Morgunblaðið - 12.11.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.11.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2020 du í Bílanaust þar færð þú allt fyrir bílinn og meira til“ rafgeymar olíurvarahlutir vetrarvörur 3 7 verslanir um land allt Hafnargötu 52Vatnagörðum 12 104 Reykjavík S. 535 9000 m„Ko Það eru ekki bara fagmenn sem fara núna um þennan inngang Byko í Breiddinni en versl- uninni er skipt upp í nokkur hólf vegna sam- komutakmarkana yfirvalda. Langar biðraðir geta myndast þegar bara 10 viðskiptavinir mega vera í hverju hólfi í einu og ekki bætir úr skák ef það er slydduveður eins og í gær. Þegar þannig viðrar er ekki gott ef grím- urnar blotna og tveir metrarnir geta orðið mislangir á milli sumra. Nú er bara spurning hve lengi þessar fjöldatakmarkanir gilda og hvort sóttvarnalæknir gefur slaka. Morgunblaðið/Árni Sæberg Húka úti í biðröðum í kulda og trekki Alls greindust 26 kórónuveirusmit innanlands í fyrradag. Þar af voru 19 í sóttkví við greiningu, eða 73%. Er þetta mestur fjöldi smita í um átta daga, eða frá 3. nóvember sl. Nú eru 68 sjúklingar á sjúkrahúsi vegna veirunnar, einungis þrír eru á gjörgæslu. Í einangrun eru 542. Þá eru alls 956 í sóttvkí auk þess sem 1.104 eru í skimunarsóttkví. Á upplýsingafundi almannavarna í gær kom fram að útlit væri fyrir að lítils háttar hópsýking hefði komið upp. Þá sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir að uppi væri grunur um að hópsýkingarnar kynnu að vera nokkrar. Að sögn Rögnvalds Ólafssonar að- stoðaryfirlögregluþjóns var viðbúið að upp gætu komið hópsýkingar. „Það er útlit fyrir að lítils háttar hópsýking sé komin upp en þetta er eitthvað sem er alveg viðbúið að geti gerst og hefur verið að gerast í gegnum faraldurinn,“ sagði Rögn- valdur sem kvaðst ekki vera með upplýsingar um hvar sýkingin hefði komið upp. Enginn vöruskortur um jólin Ólafur Stephensen, framkvæmda- stjóri Félags atvinnurekenda, var gestur á upplýsingafundi gærdags- ins. Sagði hann að engar líkur væru á vöruskorti um jólin. Þó tók hann fram að stuðningur ríkisins við fyrir- tækin væri ekki nægur. „Það er búið að taka til hliðar mjög mikla peninga til hjálpar fyrirtækjunum sem við sjáum síðan ekki ganga út, mögu- lega vegna þess að skilyrði fyrir því að njóta viðkomandi stuðnings eru of stíf eða umsóknarferlið of flókið,“ sagði Ólafur og benti á brúarlán máli sínu til stuðnings. Sagði hann að- gerðina misheppnaða. Smitum fjölgaði á ný 26 ný inn an lands smit greindust 10. nóvember 100 80 60 40 20 0 júlí ágúst september október nóv. Fjöldi staðfestra smita innanlands frá 30. júní H e im ild : c o vi d .is 75 26 16 99 86  26 ný smit greindust innan- lands í fyrradag Guðmundur Úlfar Jónsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, segir að yf- irstandandi kjaradeila flugvirkja Landhelgisgæslunnar og Landhelg- isgæslunnar strandi ekki á launum eða of háum kröfum um laun. Hann segir að deilan sé til komin vegna þess að samninganefnd ríkisins standi ekki við tengingu við aðal- kjarasamning Flugvirkjafélagsins. „Deilan er til komin vegna þess að flugvirkjar Gæslunnar hafa í áratugi fylgt aðalkjarasamningi Flugvirkja- félagsins og hefur verið sátt um þá tengingu frá árinu 1983. Það hefur verið stefnuleysi við samningaborðið af hálfu ríkisins og það varð skyndi- lega niðurstaða samninganefndar ríkisins að standa ekki við þessa teng- ingu,“ segir Guðmundur í samtali við Morgunblaðið. Haldi í sinn kjarasamning Flugvirkjar Gæslunnar hófu ótímabundið verkfall í síðustu viku, og hafa fulltrúar flugvirkja og Land- helgisgæslunnar ræðst óformlega við í þessari viku. Guðmundur segir að í stuttu máli sé verið sé að biðja um að flugvirkjar Landhelgisgæslunnar fái að halda í sinn kjarasamning með þeim ákvæð- um sem eru sérstaklega sniðin að flugvirkjun og þeirra atvinnu- umhverfi. „Það má taka fram að launakröf- urnar eru þær sömu og við höfum samið um í hagræðingarskyni á árinu til að mæta atvinnulífinu á þessum erfiðu tímum. Þessar kröfur okkar eru lægri en viðmið lífskjarasamn- ingsins sem samninganefnd ríkisins hefur boðið flugvirkjum í þessum við- ræðum. En við teljum kjarasamning- inn okkar verðmætari en launahækk- anir. Þetta er allt eins fáránlegt og það hljómar,“ segir Guðmundur. Verkfallsbrot Gæslunnar Hann segir að Landhelgisgæslan hafi staðið fyrir verkfallsbrotum og sent flugvirkjum bréf með undirliggj- andi hótunum mæti þeir ekki til vinnu í verkfalli. „Þetta er fordæmalaus framkoma af hálfu stjórnenda ríkis- stofnunar.“ tobj@mbl.is Vilja ekki tengingu við aðalkjarasamning  Óformlegar viðræður við flugvirkja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.