Morgunblaðið - 12.11.2020, Side 68

Morgunblaðið - 12.11.2020, Side 68
68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2020 Eins og með önnur mann-anna hugverk fer frum-tómantísk tónlist FranzP. Schuberts misvel í menn, jafnvel þótt flestir hylli aðalkost þessa skammlífasta (1797- 1828) undrabarns Vínarborgar: lagræna fegurð og fjölbreytni svo af öðrum ber, fyrr og síðar. Enda frumherji ljóðasöngs (samdi yfir 600 lög, þ. á m. óbrotgjarna bálka eins og Die schöne Müllerin, Win- terreise og Schwanengesang) auk ótrúlegs fjölda annarra spilaðra verka – á aðeins 20 árum. Syngjandi melódismi Schuberts flæðir reyndar einnig svo óspart í ósungnum smíðum hans, að hvarfl- ar að hlustanda hvort honum hafi yfir höfuð verið fært að fremja „ljóta“ melódíu. Það – sett á bak- spegilsodd – kann einmitt að vera versti dragbítur hans, einkanlega í samanburði við Beethoven sem leyfði sér oft alls konar grallaraskap eða jafnvel hrana- leika; jafnan þó til að skapa markvissar andstæður við lag- rænan ljúfleika og auka spennu í fram- vindu. Það er kannski helzt þessa sem maður saknar hjá Schubert sem hefndist fyrir að deyja langt fyrir aldur fram, enda hefði hann efalít- ið bætt úr því hefði honum enzt aldur til. Fyrir utan að hafa líka ætlað sér að nema kontrapunkt hjá einum færasta raddfærslu- fræðingi Vínar 1828. Úr einleiksgrein píanósónatna standa eftir liðlega tuttugu undur- falleg verk eftir Schubert sem flest hafa þennan óviðjafnanlega andmjúka draumtöfrablæ er hrífur enn unnendur hans lengst upp úr skónum, jafnvel þótt sumir píanista seinni tíma hafi stundum gert sér far um að „drama- tísera“ þau hér og þar með t.a.m. ýkt- um styrkbrigðum, skraufþurru stacc- ato og öðru eftir því – líkt og til að skyggnast fram á þau efri ár tónskáldsins sem aldrei urðu. Meðferð Eddu Erlendsdóttur á sónötunum þrem frá 1817 er síður en svo mörkuð af slíkri (ugglaust vel meintri) viðleitni. Áferðin er almennt elskulega mjúk og innileg, með hófstilltum en því meira sann- færandi rúbatóum er ljá hljóm- borðssöng Schuberts formræna mælsku við hæfi. Látlaus mótunin hyglar jafnframt undir niðri sér- stæðu einkenni höfundar að þræða óvenjuvíðförla stigu tónteg- undaskipta; á tilurðartíma mörg- um til ama þótt nú þyki augljóst merki um frjóa sköpun og til- raunaþörf. Um upptökuna segir diskheftið fátt annað en „tekið upp í París“ og hvergi af hverjum. En ef rétt er til getið gæti leikurinn hafa verið hljóðritaður af heimilisflygli píanistans þar syðra með húsbónd- ann Olivier Manoury við upp- tökutækin. Enda ber ómvistin keim af notalegri stofuheyrð – sem reyndar á býsna vel við tónsmíðar er voru í öndverðu einmitt hugs- aðar sem „Hausmusik“ í góðra vina hópi. Hér fer eyrnayndi af efstu gráðu. Og vonandi móðgar það engan þótt maður játi að hafa líka lagt það á einkamælistiku vöggu- söngs undir svefninn á lægsta styrk, sem prófraun fyrir endur- nærða morgunvakningu í niður- drepandi Covid-krísu. Hverri það og tókst – með bravúr! Morgunblaðið/Ómar Píanóleikarinn „Hér fer eyrnayndi af efstu gráðu,“ skrifar gagnrýnandinn um nýjan disk Eddu Erlendsdóttir, þar sem hún leikur sónötur Schuberts. Geisladiskur Edda Erlendsdóttir: 3 Schubert píanósónötur bbbbn Schubert: Three sonatas from 1817. Edda Erlendsdóttir píanó. Teknar upp í París jan. 2020. Útg.: ERMA 200.010. Lengd: 68:19. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Sungið á hljómborð Spennusögur eiga sér gjarnanfyrirmyndir í raunveruleik-anum en eru umfram alltskáldsögur. Það á ekki við um glæpasöguna Grafin undir gisti- húsi, sem er í grunninn sönn og spennandi frásögn Ryans Greens af ótrúlegum brota- ferli Dórótheu Pu- ente í Bandaríkj- unum. Heimili, þar sem óregla ræður ríkjum, er ekki heppilegur staður fyrir börn og eftir því sem ómegðin er meiri má ætla að uppeldið versni með hverju barninu sem bætist við. Oft er bent á vandamál í þessa veru og reynt að bregðast við eftir því sem aðstæður leyfa en úrræðin voru allt önnur og verri, þegar Dóróthea, sem sagan hverfist um, fæddist 1919 í Kaliforníu, sjötta barnið af sex. Engum er hollt að alast upp við barsmíðar og kynferðislegt ofbeldi samfara mikilli fátækt og hungri oft og tíðum. Hvað þá að vera á mun- aðarleysingjaheimilum og mismun- andi fósturheimilum um árabil án um- hyggju, kærleika og ástar. Slíkur jarðvegur fóstraði Dórótheu og hún bar þess merki alla tíð. Sumir gefast upp, þegar mótlætið er algjört, en aðrir snúa vörn í sókn, tvíeflast og finna leiðir til betra lífs. Lög og regla þvælast ekki fyrir Dóró- theu og eftir því sem aðferðir hennar gefa meiri ávöxt þeim mun stórtæk- ari verður hún. Mikið vill meira og græðgin stjórnar för. Grafin undir gistihúsi rifjar upp ótrúlega sögu í mjög svo spennandi og vel skrifaðri frásögn í einni af síð- ustu þýðingum Gísla Rúnars heitins. Efnið er áhugavert, einbeittur brota- viljinn leynir sér ekki og ekki síður er áhugavert að lesa um viðbrögð yfir- valda á langri leið glæpa, sem lauk ekki fyrr en fyrir um 30 árum. Stund- um er sagt að raunveruleikinn sé besti skáldskapurinn og sannleik- urinn í umræddri bók er lyginni lík- astur. Ryan Green „Grafin undir gistihúsi rifjar upp ótrúlega sögu í mjög svo spennandi og vel skrifaðri frásögn.“ Sannleikurinn er lyginni líkastur Spennusaga Grafin undir gistihúsi bbbbn Eftir Ryan Green. Gísli Rúnar Jónsson þýddi. Bókaútgáfan Ugla 2020. Kilja, 174 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Óþreyjufullir aðdáendurAuðar Övu geta glaðstákaflega í þessu bóka-flóði því nú er þar að finna nýja skáldsögu eftir Auði sem skilur engan eftir ósnortinn. Um er að ræða sannkallaðan óð til einnar af mikilvægustu stéttum mannkynsins, óð til ljósmæðra. Bókin fjallar um ljósmóður, eina af mörgum í ætt hennar, sem býr í íbúð sem hún erfði eftir aðra ljós- móður, einstæða ömmusystur sína. Söguhetjan hefur lítinn áhuga á að breyta því sem var og lifir og hrærist í um- hverfi ömmu- systur sinnar en hreyfir þó við pappírum sem þar er að finna, þremur hand- ritum að bókum sem verða eins og nokkrar hliðarsögur við bókina sem hér um ræðir, Dýralíf. Ljósmæðrunum báðum er tíð- rætt um ljósið og myrkrið enda söguhetjan okkar komin af ljós- mæðrum, og jafnvel einum -föður, langt aftur í ættir, en á foreldra sem reka útfararþjónustu. Þannig mætast dauðinn og lífið í aðal- persónu Dýralífs sem veltir hvoru tveggja fyrir sér. „Til þess að geta dáið þarf mað- urinn fyrst að fæðast.“ Bókin er með þeim allra feg- urstu sem ég hef lesið, ef svo má að orði komast, enda hverfist bókin í kringum fegursta orð tungumáls- ins, orðið ljósmóðir. Þá snýst um- fjöllunarefnið að stórum hluta um það fallegasta sem hægt er að hugsa sér, nýtt líf sem hefur ekki spillst af heiminum í kringum það. Persónur bókarinnar eru hver annarri áhugaverðari en Auður leyfir þó lesandanum ekki að vita of mikið um hverja persónu og jafnvel of lítið. Þannig vantar ör- litla dýpt í þeim efnum og lesand- inn er skilinn eftir með ótal spurn- ingar. Þrátt fyrir að eftirvænting fyrir því sem gerist næst vakni ekki endilega við lesturinn þá langar lesandann sífellt í meira, fleiri blaðsíður, einmitt vega fyrr- nefndrar fegurðar. Þrátt fyrir að Auður fjalli um ýmsa erfiðleika í bókinni, og líf sem er sannarlega ekki dans á rósum, þá lætur hún lesandanum líða vel og skilur hann eftir með trú á það góða í veröld- inni. Von og vellíðan er einmitt það sem heimsbyggðin þarf á að halda akkúrat núna og því kemur Dýralíf eins og kölluð. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Auður Ava „Bókin er með þeim allra fegurstu sem ég hef lesið […] enda hverfist bókin í kringum feg- ursta orð tungumálsins …“ Óður til ljósmæðra Skáldsaga Dýralíf bbbbn Eftir Auði Övu Ólafsdóttur. Benedikt, 2020. Innbundin, 208 bls. RAGNHILDUR ÞRASTARDÓTTIR BÆKUR Himinn Hettupeysa kr. 6.990.- Himinn Jogging buxur kr. 5.990.-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.