Morgunblaðið - 06.11.2020, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 06.11.2020, Qupperneq 27
Mínir vinir fara fjöld, feigðin þessa heimtar köld, eg kem eftir, kannski í kvöld, með klofinn hjálm og rofinn skjöld, brynju slitna, sundrað sverð og synda- gjöld. (Bólu-Hjálmar) Frændi minn og æskufélagi Valdi í Látrum er fallinn í valinn. Við andlát hans fyllist hugur minn söknuði og angurværð en jafnframt þakklæti fyrir allar góðu minningarnar, ekki síst frá æskuárum okkar heima í Breiða- fjarðareyjum. Við erum fæddir og uppaldir hvor í sinni eyju, Hvallátrum og Skáleyjum, hann tæpu ári eldri. Móðir mín og faðir hans voru systkinabörn og jafn- framt fóstursystkini, eftir að Daníel (þá ekkjumaður), afi Valda, drukknaði frá stórum barnahóp. Þar af leiðandi var mikil vinátta alla tíð milli heim- ilanna í Látrum og Skáleyjum. Á æskuárum okkar var ennþá blómlegt líf í eyjunum. Ekki man ég hvenær ég uppgötvaði tilveru frænda míns í Látrum en með að- stoð eldri systkina fóru snemma að berast myndir og gjafir okkar á milli. Börn voru ekki að ferðast á milli eyja fyrir skólaaldur á þessum árum. Þó man ég eftir að hafa verið yfir nótt í Látrum þeg- ar við Valdi vorum u.þ.b. sjö ára. Hann var bráðþroska, fluglæs og atgervismeiri til sálar og líkama en ég. Las fyrir okkur upphátt úr barnabók er við vorum háttaðir í sama rúm í herbergi hjá foreldr- um hans. Tíu ára fer ég í barnaskóla í Flatey. Þá er Valdi búinn að vera þar veturinn áður og orðinn sjó- aður í stórborginni Flatey. Valdi var góður námsmaður og fór létt í gegnum námið. Húmoristi var hann og fundvís á spaugilegu hliðarnar á mannlífinu og gat brugðið sér í gervi annarra, oft með góðum árangri. Eitt vorið á unglingsárum okkar fórum við um tíma á skak með nafna hans Stefánssyni úr Stykkishólmi. Valdi var þar afkastamikill og sjóhraustur. Hann fór á vertíð- arbát frá Stykkishólmi með Gústa P. og í síldarleit á togar- anum Þorsteini Þorskabít með Jóni Einarssyni skipstjóra frá Flatey. Þessi tími Valda hefur verið honum minnisstæður því oft í seinni tíð vitnaði hann í veru sína á „Bítnum“. Veturinn 1962 var Aðalsteinn bróðir Valda að ljúka smíði á 7 tonna bát fyrir Svefneyjafeðga. Við Valdi vorum með honum í þessu ásamt Nilla, öðrum kaup- andanum. Valdi lærði svo báta- smíði hjá Steina bróður sínum í Látrum. Í Iðnskólanum í Reykja- vík vorum við aftur samferða. Leigðum saman herbergi í tvo vetur og stunduðum námið og skemmtanalífið af kostgæfni. Stundum er sagt í gamni og ofur- lítilli alvöru að í genum eyjafólks- ins væri mikið um þverhausa og þrákálfa og erfitt að hrekja þá af leið í skoðunum. Við Valdi vorum ekki alltaf sammála á þessum ár- um. En ekki minnist ég þess að við eyddum tíma okkar í þras, enda lífið skemmtilegt. Valdi vann ekki lengi við iðngrein sína. Hann gerðist snemma lögregluþjónn í Kópavogi og vann sig þar upp í yfirmannsstöður. Þegar mitt tímaglas er tómt, trúi ég að Valdi standi á ströndu og hafi gert sjóklárt. Þessi minn- ingabrot eru hvorki fugl né fiskur af æviferli Valda en létta aðeins á huga mínum við upprifjun. Elsku Alla. Henný, ég og okk- ar fjölskylda vottum þér og ást- vinum ykkar einlæga samúð. Ólafur Gíslason. Rödd vinar er þögnuð. Valdimar Jónsson lést á heim- ili sínu þann 23. október sl. eftir erfið veikindi. Valdimar var fæddur að Hvallátrum í Breiða- firði þann 24. nóvember 1943. Foreldrar Valdimars voru Jón Daníelsson og Jóhanna Friðriks- dóttir. Valdimar var yngstur systkina sinna og ólst upp við öll þau störf sem fylgdu því að búa á eyju. Hagleiksbátasmiðir voru í Hvallátrum og voru þar smíðaðir margir bátar. Snemma tók Valdi- mar þátt í þeim verkum og varð það til þess að hann lærði skipa- smíðar síðar. Valdimar var tví- kvæntur og eignaðist dæturnar Jóhönnu og Önnu, með Sigríði Jónsdóttur. Dæturnar Halldóru og Margréti eignaðist Valdimar með seinni eiginkonu sinni Aðal- heiði Halldórsdóttur. Örlögin höguðu þó því þannig að ævistarf Valdimars varð ekki við skipasmíðar heldur við lög- gæslustörf. Hann hóf störf hjá lögregluliði Kópavogs 1. jan. 1967. Kynni okkar Valdimars hófust í janúarbyrjun árið 1970, þá var Valdimar að fara til að ljúka síðari önn lögregluskólans. Var á þeim tíma auglýst afleys- ingarstaða laus hjá lögreglunni. Ég sótti um afleysingarstöðuna og fékk. Sigurgeir Jónsson bæjarfógeti í Kópavogi hefur séð kosti og hæfileika í Valdimari, en hann varð snemma varðstjóri. Þægi- legt var að vinna undir stjórn Valdimars því hann hafði þægi- legt viðmót, þekkingu og gott vald á starfi sínu. Er staða aðstoðaryfirlögreglu- þjóns í Kópavogi losnaði var Valdimar ráðinn til að gegna henni, sem hann gerði í nokkur ár. Vinnuaðstaða lögreglu Kópa- vogs var mjög góð og sama má segja um starfsandann. Eftir nokkur ár sem Valdimar hafði starfað sem aðstoðaryfirlög- regluþjónn losnaði staða yfirlög- regluþjóns og hlaut Valdimar þá stöðu. Yfirlögregluþjónninn stýrði lögregluliði Kópavogs sem fyrr, með sínu þægilega viðmóti og góðu valdi á ábyrgðarmiklu starfi sínu. Breiðfirðingurinn Valdimar vissi að sjómenn er sigldu þönd- um seglum um Breiðafjörð gátu átt það á hættu að upp risu brotsjóir er riðu á bát þeirra og menn gátu orðið hraktir og velkt- ir. Brot af mannavöldum umvafið pólitík reið yfir Valdimar og lög- regluliðið í Kópavogi, þar dugðu hvorki þægilegt viðmót yfirlög- regluþjóns, né gott vald hans á starfi sínu. Endalok þessa óheillamáls féllu þungt á Valdi- mar. Þær urðu ófáar heimsóknir mínar á myndarlega heimili þeirra Valdimars og Aðalheiðar í Hafnarfirði, þar sem ljúft var heim að sækja. Það duldist aldrei hversu sterkar rætur átthaginn í Breiðafirði átti í Valdimari. Í janúar 1967 afhenti bæjar- fógetinn í Kópavogi, Sigurgeir Jónsson, Valdimari gylltan og fagran lögregluskjöld sem hon- um bar að bera við störf. Aldrei féll blettur á lögregluskjöld Valdimars Jónssonar. Löggæsla varð ævistarf okkar beggja. Blessuð sé minning Valdimars Jónssonar. Eðvarð L. Árnason. Kæri vinur. Ég kynntist þér fyrst árið 1980 þegar ég hóf störf hjá lögreglunni í Kópavogi. Þau kynni leiddu til þess að við urðum vinir ævilangt. Ég minnist þín sérstaklega fyrir hvernig þú komst fram við mig er ég átti í erfiðleikum í einkalífinu 1987. Ég minnist þess líka þegar við sam- starfsmenn þínir nær einhuga völdum þig til að taka við starfi yfirlögregluþjóns í Kópavogi, sem gekk eftir. Þú varst hógvær og yfirvegað- ur yfirmaður með mikla réttlæt- iskennd. Ég veit að ég flyt þér kveðju margra samstarfsmanna þinna. Minning þín lifir. Alla mín og fjölskylda, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Lárus Ragnarsson. MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2020 ✝ ÞorsteinnGrétar Sig- urðsson fæddist í Reykjavík 27. ágúst 1932. Hann lést á Landspít- alanum Fossvogi 28. október 2020. Foreldrar hans voru Sigurður Sig- urðsson kaup- maður, f. 17. júní 1891, d. 12. júní 1951, og Þórey Þorsteinsdóttir kaupkona, f. 6. júlí 1901, d. 29. janúar 1981. Systkini Þorsteins eru: Sig- ríður Gyða myndlistarkona, f. 13. desember 1934, d. 29. nóv- ember 2002. Maki Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri á Sel- tjarnarnesi, f. 14. desember 1934, d. 3. október 2017. Börn þeirra eru Margrét, f. 30. des- ember 1956, Sigurður, f. 10. október 1958, og Þór, f. 7. apríl 1967. Garðar kaup- maður, f. 1. mars 1937. Maki Hulda Guðrún Guðráðsdóttir, f. 23. febrúar 1938, d. 17. október 1999. Börn þeirra eru: Rannveig Lilja, f. 2. apríl 1957, Sigurður, f. 18. janúar 1961, og Þórey, f. 21. október ir átti Helga soninn Kristján Helgason, starfsmaður Eim- skips, f. 1. maí 1957. Maki Hólmfríður Ásta Bjarnason, f. 19. febrúar 1962, d. 29. apríl 2004. Þorsteinn hóf ungur að að- stoða Þóreyju, móður sína, við rekstur verslunar fjölskyld- unnar á Snorrabraut 69, Þor- steinsbúð. Hann tók virkan þátt í rekstrinum og starfaði þar stóran hluta starfsævi sinnar eða allt til ársins 1982 er ákveðið var að hætta rekstrinum. Hóf hann þá störf í Landsbankanum, Laugavegi 77 og starfaði þar við almenn skrifstofustörf út sína starfs- ævi. Þorsteinn var virkur með- limur í Kiwanisklúbbnum El- liða og gegndi þar ábyrgð- arstöðum og var hann meðal annars forseti Elliðaklúbbsins eitt starfsárið. Hann varð þeirrar gæfu að- njótandi að búa við góða heilsu mestallt sitt líf, en síð- ustu misserin átti Þorsteinn við alvarlegan heilsubrest að stríða. Hann dvaldi um tíma á Landspítalanum í Fossvogi og síðan á Landakoti. Útför Þorsteins fer fram frá Árbæjarkirkju í dag, 6. nóv- ember 2020, klukkan 14.30. Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu verða einungis nánustu að- standendur viðstaddir. 1969. Þorsteinn átti hálfsystkini af fyrra hjónabandi föður hans. Þorsteinn giftist 15. júní 1968 Helgu Kristjáns- dóttur, f. 4. októ- ber 1930, d. 15. mars 2011. For- eldrar: Kristján Jónsson, f. 1. júní 1870, d. 5. október 1946, og Kristín Þorkelsdóttir, f. 8. ágúst 1891, d. 9. desem- ber 1982. Synir Þorsteins og Helgu eru: 1) Sigurður Þórir kennari, f. 15. febrúar 1968. Maki Hildur Hrönn Odds- dóttir, sérfræðingur hjá Menntamálastofnun, f. 27. júní 1973. Börn þeirra eru: Erna Þórey, f. 4. september 2004, og Eiður Þorsteinn, f. 5. des- ember 2006. 2) Halldór Örn kennari, f. 22. mars 1969. Maki Lilja Björg Sigurjóns- dóttir ljósmóðir, f. 2. október 1977. Börn þeirra eru: Alex- andra Mist, f. 26. september 1998, Helga Karen, f. 9. sept- ember 2008, Emma Sóley, f. 11. desember 2009, og Ísak Logi, f. 12. febrúar 2016. Fyr- Elskulegur afi okkar dó úr Covid 19 á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 28. október eftir hópsmit á Landa- koti. Okkur fannst alltaf mjög gaman og gott að heimsækja afa í Þorláksgeisla 1. Hann bjó einn þar síðustu níu ár eftir að amma Helga dó. Þegar við komum til hans átti hann alltaf súkkulaði, flögur og gos. Okkur fannst grjónagraut- urinn hans líka mjög góður. Honum fannst líka mjög gaman að horfa á teiknimyndir með okkur, Andrés önd var í sér- stöku uppáhaldi hjá honum. Afa fannst mjög gaman að ferðast og fór reglulega einn í ferðalög alveg þangað til sumarið 2019. Við höfðum oft áhyggjur af hon- um á þessum ferðalögum en vissum samt að hann gat þetta alveg einn. Afi var mjög duglegur að gefa okkur öllum afmælis- og jólagjafir og páskaegg og hugs- aði alltaf um að við börnin fengjum gjafir og var duglegur að spyrja okkur hvað okkur langaði í. Okkur finnst rosalega skrýtið að geta ekki heimsótt afa lengur í Þorláksgeislann en við vitum að honum líður vel núna með ömmu Helgu hjá Guði. Takk fyrir allt, afi Þorsteinn. Sjáumst seinna. Erna Þórey Sigurð- ardóttir og Eiður Þor- steinn Sigurðsson. Mér er ekki sama hvað verð- ur um mig. Þessi orð hans komu upp í huga minn þegar ég byrj- aði að setja nokkur orð niður á blað til að minnast bróður míns Þorsteins Grétars. Hann var fimm árum eldri en ég og elstur okkar systkina. Við þrjú, Þor- steinn Grétar, Sigríður Gyða og Hafsteinn Garðar, áttum góða æsku hjá þeim Þóreyju Þor- steinsdóttur og Sigurði Sigurðs- syni foreldrum okkar, en þau ráku litla hverfisverslun, Þor- steinsbúð, á Snorrabrautinni í Reykjavík. Samkomulag okkar systkina var nokkuð gott og þar sem hverfið var allt í uppbygg- ingu höfðum við nóg af leik- félögum. Þorsteinn varð snemma frekar hlédrægur og tók ekki alltaf mikinn þátt í leikjum okkar barnanna þar sem sum okkar voru fyrirferð- armeiri en önnur. Faðir okkar var fæddur 1891 og var því 21 árs þegar raunveruleg bílaöld hófst hér á landi, hann hreifst af þessu farartæki og starfaði lengi vel við bifreiðaakstur. Þor- steinn var mikill bílaáhugamað- ur og átti yfirleitt glæsilega og nýlega bíla, þessi áhugi fylgdi honum til síðasta dags. Þor- steinsbúð átti Fordson-sendibíl sem Þorsteinn og fleiri notuðu mikið, síðar eignaðist fjölskyld- an ameríska drossíu af DeSoto- gerð. Herjólfsstaðir í Álftaveri og fólkið þar áttu hlýjan blett í hjarta Þorsteins en þar var hann nokkur sumur í sveit ásamt Tóta vini sínum úr Kefla- vík. Hulduhvammur við Lög- berg (Lækjarbotna) var sum- arbústaður þar sem fjölskyldan átti margar góðar stundir sam- an. Þegar faðir okkar veiktist árið 1950 var Þorsteinn sá eini á heimilinu með bílpróf. Faðir okkar þurfti að fara í höfuðað- gerð til Kaupmannahafnar það- an sem hann kom dauðvona til baka og lést árið eftir. Við þetta áfall varð ekki eingöngu við sorgina að glíma, heldur hrundi efnahagur fjölskyldunnar því að móðir okkar þurfti að greiða persónulega fyrir mestan hluta sjúkrakostnaðarins vegna of góðrar afkomu. Þorsteinn reyndist móður okkar afar vel í þessum erfiðleikum sem og síð- ar er hún veiktist árið 1980 en hann var lengst af okkur systk- inunum í heimahúsum. Móðir okkar hélt fast utan um fjöl- skylduna og tókst að komast í gegnum þá örðugleika sem minnst var á með gífurlegri vinnu og hagsýni. Við hittumst um jól, í afmælum og á fjöl- skylduviðburðum á Snorra- brautinni og er minningin um þá ofarlega í huga margra okk- ar. Þegar Þorsteinn festi ráð sitt og flytur úr heimahúsum bjó hún ein til dauðadags en naut þess ávallt að hafa hann nálægt sér. Ég gæti sagt margt, margt fleira um Þorstein og líf okkar bræðra en æviferill hans er örugglega skráður annars staðar af afkomendum hans. Í byrjun minntist ég á ummæli sem hann lét falla í síðustu heimsókn minni til hans en þá lá hann rúmfastur á sjúkrahúsi og við ræddum um líf okkar og til- veru. Við höfðum talsvert ólíkar skoðanir á framhaldslífi en sam- mála um og tilhlökkun til að það yrðu endurfundir ástvina. Ég þakka Þorsteini fyrir að hafa verið bróðir minn og óska hon- um alls hins besta á hverju því tilverustigi sem hann kann að hafa lent. Sonum hans og fjöl- skyldum sendi ég hugheilar samúðarkveðjur. Góða ferð kæri bróðir. Garðar Sigurðsson. Það er skrítið til þess að hugsa að hann frændi minn og móðurbróðir, Sinni frændi, sé nú farinn. Hann er búinn að fylgja mér allt mitt líf og vera hluti af því alveg frá því að ég man eftir mér. Þegar við vorum börn systkinin á Nesinu þá var hann okkur góður og hugsaði um okkur eins og sín eigin börn, og ég man að hann kom oft með einhverjar gjafir til okkar þegar hann ferðaðist erlendis og á jól- um og afmælum. Sinni giftist frekar seint henni Helgu sinni, og í framhaldinu fæddust þeim hjónum þeir Siggi og Halldór frændur mínir sem voru auga- steinar foreldra sinna, en hann hélt áfram að hugsa um okkur og lét velferð okkar sig alltaf miklu varða. Hann var mikill fjölskyldumaður hann frændi minn. Sinni vann stærstan hluta starfsferils síns í búðinni hennar ömmu, Þorsteinsbúð á Snorra- brautinni, en þar fékkst hann við ýmis störf sem til féllu og ráku þau amma þessa búð með mikilli prýði í áratugi. Seinni helming starfsævinnar starfaði hann hjá Landsbankanum, eða allt þar til hann fór á eftirlaun. Hann Sinni frændi var ekki bara frændi minn heldur var hann vinur minn líka og við höf- um alltaf haldið sambandi og talað saman með reglulegu millibili í gegnum ævina. Und- anfarin 15-20 ár höfum við hist nokkuð reglulega í hádeginu til að borða saman, fyrst gerðum við þetta með pabba sáluga en héldum því áfram eftir að hann hvarf á braut. Ég kallaði þetta oft að fara með þá út til að viðra þá karlana. Og ekki má gleyma að minnast á Þorláksmessu, en við frændurnir ásamt pabba, Gunnari tengdapabba, Þór bróður og Héðni mági mínum höfum haft það fyrir reglu í fjöldamörg ár að hittast á Þor- láksmessu og fá okkur bjór og síðan í skötuveislu á Þrjá frakka. Þetta hafa alltaf verið skemmtilegir hittingar, þótt verulega hafi kvarnast úr þess- um góða hópi undanfarin ár. Ég veit að Sinni hlakkaði alltaf mikið til þessa dags og honum þótti skatan góð og naut sín vel á þessum kvöldum. Sinni var alla ævina haldinn krónískri bíladellu og bílar og allt sem þeim viðkom voru hans einlæga áhugamál, enda kom maður ekki að tómum kofunum þegar bíla bara á góma. Undir lokin, þegar hann gat ekki keyrt sjálfur lengur, þá keyrði ég og það kom fyrir að við heimsótt- um eitthvert umboðið eftir há- degismatinn og settumst kannski inn í og mátuðum nýju módelin. Þetta þótti honum mjög gaman. Sama átti við um flugvélar, hann var ótrúlega fróður um flug og flugvélar, vissi t.d. allt um allar vélarnar sem Icelandair notar í sitt flug, en Sinni var sem ungur maður mikið að spá í að læra flug, en lífið ætlaði honum annan farveg. Ég gæti haldið áfram að rifja upp ævina hans Sinna frænda og okkar samskipti, en ætla að láta þetta nægja í bili og kveð hann með söknuði og trega. Hann var góður maður og heið- arlegur. Takk fyrir allt Sinni minn, við sjáumst seinna. Sigurður I. Sigurgeirsson. Ég á margar góðar minning- ar um Steina móðurbróður minn sem við systkinabörnin hans kölluðum alltaf Sinna frænda áður fyrr. Þegar ég var lítil bjó Steini á Snorrabraut 61 og sam- an ráku þau amma Þórey versl- unina Þorsteinsbúð. Amma bjó á miðhæðinni og Steini hafði herbergi í risinu. Það var spennandi að fá að kíkja inn til hans. Einu sinni man ég að rétt fyrir jól fengum við Nanný frænka mín að koma inn til hans og þar komum við auga á forláta Hans og Grétu konfekt- kassa sem okkur þóttu spenn- andi. Steini sagðist ætla að gefa þá litlum stelpum úti í bæ sem hann þekkti. Við vorum hissa á að hann þekkti aðrar litlar stelpur en okkur, en auðvitað komu þessir kassar úr jólapökk- unum okkar. Steini var dugleg- ur að tala við okkur systkina- börnin og honum fannst gaman að atast í okkur og við höfðum gaman af. Seinna fann Steini Helgu sína og fluttu þau í Árbæjarhverfið. Amma dó í byrjun árs 1981 og fljótlega eftir það lagðist Þor- steinsbúð af og Snorrabrautin var seld. Steini frændi var mikill áhugamaður um bíla. Hann átti marga bíla í gegnum tíðina og hafði yndi af að tala um bíla. Það var honum mikið áfall eftir áramót þegar sjónin var orðin það léleg að hann gat ekki leng- ur keyrt. Ég talaði við Steina frænda nokkrum dögum áður en hann dó og meira að segja þá, orðinn mjög veikur, talaði hann enn um bílaviðskipti við mig. Einu sinni samdi ég við Steina og Helgu um að fá lánað hjá þeim píanó. Dætur okkar vildu læra að spila og ég vissi að píanóið hjá þeim væri ónotað. Í staðinn fyrir píanóið komumst við að samkomulagi um að ég bakaði öðru hvoru smákökur og kleinur og færði þeim. Þetta gekk svona um árabil og kom ég í Árbæinn til þeirra með kökur nokkrum sinnum á ári. Seinna keypti ég píanóið en smákökur færði ég Steina oftast um jólin enda Steini mikill kökukarl, þótt það sæist ekki utan á honum. Við Steini töluðum oft saman síðustu árin. Hann hafði einlæg- an áhuga á að fylgjast með því sem var að gerast hjá ættingj- um hans. Því miður náðist ekki að halda fjölskylduboð í Kjós- inni síðasta sumar eins og að var stefnt og þótti honum það mjög miður. Við hjónin sendum Kristjáni, Sigga, Halldóri og fjölskyldum þeirra innilegustu samúðar- kveðjur. Margrét Sigurgeirs- dóttir (Gréta). Þorsteinn G. Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.