Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.11.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.11.2020, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.11. 2020 Elsku Sporðdrekinn minn, ég þarf að segja þér eina staðreynd. Hún er sú að merkið þitt er eitt af fjórum heppnustu stjörnumerkjunum sem segir svo sannarlega að þú hafir svo sterkan vilja til að bera. Og það sem þú vonar að verði og gerist mun koma til þín þegar þú lætur viljann tala. Afkomustreita hefur áhrif á þig en þú getur samið um allt mögulegt, svo gerðu það núna með viljann að vopni. Það er mjög algengt að ég sjái að rétt fyrir afmælisdaginn þinn komi högg sem þú sást ekki fyrir. Þetta högg mun breyta hag þínum til hins betra, en þú gerir þér enga grein fyrir því fyrr en útkoman er fyrir framan þig. Það er nýtt tungl hinn 15. nóvember og því fylgir ómældur kraftur fyrir þig. Og á því tímabili muntu sjá að þú ert magnari; þú magnar bæði upp huga og atburði. Svo á þessu tímabili segðu þá skýrt við alheiminn og aðra sem þurfa það að heyra, hvernig þú vilt að hlutirnir fari. Hugsaðu vel á þessu tímabili hvað í raun er þér fyrir bestu. Þú ert með góðar hugmyndir sem geta skapað þér og öðrum betra líf, svo ekki efast í eina mínútu um að þú hafir máttinn í hendi þér og dýrðina. Þú ert beintengdur við nautsmerkið og ef þú skoðar vel áttu marga vini og velunnara í því merki. Þess vegna skreytir það þig ennfremur að fullt tungl í nautsmerkinu er hinn 31. október. Það tímabil fyllir þig af andagift til að drífa óleyst mál áfram. Og Júpíter, sem er sterkt tengdur þér núna, hjálpar þér til þess að efla sjálfstraust þitt til að láta vaða í breytingar sem munu gera líf þitt miklu meira spennandi en það hefur verið. Við ykkur í þessu merki sem eruð þungir og líð- ur illa andlega segi ég að núna er rétti tíminn til að skríða út úr myrkrinu og faðma ljósið sem þú átt skilið. Það treysta svo margir á þig og þú verður að skilja að það eina sem vantar er að þú treystir á þig sjálfan og jafnframt treystir á ástina, því hún treystir á þig. Þú ert magnari SPORÐDREKINN | 23. OKTÓBER 21. NÓVEMBER Elsku Steingeitin mín, það er svo merkilegt að skoða að þú býrð í því merki sem trúir einna síst á stjörnuspeki eða önnur hindurvitni. Þetta er staðreynd í þínum huga og þú ferð eftir því. Þú sérð ekkert grátt, bara svart eða hvítt, já eða nei og orðið kannski er ekki til í orðaforða þínum. Konan sem skrifaði bækurnar mínar, Orð eru álög og Töfraðu fram lífið, er algjör Steingeit. Hún ákvað eftir að hafa þekkt mig töluvert lengi að trúa á speki mína. Hún var stödd í áramóta- partíi og þar ákvað hún að biðja almættið af öllu hjarta að færa sér nýtt líf. Hún færði hendur til himins og bað um nýtt líf, hún væri tilbúin án þess að útskýra það nokkuð frekar. Þessa vinkonu mína langaði í margt sem var skrautlegt og skemmtilegt, en hún var ekki nógu skýr í óskum sín- um og nokkru seinna komst hún að því að hún væri ófrísk, svo sannarlega kom nýtt líf! Það eru svo margir frægir stríðsmenn í þessu merki og þar af leiðandi er þetta sterkasta merk- ið. Þú trúir nefnilega ekki að lífið sé unnið með heppni, svo þú skipuleggur og hugsar eins og stríðsherra um hvernig þú leysir málin. Kurteisi og virðing eru þér í blóð borin, en sem betur fer er hvatvísin skammt undan svo þú munt ekki láta neinn vaða yfir þig. Næstu fjórir mánuðir gefa þér góð merki um að þú sért á toppnum í því eða þar sem þú vilt vera. Þér verður fyrirgefið þó þú gerir ekki alla skapaða hluti hárrétt og sért jafnvel of sein að klára eitt og annað, því þegar þú vindur þér í verkefnin er útkoman fullkomin. Ef þú ert á lausu sýndu þá þann styrkleika í ástinni að leyfa henni að leika við þig þó þú sjáir ekki framhaldið. Taktu þátt í ævintýrunum sem bjóðast þér og láttu þau skipta máli. Slakaðu á og slapp- aðu af, því þú ert undirbúin að takast á við allt sem fyrir þig er lagt með styrkan hug að leiðarljósi. Hin fullkomna útkoma STEINGEITIN | 22. DESEMBER 19. JANÚAR Elsku Bogmaðurinn minn, talan sjö er talan þín þessa mánuði. Hún gefur þér það að þú þarft að byggja sjálfan þig upp og styrkja undirstöðurnar, því þú ert að undirbúa þig fyrir svo aflmikið tímabil sem þú sérð miklu betur um áramótin og allt næsta ár. Þú hefur og ert að sá svo mörgum góðum fræjum á þessu ári, en þú hefur stundum ekki alveg þolinmæði fyrir því að þau hafi ekki vaxið eins hátt og þú vildir. Þú ert nú þegar búinn að skila frá þér svo mörgu sem á eftir að verða þér ábatasamt, bæði andlega og veraldlega. Núna skaltu fagna andlegu tímabili, jafnvægi og þolinmæði til þess að auka þitt innra þrek enn meira. Lífið er á of hægum hraða fyrir þinn smekk, en það er svo margt að vaxa sem þú ert búinn að láta frá þér. Kærleikur og þakklæti umlykja þig og þú skalt ekki gefa viðkvæmninni tíma, því það er mikilvægt að láta sem ekkert sé þó einhver hendi í þig skít. Tengdu þig við alheiminn, fjölskyldu þína og vini. Taktu fleiri myndir, efldu þig í tölvukunn- áttu, gerðu heimasíðu eða opnaðu snapchattið, því nú hefurðu nægan tíma til þess að gera það sem þú ætlaðir þér. Þó að hlutirnir gerist hægt þá gerast þeir samt og útkoman verður svo ótrú- leg með skilningnum sem þú ert að öðlast á öllu því sem er að gerast í kringum þig. Ég dreg fyrir þig úr tveimur spilabunkum og þar færðu laufaásinn sem segir að hugrekki sé mál- ið og íslenski steinninn sem prýðir þetta spil táknar upphaf, losar um þröngsýni og kemur með nýj- ar hugmyndir, hugrekki og blessun. Þegar ég skoða hitt spilið sem ég dró fyrir þig, sé ég merkilegu töluna 12, en hún gefur þér fullt hús stiga. Skilaboðin eru einnig að þú þarft að fórna einhverju, eða þarft að láta frá þér ónauðsynlega veraldlega hluti sem jafnvel eru þér til trafala. Í beinu framhaldi af því finnurðu að lífið verður bara svo miklu auðveldara og ástin og hamingjan búa í þínu partíi. Nægur tími til að tengja BOGMAÐURINN | 22. NÓVEMBER 21. DESEMBER Elsku Vatnsberinn minn, þig langar að ýta svo mörgu af stað, svo allt sem þú hefur ákveðið fari að birtast eins og þú vilt hafa það. Núna stendur lífið svolítið kyrrt, njóttu þess bara að vera lifandi. Þakkaðu fyrir það sem þú hefur og blessaðu þá sem eru í kringum þig, hvort sem þér líkar vel við þá eður ei. Láttu reiði alveg eiga sig, því hún er bæði hundleiðinleg og smit- andi. Júpíter er sérstaklega sterkur yfir sem er svo spennandi og í þeirri orku muntu skynja betur hvernig þér getur liðið mun betur andlega. Og þú finnur leiðir til að bæta bæði heilsu og hug, sérð og finnur svo vel hvað er rétt eða rangt og þú tekur ákvarðanir sem eru byggðar á þolinmæði. Það er svo áberandi hvað þú hefur skýrt og fallegt egó, en það er gott fyrir þig að gera þér sterka grein fyrir því að það er bara réttast að henda egóinu eins mikið og þú getur og fyllast af auðmýkt. Það er eins og þú hafir hendur fullar af peningum og þú kastar þeim og færð allar réttu tölurnar. Þú munt engan veginn skilja hvernig það sem á eftir að gerast er mögulegt. En það er ekki þitt að skilja, heldur vertu bara alveg rólegur, það kemur sá tími að það sem hefur áhyggjur af leysist á einum degi. Þó að þolinmæði sé blessun, þá skaltu samt velja félagsskap þinn vel. Það er svo opið tilfinninga- kerfið þitt að manneskjur í kringum þig, sem virða ekki mörk, geta sært þig vitandi eða óafvitandi. Þú virðist horfa svolítið til fortíðar, þeir sem eru á lausu en hafa átt gamalt samband gætu endur- nýjað það. Þú endurnýjar svo margt sem tengist fortíðinni og hinu gamla og góða og finnur ham- ingjuna hríslast um þig allan. Því maður sér ekki svo skýrt þegar hlutir eða manneskjur eru beint fyrir framan nefið á manni, en ástin mun umvefja þig. Ástin mun umvefja þig VATNSBERINN | 20. JANÚAR 18. FEBRÚAR Nóvember Elsku Fiskurinn minn, þú ert að finna til svo mikils skilning á öllu mögulegu og ferð að ganga í takt við sjálfan þig. Neptúnus er svolítið sterkur inni í lífi þínu núna og þar af leiðandi gætirðu haft áhyggjur, því það er draugagangur í kringum þig sem tengist veraldlegum hlutum. Það kemur inn í hjarta þitt eins og vitrun að þú þurfir hvað sem á dynur alltaf að haga þér eins og sigurvegari. Þetta er ákvörðun sem þú skalt líka bara hugsa á hverjum morgni; ég er sigurvegari er gott orð og það er nefnilega dagsatt að í þér býr sigurvegari. En þegar tilfinningarnar segja allt annað er það í raun blekking. Þú þolir ekki að hafa of mikinn tíma til að hugsa og nöldur og nag frá þeim sem eru í kringum þig pirrar þig miklu meira en vanalega. Ekki gefast upp að neinu leyti þó að vinnan eða verkefnin valdi þér óróa. Þú ert að fara yfir brúna og þá sérðu að þú ert virkilega ham- ingjusamur í því sem er að gerast. Og það eru bara agnarstutt augnablik sem slá þig út af laginu. Þegar ég var að stúdera merkin, skoða þau og grufla mig áfram, þá kom í ljós að þú ert eitt af stjörnumerkjunum sem sögð eru heppnustu merkin. Svo það er alveg sama þó þú sért að vaða yfir djúpan sjó, því heppnin fylgir þér eins og engill. Þú færð tilboð um að taka þátt í einhverju merkilegu og skemmtilegu. Þetta þarf ekki að fela í sér fjárhagslegan ávinning. En segðu bara já vegna þess að það gerist eitthvað óvænt og mikilfenglegt með þessu. Og röð tilviljana, þó ég trúi nú ekki á þær, kemur þér á þann topp sem þú vilt komast á. Þú ert bæði hlýr og blíður, en pínulítið stjórnsamur. Og hefur þá tíðni að senda frá þér svo fallega heilun sem hjálpar fólki sem líður illa að því gangi betur. Það er svo sterkt karma í kringum þig, svo þú færð svo margfalt til baka þína gjafmildi og gæsku sem þú hefur sýnt öðrum. Þú ert ást svo ástin fellur fyrir þér í allri einlægni þinni. Í þér býr sigurvegari FISKARNIR | 19. FEBRÚAR 20. MARS Elsku hjartans Hrúturinn minn, það er búin að vera svoddan háspenna og svo sérstök orka í kringum þig síðasta mánuðinn. Þú þarft að sýna extra þolinmæði gagnvart öðrum í kringum þig, því þannig nærðu jafnvæginu í þessum mánuði. Mars og Júpíter eru inni í lífi þínu, svo þú munt finna mjög sterkt að þú sért að rífast við sjálfan þig, eins og þú sért tvískipt persóna. Annar helmingur þinn hefur verið mjög neikvæður og dregur úr þér kraftinn og gagnvart því sem þú þarft að þora að gera. Hin orkan sem tengd er Júpíter gefur þér mikla valmöguleika og gjaf- ir. Þú finnur að það kemur yfir þig svo mikill kraftur og ákveðni fyrir því sem þú ætlar að fram- kvæma. En svo þegar þú vaknar daginn eftir finnst þér að þú hafir ekki mátt til að gera það sem þú þarft. Þetta ergir þig að öllu leyti og argur Hrútur er eitthvað sem enginn vill mæta, hvorki að nóttu til né degi. Inni í þessu er líka fólgin afbrýðisemi sem er alls ekki eitthvað sem fer þér, flotti Hrút- urinn minn, því öll afbrýðisemi er tengd frekju og yfirgangi. Vöðvabólga, þreyta, verkir og sinnu- leysi eru afleiðingar af slíku. Það er mjög erfitt fyrir þig að sitja og standa eins og aðrir vilja, því þú ert svo mikill forystusauður. Þannig að núna skaltu mynda visst bandalag við fólk sem þér líkar vel við, en líka þá sem ekki eru í náð- inni hjá þér. Þetta mun færa þér velsæld og frið í hjartanu sem um leið byggir upp framkvæmdakraft- inn þinn og þá einingu sem þig vantar til þess að líf þitt nái þeirri fullkomnun sem þú vilt. Fyrstu dagar nóvembermánaðar gefa þér sérstaklega færi á því að skipta yfir í fimmta gír. Gera þér grein fyrir að þú þarft að gera allt sjálfur til þess að fá það sem þú vilt. Og þessi mánuður mun sanna fyrir þér að þú hefur svo sterka eiginleika og munt standa svo teinréttur og vera hamingju- samur og ánægður með lífið. Þörf á þolinmæði HRÚTURINN | 21. MARS 19. APRÍL

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.