Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.11.2020, Blaðsíða 10
Elsku Meyjan mín, þú elskar fegurð, rólegheit og jafnvægi en líka stuð þegar
það á við. Fallega Venus gefur ykkur sérkennileg völd yfir öðrum því þú ert svo mikið sjar-
matröll. Það eina sem getur eyðilagt fyrir þér er reiði og vanhugsuð orð.
Þegar fýkur í þig, elskan mín, skaltu prófa öndunaræfingu, anda hamingjunni inn, anda ham-
ingjunni út allt í kringum þig, allt að tíu sinnum og hugsa bara um andardráttinn. Ekki skrifa
neitt í reiði og alls ekki segja hug þinn allan. Því að þótt þú sért hreinskilin, þá mega sum orð kyrr
liggja því að ef þú hefur ekkert gott að segja, skaltu frekar þegja.
Allur lærdómur, hvort sem það er lífið, skóli, vinna eða að læra af börnunum sínum eða vinum
sem eru góð fyrirmynd, mun gera þig heppnari í lífinu. Það hefur svo margt verið að gerast, en þú
hefur haft vit á því að leita til þeirra sem geta hjálpað, bæði í hinu andlega og líkamlega.
Það er svo gott að hafa þann kost að geta skipt um skoðun ef þér finnst að þú hafir ekki tekið
rétta ákvörðun. Þetta er valkostur sem er sérstaklega sterkur fyrir þennan mánuð sem er að
ganga í garð. Þú skreytir snemma því þú elskar ljós og þú hefur áhrif á aðra því þú ert alltaf
smart til fara. Þú hefur í raun allt, svo spilaðu vel og vandlega úr öllu því sem almættið gaf þér.
Yfirleitt eru Meyjur svo sérstaklega góðar í tungumálum, en íslenska er þeirra fag. Svona rit-
fær týpa ætti að skrifa stuttar sögur, jafnvel um það sem hefur hent í lífinu eða allavega minn-
ingar sem eru svo skemmtilegar. Þú hefur nægan tíma og tími er það merkilegasta sem þér er
gefið. Ekki eyða honum, heldur nýttu hann. Þú blessar heimili þitt og gerir það fallegt. Með
þessu hefur þú kost á því að breyta um staðsetningu ef þú hefur áhuga á því. Þú þarft að hafa
spennandi líf og ef þú opnar augun, sérðu að þú hefur það.
Lærdómur færir gæfu
MEYJAN | 23. ÁGÚST 22. SEPTEMBER
Elsku Vogin mín, það er svo dásamlegt að vita að þú hafir þá trú að þú byggir
þína velferð upp sjálf. Og það er svo sannarlega rétt, því í þér býr hinn guðlegi neisti og þegar þú
finnur að þú getur treyst á þennan neista ertu hinn eini sanni sigurvegari.
Þú þarft svo oft að velta því fyrir þér hvað þú ætlar að gera, því þú hefur svo margar hugmyndir
um hvað er rétt. Þú ert svo sannarlega á frjóu tímabili og ert þar af leiðandi búin að snúa svo mörgu
þér í hag sem þér virtist vera þér óyfirstíganlegt síðustu mánuði. Sjálfstraustið er að blómstra og þú
heldur áfram án þess að láta annarra manna skoðanir verða þínar. Æðruleysi og pínulítið kæruleysi
gera huga þinn enn frjórri. Og um leið og þú slakar á stjórnseminni, sem er jákvætt orð því einhver
þarf að stjórna, og sleppir tökunum þá sérðu skýrar að þú færð líka það í ástinni sem hentar þér best.
Þótt það virðist vera að þú sért að taka að þér ný hlutverk í lífinu, ertu samt að græða á þeim öll-
um. Til dæmis tengsl við nýtt og spennandi fólk sem þú býður inn í líf þitt, sem hjálpar þér að verða
sá áhrifavaldur sem þú vilt sjálf verða. En þú kannt of oft ekki að meta hversu klár þú ert og hristir
bara höfuðið þegar aðrir skjalla þig. Segðu bara takk þegar þú sérð hvernig draumar þínir eru að
verða að veruleika. Og einhvernveginn er það þannig að þetta ár virðist færa þér uppsprettu af svo
mörgu sem styrkir þig í að verða sú persóna sem þú vilt vera.
En þótt þú hafir allt þetta er alveg skýrt að þú þarft að endurmeta hverjar þínar fyrirmyndir eru.
Til dæmis að velja þrjár manneskjur sem hafa þann karakter sem þú lítur upp til, því þá sogast til
þín frá þeirri uppsprettu þeir hæfileikar sem þú sérð í þeim og þeim sem þú vilt skapa sjálfa þig í.
Þú finnur að þú hefur óþrjótandi kraft, nýttu þér það til þeirra verka sem þú vilt framkvæma, því
ekkert er þér ómögulegt.
Óþrjótandi kraftur
VOGIN | 23. SEPTEMBER - 22. OKTÓBER
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.11. 2020
Knús og kossar
Elsku Nautið mitt, það er fullt tungl í þínu blessaða merki hinn 31. október.
Þann dag og næstu daga á eftir er svo mikilvægt að þú náir þér í tunglskin. Vandamál leysast, þú
vekur athygli þar sem þig vantar að láta til þín taka. Og þú finnur svo sterkt og skýrt hvað þú get-
ur vel tjáð þig og þú ert ein heild við vini þína, veröldina og fjölskylduna.
Það eina sem kemur í mínus er þrjóskan og letin. Svo fleygðu þessum tveimur ókostum í ruslið
og þá breytist það sem þú vilt breyta.
Það eru góðir samningar eða verkefni í nánd, það er pottþétt, þar sem hreinskilni er allt sem
þarf. Þetta er líka sérstaklega fagurt og gott tímabil fyrir þig til þess að byrja samband sem teng-
ist ástinni og styrkja öll andleg tengsl.
Þú ert persóna sem þarf öryggi og að hafa allt á hreinu, annars þyrlast vanmáttur yfir þig. Ég
er svo heppin að vera í þessu merki og ég eyddi mörgum dögum í síðasta mánuði í kvíða og
áhyggjur yfir peningum, ég vorkenndi mér. En þegar okkur líður svona er alveg sama hvort þú
átt engan eða mikinn pening, því þá rignir áhyggjum yfir þig um að þú missir það sem þú hefur.
Ég er komin á beinu brautina og hef engar áhyggjur, því ég veit að um leið og ég sleppi óttan-
um og trúi að ég fái það sem mig vantar, þá gerist það.
Þú ert á svo mikilvægu tímabili til að magna upp það sem þú trúir á. Láttu ekki blekkjast af
kvíða og ótta gærdagsins. Því dagurinn í dag og þessi bjarti tími sem er að leiða þig út árið sendir
þér óvæntar gjafir, í því eru peningar tengdir. En óttinn getur fælt frá það sem þú átt skilið.
Þetta er einn sá merkilegasti mánuður sem þú ert að fara inn í og umbreytingin er nú þegar byrj-
uð.
Umbreytingin er hafin
NAUTIÐ | 20. APRÍL 20. MAÍ
Elsku Krabbinn minn, núna er tímabil þar sem þú ert að taka ákvarðanir og það
er svo sterkur máttur yfir því. Þú sættir þig við breytingar, því að sálin þín er svo sterkur skapari og
hún skapar alltaf eitthvað nýtt. Þegar einar dyr lokast þá munu svo sannarlega margar dyr opnast
fyrir þér. Þótt þér finnist að hin dásamlega veröld sé að stoppa þig í einhverju, þá er það bara í
stutta stund sem líður eins og örskot.
Það er svo algengt að þú hafir þurft að hafa fyrir þínu og það er svo sannarlega mikil blessun og
gerir þig bara að enn sterkari karakter. Því það er þannig að ef við fáum allt upp í hendurnar og
þurfum ekkert að leggja á okkur, þá verðum við í raun ekki ánægð með neitt.
Lífið er keppni og þú ert eini keppandinn, því þú skalt ekki bera þig saman við aðra, því þú ert
ekki þeir og þeir ekki þú.
Þú kærir þig minna um sviðsljósið og að vera miðpunktur athyglinnar. Þú ert að safna orku til að
koma öllu á réttan kjöl. Og til þess að bæta líf þitt skaltu vera eins góður og hjálpsamur og þú getur
við þá sem eru í kringum þig, hvort sem þeir eiga það skilið eða ekki.
Þegar þú stormar út úr þessu tímabili muntu fagna svo mörgu, en fyrst og fremst muntu fagna
því sem þú ert sjálfur búinn að ganga í gegnum og áorka. Ef þú finnur ekki fyrir ástinni er það bara
vegna þess að hjarta þitt er dofið og það er svolítil þreyta í huga þínum. En þú átt eftir að spenna
bogann svo hátt og skjóta beint í mark, alveg sama hvaða mynd er í huga þínum núna, elskan mín.
Taktu líka eftir því hvað fólk verður sammála því sem þú segir, svo leggðu bara hreint á borðið
hvað þú vilt og veistu hvað, þú færð samþykki. Talaðu við þá sem ráða því sem þú vilt breyta, því í
því liggur styrkur þinn.
Tími ákvarðana
KRABBINN | 21. JÚNÍ 22. JÚLÍ
Elsku Tvíburinn minn, það er svo einkennandi fyrir þig hvað þú hefur leiftr-
andi kímnigáfu og forvitni. Til þess að þú náir takmarki þínu er lykillinn einfaldlega bara að
spyrja og tengja þig við þá sem ráða, þá færðu góð svör.
Þú þrífst best í þekkingu, svo alls kyns námskeið og vinna sem færir þig nær þínum sannleika
virkjar þig svo takmarkalaust vel núna. Þú ert einn besti sögumaður sem hægt er að fá, reyndu
að nýta þér það þegar það á við. Þú átt eftir að fara af stað og það fer enginn eins hratt yfir og þú
og þú átt eftir að finna hversu spenntur þú ert yfir lífinu.
Það býr í þér merkilegur spámaður, hvort sem það tengist vökudraumi eða þér er sent í svefni.
Þetta er þinn sérstaki og rísandi hæfileiki, því þú munt taka miklu meira eftir hvað sálin er að
segja við þig.
Taktu það sem lykilatriði í nóvember að taka ákvarðanir því þá mun uppspretta alheimsins
senda þér nýjar leiðir. Þinn skemmtilegi svarti húmor gæti átt eftir að spæla einhvern þótt þú
meinir ekkert með því. Farðu þá vel með þá viðkvæmu, en þetta er bæði þinn stærsti kostur og
jafnframt ókostur. Þú býrð nefnilega yfir hinu fullkomna jin & jang sem þú getur nýtt þér í öllu
því sem er að koma til þín á næstunni.
Ástin er með eld í kringum þig, passaðu þig bara á eldinum og berðu virðingu fyrir honum, þá
gengur allt eins og smurt.
Ef þú notar innsæi þitt (það sem þú sérð inni í þér) betur, sérðu svo greinilega að hamingjan er
að banka. Slepptu þeim hindrunum sem þú hefur byggt í kringum þig til þess að finnast að þú
sért í öruggri höfn og leyfðu þér að elska, njóta, byggja upp gamla ást og fagna nýrri.
Hamingjan bankar
TVÍBURINN | 21. MAÍ 20. JÚNÍ
Elsku hjartans Ljónið mitt, þín ríkjandi pláneta er sólin og þegar þú ert á
réttu róli ertu eins og hún. En þegar þú dregur upp ský allt í kringum þig, þá sést þú ekki.
Alveg eins og þegar ský dregur fyrir sólu.
Það eina sem gæti verið að torvelda að einhverju leyti fyrir þér lífið er að nenna ekki hinu
og þessu og bíða eftir að aðrir hlaupi upp til handa og fóta og reddi málunum. En þú stjórnar
nefnilega alveg þessu tímabili sem er að koma; hvort þú viljir hafa rigningarský þar sem þú
lætur þig hverfa í annan heim. Hvort sem þetta tengist tölvuleikjum, áfengi eða öðrum ávana-
bindandi lífsstíl, þá gengur raunveruleikinn ekki upp þannig.
Gerðu meira en þú þorir og gerðu meira en þú þarft, því þá muntu skína eins sólin og
skugginn sést ekki. Þú mátt ekki láta reiði úr fortíðinni myrkva daginn þinn, hvort sem hún
er tengd atburðum eða fólki. Í hvert skipti sem þú vaknar hefst nefnilega nýr dagur og það er
dagurinn sem þú átt til að umvefja til að gleyma hinu gamla.
Alls staðar í kringum þig er að byggjast upp ljós og annað fólk er að sjá svo skýrt hvers þú
ert megnugur. Tækifærin eru eins og vindurinn, koma hratt og hverfa jafnharðan. Skoðaðu
betur þær hugmyndir sem eru þér til velsældar, því þú ert að laða að þér manneskjur sem sjá
svo skýrt að þú getur þetta.
Þú skynjar það þessa dagana að ekkert muni fella þig. En þú ert búinn að fara í gegnum
skrýtinn mánuð og átt eftir að finna hjá þér þá visku að einfalda hlutina núna í nóvember. Þú
munt laga til og henda því sem er fyrir þér, kíkja í spegilinn og sjá þú ert aðal-Ljónið og
verður alltaf.
Gerðu meira en þú þorir
LJÓNIÐ | 23. JÚLÍ 22. ÁGÚST
Þú veist hvað
þú áttt að gera.
Knús og kossar