Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.11.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.11.2020, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.11. 2020 LESBÓK SYSTRALÁN Maðurinn með leðurlungun, Rob Halford, hefur upplýst að systir sín beri ábyrgð á því að hann gekk upphaflega til liðs við málm- bandið Judas Priest á því herrans ári 1973. Í samtali við vefmiðilinn WeAreIowa.com segir Halford að systir sín, Sue, hafi verið að slá sér upp með bassafantinum Ian Hill á þessum tíma og í einhverju koddahjal- inu hafi hann greint henni frá því að þeir prestungar væru að leita að nýjum söngvara. „Bróðir minn er eins konar söngvari,“ hrökk þá upp úr Sue og Halford fékk áheyrnarprufu og var ráðinn. „Væri það ekki fyrir Sue þá hefði þetta getað farið á allt annan veg.“ Þess má geta að Hill gekk að eiga Sue árið 1976 en skildi við hana 1984. Þeir mágur hans fyrrverandi eru á hinn bóginn ennþá saman í Judas Priest. Sue var mér best DÓMAR Kvikmynd Bens Wheatleys, Rebecca, sem byggist á skáldsögu Daphne du Maurier frá árinu 1938 og frumsýnd var á efnisveitunni Net- flix á dögunum, fær almennt vonda dóma í fjöl- miðlum ytra. Þykir ekki komast með tærnar þar sem óskarsverðlaunamynd Alfreds Hitchcocks, eftir sömu sögu, frá 1940 hefur hælana. Gagn- rýnendur bæði The Guardian og Vox spyrja sig hvers vegna í ösköpunum Wheatley hafi gert myndina og gagnrýnandi The Tele- graph segir lífið í skugga meistara Hitch- cocks augljóslega óbærilegt og merkilegt að ekki sé hægt að gera betur. Hefur ekkert lærst á 80 árum? Óbærilegt líf í skugga Hitchcocks Lily James leikur hina nýju Rebeccu. AFP Leikstjórinn Sofia Coppola. Tækifærum hefur fjölgað KVIKMYNDIR Bandaríski kvik- myndaleikstjórinn Sofia Coppola segir margt hafa breyst til hins betra í Hollywood fyrir konur í kvikmyndagerð frá því að hún gerði sína fyrstu mynd, The Virgin Suicides, fyrir tveimur áratugum. Þetta kemur fram í samtali við breska blaðið The Independent. Coppola segir tækifærin fleiri og betri fyrir konur í dag og þakkar það meðal annars opnari umræðu um málið. Nauðsynlegt sé að sem flest sjónarhorn séu uppi þegar kemur að því að segja sögur í kvik- myndum og sjónvarpi. Nýjasta mynd Coppola, On the Rocks, kom út nýlega en þar eru Rashida Jones og Bill Murray í helstu hlutverkum. Knúið er dyra. Hún vaknarmeð andfælum upp af vær-um svefni. Virðist hvorki vita í þennan heim né annan. Staul- ast þó á fætur og brýst gegnum hótelherbergið, sem er eins og Spit- fire hafi flogið yfir það með tilheyr- andi niðurgangi, og til dyra. „Gefðu mér augnablik,“ geltir hún á aum- ingja þjóninn sem er bara að vinna vinnuna sína og ber enga ábyrgð á líðan hennar eða óreiðunni í lífinu í heild. Í rúminu liggur einhver mann- eskja á grúfu. Við fáum ekki að vita nánari deili á henni. Eftir að hafa klætt sig og hvolft í snarhasti í sig einni örvodku af smábarnum er hún klár í slaginn. Er samferða feðginum nokkrum niður með lyftunni, litlu stúlkunni er spurn en er harðbannað að glápa. Það er ókurteisi. Loks kemur okkar kona í loftköstum inn í sal fullan af fólki – áhorfendum – og sest að tafli. Klukkan er þegar kom- in í gang og úr augum andstæðings hennar má lesa: „Hvað í ósköpunum hefur gengið á núna?“ Í sviphendingu erum við komin fimmtán ár aftur í tímann. Til ársins 1952. Hin níu ára gamla Beth Harm- on er að flytja inn á heimili fyrir munaðarlaus börn eftir að hafa misst móður sína með sviplegum hætti í umferðarslysi. Fáum sögum fer af föðurnum sem virðist hafa yfirgefið þær mæðgur. Sú stutta ber Skákséní og lyfjafíkill Eftir tæplega fjörutíu ára bið lifnar skákséníið Beth Harmon loksins við á sjónvarpsskjánum og dregur alla sína djöfla með sér í þáttum sem heita eftir skáldsögu Walters Tevis, Drottningarbragð. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Beth Harmon sýnir á sér hina hliðina; lyfjafíkillinn er aldrei langt undan. Netflix Það er bandaríska leikkonan Anya Taylor-Joy sem leikur Beth Harmon í Drottningarbragði og er hún þegar farin að fá afar lof- samlega dóma fyrir frammistöðu sína. Tímaritið Entertainment Weekly segir hana „heillandi á drungalegan hátt“ og að líkamstján- ingin sé mögnuð, ekki síst þegar reiðin sæki að persónu hennar. Annað tímarit, Variety, segir Taylor-Joy svo segulmagnaða „að þeg- ar hún starir í linsuopið líður manni eins og ískaldur glampinn í aug- um hennar gæti klofið það í tvennt“. Anya Taylor-Joy er 24 ára gömul. Hún sló fyrst í gegn í hrollvekjunni The Witch árið 2015 en hefur einnig leikið í mynd- um á borð við Split, Glass og Emmu. Þótt hún sé fædd í Flórída er bakgrunnur Taylor-Joy margslunginn; móðir henn- ar er ensk af suðurafrískum og spænskum uppruna og faðir hennar skosk-argentínskur. Hún ólst upp í Buenos Aires og Lundúnum. Heillandi á drungalegan hátt Anya Taylor-Joy AFP Rob Halford er enn í fullu fjöri. - meira fyrir áskrifendur Lestumeira með vikupassa! Fyrir aðeins 1.890 kr. færð þú netaðgang að öllu efni úr blaði dagsins og næstu 6 daga. - Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Íþróttir - Daglegt líf - Viðskipti - Fastir þættir - Aðsendar greinar - Aukablöð - Viðtöl - Minningargreinar - Umræðan Vikupassi er auðveldari leið til að lesaMorgunblaðið á netinu. Fáðu þér vikupassa af netútgáfu Morgunblaðsins.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.