Morgunblaðið - 12.11.2020, Side 54

Morgunblaðið - 12.11.2020, Side 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2020 Um er að ræða glæsilega villi- bráðarveislu sem samanstendur af köldum forréttum, heitum aðal- réttum og eftirréttum. Varan af- hendist köld í fallegum umbúðum með leiðbeiningum um meðferð og upphitun. Kaldur forréttaplatti Blóðbergsgrafin gæs með aðal- bláberjasósu, heitreyktur skarfi með gráðostafrauði, hrein- dýraterrine með títuberjasósu, gæsalifrarmús með trönuberjum og rauðlaukssultu, léttreyktur svartfugl með sesam-vinaigrette, andasalat með perum, hrefnusalat með trufflum, þurrkuð hrein- dýrapylsa. Aðalréttur og meðlæti Gæsabringur, svartfuglabringur, dádýrafilet, villisveppasósa, bakað rótargrænmeti, beikonkartöflu- mús, eplasalat, melónu- og mangó- salat, berjasoðnar perur og sperg- ilkálssalat. Eftirréttur Bláberja-, sólberja- og rabarbaraterta. Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 514-8000 eða á veit- ingar@grand.is Villibráðar- veisla heim Nú þurfa villibráðarunnendur ekki að örvænta leng- ur þótt hlaðborðið fræga hjá Úlfari Finnbjörns á Grand hóteli hafi verið blásið af því nú er hægt að panta veisluna heim. Villibráð eins og hún gerist best Það eru fáir jafn flinkir og fróðir um meðhöndlun villibráðar og Úlfar Finn- björnsson matreiðslumaður á Grand hóteli. Nú er hægt að fá hlaðboðið hans beint heim. Það er eldhúsgyðjan María Gomez á Paz.is sem á heiðurinn af upp- skriftinni og hún segir þessa snúða vera með þeim betri sem hún hafi bakað. Það er því fátt annað að gera en að draga fram hrærivélina og skella í nýbakaða snúða. Danskir kanilsnúðar Snúðadeig 35 g pressuger (fæst í mjólkurkæli verslana) 3 dl ylvolg nýmjólk 1 msk sykur 1 tsk kardimommur (hægt að nota í duftformi eða kardimommudropa) 1 tsk vanilluextrakt eða vanilludropar 1 dl grísk jógúrt 1 egg 150 g Bertolli-smjör 1 tsk fínt borðsalt 650 g hveiti Fylling 175 g Bertolli-smjör 3 msk kanill 50 g sykur 100 g púðursykur 1 msk kartöflumjöl Annað 1 egg til penslunar Snúðadeig Byrjið á að velgja mjólkina í skál í örbylgjuofni svo hún sé yl- volg. Setjið næst sykur, vanilludropa, kardimommur og ger út í hana og látið standa í 5 mín. eða lengur. Bætið svo grískri jógúrt og eggi út í og hrærið vel saman með gaffli eða písk. Setjið svo helming af hveiti eða 325 g og salt saman í hrærivélar- skál og hrærið saman létt. Stillið nú á hnoð með króknum og hellið blautefnunum út í hræri- vélarskálina með hveitinu. Bætið smjörinu smátt og smátt við meðan deigið blandast en hér er það mjög blautt. Nú má bæta rest af hveitinu við eða hinum 325 g og hnoða í eins og 3-5 mínútur eða þar til deigið er búið að hringa sig um krókinn. Látið hefast á volgum stað, best í gluggakistu yfir miðstöðvarofni í eina klst. Fyllingin Hrærið smjörið upp og bætið svo kanil og sykri saman við ásamt kartöflumjölinu og hrærið allt vel saman og leggið til hliðar. Snúðagerð Skiptið deiginu í þrjá jafna hluta. Fletjið svo hvern þeirra út í þunnan ferning eða eins og ca A4- blað að stærð. Smyrjið þunnu lagi af fyllingu yfir allt deigið, passið að hún skiptist jafnt á þrjá deighluta. Svo í stað þess að rúlla upp eins og með hefðbundna kanilsnúða legg ég deigið bara inn að næstum miðju og svo þannig aftur svo það sé svona flatt. Skerið í snúða og raðið á bök- unarplötu. Megið leyfa þeim að hefast aftur undir stykki í 10 mín. en þarf ekki. Penslið svo með hrærðu eggi. Bakist við 200°C blástur í 15-17 mínútur. Dásemdarsnúðar að dönskum hætti Sumar uppskriftir eru svo girnilegar að maður bókstaflega ræður ekkert við sig. Þessi uppskrift er í þeim flokki og sjálfsagt margir sem geta ekki beðið eftir að prufa að baka þessa dásamlegu dönsku kanilsnúða. Ljósmynd/María Gomez Ennþá betri Það þekkja ef- laust flestir kanil-giffla sem hægt er að fá í rauðu pok- unum og er svo gott að eiga inni í skáp ef gesti ber að garði. Þessir eru eins og þeir, nema bara svo miklu betri. Piparkökukúlur kallast þær og eru það heitasta heitt í sælgæt- isgeiranum um þessar mundir. Um er að ræða piparkökur sem búið er að hjúpa með dökku, hvítu eða hefðbundnu súkkulaði og útkoman er alvarlega ávana- bindandi. Piparkökukúlurnar hafa fengið frábærar viðtökur að sögn for- svarsmanna Til hamingju en sér- fræðingar í sælgætismálum (sem eru þó nokkrir hér á landi) segj- ast vart muna viðlíka viðtökur á sælgæti. Eins og einn viðmælanda mat- arvefjarins hafði á orði smakkast piparkökukúlurnar eins og jólin og skyldi því enginn undrast vin- sældir þeirra enda landsmenn farnir að þrá aðventuna með öll- um sínum kósíheitum og góðgæti. Hættulega góðar Piparkökukúlurnar eru sagðar hættulega góðar. Súkkulaðihúðaðar piparkökur slá í gegn Of gott til að vera satt kann marg- ur að segja en þetta er engu að síður í boði þar sem nýtt fyrirtæki, Private Dining, býður nú viðskipta vinum að fá kokka og þjóna í heimahús af mörgum af þekktustu veitingastöðum landsins þar sem eldað er fyrir viðskiptavini og þeim þjónað til borðs. Matreiðslumaður mætir um klukkutíma áður en gestirnir mæta og byrjar að elda. Þjónn leggur á borð, ber fram matinn, lýsir réttunum og sér til þess að fullkomna upplifunina. Til að toppa herlegheitin er gengið frá eldhúsinu og matarborðinu þannig að ekki þarf að hafa neinar áhyggjur og gestgjafinn getur not- ið kvöldsins með gestunum. Að auki notar starfsfólk grímur og hanska og gætt er vel að öllum sóttvörnum. Ljóst er að hér er kominn spennandi kostur fyrir matgæð- inga sem ekki hefur verið í boði hingað til. Heimasíða Private Din- ing er privatedining.is. Fáðu kokkinn heim

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.