að því. Hún hefur stundum lagst með okkur. Við gleymum því stundum hversu fá við erum. Eða kannski er réttara að segja að við munum hreint aldrei eftir því, nema þegar fullkomlega eðlilegt er að gera upp útreikninga og miða þá við fólksfjölda. En í fjölda greina sem heimurinn lætur keppa í er sem betur fer engin forgjöf fyrir það að vera fámenn- ur. En það er mikið þrýst á það í pólitískum kúnstum að forgjöf fylgi hinu og þessu og þaðan ofan í löggjöf um að allar meintar skekkjur skuli leiðréttar „jafnréttinu“ í hag. Slíkt ber auðvitað dauðann í sér. Skaðleg góðverk Auðvitað væri það freistandi fyrir mann eins og skrif- ara að fá drottningu og tvo hróka í forgjöf í tafli við Kasparov og eiga þá möguleika. En þá yrði það enn meira áfall að tapa samt. Og auðvitað væri sanngjarnt að fá ás í hvorn vasa væri maður að spila bridds gegn Jóni Baldurssyni. Og lenti maður í laxveiðiá, þar sem Þórarinn Sig- þórsson væri einn af hinum veiðimönnunum, væri auð- vitað sanngjarnt að maður fengi botnvörpu í forgjöf, en maður yrði sjálfsagt samt undir. Þessum þremur stórmennum, nefnd af handahófi, hefur skrifari átt því láni að fagna að eiga sérlega ánægjuleg skipti við og reyndar eru þeir nefndir sem dæmi því telja mætti upp tugi annarra slíkra og nefna þá snilld og vinsemd sem þeir hafa sýnt. Kári var nefndur hér fyrr í veirusambandi og lengi höfum við hjónin þakkað í hljóði að Vala, þá heitkona hans, lánaði Ástríði minni hvíta skó sína svo að hún gæti gengið svo tignarleg fram og til baka um kirkju- gólfið í Neskirkju. Hinn 5. september sl. voru 50 ár frá því ævintýri okk- ar á gönguför. Og ef veiruskrattinn heldur að maður hafi fyrirgefið henni það að koma í veg fyrir að hnippt væri í góðan hóp vina af svo ríkulegu tilefni, þá trúir hún öllu. En samt er það aukaatriði. Því við eigum öll gott í vændum. Það þekkja það allir, sem lengi hafa lifað, að því fylgir sérstök tilfinning, sem fer eins og fiðringur um kroppinn, þegar óboðinn, óþolandi gestur kemur sér loksins burt. Það er töluvert tilhlökkunarefni í því. Morgunblaðið/Árni Sæberg 11.10. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.