Morgunblaðið - 06.11.2020, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2020
Björn Bjarnason, fyrrverandidómsmálaráðherra, skrifar um
hryðjuverkaógnina og viðbúnað
lögreglu hér á
landi. Hann segir
að norska lög-
reglan hafi vopnast
og verði vopnuð
næstu þrjár vikur
vegna ábendingar
frá norsku öryggis-
lögreglunni, PST,
sem greini og leggi mat á hættu.
Björn skrifar: „PST segir að tilþess kunni að koma eða sé
sannsynlig að einhver einstaklingur
sem aðhyllist öfgafullan íslamisma
ráðist á almenna borgara eða þá
sem hann telur gegna „táknrænu“
hlutverki eins og lögreglu eða her-
menn. Við árásina kunni að verða
beitt högg- eða stunguvopni eða
ökutæki.
Norska ríkisútvarpið, NRK, segir
að lögreglan bendi ekki á neina
beina ógn gegn Norðmönnum en
segi að það sem gerst hafi nýlega í
Evrópu „sé áminning um að lög-
reglan verði ávallt að taka mið af
því að til óæskilegra atvika komi“.“
Þetta er óhugnanlegt og það erfreistandi, en ekki frambæri-
legt, að halda fyrir augu og eyru
frekar en að búa sig undir óhugnað-
inn.
Björn segir markvisst unnið gegnþví að hér á landi sé aflað upp-
lýsinga á borð við þær sem PST
aflar. Það er alvarlegt og hlýtur að
kalla á umræðu á Alþingi og athug-
un meðal þeirra sem yfir þessu hafa
að segja.
Vonandi sleppa Íslendingar viðvoðaverk eins og Austurríkis-
menn, Frakkar og fleiri hafa fengið
að kynnast að undanförnu. Við get-
um þó því miður ekki gengið út frá
því.
Ófullnægjandi
viðbúnaður?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Útlit er fyrir að umferð á hringveg-
inum á þessu ári verði um 13% minni
en í fyrra séu ályktanir dregnar af
tölum frá Vegagerðinni. Í október sl.
dróst umferð á veginum umhverfis
landið saman um 21,5% sé þessi sami
mánuður í fyrra hafður sem viðmið.
Vegagerðin byggir tölur sínar á
upplýsingum úr 16 teljurum við
hringveginn. Samkvæmt þeim dróst
umferðin á Norðurlandi saman um
38% í október frá sama mánuði 2019.
Í nágrenni höfuðborgarsvæðisins er
samdrátturinn minnstur, eða um
13%. Mesti samdráttur í umferð milli
októbermánaða hingað til var 2010-
2011, 6,7%.
Af einstaka stöðum nú dróst um-
ferð mest saman á Mýrdalssandi eða
um 76%, sem er nýtt met. Búist er
við að samdráttur á þessum stað
verði 55% þegar árið verður gert
upp. Það yrði hið mesta á landsvísu
miðað við tölur úr teljurunum góðu
við hringveginn, sem er alls 1.322
kílómetrar.
Áfram helst, samkvæmt upplýs-
ingum Vegagerðar, að mest umferð
er á föstudögum. Fæstir eru á ferð
nú á laugardögum, sem áður var á
þriðjudögum. Annars hefur umferð
alla daga vikunnar minnkað í ár á
tímum Covid-19, mest á sunnudög-
um eða um 18%. sbs@mbl.is
Mun færri á ferð um hringveginn
21,5% samdráttur í október Mest
norðanlands Metið er á Mýrdalssandi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hringvegur Trukkur á suðurleið,
hér við Svignaskarð í Borgarfirði.
Jón Halldór Jónsson,
fyrrverandi forstjóri
Keflavíkurverktaka,
lést 3. nóvember síð-
astliðinn, 91 árs að
aldri.
Jón fæddist 5. júní
1929 í Reykjavík. For-
eldrar hans voru hjón-
in Jón Þorvarðarson,
kaupmaður í Verð-
anda í Reykjavík, og
Halldóra Guðmunds-
dóttir húsfreyja.
Jón nam við Verzl-
unarskóla Íslands
(1943-1945). Hann
lærði einnig skipasmíði í Iðnskól-
anum í Reykjavík og útskrifaðist
þaðan 1951. Sama ár hóf hann störf
hjá varnarliðinu á Keflavíkur-
flugvelli við uppbyggingu og eftir-
litsstörf með byggingum.
Jón tók við stöðu framkvæmda-
stjóra Byggingaverktaka Keflavík-
ur hf. 1958 og varð síðar samhliða
því starfi forstjóri Keflavík-
urverktaka frá 1963 til starfsloka
árið 2000. Keflavíkurverktakar var
öflugt alhliða verktakafyrirtæki
sem átti stóran þátt í að reisa
mannvirki innan og utan vallar, auk
þess að skapa fjölda starfa fyrir iðn-
aðarmenn á Suðurnesjum og víðar.
Jón starfaði alla tíð mikið að fé-
lagsmálum. Hann átti sæti í stjórn
Sparisjóðs Keflavíkur
og var formaður
stjórnar Sparisjóðsins
um 14 ára skeið. Hann
var fulltrúi rík-
isstjórnar Íslands í
atvinnumálanefnd
Reykjaneskjördæmis
um árabil. Auk þess
sat Jón í stjórn Iðn-
aðarmannafélags
Keflavíkur og stjórn
Hitaveitu Suðurnesja
hf. sem þá var í eigu
sex sveitarfélaga á
Suðurnesjum. Hann
sat í fræðsluráði Kefla-
víkur og var varabæjarfulltrúi í
Keflavík.
Jón var virkur í starfi
Sjálfstæðisflokksins. Var formaður
fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Keflavík og fulltrúi á landsfundum
Sjálfstæðisflokksins í áratugi.
Jón var mikill áhugamaður um
stangveiði og var m.a. leigutaki
Laxár í Kjós ásamt Páli G. Jónssyni
um 20 ára skeið og einnig Norðurár
í Borgarfirði um tíma. Hann var fé-
lagi í Lionsklúbbi Keflavíkur til
fjölda ára.
Eiginkona Jóns var Soffía Kristín
Karlsdóttir, leikkona og revíu-
söngkona, en hún lést 6. september
sl. Þau áttu 10 börn og eru afkom-
endurnir orðnir 82 talsins.
Andlát
Jón Halldór Jónsson