Morgunblaðið - 06.11.2020, Síða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2020
✝ Ólöf Odds-dóttir fæddist
á Baldursgötu 6a í
Reykjavík 12.
september 1948.
Hún lést í faðmi
ástvina sinna á
krabbameinsdeild
Landspítalans 28.
október 2020.
Foreldrar Ólaf-
ar voru Oddur
Andrésson, bóndi
Neðra-Hálsi í Kjós, f. 24.11.
1912, d. 21.6. 1982, og kona
hans Elín Jónsdóttir, f. 29.6.
1921, d. 26.12. 2010. Systkini
Ólafar eru Ágústa, f. 1947, Val-
borg, f. 1950, d. 2019, Ólafur, f.
1951, Kristján, f. 1954, og Lilja,
f. 1960.
Ólöf eignaðist soninn Arnar
21.11. 1970 og er faðir hans
Páll Árnason tæknifræðingur.
Páll er búsettur Kaupmanna-
höfn og er kvæntur Kristínu
Önnu Einarsdóttur. Arnar er
kvæntur Sólveigu Sif Halldórs-
dóttur, f. 18.7. 1971, og eiga
þau börnin Þorgeir, f. 5.6.
2001, Áshildi, f. 18.12. 2007, og
Teit, f. 23.12. 2010. Arnar er
prófessor við Líffræðistofnun
Háskóla Íslands og Sólveig
Kjósarhrepps. Haustið 1976
flutti Ólöf aftur til móður sinn-
ar, vann einn vetur á fraktskipi
en skráði sig svo í Öld-
ungadeild Menntaskólans við
Hamrahlíð. Meðfram náminu
vann hún hjá póstinum. Að
stúdentsprófi loknu nam hún
meinatækni (lífeindafræði) í
Tækniskóla Íslands. Að námi
loknu réðst hún til starfa sem
meinatæknir á sýkladeild
Landspítalans þar sem hún
vann óslitið til starfsloka. Ólöf
var ræktarsöm við ættingja og
vini og hafði mörg áhugamál,
eins og hannyrðir, andleg mál-
efni og heilsufæði. Það sem
fangaði huga hennar mest og
lengst var ræktun og tengt því
moltugerð og náttúrvernd al-
mennt. Hún hafði góða aðstöðu
til garðræktar á Neðra-Hálsi
auk þess sem hún og systkini
hennar reistu þar gróðurhús.
Slík aðstaða, og innhlaup í
Dalsgarði í Mosfellsdal, gerðu
henni kleift að gera margskon-
ar tilraunir með ræktun mat-
jurta, berjarunna og trjáa og
síðustu ár sérstaklega ávaxta-
trjáa.
Útförin fer fram frá Linda-
kirkju í dag, 6. nóvember 2020,
klukkan 15. Aðeins nánustu að-
standendur verða viðstaddir,
en athöfninni verður streymt á
https://www.lindakirkja.is/utfarir/
vinnur við Rann-
sóknastofnun í
lyfja- og eitur-
efnafræði við Há-
skóla Íslands.
Ólöf ólst upp á
Neðra-Hálsi í Kjós,
þar sem næg verk-
efni voru alla daga,
bæði í leik og
starfi. Á sömu torf-
unni bjuggu þrjár
barnmargar fjöl-
skyldur. Föðuramma hennar,
Ólöf Gestsdóttir, var einnig til
heimils á Neðra-Hálsi og voru
þær nöfnurnar mjög tengdar.
Á unglingsárum vann hún þrjú
sumur í mötuneyti Hvalstöðv-
arinnar. Hún lærði við Hús-
mæðraskólann á Varmalandi
veturinn 1966-67 og eignaðist
þar góðar vinkonur, sem mynd-
uðu frábæran saumaklúbb fyrir
lífstíð. Veturna 1968-1970 vann
hún í Sútunarverksmiðju SS
við Grensásveg og bjó þá á
heimili móður sinnar í Fells-
múla 8 ásamt fleiri systkinum
sínum. Eftir fæðingu sonarins
flutti Ólöf aftur að Neðra-Hálsi
vorið 1971 og vann á heimilinu
og við búskapinn, en einnig í
mötuneyti Ásgarðs, barnaskóla
Á sama tíma og síðustu lauf-
blöð sumarsins féllu af trjánum
kvaddi Ólöf tengdamóðir mín
þennan heim. Hin ýmsu form
ræktunar voru henni ætíð
hjartfólgin.
Undanfarinn áratug var það
ávaxtatrjárækt sem átti hug
hennar. Hún safnaði fróðleik
um og ræktaði mismunandi
yrki, hvernig best væri að
sinna þeim, hvaða aðstæður
voru bestar fyrir hvert fyrir
sig. Hún sinnti ávaxtatrjánum
af mikilli alúð og jafnan spennt
yfir uppskerunni. Hverju kirsu-
beri, epli og plómu var fagnað,
einu gilti hve stór uppskeran
var, öllu deildi Ólöf með fjöl-
skyldu sinni.
Önnur gerð ræktunar sem
Ólöf sinnti af mikilli elju var
fjölskyldurækt. Barnabörnin
heimsótti hún mjög reglulega,
iðulega með eitthvað í fartesk-
inu fyrir þau s.s. ávexti eða
grænmeti úr sveitinni, barna-
blöðin sem hún hafði kippt úr
dagblöðunum og ófá voru þau
vettlingapörin sem hún prjón-
aði og kom með fyrir þau.
Fallegar peysur og húfur
prjónaði hún á þau sem allt
kom að góðum notum. Ef hún
hafði ekki tök á að koma
hringdi hún og vildi fá að heyra
hvað var að gerast, hún fylgdist
vel með hvað hver var að gera
og jafnvel vinum þeirra líka.
Áhugi Ólafar var mikill á
jarðfræði, þó sér í lagi hér-
lendis. Fylgdist hún að jafnaði
spennt með öllum fréttum af
jarðhræringum hvers lags,
jarðskjálftum jafnt og eldgos-
um. Hennar einstaka minni
kom berlega í ljós þegar rætt
var um slík málefni, ártöl og
nákvæmar staðsetningar gat
hún ávallt lagt fram í þeim efn-
um. Aldrei kom maður að tóm-
um kofum þar.
Frumleiki, kærleiki, listfengi
en umfram allt sjálfstæði Ólaf-
ar er það sem ég mun mest
sakna. Ömmu Ó er sárt saknað
en góðar minningar hjálpa við
að deyfa söknuðinn.
Sólveig.
Ólöf systir kvaddi okkur í
síðustu viku eftir harða baráttu
við illvígan sjúkdóm um nokk-
urt skeið.
Eins og hún vissi í hvað
stefndi þegar hún lét lítið fara
fyrir veikindum sínum á meðan
Valborg systir okkar barðist
við sín veikindi fyrir rúmu ári
sem endaði með ótímabæru
andláti hennar.
Hörkutólið hún Ólöf fór
hljóðlega í gegnum sín veikindi
og vildi helst ekkert að aðrir
vissu um þau og alls ekki að
hafa áhyggjur af sér og sinni
heilsu. Þannig hafði hún verið
alla tíð, sjálfstæð, hugrökk,
glaðlynd, fyndin, dugleg, hug-
myndarík, skapandi og stöðugt
gefandi öllu og öllum í kringum
sig. Þegar á reyndi í fjölskyld-
unni bjó hún til félagslegan far-
veg, m.a. með þorrablótunum,
og var fyrirmynd annarra með
ræktun sinni við gamla bæinn á
Neðra-Hálsi með grænmetis-
rækt, berja- og ávaxtarækt.
Andleg málefni voru okkar
sameiginlega áhugamál og fleiri
í fjölskyldunni þótt við höfum
ekki talað mikið um þau mál
enda eitt af grundvallaratriðum
andlegrar ræktunar að missa
ekki kraftinn í kjaftæði.
Þeirri reglu fylgdi hún alla
leið alveg til þeirrar stundar
þar sem ég sat hjá henni við
dánarbeðinn kvöldið sem hún
kvaddi.
Hún hafði haft á orði fyrir
skömmu að best væri að „taka
flugið“ fljótlega! Ólöf lagði
megináherslu á að gera hluti
sem skiluðu árangri og upp-
skeru fyrir aðra. Að gefa var
gleði hennar og uppskera.
Grænmeti, ber, ávextir og fróð-
leiksmolar voru í gjafakörfun-
um sem hún færði fólki í fjöl-
skyldunni og vinum.
Það má lengi telja upp hæfi-
leika Ólafar og kosti. Fjölhæfni
hennar var einstök. Hún hafði
áhuga á tónlist, jarðfræði, ætt-
fræði, efnafræði, jaðarstjórn-
málum, alþjóðastjórnmálum,
umhverfismálum, heimspeki,
matargerð, körfugerð, tálgun,
útskurði, vefnaði, plöntulíf-
fræði o.fl.
Ólöf var reynitré samkvæmt
fornri trjáspeki Kelta. Það lýs-
ir henni vel þar sem hún var
hörð af sér og höggþolin og
brotnaði ekki þrátt fyrir ágang
og mótlæti. Hún gaf flugunum
sætu með blómum sínum að
vori og þröstunum fóður til að
komast yfir hafið um haustið.
Elsku Ólöf. Takk fyrir allar
ræktunarleiðbeiningarnar,
plöntugjafirnar, ráðgjöfina og
stuðning í ávaxtaræktinni. Við
Eygló söknum þín og sjáum
eftir því að hafa ekki stuðlað að
enn fleiri samverustundum
þótt þær hafi nú verið all-
nokkrar og góðar í seinni tíð.
Við sóttum skreytingarefni
þér til heiðurs í Djúpurðar-
skóginn fyrir neðan hrúta-
berjabrekkuna sem þú elskað-
ir. Friður fylgi þér.
Elsku Arnar, Sóla, Þorgeir,
Áshildur og Teitur. Við vottum
ykkur innilega samúð og von-
um að við getum verið ykkur
stuðningur.
Ólafur og Eygló.
Ég vil gjarnan lítið ljóð
láta af hendi rakna.
Eftir kynni afargóð
ég alltaf mun þín sakna.
(Guðrún V. Gísladóttir)
Skjótt skipast veður í lofti.
Hún Ólöf systir mín er látin.
Enn eitt skarðið hefur nú verið
höggvið í systkinagarðinn. Ólöf
átti við lasleika að stríða síð-
asta árið en enginn bjóst við
svo snögglegu brotthvarfi eins
og raunin varð á. Þegar horft
er til baka um farinn veg þá
eru það ekki bara verkin sem
tala og standa eftir, heldur
ekki síst samskiptin og sam-
ræðurnar sem upp koma í hug-
ann frá liðnum árum. Ólöf var
næstelst systkina minna og það
kom í hennar hlut að sjá um
heimilið á Neðra-Hálsi þegar
heilsa Elínar móður okkar
brást á mínum uppvaxtarárum.
Við þurftum því að komast í
gegnum lífið bæði þunnt og
þykkt saman ásamt öðrum fjöl-
skyldumeðlimum. Ólöf stóð sig
frábærlega vel í því að hugsa
um börn og buru eins og þar
stendur, sá um matseld og þrif
og annað það sem gott heimili
kallar á á hverjum tíma. Sú að-
stoð og umhyggja stóð langt
fram á mín unglingsár. Fyrir
það er ég þakklátur. Ólöf var
góður félagi og hafði áhuga á
svo mörgu. Hún var sjaldan
fyrir sig. Í seinni tíð var það
sonurinn og tengdadóttir
ásamt barnabörnum sem voru
hennar ær og kýr. Sem dæmi
þá setti hún niður í gróðurhús-
ið bláberja-, hindberja- og
brómberjarunna og jarðar-
berjaplöntur svo barnabörnin
gætu notið ávaxtanna.
Það sem okkur fór mest á
milli á fyrri tíð var umræða um
ræktun en hún var ræktandi af
lífi og sál. Segja má að hún hafi
verið frumkvöðull að því á
Neðra-Hálsi að byrja að planta
trjám til skjóls til ræktunar
grænmetis heim við bæ, en
faðir okkar Oddur (sem var
mikill frumkvöðull í ræktun
trjáa) fór iðulega með krakka-
skarann á Hálsbæjunum upp í
fjall fyrir ofan bæinn til að
planta trjánum þar, en það var
gert til að reyna þol og gæði
trjáplantna við íslenskar að-
stæður á þeim tíma. Þar byrj-
aði áhuginn fyrir trjáræktinni
hjá systkinahópnum. Síðan
hefur trjám verið plantað í
miklum mæli að Neðra-Hálsi
til að skapa skjól í hagnýtum
tilgangi. Það var ekki bara
ræktunin og það að hafa hana
lífræna sem upp úr stóð í okk-
ar samskiptum, heldur var það
sameiginlegur áhugi okkar á
andlegum málefnum sem var
rauði þráðurinn í okkar sam-
skiptum alla tíð. Fyrir það vil
ég líka þakka. Hið eilífa samtal
sem aldrei slitnaði og enginn
skuggi féll á. Í því ljósi kveð
ég Ólöfu systur. Við Dóra vott-
um Arnari og Sólu ásamt börn-
um innilega samúð.
Kristján og Dóra.
Töffarinn er farinn yfir í
sumarlandið.
Síðasta árið var erfitt ár en
það var gott að við systurnar,
Ólöf og Ágústa og ég, gátum
setið saman og fagnað lífinu
hinn 8. október á dánardegi
Valborgar, grunlausar um að
dagurinn væri upphafið að
endinum hjá Ólöfu.
Við Ólöf tengdumst sterkum
böndum á margan hátt. Hún
fékk til dæmis það hlutverk
eins og flest eldri systkini mín
að hugsa um mig, litla barnið.
Ólöf var sú af systrunum sem
lengst og mest sá um heimilið í
sveitinni. Allt fram á síðasta
dag var sveitin stór hluti af lífi
hennar, þar sem hún og litla
fjölskyldan sáu alla tíð um
ræktun í garðinum við gamla
húsið. Við systurnar vorum
líka samstiga í að rækta ávexti
í gróðurhúsinu með Dóru og
Kidda, það var ánægjulegt og
gjöfult samstarf.
Ólöf var með algræna fingur
og hafði sérstaka tengingu við
jörðina sem lýsti sér vel í líf-
rænu ræktuninni og safn-
haugagerð. Hún gat dundað
sér í gróðurhúsinu við að sigta
mold eða blanda húsdýra-
áburði og moltu saman í hina
fullkomnu blöndu fyrir garðinn
og ávaxtatrén. Gróðurhúsið
var henni sem annað heimili,
sérstaklega eftir að hún hætti
að vinna.
Hún var líka meistari í
flokkun á rusli og þar slógu
hjörtu okkar saman.
Ólöf skildi hve dýrmætt allt
hráefni er og að ekki væri til
neitt sem héti rusl og alls ekki
réttlætanlegt að úrgangi væri
fleygt út í náttúruna eða því
sóað í heimilissorpi.
Þessi sterka löngun til að
hlúa að náttúrunni birtist mér
sem hluti af hennar andlegu
leið. Ólöf var líka mikill heilari
og hafði náttúrulegar leiðir í
hávegum. Ég lærði náttúru-
lækningar fyrst hjá Ólöfu.
Hún var alltaf að miðla, alla
tíð að bera í mann bækur og
fróðleik og fyrstu bækurnar
voru eftir lækninn og sjáand-
ann Edgar Cayce, sem kenndi
okkur um lífolíu og laxerol-
íubakstur.
Ólöf var sinn eigin læknir og
þannig vildi hún hafa það. Hún
var sjálfstæð og elskaði frelsið.
Það var því erfitt að missa
hæfnina til að sjá um allt sjálf,
að keyra um á sínum bíl og
hafa sína hentisemi.
Ég er þakklát fyrir tímann
saman síðasta árið heima og á
sjúkrabeði. Við gátum spjallað
þótt krafturinn væri þverrandi
fyrir krefjandi lausnir eins og
krossgátur eða skrafl, sem hún
hafði alltaf mjög gaman af að
gera og viðhéldu skerpunni
sem var hennar aðalsmerki.
Ólöf var ekki aðeins klár í koll-
inum, hún var líka flink í hönd-
unum og málaði á silki, fléttaði
körfur og saumaði bútasaum
svo eitthvað sé nefnt. Allt
handverk var henni auðvelt og
á sama hátt lék matar- og
kökugerð í höndum hennar,
enda var hún fullgild húsmóðir.
Þegar heilsan brást var ekki
svo gaman lengur, það var leið-
inlegt!
Það er stórt skarðið í fjöl-
skyldunni eftir systur mínar
tvær sem kvöddu á einu ári.
Skarðið er þó enn stærra
fyrir litlu fjölskylduna hans
Arnars og börnin þrjú sem
missa ömmu sína. Við fjöl-
skyldan sendum þeim okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Við syrgjum elsku Ólöfu en
gleðjumst líka yfir frelsinu sem
hún hefur nú vonandi fundið á
ný.
Lilja Oddsdóttir
og fjölskylda.
Það er okkur þungbært að
kveðja hana Ólöfu vinkonu
okkar í dag. Það er komið fram
í nóvember og við ekki getað
haldið saumó enn. Veiran hefur
sett strik í reikninginn og við
allar í einhvers konar áhættu-
hópi.
Mikið vorum við nú heppnar
að fara í húsmæðraskólann á
Varmalandi haustið 1966. Við
komum þangað úr ýmsum átt-
um. Við Ólöf rifjuðum það oft
upp þegar við hittumst þarna í
kjallaranum og áttuðum okkur
á að við þekktumst úr sveitinni
okkar, en höfðum ekki hist oft.
Við áttum þarna skemmtilegan
tíma, 40 hressar stelpur, og
margt brallað sem ekki fer á
prent. Um vorið lágu leiðir
okkar í ýmsar áttir við vinnu
og meira nám. Þar sem við vor-
um dreifðar um landið tóku
bréfaskriftir við því það kost-
aði skildinginn að hringja milli
landshluta. Við tóku svo ásta-
mál og barneignir. Ólöf eignast
Arnar, klárar meinatækninám
og starfaði við það. Við byrjum
svo að halda reglulega sauma-
klúbba kringum 1970 en þá bjó
Ólöf í Fellsmúlanum og við
mættum þangað. Hún var allt-
af mikið í sveitinni, ræktaði
mikið þar og hlúði að gróðr-
inum. Það var gott að getað
leitað til hennar með ráð við
ræktun, fengið græðlinga og
fræ. Einnig benti hún okkur
oft á góð ráð varðandi heilsuna
sem bæta mátti með góðum
jurtum og olíu.
Ólöf ferðaðist töluvert til
Arnars þegar hann var við nám
í Bandaríkjunum og naut þess
að vera með þeim og barna-
börnunum. Hún var mjög stolt
af þeim, fannst gott að fá þau
heim en þau settust að í Vest-
urbænum. Hún bjó að vísu í
Kríuhólum svo það var spotti á
milli en þá stundum styttra
þaðan í saumó og hann tekinn í
leiðinni.
Þar var ýmislegt á prjón-
unum, fyrst á börnin, svo
barnabörnin og sumar komnar
í langömmubörnin. Heilsan fór
að versna verulega fyrir um
ári, við áttum þó nokkrar góðar
stundir saman og gat hluti af
saumaklúbbnum hist í Laug-
ardalnum tvisvar í góða veðr-
inu í sumar og voru það mjög
notalegar stundir.
Hugur okkar er nú hjá
Arnari, Sólveigu og börnunum
sem missa svo mikið og voru
svo natin við mömmu og
ömmu. Þeirra missir er mikill
og sendum við þeim innilegar
samúðarkveðjur og þökkum
Ólöfu allt sem hún var okkur.
Blessuð sé minning hennar.
Nú eruð þið ansi margar
komnar þarna yfir um og orðið
vel saumaklúbbsfært. Þið mun-
uð svo taka vel á okkur hinum.
Fyrir hönd saumaklúbbsins,
Helga Einarsdóttir.
Ólöf Oddsdóttir
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
SIGURRÓS BALDVINSDÓTTIR,
Miðbraut 18, Seltjarnarnesi,
lést á hjartadeild Landspítala laugardaginn
31. október.
Útförin auglýst síðar.
Fyrir hönd barnabarna og langömmubarna,
Guðrún Íris Þórsdóttir Ásgeir Ásgeirsson
Baldvin Þórsson Ingibjörg Jóhannsdóttir
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
JÓN HALLDÓR JÓNSSON,
fv. forstjóri Keflavíkurverktaka,
Kópubraut 20, Njarðvík,
lést á Landspítalanum Fossvogi
þriðjudaginn 3. nóvember.
Útför verður auglýst síðar.
Björg K.B. Jónsdóttir Óðinn Sigþórsson
Kristín G.B. Jónsdóttir Þórólfur Halldórsson
Jón H. Jónsson
Karen H. Jónsdóttir Vilhjálmur S. Einarsson
Dagný Þ. Jónsdóttir
Halldóra V. Jónsdóttir
Ragnheiður E. Jónsdóttir Marco Mintchev
afabörn og langafabörn
Móðir okkar, amma, langamma og
langalangamma,
EMELÍA KRISTBJÖRNSDÓTTIR
frá Vorsabæ, Skeiðum,
lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum,
Selfossi, þriðjudaginn 27. október.
Útförin fer fram frá Ólafsvallakirkju laugardaginn 7. nóvember
klukkan 14. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða aðeins
nánustu aðstandendur viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni
á þessari slóð: https://promynd.is/live/
Valgerður Jónsdóttir
Eiríkur Jónsson Hulda Nóadóttir
Björn Jónsson Stefanía Sigurðardóttir
Ingveldur Jónsdóttir Guðmundur Ásmundsson
ömmubörn, langömmubörn
og langalangömmubarn