Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.11.2020, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.11.2020, Blaðsíða 17
keppnisskákirnar, þá eru allmargar slíkar til. Síðari tíma menn geta svo farið yfir þær og kinkað kolli með skýrandanum, þegar hann segir að Fischer eða Kasparov hefðu betur leikið þessum leik en ekki þeim sem annar hvor þeirra lék í tímahrakinu. En við gleymum því ekki að lítil von er til þess að nokk- ur annar hefði leikið slíka skák gegn öflugum and- stæðingi betur í hraðskákartíma. Þótt bréfritari viti miklu minna um skák en hann vildi og enn minna um þá nástöðu, framhjáhlaup og uppnám sem veirur geta látið sakleysingja mann- heims standa skyndilega frammi fyrir, þá fullyrðir hann að miklu meira sé óþekkt í veröld veirunnar en heimsmyndinni á 64 reita skákborði, þegar þeir grúfa sig yfir það Fischer eða Kasparov og hafa hliðsjón af öllum þeim kimum sem þeir hafa per- sónulega kannað í dulheimum skákarinnar. Og í hraðskákinni við veiruna var leikið um þús- undir mannslífa, en ekki drottningar, kónga eða peð útskorin í tré. Og eftir því sem klukkan gengur á okkur sann- færumst við flest um að oft þarf að láta skeika að sköpuðu því að óþægilega algengt sé að aðeins einn leikur sé sjáanlegur í stöðunni. Vitum meira en áður, en þykjumst vita margfalt það Fyrir þúsundum ára lá kílómetraþykkur ís yfir öllu landinu. Ekki vita menn með vissu hvers vegna, en svo tók að hlýna. Þó vitum við að það voru ekki bíl- arnir. En ef það hefðu verið bílarnir og allt hitt bjástrið hefðum við sjálfsagt tekið ofan hattinn fyrir því öllu. Maðurinn hefur þörf á að vita hvers vegna eitthvað varð. Sú spurning hefur fleytt honum áfram, þótt oft hafi hægt miðað. Gjarnan var byrjað á að giska og gat þá næsti maður og helst spakari en sá síðasti komið með aðra tilgátu. Af hverju gjósa fjöll? Við vitum meira um það en áður. En hvenær gjósa þau, hvar, hversu lengi? Og af hverju gjósa þau ekki? Um það mætti spyrja Kötlu. Það er fátt um slík svör. Mjög lengi var úrlausnin sú að einhver var þar sem stóð á bak við stærstu atburði. Stundum var þá hægt að nota slíkt til gagns í stöð- unni sem þá var uppi. Minnir á þegar fróðustu menn töldu einsýnt að þegar hraun tók að renna suðvestur af þeim hafi það sýnt að goðum mislíkaði að verið væri að fikta við stjórnskipun sem þeim var sérstaklega þóknanleg. Þáverandi afneitunarmenn á Þingvöllum árið þúsund vildu ekki kaupa þá fullyrð- ingu og spurðu hverju goðin hefðu reiðst þegar hraunið þar undir þeim og allt um kring tók að renna forðum, fyrst þau tóku ergelsi sitt út svona núna. Þeir vissu að það mikla hraun rann löngu áður en fyrstu menn stigu hér á land. Það þarf ekki jarð- fræðing til að sjá að hraun eru ekki ný. Þeir heiðnu urðu eiginlega heimaskítsmát. Hrikalegustu eldsumbrot og helgur staður Okkur er flestum mjög hlýtt til sumra hrauna. Þau á Þingvöllum eru í virðulegustu heiðurssætum. En það tekur langan tíma að taka hvert og eitt hraun í sátt og þau hraun eru til sem ná aldrei vin- sældum. Jónas sagði Skjaldbreið vera „fjallið, allra hæða val“. Steinasafnarinn, náttúrufræðingurinn, skáldið góða og umfram allt Íslandsvinurinn tryggi vissi eins og þeir sem þögguðu niður í bábiljum fullyrð- ingarmanna, að Logi reiður lauk við þessar steypu- framkvæmdir. Spyrja má fræðimenn nánar út í það og þeir upplýsa að fyrir svo sem 10.000 árum hafi komið upp gos þar sem dyngjan fagra, Skjald- breiður, er nú, og þeir merkja hraunin miklu sem þá runnu inn á kort. En þeir bæta við að það hafi verið gos um svipað leyti, í dyngju sunnan við Hrafna- björg, sem Þingvallahraun rann frá, og hún mynd- aði eldborgagígaröð og hafði mest áhrif á þær fegr- unaraðgerðir sem taka flestum öðrum fram, í augum okkar margra. Þeir fróðu ljúka ágætum molum sínum með þess- um orðum: „Seinast gaus í Þingvallalægðinni fyrir 2.000 árum. Gossprungan sem þá opnaðist er norð- austan við Hengil. Þá rann Nesjahraun í Grafningi og öskugígurinn Sandey reis upp af botni Þingvalla- vatns. Eldvirkni hefur nú legið niðri á Þingvalla- svæðinu í meira en 2.000 ár, en ljóst er að einhvern tímann í framtíðinni munu hraun aftur renna.“ Og þrátt fyrir að bærilega trúgjarnir menn telji sig vita með svo sem þriggja áratuga gamalli vissu, að maðurinn stjórni nú orðið veðrinu, en geti enn grátlega lítið átt við veirur, þá verðum við hinir að láta á móti okkur að biðja þá sem mestu ráða í mannheimum og stýra þar með veðrinu í ýmsum efnum, að gera það fyrir okkur og næstu niðja að bíða með það í nokkrar aldir að leyfa Loga að veita reiði sinni útrás á ný, á fallegasta bletti jarðar. Jónas segir En þótt Jónas hefði fengið í vöggugjöf sína svo víð- áttumikla skáldgáfu og tilfinningasýn, sem hann varðveitti óskaddaða, þrátt fyrir veraldlega mót- drægni sem bugað hefði flesta, þá átti vísindamað- urinn einnig drjúgan skerf í þeirri blöndu. Það vafð- ist ekki fyrir Jónasi að þótt Logi væri heltekinn reiði sinni þá var hann í hæsta lagi verktaki í hinni miklu umbyltingu. Hver bar þá alla ábyrgð?: Hver vann hér svo að með orku? Aldrei neinn svo vígi hlóð! Búinn er úr bálastorku bergkastali frjálsri þjóð. Drottins hönd þeim vörnum veldur; vittu, barn! sú hönd er sterk; gat ei nema guð og eldur gjört svo dýrðlegt furðuverk. Bréfritari veit svo sem ekki mikið um þetta frekar en svo margt annað. En ef þessi niðurstaða dugar Jónasi, því þá ekki okkur hinum? Og svo bað hann að heilsa Það var árið 1844 sem Jónas „bað að heilsa“, í raun- inni öllu því sem íslenskt er. En hann nefndi við fuglinn góða, sem treysta mátti fyrir svona kveðju, að bæri fyrir hann engil, í peysu, með húfu og rauð- an skúf, að þá myndi hann heilsa henni sérstaklega frá sér. Nákvæmlega 100 árum síðar, 1944, kom fámenna þjóðin hans Jónasar loks saman sem frjáls þjóð og lýsti yfir, í bergkastalanum fagra, að Lýðveldið Ís- land hefði verið stofnað á ný, á þessum stað. Það má mikið vera ef ekki einmitt þá hafi svip „stúlkunnar minnar“ brugðið fyrir augu þeirra sem njóta slíkrar náðar. Jónas dó 1845, árið eftir að hann bað að heilsa. Morgunblaðið/Eggert 1.11. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.